Morgunblaðið - 01.06.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986
BJ vill fá fulltrúa í öryggismálanefnd:
„Hef ekkert
á mótí því“
ákvörðun
Hennar væri
skamms.
— segir forsætisráðherra
„ÉG HEF ekkert á móti þvi að
þessir fiokkar fái fulltrúa í
Óryggismálanefnd Alþingis,"
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra er hann var
spurður hver svör hans yrðu við
bréfi Guðmundar Einarssonar
þingmanns Bandalags jafnaðar-
manna, þar sem hann fer þess á
leit við forsætisráðherra að gerð-
ar verði nauðsynlegar ráðstafan-
ir til þess að Bandalag jafnaðar-
manna geti tilnefnt fulltrúa í
Öryggismálanefnd.
Forsætisráðherra sagðist hafa
reett erindi Guðmundar við formann
Öryggismálanefndar,
hefði verið tekin
þó að vænta i
en engm
Guðmundur segir í bréfi sínu til
forsætisráðherra að hann telji eðli-
legt að nýir þingflokkar eigi fulltrúa
í Öryggismálanefnd, en hvorki
Bandalag jafnaðarmanna né
Kvennalisti eiga fulltrúa þar. For-
sætisráðherra sagðist því síður en
svo andvígur að þessir flokkar fengju
fulltrúa í nefndinni, „en aðalatriðið
í þessu máli er það að nefndin verði
ekki svo íjölmenn að starfið skili
ekki tilætluðum árangri," sagði
Steingrímur.
Talið í tvennum
prestskosningum
l
TALNING hefur farið fram á
Biskupsstofu í prestskosningum
sem fóru fram um sl. helgi i
Bíldudalsprestakalli og Raufar-
hafnarprestakalli. Úrslit voru
sem hér segir:
í Bildudalsprestakalli var um-
sækjandi sr. Hörður Þ. Ásbjörns-
son. Á kjörskrá voru 257 en atkvæði
greiddu 157. Umsækjandi hlaut 20
atkvæði en 137 seðlar voru auðir.
Umsækjandi náði því ekki kosn-
ingu.
I Raufarhafnarprestakalli var
umsækjandi einnig einn, sr. Bjami
Th. Rögnvaldsson. Á kjörskrá voru
342 en 191 kaus. Umsækjandi hlaut
75 atkvæði en 115 seðlar voru auðir
og einn seðill ógildur. Umsækjandi
náði því ekki kosningu.
Fréttatilkynningu Biskupsstofu
um úrslit þessara kosninga fylgdi
eftirfarandi leiðrétting:
Á áður birtum úrslitum í at-
kvæðatalningu í Reykhólapresta-
kalli, Barðastrandarprófastsdæmi.
Prestskosning fór þar fram 10.
apríl sl. Réttar tölur eru þessar:
Alls kusu 134 af 258, sem voru á 1
kjörskrá. Umsækjandinn, sr. Bragi
Benediktsson, hlaut 129 atkvæði
en 5 seðlar voru auðir og var hann
kosinn lögmætri kosningu.
85 ára í
Afríku-
hlaupi
Barðaströnd
Barðstrendingar létu ekki
sitt eftir liggja í Afríkuhlaup-
inu. í því tóku þátt rúmlega 70
manns og var elzti þátttakand-
inn 85 ára og þeir yngstu
tveggja ára.
Þátttakendur hlupu frá 200
metram upp í 10 kílómetra og
einn bænda hér, Ingvi Bjamason
frá Amórsstöðum, skokkaði 10
kílómetrana á rúmum 60 mínút-
um og telst ekki til æfðra hlaup-
ara. Elsti þátttakandinn var Björg
Jónsdóttir fyrram Ijósmóðir, 85
ára gömul. Veður var mjög gott,
sól og stafalogn. — SJÞ
Björg Jónsdóttir, elsti þátttak-
andinn ásamt tveimur þeim
yngstu.
Þátttakendur við upphaf
hlaups.
Barðaströnd:
„ „ Bráðabirgðalög
10 milljoiur tll kynn- komaekkitilgreina
ingar á dilkakjöti
— segfir Kristján Ragnarsson um ákvörðun fiskverðs
Framleiðnisjóður landbúnað-
arins hefur samþykkt að veija 5
milljónum kr. af fé sinu tíl sér-
staks kynningarátaks fyrir
kindakjöt sem Markaðsnefnd
landbúnaðarins er að undirbúa.
Gert er ráð fyrir að ríkissjóður
leggi fram jafn háa fjárhæð í
gegn um framkvæmdanefnd bú-
vörusamninga. Samtals hefur
nefndin þá 10 milljónir til að
ráðstafa í þessum tilgangi.
Á síðasta fundi sínum samþykkti
sljórn Framleiðnisjóðs einnig að
veita fóðurstöðinni Melrakka á
Sauðárkróki 10,8 milljóna kr. fram-
lag vegna byggingar frystihúss við
fóðurstöðina. Sjóðurinn hefur ekki
áður lánað til frystihúsabygginga
við fóðurstöðvar. Gert er ráð fyrir
að frystirinn kosti 50 milljónir kr.
og fær fyrirtækið einnig fyrir-
greiðslu hjá Stofnlánadeild land-
búnaðarins og Byggðasjóði.
Sjóðsstjómin samþykkti einnig
að leggja fram 500 þúsund krónur
til fæðudeildar Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins til að ljúka rann-
sóknum á rafmangsmeymun á
dilkakjöti.
_Að mínu mati kemur ekki til
greina að skiptahlutfalli verði
breytt með bráðabirgðalögum til
að liðka fyrir fiskverðsákvörðun.
Lögin um skiptahlutfall voru
samþykkt á síðasta degi þingsins
og með samþykki allra hagsmuna-
aðila,“ sagði Kristján Ragnarsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, í samtali
við Morgunblaðið.
„Allir vissu af því, að olían var
að lækka. Það gefur útgerðinni betri
stöðu. Eftir margra ára taprekstur
og uppsafnaðra vanskilaskulda er
mikil þörf á að útgerðin fái tækifæri
til að hagnast. Það verður einhvem
tímann að gerast, eigi þessar skuldir
að greiðast og nú gefst tækifæri til
þess. Þess vegna tel ég ekki koma
til greina að þessum lögum verði
breytt," sagði Kristján Ragnarsson.
Sverrir Hermannsson um styttingu skólaskyldu barna:
Fræðsluskylda ríkis-
ins verður áfraxn níu ár
Aldrei hugmyndin að foreldrar þyrftu að greiða námskostnað bama sinna
„ÉG VIL leggja áherslu á að
leiðrétta grundvallarmisskilning
sem komið hefur fram, gjörsam-
lega að ástæðulausu, en þar túlka
menn orð mín á þann veg að með
styttingu skólaskyldunnar ætli
ég að draga úr framlögum rikis-
ins til fræðsluskyldunnar.
Ég er aðeins að varpa fram
hugmjmdum til umQöllunar og
umræðu um að tjóðra ekki böm við
skyldunám í níu ár, skylda þeirra
verði stjrtt um tvö ár. Aftur á móti
yrði 'fráeðsluskylda ríkisins áfram
nfu ár og þár með allur kostnaður
sem af því hlýst,“ sagði Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra, er hann var spurður álits á
þeirri gagnrýni sem fram hefur
komið vegna jrfírlýsinga hans um
að stytta megi að skaðalausu
skyldunám bama um tvö ár, þ.e. úr
níu áram í sjö.
Menntamálaráðherra sagði enn-
fremun. „Ég minni á, að níu ára
skyldan er riý, áður var hún átta
ár. Reynslán hér í þéttbýli er að
minnsta kostt sú, að þegar skyldaji
var átta ár héldu 98% bama áfram
upp í níunda bekk. Ég spjrr því,
hvað er unnið með því, ef unglingar
vilja hætta og fara að vinna, að
binda þá og tjóðra. Unglingur sem
ekki vill hann verður ekki neyddur
nú til dags til þessa. Hann getur
ennfremur bæði hlotið skaða af
þvf sjálfur og skemmt fyrir félögum
sínum, því ekki þarf marga gikki í
hveija veiðistöð. Ég vil vegna þess-
ara ástæðulausu yfírlýsinga að það
komi skýrt frarn, að hugmyndin er
alls ekki sú að fara að láta foreldra t
kosta námsefni eða. - -námsgögn
unglinganna."
Sverrir Hermannsson sagði að
lokum: „Ég legg áherslu á að
umræður og athuganir um stytt-
ingu skólaskyldunnar fari fram. Ég
leiði einnig hugann að því að
kannski á annað við úti á lands-
byggðinni en hér á höfuðborgar-
svæðinu hvað varðar það að tjóðra
böm við skylduna lengur en ástæða
er til. Allir sem vilja læra geta það,
ríkið sér áfram fyrir því. Það hafa
engar ákvarðanir verið teknar og
þessu er aðeins varpað^fram til
umræðu."
Hryssur
leiddar til
Snældu-
Blesa
STÓÐHESTURINN Snældu-
Blesi í Árgerði í Eyjafirði, sem
komst í fréttimar í fyrra er hann
fótbrotnaði illa, er nú á batavegi
- og er farið að leiða hryssur
undir hann.
„Honum líður nokkuð vel og
þetta gengur allt eftir áætlun. Ég
hef leitt nokkrar hryssur til hans -
byrjaði á því um 20. maí,“ sagði
Magni Kjartansson, bóndi í Árgerði,
í samtali við Morgunblaðið.
Blesi er með spelkur um fótinn
ennþá og verður fyrst um sinn, að
sögn Magna.
Leiðrétting
í ÞÆTTINUM Spurt og svarað um
borgarmál í Morgunblaðinu í gær
birtist meðal annars fyrirspum frá
Arnbjörgu Markúsdóttur um hús-
eignina Laugaveg 160. í kynningu
féll niður að geta þess að sjálf býr
Ambjörg á Laugavegi 160a, sem
’er bakhús, en ekki húsið við götuna
sem spuminghennar fjallaði um.