Morgunblaðið - 01.06.1986, Síða 9

Morgunblaðið - 01.06.1986, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1986 9 9 HUGVEKJA „Helgist þitt nafn“ eftir EINAR J. GÍSLASON „Helgist þitt nafn“ er fyrsta bænin í Faðirvorinu. Ritningin kynnir okkur Guð, sem er heilagur og syndlaus. Heilagleiki Guðs er ofar öllu mannlegu og aðgreint frá öllu er heitir synd og ranglæti. Hvað meinum við, þegar þessi bæn er beðin: „Helgist þitt nafn"? Fyrst viðurkennum við syndir okkar og þá um leið vanhelgun. Syndin gjörir okkur viðskila við Guð. Skapar bil, sem verður oft stærra og stærra með aldrinum og fjarlægðin við Guð verður dýpri og stærri. Þetta skapar vanlíðan og órólega samvisku. Innst inni þráir maðurinn upphaf sitt og leitast við að fínna Guð. „Ég vil taka mig upp og fara heim til föður míns," sagði glataði sonur- inn forðum. Allir menn sem sjá sitt rétta ástand, synd og van- helgun og skort á Guðs dýrð, skilja, að þörf er á breytingu. Þegar svo er komið, þá finnur hver maður óverðugleika sinn, vegna synda sinna. Maðurinn rekst á óyfírstíganlegan vegg og þá er spurt: „Er náð til fyrir mig?“ Adam faldi sig fyrir heilagleika Guðs. Jesaja spámaður hrópaði: „Það er úti um mig. Augu mín hafa séð Drottin hersveitanna." Símon Pétur sagði við Drottin: „Far þú frá mér, herra. Ég er syndugur maður." Guð vill ekki að við felum okkur, eða við segjum að úti sé um okkur. Guð vill ekki heldur að Hann fari frá okkur. Hann nálgast okkur óverðuga í sinni dýrð, svo við getum fengið hlut í heilagleika hans. „Stundið frið við alla menn og helgun, því án henn- ar fær enginn maður Drottin augum litið." Hvernig fær þá nafn Drottins helgast á meðal vor og í okkur? Þegar Jesús bað fyrir lærisvein- um sínum í Jóh. 17.17 „Helga þú þá með sannleikanum. Þitt Orð er sannleikur.“ „Segðu mér hvem þú umgengst, þá skal ég segja þér hver þú ert.“ Jesús er sann- leikurinn og lífíð. Hann segir við Guð: „Þitt orð er sannleikur." Hjá því verður ekki komist, lesi maður Heilaga Ritningu, þá hefír hún áhrif til helgunar og fyrir bænina og trúna nálgumst við Guð. Reglulegur lestur Helgra ritninga, hefír hreinsandi áhrif og fyrir orðið nálgumst við Guð. Sá sem vill helga nafn Drottins í lífi sínu, gjörir það með bæn, lestri Guðs orðs og grandvöru lífemi. Sem ungur maður las ég bókina „För pílagrímsins" eftir John Bunyan. Las ég bókina í belg og „Guð vill ekki að viðfelum okkur, eða við segjum að úti sé um okkur. Guð vill ekki heldur að Hann fari frá okkur. Hann nálgast okkur óverðuga ísinni dýrð, svo við getum fengið hlut í heilag- leika hans. “ bunu og var ekki nægjanlega ánægður. Þessi bók er talin koma næst á eftir Heilagri ritningu og má jafna henni við Passíusálmana hvað vinsældir snertir. Ég lagði því aftur til við lestur bókarinnar og skipti nú um leshátt. Fjöldi ritningargreina eru á síðum bók- arinnar. Hafði ég handbæra biblíu og las allar tilvitnanirnar. Opnað- ist mér þá nýr heimur, sem ég hefí búið að fram á þennan dag, þegar um andlegt líf er að ræða. Um mörg ár las ég Helgar ritn- ingar tvo klukkutíma á dag. Vanalega milli klukkan fimm og sjö. Las ég þá þýðingu Haraldar Níelssonar frá árinu 1912, sem í mörgu er mjög góð, jafnhliða las ég King James enska þýðingu og Scofield einnig enska þýðingu. Síðast en ekki síst las ég Wasin- hus-biblíuna á íslensku prentaða 1747. Þama var menntun sannar- lega í Guðhræðslu. Einn slíkur tími með orði Guðs verður mér ætíð ógleymanlegur. Ég fann heilagleika Guðs með orði Hans. Snögglega birtist mér sýn Wasin- hus-biblían verður logagyllt, eins og skíragull. Ég mátti hvorki mæla, eða hreyfa mig, svo altek- inn var ég af þessari sýn. Ég hafði skýra hugsun og lokaði augunum. Sýnin var mér jafnaug- ljós fyrir hugskotssjónum. Allt gull og ekkert nema gull. Þetta varaði lengi og hvarf ekki fyr en ég var kallaður til skyldustarfa. „Orð Drottins em hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.“ Sálmur 12.7. Með hvetju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu“. Sálmur 119. vers 9. „Helgist þitt nafn.“ FJARFESTINGARFELAGIÐ UERÐBREFAMARKAÐURINN 1. JÚNÍ 1986 Markaðsfrettir Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr. Lónst. 2afb. áári 1 ár 2ár 3 ár 4ár 5ár 6ór 7ár 8ár 9 ár 10 ár Nafn- vextir HLV 4% 4% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 95 91 90 88 85 83 81 79 78 76 14% 93 90 87 84 82 79 77 75 73 71 16% 92 88 85 82 78 76 73 71 68 66 Lánst. 1 afb. áári 1 ár 2 ár 3ár 4ár 5 ár Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% HLV 15% 89 81 74 67 62 84 72 63 56 50 85 76 68 61 56 KJARABRÉF Gengi pr. 30/5 ’86 = 1,583 Nafnverð 5.000 50.000 Söluverð 7.915.- 79.150,- Dæmi um ávöxtun. Helstu spamaðarform. Frá 17. maí 1985- 17. maí 1986. Kjarabréf Bankabréf Ríkisskuldabréf Bundin bankabók Ársávöxtun 54% 33% 37% 33% Ávöxtun umfram verðbólgu 21% 4% 7% 4% Allar tölur míðast við ávöxtun spamaðarforma sem stóðu til boða 17. maí 1985, og hafa staðið öhreyfð síðEin. Ávöxtun er í öllum tilfellum án innlausnargjalds eða endursöluþóknunar. fjármál þín - sárgrein okkar Rárfestinaarfélaa ísiands hf. Hafnarstræti 7 lOi.Raykjaufk fQil PPsaa fQii 9fi*>o« ---...................

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.