Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1986
45
i
Úr viðgerðarstofu. Lovísa Guðmundsdóttir að störfum við handrita-
viðgerð.
metra filmu og síðan á svokallaðar
fisjur, sem eru mjög handhægar."
Mikið af bleki gufar
hreint og beint upp
Finnbogi sýndi blaðamanni nokk-
ur bindi gamalla blaða. Mátti sjá,
að blöðin eru orðin nokkuð velkt
og stökk en þau sem filmuð hafa
verið, eru ekki höfð til afnota, held-
ur fá menn filmur af þeim til lestrar
í lesvélum. Hann sagði aðspurður
að búið væri að filma íslenzk dag-
blöð til ársins 1940, og eins frá síð-
ustu árum, en brýnt væri að koma
þeim öllum á fílmur hið fyrsta því
dagblöðin væru mjög viðkvæm. Auk
þess að pappírinn er lélegur gerði
hið stóra brot þeirra það að verkum
að þau rifnuðu auðveldlega.
Finnbogi sýndi blaðamanni enn-
fremur viðgerðarstofu handrita i
Þjóðskjalasafni. Hún þjónar báðum
söfnunum, Landsbóka- og Þjóð-
slq'alasafni, en þau eru sem kunnugt
er í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Forstöðumaður hennar er Áslaug
Jónsdóttir. Áslaug vann við lag-
færingu á bréfum frá árinu 1733,
er okkur bar að garði, og sagði,
að þrátt fyrir að bréfin væru illa
farin væri auðvelt að gera við þau
þar sem á þeim tíma hefði verið
notaður góður pappír og ennfremur
gæðablek, og því unnt að lengja
lífdaga skjala með réttri meðferð.
Aftur á móti væri aðra sögu að
segja af pappír nútímans og reynd-
ar einnig af því bleki sem nú væri
notað. Mikið af því hreint og beint
gufaði upp á skömmum tíma.
Áslaug sagði m.a. aðspurð, að
henni væri ekki kunnugt um að
neinar opinberar ráðstafanir hefðu
enn verið gerðar hérlendis til að
fyrirbyggja frekari „slys“ og auka
geymsluþol ritaðs efnis. Aftur 4
móti vissi hún, að t.d. á Norðurlönd-
um hefðu verið gefnar út reglugerð-
ir varðandi gæði opinberra gagna.
Aðspurð um, hvort t.d. löggiltur
skjalapappír hérlendur væri ekki
vandaðri en gengur og gerist með
annan pappír sagði hún að sýru-
rannsóknir á honum gæfu engin
fyrirheit um að hann væri betri en
annar pappír á markaðnum.
Rit sem rnolna að lokum
hrannast upp í veröldinni
Finnbogi sagði, að umræðan um
sýrupappírinn á ráðstefnunni í Vín-
arborg hefði síðast en ekki sízt snú-
ist um það að helja þyrfti nú þegar
mikinn áróður fyrir notkun sýru-
lauss pappírs. Meðan ekki hefði
tekist að snúa þar vöm í sókn
hrönnuðust upp rit um víða veröld
sem myndu að lokum molna í hönd-
um manna. Hann sagði, að m.a.
hefði markaðsstjóri pappírsfyrir-
tækis í Boston lýst á raðstefnunni
vaxandi framleiðslu varanlegs
pappírs með aðferðum sem ekki
ættu að vera hættulegar umhverfi
manna.
Finnbogi var að lokum spurður,
hvort farið væri að huga að afsýr-
ingu bóka og annarra ritverka hér-
lendis. Hann sagðist ekki geta sagt-
um það á þessu stigi, hvort til slíkra
aðgerða kæmi í bráð. Geysimikinn
og dýran búnað þyrfti til þess og
afsýring nú aðeins á frumstigi er-
lendis. Aftur á móti væri full ástæða
til að hraða eins og unnt væri fílmun
blaða og tímarita, en það væri það
efni sem fyrst skemmdist af þessum
völdum.
Viðtal: Fríða Proppé
Ljósmyndir: Júlíus Siguijónsson
Hjartans þakkir til barna, tengdabarna og fóst-
-ursonar sem heimsóttu mig í tilefni 93 ára
afmœlis míns nú í mai. Þetta varÖ mér mikill
gleÖidagur og minnti mig á liÖin ár þegar
börnin voru ungogflest heima.
Eins og svo oft áöur var nú spjallaö saman,
hlegiÖ og sungiÖ fram á kvöld í gamla húsinu
á Olkeldu sem ég er búin aÖ eiga heima í í
71 ár.
í rceÖu sem fóstursonur minn, Kristján GuÖ-
bjartsson, hélt viö þetta tcekifæri minntist hann
hlýjum oröum manns mins og fósturfööur síns,
Gisla ÞórÖarsonar.
I sumar eru liÖin 100 ár frá fceÖingu hans,
hann lést áriÖ 1962.
Þá minntist Kristján einnig annarra látinna
ástvina úrfjölskylduhópnum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Vilborg Krístjánsdóttir,
Ölkeldu,
Staðarsveit.
/■%burourinn
sem gerir gæfumuninn
Þrjár gerðir af tilbúnum áburði
í hentugum umbúðum:
Trjákorn fyrir trjágróður Kálkorn fyrir matjurtagarða Graskorn fyrir grasflatir
(Ö) >
^^SmtSSSSumSSií^11'
V
ÁBURDARygnKSMHaaA PmastNS S&SÉÉ&
Ágæti
Alaska
Bensínstöðvar ESSÓ
Blómabúðin Burkni
Blómaval
BYKO
Áburðurinn er seldur um allt land.
Sölustaðir í Reykjavík og nágrenni eru:
Garðshorn
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Mörk
Græna höndin
Kaupfélag Hafnfirðinga
Mikligarður
MR búðin
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Sölufélag garðyrkjumanna
ÁBURÐARVERKSMKXJA RÍKISINS
Metsölublað á hverjum degi!