Morgunblaðið - 01.06.1986, Page 64

Morgunblaðið - 01.06.1986, Page 64
SUNNUDAGUR1. JÚNÍ1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Þrír hússljómar- skólar og Núps- skóli lagðir niður •• Ollu starfsfólki sagt upp. Ætlunin að leggja ennfremur niður starf- semi Héraðsskólans á Laugar- vatni eftir næsta skólaár ÖLLU STARFSFÓLKI þriggja hússtjórnarskóla á landinu hefur verið sagt upp störfum frá og með 1. júní og starfsemi skólanna lögð niður. Þessir skólar eru að Varmalandi, Laugum og Laugarvatni. Þá hefur öllu starfsfólki við Núpsskóla á Vestfjörðum einnig verið sagt upp og starfsemi hans lögð f—J* niður a.m.k. I eitt ár. Þá segir menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, að vegna lítillar aðsóknar hafi hann í hyggju að Héraðsskólinn á Laugarvatni verði aðeins rekinn í eitt ár tíl viðbótar. Ráðherrann telur tugi milljóna króna sparast með þvi að leggja niður starfsemi skólanna. Sem dæmi um lélega aðsókn aö hússtjómarskólunum sagði menntamálaráðherra, að á liðnum vetri hefðu aðeins sjö námsmeyjar verið í skólanum að Laugarvatni, en hið nýja og stóra húsnæði skól- ans rúmar 80 nemendur. Ráð- —herrann sagði í þessu tilefni: „Svo er að sjá sem göngu þessara skóla sé að ljúka og að fjölbrautaskól- amir hafí tekið við þeirra hlut- verki. Þetta er ekki sársaukalaust. Húsmæðraskólar hafa gegnt gíf- urlega miklu hlutverki og maður saknar þeirra. Ég hef þó í hyggju að sjá til þess að kostur verði áfram á að njóta þessarar fræðslu með gamla laginu. Enn er sæmileg aðsókn að hússtjómarskólanum á Hallormsstað og þeim skóla verður að minnsta kosti haldið áfram um sinn. Þá em víða haldin námskeið f þessum fræðum og verður því væntanlega haldið fram. Þessar ákvarðanir hafa nú verið teknar og ég vona að það verði gott samkomulag um nýtingu skólanna til annarra þarfa." Menntamálaráðherra nefndi sem dæmi að nýta mætti skólahús- næðið á Laugarvatni til dæmis sem Veitinga- og hótelskóla. Hús- næðið mætti svo nýta sem hótel á sumrin og þannig gæti skólinn jafnvel staðið undir eigin rekstri hvað varðar kostnað. Kennarar við hússtjómarskólana, sem sagt hef- ur verið upp, em á annan tug talsins. Þá er ótalið annað starfs- fólk skólanna svo sem húsverðir o.fl. Sagði ráðherra að hvað sem liði formlegum réttindum hefði hann gefíð öllum þeim sem sagt hefði verið upp þriggja mánaða uppsagnarfrest. Við Héraðsskólann á Laugar- vatni er sömu sögu að segja, að sögn menntamálaráðherra. I þeim skóla hefðu áður verið um 130 nemendur en síðasta vetur aðeins 32. Ætlunin væri þó að reka þann skóla a.m.k. í einn vetur til við- bótar til að gefa námsfólki aðlög- unartíma. Núpsskóli hefði aðeins verið hálfsetinn sl. vetur og enn- fremur væri hann ekki íbúðar- hæfur. Þar verður því fé, sem ætlað er á fjárlögum til rekstrar á komandi vetri, varið til að gera skólann íbúðarhæfan á ný. Síðan verður athugað hvort skilyrði séu til áframhaldandi rekstrar. inorgunDiaoio/uiamr k. magnusson Borgarstjórahjónin á kjörstað Davíð Oddsson borgarstjóri og kona hans, Ástríður Thorarensen, á kjörstað í Melaskólanum í Reykjavík um tíuleytið í gærmorgun. S veitarstj órnarkosningarnar í gær: Kjörsóknín var í dræm- ara lagi fram eftír degi KJÖRSÓKN var dræm á fjórum I kosið og var það nokkru minna I einhvern þátt í dræmrí kjörsókn. I kosningunum 1983 höfðu 5.631 stærstu stöðum landsins rétt en á sama tíma í síðustu sveitar- Klukkan 11 höfðu 4.900 manns kosið á sama tíma og var það 9% fyrir hádegið í gær. Á þessum stjórnarkosningum. Töldu menn kosið í Reykjavík og var það 7,4%. og í borgarstjómarkosningunum stöðum höfðu um 7% kjósenda I að gott veður ætti hugsanlega I Á kjörskrá voru 65.987. I alþingis- I 1982 var kjörsóknin 10% klukkan Fyrstu ungamir ÞÁ ERU fyrstu ungarnir komn- ir á Reykjavíkurtjöm. Á föstu- dagskvöldið mátti sjá hvar stolt æðarkolla synti meðfram aust- urbakka Tjamarinnar i átt að Búnaðarfélagshúsinu. Hún hafði vakandi auga á ungvið- inu. Þann sama dag var lokið viðgerð og endurbótum á gos- brunninum í syðri-Tjörainni og tók hann aftur að gjósa kröft- ugu gosi. 11. í Kópavogi höfðu 728 kosið klukkan rúmlega 11 eða 7,03%. Á kjörskrá voru 10.344. Sambærileg- ar tölur frá síðustu bæjarstjómar- kosningum liggja ekki fyrir, en yfirkjörstjóm taldi kjörsókn dræma. Á Akureyri höfðu 622 kosið klukkan 11 eða 6,55% af atkvæðis- bæmm mönnum. Á kjörskrá vom 9.949. Á sama tíma í síðustu kosn- ingum var kjörsóknin 7,97%. Þá höfðu 671 kosið en á kjörskrá vom 8.433. í Hafnarfirði höfðu 621 kosið eða 6,9%. Á kjörskrá vom 8.960. Sam- bærilegar tölur liggja ekki fyrir frá síðustu kosningum, en klukkan 13 höfðu 1.159 kosið. Sjá mynd og frétt frá kjörstað á Akureyri á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.