Morgunblaðið - 01.06.1986, Page 46

Morgunblaðið - 01.06.1986, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986 STÓRÚTGÁFA Vinsældalistar vikunnar RAS 2 1. (1) Why can’t this be love? . VanHalen 2. ( 6) Lessons in love .......... Level42 3. (10) Livetotell .................. Madonna 4. ( 4) Livingdoll ............. CliffRichard 5. (29) Gleðibankinn .................... Icy 6. ( 5) Árdet hardu kallar Karlek? .......... Lasse Holm og félagi 7. ( 3) J’aime la vie .......... Sandra Kim 8. (15) Greatest love ofall .... Whitney Houston 9. (17) Trainofthought ................. A-HA 10. ( 8) Look away ............. Big Country 11. (14) Romeo ................. Ketill Stokkan 12. (11) Fright night .......... J. Geils Band 13. (20) Yourlove .................. Outfield 14. (13) You can count on me ......... LuvBug 15. (18) Isitlove? ............. Mr. Mister 16. (19) Ifyouleave ..................... OMD 17. (22) Holding back the years ... SimplyRed 18. (12) ÍÖIdutúni ................ Túnfiskar 19. ( 7) BrotherLouie ......... ModernTalking 20. (29) You to me are everything . RealThing 21. ( 9) Allthethingsshesaid ... Simple Minds 22. (16) Önnur sjónarmið .... Edda H. Bachmann 23. (—) Svarthvíturdraumur ....... Dúkkulísur 24. (24) Bad boy ...... Miami Sound Machine 25. ( —) Be good to yourself ....... Journey 26. (27) Shine .... Mike Oldfield/Jon Anderson 27. (—) HandsacrossAmerica .................... Voice of America 28. (— )Can'twaitanotherminute ..... FiveStar 29. ( —) Invisible touch ........... Genesis 30. (23) American storm ........ BobSeeger Vlnur okkar Ketill Stokkan situr í 11. sæti vlnsældalista hlustsnda Rásar 2 og or líklegri tll frekari afreka. 8910 ÓLAFSSON Allar plötur Megasar ásamt tveimur nýjum eru komnar út. Þetta telur níu plötur sem komið hefur verið haganlega fyrir í huggu- legum kassa og kallast þessi heildarútgáfa á verkum kappans „Megas allur”. Er þetta alveg örugglega stórútgáfa á okkar mæli- kvarða því þetta erfyrsta heildarútgáfa einstaks listamanns hér á landi. Það er Hitt leikhúsiö sem gefur út. Allar plötur Megasar eru löngu ófáanlegar og hafa sumar verið það um árabil. Því er þetta bæði upplagt tækifæri fyrir forna aðdáend- ur til að endumýja safnið sitt á hagkvæman hátt og fyrir unga aðdáendur skáldsins til að kynnast verkum meistarans. Umbúðirn- ar eru glæsilegar svo og 40 síðna textabók sem er alveg bráðnauðsynleg þeim sem vilja skilja texta Megasar til hlítar. Megas hefur verið að í næstum tvo ára- tugi þó hann kæmi vart fyrir almennings- sjónir nema í fámenni allt til ársins 1974 en þá var hann orðinn vel þekktur af sinni fyrstu hljómplötu sem einfaldjega heitir MEGAS og kom út árið 1971. Á henni eru meðal annars lögin Gamli sorrí Gráni sem margir þekkja, Silfur Egils og Heilræðavísur (í Víðihlíð). Þaö er ekki fyrr en árið 1975 sem önnur plata Megasar kom út. Sú heitir Millilend- ing og þar var það hljómsveitin Júdas sem lék undir með Magnús Kjartansson í fylk- ingarbrjósti. Trúbadúrinn Megas haföi nú rokkhljómsveit sér til fulltingis og lög hans mörg urðu feykivinsæl. Hver man til dæmis ekki eftir Ragnheiður Biskupsdóttur sem „brókar hafði sótt" eða einu alfallegasta lagi Megasar, Erfðaskrá? Pákurnar í því lagi eru ódauðlegar. Fram og aftur blindgötuna kom út árið 1976. Mannskapur úr hljómsveitunum Eik og Celsíus sá að þessu sinni um undirleik á stórskemmtilegri plötu. Speglasalurinn, Sút fló i brjóstið inn og Napóleon Bekk eru meðal laga á Blindgötunni. Hápunkturinn og ein allra besta hljóm- plata íslensk frá upphafi er Á bleikum nátt- kjólum. Á henni rugla saman reitum Megas og Spilverk þjóðanna. Hvílík hugmynd! Hvilík útkoma! Vögguvísa á 12. hæð, Gamli skrjóðurinn, Paradísarfuglinn, Við sem heima sitjum og öll hin lögin eru meistara- verk og ekkert minna. Þetta var áriö 1977 og nú var Megas búinn að gera 3 plötur á jafnmörgum árum og allan tímann lá leiðinuppávið. Frá upphafi hafa menn skipst algjörlega í tvo hópa þegar Megas er annars vegar. Ýmist er hann hataður eða dáður þó í seinni tíð mun fleiri hafi fylgt seinni flokkn- um að máli. Þegar Megas siðan tók barna- vísurog gælurtil meðferðar á plötunni Nú er ég klæddur og kominn á ról var ekki laust við að margir hverjir hreinlega trylltust af reiði. Hvernig dirfiðist maðurinn að fara svona með lögin? Hvað sem því líöur hefur platan þó elst ansi vel og er einstök í röð barnaplatna. Flutningur Megasar og útsetningarnar eru þess eðlis. Sama haust, árið 1978 hélt Megas fræga hljómleika í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem báru yfirskriftina Drög að sjálfsmorði (sú saga komst meira að segja á kreik að Megas hefði fyrirfarið sér eftir hljómleikana!!!). Sem kunnugt er voru hljómleikarnir hljóðritaðir og komu út ári síðar, árið 1979 og er platan tvöföld. Nýju plöturnar í kassanum heita Gult og svart- holdiö og Gult og svart-andinn. Sú fyrr- nefnda inniheldur7 Passíusálma Hallgríms Péturssonar og er hljóðritunin frá páska- tónleikunum í fyrra. Þar er meðal annars að finna með fegurstu lagasmíðum Megas- SMÁSKÍFUR VIKUNNAR Sú besta Cactus World News — Worlds Apart Enn ein gæðasveitin kom- in fram á sjónarsviðið. Lík- lega ættuð frá írlandi. Þetta er gott rokk að hætti nútímans með tilhlýðileg- um kassagítarleik og grenjandi rafgítar. Tónlist- in er einskonar sambland af tónlist Armoury Show og U2. Gott lag. Annað ágætt Dream Academy — Love Parade Ekki besta lagið frá sveit- inni en ágætt engu að síð- ur. Útsetning lagsins og flutningur færa einhverja þokuslæðu yfir það. Hér skortir eitthvert bit í laga- smíðina svo hún heltaki hlustandann, en þetta er vel gert. Dire Straits — Your Latest Trick Ljúfur saxófónn setur sterkan svip á þetta fal- lega lag Knopflers sem auðvitað er að finna á Brothers in Arms. Snoturt þetta. Afgangurinn E.G. Daily — Say It Say It Enn ein Madonnan!!! Það er komið nóg af þeim í bilitakk fyrir!!! Nick Heyward — Over the weekend Máttlítið lag. Hann var skárri þessi með Haircut 100. Listahátíð: íslenska poppið Þeir innlendu popparar sem munu ieika á popptónleikunum í Laugardalshöll 16. og 17.júni næstkomandi eru: Bjarni Tryggvason og híjómsveit og Grafík fyrra kvöldið þegar Stranglers og Uoyd Cole leika. Rikshaw og Greifarnir seinna kvöldið þegar Madness og Fine Young Cannibals leika. Það verður greinilega i nógu að snúast hjá meðlimum Grafikur þvi trymbillinn Rafn, gitarleikar- inn Rúnar, bassaleikarinn Jakob og Hjörtur Howser munu allir aðsoða Bjarna Tryggvason við flutning á lögum hans. Að kvöldi 17. júni er einnig ball á Lækjartorgi og munu þar leika Hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar, Possibillies og Bítlavina- félagið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.