Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986 Listahátíð: Flamenco-flokkurinn á Broadway í kvöld Slmamynd/Skapti Hallgrímsson Akureyri. A kjörstað íblíðunni á Akureyri KJÖRDAGUR heilsaði Akureyringum í sínum hádegi er blaðamaður Morgunblaðsins leit þar fegursta búningi. Milt veður var í gærmorgun við. Ungir sem gamlir mættu á staðinn - sumir og skömmu fyrir hádegi fór sólin að skina, reyndar of ungir til að kjósa eins og sá litli þannig að ekki ætti veðrið að fæla fólk frá fremst á myndinni - en hann var þó í fylgd með kjörstað. Enda var talsverður straumur í Odd- fullorðnum. eyrarskólann, þar sem kosning fer fram, fyrir Fiskmarkaðurinn í Bretlandi: íslenski fiskurinn er lélegri nú en áður — Slæmur fiskur fælir fólk frá fiskáti, segir Aðalsteinn Finsen, forstjóri Brekkes Ltd. í Hull YFIRLITSSÝNING Karls Kvar- an I Listasafni íslands verður opnuð á Listahátíð Reykjavíkur kl. 15 í dag. í Iðnó kl. 16 verður dagskrá um Doris Lessing, breska rithöfundinn sem er gestur Listahátíðar. Lessing nmn flylja fyrirlestur í Iðnó, sem tengist þessari dagskrá. í kvöld verður sýning spænska Flamenco-flokksins undir stjóm Javier Agra á Broadway. Annað kvöld kl. 20.30 sýnir Flamenco- flokkurinn síðari sýningu sína og þá í Þjóðleikhúsinu. Flamenco-list- in á djúpar rætur í menningu Spán- ar. Þessi list sameinar söng, dans, INNLENT Ekkií fyrsta skipti MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi _ leiðrétting frá Steinari Berg ísleifssyni: „I frétt Morgunblaðsins í dag, laugardaginn 31. maí, sem birt er undir fyrirsögninni „Kristján syng- ur inn á laserdisk" kemur fram að hér sé í fyrsta skipti um að ræða útgáfu á hljómplötu, snældu og laserdisk samtfmis. Vegna þessa vil ég taka fram að þijár síðustu plötur hljómsveitar- innar Mezzoforte, Mezzoforte 4 (Surprise, Surprise), Yfirsýn (Obs- ervation) og Rising hafa allar jafn- framt verið gefnar út á laserdiskum á árunum 1983, 1984 og 1985. Hafa þessar útgáfu átt sér stað í öllum löndum Evrópu og Japan auk þess að vera fáanlegar á íslandi. Á næstu vikum er svo væntanleg á laserdisk til landsins yfirlitsplata á ferli Mezzoforte „The Saga so Far“ en útgáfa á hljómplötu og snældu átti sér stað fyrir síðustu jól hér á landi. Ástæða tafar þessar- ar útgáfu á laserdiski er sú að nú er a.m.k. 6—8 mánaða bið á fram- leiðslu laserdiska eftir að upptökur era fullbúnar." tónlist og skáldskap með einstæð- um hætti að sögn kunnugra. Aðal- dansmær flokksins, Rosa Duran, er mjög þekkt í sínu heimalandi og hún var ekki nema fimm ára þegar fyrst var ijallað um dans hennar í dagblöðum í Madrid. Dagskrá Listahátíðar heldur svo áfram daghvem, til 17. júní. Varalit klínt á borgar- sljórabílinn SNEMMA á laugardagsmorgun barst lögreglunni tilkynning um það, að búið væri að útbia bíl borgarstjórans í Reylyavík. Ekki var um hádegi í gær Jjóst hver það gerði. Það var um klukkan 7 um morg- uninn, sem lögreglan kom að bíl borgarstjórans fyrir utan heimili hans. Kom þá í ljós að allir gluggar bílsins höfðu verið útbíaðir með varalit og stóð á þeim X-V. TALSVERT hefur verið um það undanfama daga, að gæði fersks físks héðan, sem seldur hefur verið í HuII og Grimsby, hafí verið í minna lagi. Þá hefur mikið framboð á fiski héðan í vikubyij- un valdið verðlækkun. Nokkuð algengt er að ekkert af fískinum fari í fyrsta flokk og hefur meðal- verð úr gámi farið niður í 30 krón- ur á kfló af þorski og ýsu. Valdimar Sveinsson VE seldi á fimmtudag 76,1 lest, mest þorsk og ýsu í Hull. Heildarverð var 4,2 millj- ónir króna, meðalverð 55,38. 80% aflans fóra í annan flokk og 20 í þriðja. Á miðvikudag vora seldar alls 165,2 lestir úr gámum, mest þorskur og ýsa. Heildarverð var 7,6 milljónir, meðalverð 46,23. Rétt er að taka það fram, að nokkuð var af lúðu í þessum afla. Hún seldist á rúmar 80 krónur kílóið og dró meðalverðið nokkuð upp. Dæmi vora um það að meðalverð úr gámi færi niður 130 krónur. f flestum tilfellum fór ekkert af fiskinum í fyrsta flokk. Megnið fór í annan, en í einstaka tilfellum fóra allt að 90% af fiski úr einum gámi í þriðja flokk. Á fimmtu- dag var selt úr nokkram gámum og var útkoman þá betri vegna lítils framboðs og meiri gæða. Meðalverð var frá 55 til 77 krónur. „Þegar komið er fram á þennan tíma, fiskurinn nýbúinn að hrygna og hlýnar í sjónum, hefur gæðum netafisks hrakað mjög undanfamar tvær til þijár vikur og það endur- speglast í verðinu," sagði Aðalsteinn Finsen, framkvæmdastjóri Brekkes Fishsales í Hull. „Markaðurinn er góður, þegar fiskurinn er í lagi. Við vorum að selja úr gám af trolibát frá Vestmannaeyjum fyrir 77 krónur á kíló. Þó má benda á það, að við eram hræddir við þessa þróun í gæðum, því almennt hafa gæðin á gámafiskinum verið í lagi. Morgunblaðið/Oli K. Magnússon Einar Heimisson nýstúdent úr MR og verðlaunahafi fyrsta fram- lags úr nýstofnuðum fslenskusjóði, ásamt ömmu sinni, Önnu Bjarnadóttur, sem átti 70 ára stúdentsafmæli sama dag og Einar útskrifaðist og er jafnframt fyrsti kvenmaðurinn sem dúxar á stúdentsprófi hérlendis. 50 ára stúdentar Menntaskólans í Reykjavík: Stofnuðu verðlaunasjóð til eflingar íslenskri tungu VIÐ skólaslit Menntaskólans í Iteykjavík, sem fram fóru sl. fimmtu- dag, stofnuðu 50 ára stúdentar skólans sérstakan verðlaunasjóð til eflingar islenskri tungu. Stofnfélagar útskrifuðust árið 1936, þá alls 46 talsins en af þeim eru 26 nú á lífi. Veitt var í fyrsta skipti úr sjóðnum við skólaslitin nú og hlaut Einar Heimisson viðurkenninguna fyrir lofsverðan árangur í íslensku á stúdentspróf- inu. Einar sagðist, í samtali við blaðamann, hafa þurft að leggja mikið á sig við námið og halda vel á spöðunum. Hann sagðist starfa hjá Skipaútgerð ríkisins í sumar og færi að hausti til Þýskalands þar sem hann ætlaði að Ieggja stund á þýskunám næsta vetur. „Ég hef ekki enn gert upp við mig hvað ég vil endanlega læra, en stefni líklega á húmaniskar grein- ar. Að öðram fögum ólöstuðum, hefur íslenska verið mitt uppá- haldsfag og finnst mér að vegur hennar mætti vera ennþá meiri og í framhaldi af því vil ég koma á framfæri þökk til allra þeirra öndvegiskennara sem ég hef notið í MR. í raun er ótrúlegt hversu geysiöflugu menntastarfi er haldið uppi í skólanum miðað við hversu lítinn áhuga stjómvöld virðast hafa á starfi skólans. Þegar fólk neyðist til að kenna í gömlum fatahengjum og öðram skúmaskotum, ber það svo sannarlega ekki vitni um áhuga stjómvalda," sagði Einar. Anna Bjamadóttir er amma Einars og þriðji elsti núlifandi stúdent landsins. Hún er að verða 89 ára gömul og átti hún 70 ára stúdents- afmæli þegar bamabam hennar útskrifaðist sl. fimmtudag. Anna er jafnframt fyrsta konan hér á landi, sem varð dux á stúdents- prófi. Tengsl Önnu við skólann era orðin löng. Faðir hennar, Bjami Sæmundsson, var kennari við skól- ann og sjálf kenndi hún ensku við skólann árin 1924—1931. Eftir stúdentsprófið hóf Anna íslensku- nám í Háskóla fslands og síðar tók hún BA próf i ensku frá Lundúnar- háskóla. Hún hefur samið nokkrar kennslubækur sem m.a. hafa verið notaðar í skólum. Einar hlaut fleiri verðlaun þegar hann setti upp hvíta kollinn og fékk afhenta ágætiseinkunn sína. Hann hlaut gullpennann að þessu sinni, en gullpennasjóði bárast þijár rit- gerðir og var það samdóma álit dómnefndar að pennann skyldi hljóta höfundur með dulnefnið Hlymdælingur, er skrifaði um nokkrar smásögur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar. Þá fékk Einar, ásamt öðram nemanda, bókarverð- laun úr Minningarsjóði Jóhannesar Sigfússonar yflrkennara, sem veitt eru fyrir hæstu samanlagða árs- einkunn og prófseinkunn i sagn- fræði á stúdentsprófl. Sendiráð Dana veitti verðlaun fyrir hæstar einkunnir í dönsku og var Einar einn verðlaunahafa auk þess sem honum hlotnaðist viðurkenning frá skólanum fyrir eina af hæstu ein- kunnum á stúdentsprófi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.