Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ 1986
61
Kjartan Jónsson skrifar
7. grein
Efst á bausfi
íKenýu
Ljósmyndir/Kjartan Jónsson
Föstumánuður múhameðstrúarmanna stendur nú yfir. Hann er
helgasti tími ársins hjá þeim og þá eiga þeir að íhuga trú sína
meira en venjulega. Hér gjörir múhameðstrúarmaður bæn sína
en það á hann að gera fimm sinnum á dag.
10 hafa drukknað
vegna flóða
í mars þegar rigningartíminn
nálgast, færist líf í landsmenn og
þeir fyllast eftirvæntingu. Bænd-
ur fara að undirbúa akrana og
kaupa útsæði. Það er alltaf spenn-
andi að vita hvort rigningin komi
eða hvort þurrkaár fari í hönd.
Fyrsta rigningin vekur alltaf
mikinn fögnuð. Eitt sinn sá ég
unga pilta sem höfnuðu tilboði
um að komast undir þak þegar
skýfallið kom því þeir vildu njóta
þess að fínna rigninguna og verða
holdvotir.
En of mikið má af öllu gera.
Nú upp á síðkastið hefur rignt svo
óskaplega í höfuðborginni, Na-
irobi, að a.m.k. 10 manns hafa
drukknað. í dalverpum í borginni
mynduðust fljót í mestu rigning-
unum, sem tóku með sér hús og
bíla. Svo slæmt var veðrið eitt
kvöldið nú í vikunni, að nokkrir
kunningjar mínir sem brugðu sér
í afmæli í öðru hverfí í borginni
urðu að láta fyrirberast hjá af-
mælisbaminu um nóttina vegna
flóða, og fjölskylda, sem skrapp
í kvikmyndahús, varð að gista á
hóteli um nóttina. Regnið mældist
110 mm og enn er spáð svipuðu
veðri í kvöld eða annað kvöld.
5 daga vinnuvika
Vinsældir Daniels Arap Moi
forseta jukust án efa mikið 1.
maí síðastliðinn þegar hann lýsti
því yfír í aðalræðu dagsins, að
héðan í frá væri 5 daga vinnuvika
lögboðin í landinu. Þetta sagði
hann frammi fyrir tugþúsundum
þegna sinna á hinum nýja og
glæsilega Nyayo-íþróttaleikvangi
í Nairobi. Að vonum vakti þetta
mikla gleði á meðal launþega.
Hann sagði að þetta ætti að
auðvelda mörgum heimilisfeðrum
sem stunda vinnu fjarri heimilum
sínum að ferðast heim og dvelja
í faðmi íjölskyldunnar um helgar.
Hann benti einnig á að þetta gerði
aðventistum jafnt undir höfði og
öðrum kristnum þegnum þannig
að nú væri þeirra helgidagur frí-
dagur eins og sunnudagurinn.
5 daga vinnuviku var komið á
fyrir nokkrum árum hjá opin-
berum starfsmönnum, en nú hefur
skrefíð verið stigið til fulls og allir
landsmenn eiga nú að sitja við
sama borð hvað þetta varðar, þótt
óralangt sé í land að launajafnað-
ur hafí náðst.
Atvinnurekendur eru ekki eins
ánægðir og launþegar og víst er
að erfíðara verður að fá fastráðn-
ingu hér eftir en hingað til og að
í skjóli atvinnuleysis, sem er mjög
mikið, verði farið illa með dag-
launamenn. Reynslan á einnig
eftir að leiða í ljós hvort þetta
skref var nægilega vel undirbúið
og því raunhæft.
Þetta atriði úr samtíð okkar
sýnir betur en margt annað hve
Afríka er langt á eftir okkur
Evrópubúum á mörgum sviðum.
Afhjúpun neðan-
jarðarhreyfingar
Það skiptast á skin og skúrir í
stjómmálum landsins eins og
annars staðar. Undanfamar vikur
hafa mikil blaðaskrif verið um
afhjúpun leynilegs félagsskapar,
sem kallaður er „Wakenya" eða
„Kenýumenn“. Því er haldið fram
að markmið hans hafí verið að
steypa stjóm landsins. Mikla at-
hygli hefur vakið að nokkrir há-
skólakennarar og stúdentar hafa
verið handteknir og yfírheyrðir
vegna þessa máls og sumir jafnvel
hlotið fangelsisdóma, allt að fjór-
um árum. Akæmvaldið sakar
Wakenya um að aðhyllast komm-
únisma og hafa dreift andken-
ýskum áróðri.
Svo virðist sem hér sé á ferðinni
enn eitt dæmið um þann þjóð-
flokkaríg, sem víða kraumar undir
yfírborðinu. Það er alkunna að
margir af kikuyu-þjóðflokknum,
stærsta þjóðflokki landsins, una
því illa að forsetinn skuli vera af
öðmm þjóðflokki. Yomo Keny-
atta, fyrsti forseti landsins, var
kikuyu-maður og var einn af leið-
togum andspymuhreyfíngarinn-
ar, sem barðist fyrir sjálfstæði
landsins undan yfirráðum Breta.
Skæmliðamir Mau Mau, sem
frægir urðu, vom flestir af kikuy-
þjóðflokknum. Mörgum kikuy-
mönnum fínnst að það sé þeim
að þakka að Kenýa sé frjálst land
og því ekki nema sanngjamt að
þeir fari með stjóm landsins og
njóti nokkurra forréttinda.
Stjómvöld óttast því að erlend
öfl, t.d. kommúnistaríki, notfæri
sér þetta ástand og styðji við
bakið á andspymuhreyfíngum.
Eins og kunnugt er, er eins flokks
kerfí í landinu og allir stjóm-
málaflokkar aðrir en flokkur for-
setans em bannaðir, enda er hætt
við að tilvera margra flokka
myndi auka vemlega á þjóðflokk-
aríginn og auka á sundmngu í
landinu.
Svo virðist sem að í háskólanum
sé gljúpur jarðvegur fyrir kenn-
ingar, sem em hættulegar að
mati yfírvalda og það líður varla
það skólaár að ekki séu einhver
vandræði í þessari æðstu mennta-
stofnun landsins.
Ný kosningalög
Þvf hefur nýlega verið lýst yfír
að árið 1988 verði leynilegar
kosningar afnumdar í þing- og
sveitarstjómarkosningum. Hið
nýja fyrirkomulag gerir ráð fyrir
að kjóscndur myndi röð að baki
þeim frambjóðanda, sem þeir
hyggjast styðja í stað þess að
krossa við nöfn þeirra á kosninga-
seðli. Fái enginn frambjóðend-
anna meirihluta, verður að endur-
taka kosninguna. Þetta er gert
til að minnka líkumar á kosning-
asvindli, að sögn talsmanna yfir-
valda, og útiloka frambjóðendur
með lítið fylgi. Þetta á einnig að
koma í veg fyrir að fólk, sem er
ólæst og óskrifandi, kjósi annan
en þann sem það vill styðja.
Nefnd á vegum eina leyfílega
stjómmálaflokks landsins, KANU
(Kenya African National Unity),
á að hafa reglur fyrir nýja kerfíð
tilbúnar þegar þingkosningar
verða haldnar árið 1988.
Kaffiævintýri
Það er skammt öfganna á milli
hér í Kenýa. í lok 1984 og fyrri
hluta 1985 var hungursneyð sums
staðar í landinu vegna þess að
regnið brást. íslenskir kristniboð-
ar í Pókót-héraði dreifðu þá eins
og fleiri matvælum á svæðum sem
vom illa stödd. Síðan var mjög
góður rigingartími í fyrrasumar
sem gaf metuppskem af maís,
sem er undirstöðufæða lands-
manna, þannig að öll forðabúr
landsins fylltust og risastórar
stæður af maíssekkjum hafa orðið
að standa úti. Til að forða þeim
frá skemmdum hefur mikið verið
flutt út á þessu ári.
En það var ekki bara metupp-
skera á maís. Kaffíbændur hafa
aldrei áður fengið jafn góða upp-
skem. Þetta gerðist á sama tíma
og hluti af kaffíuppskem Brazilíu-
manna, aðalkaffiframleiðsluþjóð-
ar heimsins, eyðilagðist vegna
frosta. Verð á olíu hefur einnig
stórlækkað að undanfömu en hún
er stærsti útgjaldaliður landsins.
Fjármálamenn hér em himinlif-
andi og sjá fram á stórgróða í
auknum kaffíútflutningi, en kaffí
er aðalútflutningsvara þjóðarinn-
ar, og vona að hægt verði að
grynnka nokkuð á erlendum
skuldum. Góðir menn vona að
væntanlegum gróða verði ekki
eytt í munaðarvarning fyrir þá
ríku heldur til að skapa ný at-
vinnutækifæri og minnka á þann
hátt nokkuð hið mikla atvinnu-
leysi sem ríkir í landinu.
Föstumánuður
Laugardaginn 10. maí hófst
Ramadhan, föstumánuður mú-
hameðstrúarmanna, um ieið og
glitti í nýmánann. Næsta tungl-
mánuðinn mega fylgjendur Múha-
meðs hvorki bragða vott né þurrt
frá því það verður svo bjart á
morgnana að hægt er að greina
tvo spotta hvom frá öðmm og
fram í myrkur. Þetta er ekki
auðvelt í steikjandi hita. í þessum
mánuði fara þeir oft í moskuna,
einnig þeir sem annars láta ekki
sjá sig þar allt árið. Samfara
föstunni eiga menn að gera enn
meiri góðverk en venjulega og þá
er fátækum gefin stór ölmusa.
Allt er þetta liður í því að vinna
sér inn hjálpræði Allah. Þeir sem
taka við ölmusunni sjá yfirleitt
ekki ástæðu til að þakka fyrir það
sem þeim er gefíð, því þeir em í
rauninni bara að hjálpa gefendun-
um til að öðlast hjálpræðið. Þegar
föstunni lýkur brýst út gífurlegur
fögnuður og ekkert er sparað í
mat og drykk. Blys em brennd,
flugeldum skotið á loft og kín-
veijar sprengdir.
Múhameðstrúarmenn em virð-
ingarverðir fyrir að taka trú sína
alvarlega á þennan hátt. Þetta er
góð áminning fyrir okkur kristna
menn. Kannski við ættum að gefa
hinni kristnu föstu meiri gaum
og taka frá meiri tíma til íhugunar
og bænar?
Höfundur er kristniboði í Kenýa
og skrifar greinar um land og
þjóð.