Morgunblaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 42
?42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986
.1
í ÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Þúsund ára afmæli kristnitöku:
Undir merkjum
þjóðarfriðar
„Við sjáum fyrir okkur atburðarásina á Alþingi kristnitökuárið.
Heiðnir og kristnir menn sögðu sig úr lögum hvorir við aðra. Menn
vígbjuggust og við lá að fylkingum lysti saman. Minnihlutinn bauð
meirihlutanum birginn. Kristnir menn kusu sér lögsögumann. Þá
gerist það sem er með ólikindum. Lögsögumaður þeirra, friðsemdar-
maðurinn Síðu-Hallur, fær hlutverk sitt í hendur lögsögumanni
þingsins, Þorgeiri Ljósvetningagoða. Leiðtoga heiðinna manna er
ætlað að segja upp lög kristinna manna. Og enn gerast meiri undur.
Leiðtogi heiðinna manna segir upp þau Iög að allir skuii einn sið
hafa, allir skuli kristnir vera og allir játtu því.“
Það var Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, forseti Sameinaðs þings,
sem þannig komst að orði á Alþingi
10. apríl sl., er hann mælti fyrir
tillögu til þingsályktunar um að
forsetum þings sé falin athugun á
því með hvaða hætti verði af hálfu
Alþingis minnst þúsund ára afmælis
kristnitökunnar.
ar, er hann lýsti deilum vígbúinna
fylkinga kristinna og heiðinna
manna um aldamótin eitt þúsund.
Þetta orð, þjóðarsátt, hefur oft
verið notað þegar stór vandamál
hafa knúið á dyr í íslenzku sam-
félagi. Það minnir og á kjörorð, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hélt mjög á
loft framan af starfsferli sínum:
„stétt með stétt". Þjóðarsátt og
samátak starfsstétta hafa hinsveg-
ar of sjaldan sett mark sitt á fram-
vindu mála hér. Nýjasta dæmið, og
ekki það veigaminnsta, er kjara-
sáttin, sem gerð var í upphafí þessa
árs, og er merkur kapítuli í hagsögu
þjóðarinnar, ekki sízt vegna hjöðn-
unar verðbólgu, úr 130% vexti á
fyrsta ársfjórðungi 1983 væntan-
lega niður í um 10% fyrir næstkom-
andi áramót.
Enn skal vitnað til forseta þings-
ins og framsögu hans fyrir tillögu
um undirbúning að þúsund ára
afmæli kristnitökunnar:
„Hlutverk Alþingis er að standa
vörð um einingu þjóðar. Sameinaðir
sigrum við, sundraðir föllum við.
Þorgeir Ljósvetningagoði sá til þess
að Alþingi brygðist ekki skyldu
sinni á örlagastundu. Forysta hans
og fordæmi verður Alþingi leiðarljós
um framtíð alla.“
Kristnitakan
Kristnitaka íslendinga var frið-
samleg. Það sama verður ekki sagt
um trúskipti fjölmargra annarra
þjóða. Víða vóru hemaðarátök og
bræðravíg undanfari þess að heiðni
þokaðist úr sessi fyrir kristnum sið.
Sú staðreynd varpar hinsvegar ekki
rýrð á kristinn boðskap né þýðingu
hans í hugarheimi og samskiptum
fólks. Það er misjafn sauður í mörgu
fé og það gildir um góð vel þenkj-
andi samtök sem lakari. Hugsjónir
líða oft fyrir mannlegan breyskleik,
jafnvel mannlega grimmd meintra
forgöngu- og/eða stuðningsmanna.
Leiða má að því sterkar líkur.
Þjóðarsátt
Fræg er sú setning, er Þorgeir
Ljósvetningagoði mælti á Alþingi
árið eitt þúsund, er kristni var
lögtekin hér á landi:
„Það mun verða satt, er vér slít-
um sundur lögin, at vér munum
slíta ok friðinn."
„íslendingar leystu málið með
þjóðarsátt,“ sagði Þorvaldur Garð-
Hallgrímskirkja íReykjavík.
Mynd þessi er tekin á lokastigi byggingar Hallgrímskirkju í Reykja-
vík (1985). Vel væri við hæfi að þetta veglegasta guðshús landsins
skartaði viðeigandi listmunum á þúsund ára afmæli kristnitöku er
minntu á þau gæfuspor er stigin voru á Lögbergi við Óxará árið
þúsund.
jafnvel vissu, að íslendingar hefðu
tekið kristna trú með einum eða
öðrum hætti, eins og aðrar Evr-
ópuþjóðir á þessum tíma, þó Þorgeir
Ljósvetningagoði hefði mælt á
annan veg við Öxará árið 1.000.
Það verður hinsvegar ekki ofmetið,
hvem veg var að málum staðið.
Og rétt er að undirstrika þau orð
forseta Alþingis í dag, að vonandi
verður fordæmi Alþingis, þegar
kristni var lögtekin, leiðarljós í
störfiim þess um alla framtíð.
Trúfrelsi ríkir í landinu og allir
kristnir söfnuðir þjóna að sama
marki. Enn í dag skipar þó þorri
þjóðarinnar sér undir merki þjóð-
kirkju. Það er mjög mikilvægt að
kirkunnar menn haldi svo á málum
hennar að hún rísi um langa fram-
tíð undir heiti, þjóðkirkja. Það er
því meir en vafasamt ef kirkjan sem