Morgunblaðið - 01.06.1986, Síða 40

Morgunblaðið - 01.06.1986, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986 T-Jöfóar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! j jttatgiMtftliiftift Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! y 2ti ÍILM: or Skólaslit í Grunnskóla Stykkishólms Stykkishólmi. SKÓLASLIT Grunnskólans í Stykkishólmi fóru fram 24. maí í nýja grunnskólahúsinu. Við skólaslit var fjöldi manns bæði nemendur og foreldrar. Skóla- stjóri Lúðvig Halldórsson hélt skólaslitaræðu skýrði námsár- angur og greindi frá störfum skólans. í skólanum voru í vetur 300 nemendur í 9 grunnskóladeildum, framhaldsdeild og námskeiðum fyrir stýrimenn og vélstjómarmenn. Þar þreyttu 9 stýrimannaefni próf og fengu út á það 80 smálesta stýri- mannsréttindi 14 nemendur í vél- stjóranámi fengu 1000 hestafla Lúðvík Halldórsson skólastjóri afhendir viðurkenningu fyrir góða frammistöðu. Gestir við skólaslit grunnskólans i Stykkishólmi. Morgunblaðið/Ámi vélstjómarréttindi. Þá vom nám- skeið fyrir vélaverði. Námsflokkar vom og starfræktir við skólann og sá Róbert Jörgensen um þá. Vom þeir í mörgum greinum og sóttu þá eldri bæjarbúar 52 nemendur fyrir jól og 45 eftir jól og sagði skólastjóri að námsfiokk- amir hefðu verið áhugaverðir og gengið vel. Hann sagði að félagslíf í skólanum hefði_ verið með hefð- bundnum hætti. I bíóhúsinu gamla hefðu unglingar mætt í viku hverri og þar farið fram diskótek o.fl. Er Stykkishólmshreppur kostnaðar- greiðandi, en Gunnar Atlason umsjónarmaður. Þá hafa nemendur iðkað íþróttir, og ýmislegt annað uppörfandi hefir verið á dagskrá. Skólinn á nú þegar gott bókasafn og var upphaf þiess að Ágúst Þórar- insson kaupmaður og kona hans gáfu bókasafnið sitt til skólans og var það mjög vandað safn. Fleiri komu svo á eftir m.a. hjón í Amer- íku sem gáfu mikið safn. í haust var hafin barátta innan skólans gegn vímuefnum og sér- staklega reykingum og hefir sú barátta skilað verulegum árangri og sagði skólastjóri að könnun hefði leitt { ljós að í öllum skólanum myndi það vera eins frekar en tveggja stafa tala sem segði til um þá nemendur sem reyktu. Bama- stúkan Björk hefir starfað vel í tengslum við skólann og þar fá nemendur þjálfun í fundarstjóm o.fl. Skólastjóri og kennarar veita henni verulega góða aðstoð. Foreldrafélag er starfandi á vegum skólans. Formaður nú er Sesselja Pálsdóttir. Foreldrafélagið gaf skólanum 700 bækur og mál- verk eftir Baltasar. Safnaði 500 þúsundum króna og fyrir það var keypt til skólans sjónvarpstæki myndband og upptökuvél, 5 tölvur og verður tölvukennsla í skólanum næsta vetur. Skólinn fékk vegiega myndagjöf frá Kristborgu Haralds- dóttur og flölskyldu. Ég ræddi örlítið við Lúðvíg skóla- stjóra að loknum skólaslitum. Hann sagði að skólastarf hafi gengið vel í vetur, starfsliðið hefði verið mjög samstillt til allra átaka og andinn í skólanum prýðilegur. Kennarar voru 20 við skólann og verður engin breyting á kennara- liði á næsta skólaári komi ekkert sérstakt fyrir. Próf hefðu sýnt mjög góðan árangur og jafnan þegar á allt er litið. Hann kvaðst fagna áhuga og baráttu nemendá fyrir vímulausu og reyklausu íslandi og fundurinn sem haldinn var um daginn á vegum Lion-klúbbsins og skólans væri sér mikið ánægjuefni. Að ræðu Lúðvígs lokinni afhenti hann svo nemendum skírteini sín og útdeildi verðlaunum fyrir sér- staka árvekni í námi. Árni Venus! Stærð Viðarteg. Staðgr.verð Lánakjör með vöxtum 170x195 eik/beyki 42.500,- eða 5000,- út og 5000,- á mánuði í 9 mánuði 150x195 eik/beyki 39.500,- eða 5000,- út og 5000,- á mánuði 18 mánuði 115x195 eik/beyki 24.500,- eða 4000,- út og 4000,- á mánuði 16 mánuði 90x195 eik/beyki 21.500,- eða 3000,- út og 4000,- á mánuði í 5 mánuði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.