Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 28

Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986 28 Endurhæflngarsjákling- arnir á Reykjalundi ný- komnir nr gongnferð nm nágrennið. Magnús B. Ein- arsson lseknir á miðri mynd, í stntterma-skyrtu. Á hádegisfyrirlestri hjá Magnúsi lækni. Morgunblaðið/Börkur Arnarson. Rúrik Kristjánsson í stjórn Landssamtaka hjartasjúkl- inga með veggspjald kjörorða merkjasölunnar. Merkin verða ennfremur hjartalaga og ranð að lit. ERTÞÚ GÓÐUR? Sjúklingar allt að tvöfaldað úthald sitt á Reykjalundi Merkjasala Landssamtaka hjartasjúklinga til kaupa á búnaði til endurhæfingar a Reykjalundi Á REYKJALUNDI i Mosfellssveit hafa hjartasjúklingar notið endur- hæfingar síðustu fjögur árin. Nú eru þar 12 pláss fyrir þá sjúklinga og að sögn Magnúsar B. Einarssonar læknis deildarinnar hafa þeir allt að þvi tvöfaldað úthald sitt í meðferðinni, en meðaltalið er 33% aukning. Dagana 5. og 6. júní nk. gangast Landssamtök hjartasjukl- inga fyrir merkjasölu um allt land undir kjörorðinu „Ert þú hjarta- góður?“. Afrakstri sölunnar verður varið til tækjakaupa fyrir endur- hæfingardeildina á Reykjalundi. Að sögn Magnúsar verða keypt tæki til þolprófunar, en þau mæla súrefnisnotkun og kolsýringsmynd- un líkamans. I tilefni merkjasölunnar sóttu blaðamaður og ljósmynd- ari Morgunblaðsins deildina heim nýverið og ræddu við Magnús yfirlækni og Rúrik Kristjánsson í stjórn Landssamtaka hjartasjúkl- inga, en hann er einn þeirra sem notið hefur endurhæfingar á Reykjalundi eftir þjartauppskurð á Bromton-sjúkrahúsinu í London. Er við komum á stað- inn voru hjartasjúkl- ingar að koma úr gönguferð, en þeim, ásamt öðrum sjúklingum sem þama eru í endurhæfingu, er skipt í ijóra flokka eftir getu. Að sögn Magnús- ar koma hjartasjúklingar í endur- hæfingu á Reykjalundi sex til átta vikum eftir hjartaaðgerð, en þama em ennfremur hjartasjúklingar sem ekki hafa farið í skurðaðgerðir. Meðferðin stendur yfír í Qórar vikur að jafnaði. Endurhæfingin felst í æfíngum undir stjóm sjúkraþjálfara og íþróttakennara til að auka úthald og þol, auk þess fá þeir fræðslu um hvemig unnt er að lifa með sjúk- dóminn á sem auðveldastan hátt. Þá er sjúkraþjálfun stór Iiður, en allt fer þetta fram undir eftirliti lækna og hjúkmnarfólks. Hvem dag er farið í gönguferðir og sund. Þá em námskeið í slökun á vegum iðjuþjálfa. Geyst af stað á hjólhestunum. Frá vinatri: Sólveig Signrðardóttir, Pétnr Gnðjónsson Hárlaugnr Ingvarsson og Guðlangnr Nielsson. 2rfiðis vinnufólk gengur fyrir Vegna fárra plássa er ekki unnt að taka við öllum þeim sem gangast undir skurðaðgerðir, en þeir sem vinna erfiðisvinnu em látnir ganga fyrir, ennfremur þeir sem lifa við mikið óöryggi. Að sögn Rúriks er óöryggið eflaust versti óvinur hjartasjúklinga og ekki síður maka þeirra. Eftir að komið er úr aðgerð tekur það fólk langan tíma að fínna út hvað það þolir og hvað það má leyfa sér. Rúrik sagði að veran þama hefði hjálpað sér mikið, hann hefði til dæmis verið kominn til vinnu aðeins þremur mánuðum eftir hjartaaðgerðina á Bromton. í hádeginu komu hjartasjúkling- amir saman til fundar. Magnús læknir hélt fyrirlestur og upplýsti um ýmsa veigamikla þætti í lífi hjartasjúklinga. Þar kom m.a. fram, að hjartasjúklingi er betra að fara fleiri ferðir en eina, ef hann þarf að bera t.d. vömr úr stórmarkaði, ennfremur að hættuminna sé að bera tvo tíu kílóa poka í sitt hvorri hendi í stað eins tuttugu kílóa. Hjartasjúklingur skyldi aldrei reyna að ýta bíl því öll átök á efri hluta líkamans geta reynst hættuleg. Þá Qallaði hann um bmna, blóðfítu og hvemig byggja má upp þrek. Það tekur að sögn Magnúsar helmingi lengri tíma að vinna upp þrek en missa það niður og það á ekki aðeins við um hjartasjúklinga. List- in að lifa með hjartasjúkdóm hefur í för með sér ýmis boð og bönn, eftir því sem þama kom fram, en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.