Morgunblaðið - 07.06.1986, Side 54

Morgunblaðið - 07.06.1986, Side 54
.54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ1986 Símamynd/Skapti Hallgrímsson • Stefán Jóhannsson, markvörður KR, handsamar knöttinn. Hlynur Birgisson sœkir aö honum. Ágúst Már Jónsson og Jósteinn Einarsson KR-ingar fylgjast meó. Öruggur sigur ÍA AKRANESVÖLLUR 1. DEILD: ÍA-FH 1:0 (1:0) Mark í A:Valgeir Baröason á 6. mínútu. Áhorfendur:696 Dómari:Bragi Bergmann, var slakur. Gul spjöld: Guðión Þórðarson. EINKUNNAGJOFIN: ÍA:Birkir Kristinsson 2, ðtiðjón Þórðarson 3, Heimir Guðmundsson 8, Sigurður Lárusson 2, Sigurður B. Jónsson 3, Sveinbjörn Hákonar- son 3, Olafur Þórðarson 3, Arni Sveinsson 2, Júlíus P. Ingólfsson 4, Guðbjörn Tryggvason 3, Volgeir Barðason 3. Jakob Halldórsson (vm) 2. Samtals 33 stig. FH: Halldór Halldórsson 2, Viöar Halldórsson 2, Ólafur Kristjánsson 3, Henning Hennings- son 4, ÓLafur Jóhannesson 3, Guðmundur Kristjánsson 3, Ingi Björn Albertsson 2, Ólafur Danivalsson 3, Pálmi Jónsson 2, Ólafur Haf- steinsson 2, Kristján Hilmarsson 2. Hörður Magnússon (vm) lék of stutt. Hlynur Eiríksson (vm) lék of stutt.Samtals 28 stig. Þetta var sanngjarn sigur Skagamanna. Þeir léku fyrri hálf- leik mjög vel og áttu þá hvert marktækifærið á fætur öðru. Og úr fyrsta færinu kom eina markið í leiknum, strax á sjöttu mínútu. Mjög vel var að því staðið. Þá átti Júlíus Pétur, besti maður ÍA í leiknum, fallega sendingu inn fyrir vörn FH á Valgeir sem komst á auðan sjó og vippaði snyrtilega yfir Halldór. Skömmu síðar átti Olafur Þórð- arsson hörkuskot rétt yfir mark Umdeilt sigurmark ÞÓRSVÖLLUR1. DEILD Þór-KR 0:1 (0:0) Mark KR: Ásbjörn Björnsson á 76. mínútu. Gul spjöld: Stefán Jóhannsson og Willum Þórsson, KR-ingar. Áhorfendur: 1050. Dómari: Sveinn Sveinsson og dæmdi sæmi- lega. EINKUNNAGJÖFIN: Þór: Baldvin Guömundsson 3, Jónas Róberts son 2, Baldur Guönason 2, Nói Björnsson 2 Júlíus Tryggvason 3, Árni Stefánsson 2, Hall dór Áskelsson 2, Siguróli Kristjánsson 3 Bjarni Sveinbjörnsson 1, Hlynur Birgisson 2, Kristján Kristjánsson 2, Einar Arason (vm.) lók of stutt til að fá einkunn. Samtals: 24. KR: Stefán Jóhannsson 3, Loftur Ólafsson 3, Hálfdán örlygsson 2, Jósteinn Einarsson 1, Ágúst Már Jónsson 2, Gunnar Gíslason 2, Willum Þórsson 2, Júlíus Þorfinsson 2, Björn Rafnsson 2, Sæbjörn Guömundsson 3, Ás- björn Björnsson 2, Hannes Jóhannsson (vm) 1. Samtals: 25. Fátt var um fína drætti í fyrri hálfleik. í stuttu máli sagt var hann mjög slakur. Hvorugt lið skapaði sér eitt einasta marktækifæri svo heitið gæti fyrir utan skot Hálfdáns utan úr teig sem Baldvin varði vel. Þá komst Björn Rafnsson í sæmilegt færi en skaut langt fram- hjá. Eina mark leiksins skoraði Ás- björn Björnsson á 76. mín. Hann fékk knöttinn inn fyrir vörn Þórs, lék inn í teig og skaut í bláhornið er Baldvin kom út á móti honum. Rangstöðufnykur var að þessu eina marki leiksins — margir töldu Ásbjörn rangstæðan þegar knett- inum var spyrnt til hans. En ekki tjáir að deila við dómarann — og eftir leikinn urðu dómari og línu- verðir að fara til búningsklefa síns í lögreglufylgd. Ýmsir áhorfenda áttu eitthvað vantalað við þá um þetta atvik! Lítið var um önnur færi, Þórsar- ar áttu tvö góð skot og mark var dæmt af liðinu — Bjarni Svein- björnsson var rangstæður er Einar Arason skoraði. Sæbjörn KR-ingur átti gott skot utan teigs rétt fram- hjá og Baldvin varði vel skalla frá Willum. Jafntefli hefðu orðið sanngjörn úrslit í leiknum. Þórsarar voru meira með boltann en KR-ingar vörðust vel — og var greinilegt frá fyrstu mínútu að þeir voru komnir til Akureyar til að halda öðru stig- inu og beita skyndisóknum. Þetta var fyrsta tap Þórs á heimavelli síðan síðla sumars 1984. Áfall Englendinga ENGLENDINGAR eru komnir í veruleg vandræði á HM i knatt- spyrnu eftir markalaust jafntefii gegn Marokkó f F-riðlinum f Monterrey f gærkvöldi. Englend- ingar hafa nú aðeins hlotið eitt stig úr tveimur leikjum og verða að vinna Pólverja í sfðasta leikn- um til að eiga möguleika á að komast í 16 liða úrslit. Sóknarleikur Englendinga var afar bitlaus í fyrri hálfleik og fór það mjög í skapið á leikmönnum og áhorfendum. Mjög mikill hiti var Rush til Juventus Frá Bob Hennessy, fróttarftara Morgunblaðsins á Englandi. JUVENTUS hefur boðið Liverpool um 3 milljónir punda (um 180 milljónir fsienskra króna) fyrir lan Rush. Johnny Ekström hjá Gauta- Heimsmet AUSTUR-Þjóðverjinn Jiirgen Schult setti nýtt heimsmet f kringlukasti í gær þegar hann kastaði kringlunni 74,08 m. Schult bætti þriggja ára gamalt met Sovétmannsins Yuri Dumtsc- hev um 2,22 m á úrtökumóti fyrir Evrópukeppnina í frjálsum íþrótt- um sem fram fer í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi í júlf. Metkastið kom í fjórða kasti Schults. fslands- met Vésteins Hafsteinssonar er 65,60 m. borg er falur fyrir milljón pund og Liverpool virðist hafa áhuga á honum. Liverpool keypti Rush frá Chest- er í maí 1980 fyrir 300.000 pund en nú hefur Juventus boðið tíu sinnum hærri upphæð fyrir kapp- ann. Sá möguleiki er fyrir hendi að Juventus kaupi Rush, en láni Liverpool hann næsta tímabil. Liverpool hefur að undanförnu fylgst með Johnny Ekström hjá Gautaborg og á dögunum var Paisley í Svíþjóð og talaöi við stjórnarmenn Gautaborgarliðsins. „Við sögðum Paisley að verðið fyrir Ekström væri milljón pund og hann virtist hafa áhuga," er haft eftir Roger Guttarson, stjórnarmanni hjá Gautaborg. Ekström getur skipt um félag í nóvember. einnig á meðan leikurinn fór fram og hann var leikinn á litlum hraða, þrátt fyrir mikilvægi hans. Brian Robson þurfti snemma að fara útaf vegna meiðsla á öxl og um miðjan fyrri hálfleik var Ray Wilkins rekinn af leikvelii fyrir að kasta knettinum að dómaranum rétt eftir að hafa fengiö gula spjaldið. Einum færri, og án fyrirliða síns og varafyrirliða, gerði enska liðið lítið annað en að standa í liði Marokkó, sem um miðjan seinni hálfleik fór að stríða hinum frægu mótherjum með tíð- um sendingum milli öftustu varnar- manna og á markvörðinn. Bæði liö fengu nokkur -færi í leiknum — tvisvar í fyrri hálfleik björguðu Marokkómenn ævintýra- lega upp við markið skotum frá Lineker og Robson. Shilton varði sömuleiðis ágætlega nokkrum sinnum þegar Marokkómenn sköpuðu sér færi eftir skyndisókn- ir. Undir lok leiksins fóru Englend- ingar aftur að sækja, og lögðu allt undir. Þá átti Hoddle skot rétt yfir mark Marokkó og Hodge, sem kom inná fyrir Robson, renndi knettinum framhjá eftir að annaö hörkuskot Hoddle hafði veriö var- ið. En hvorugu liðinu tókst að skora. FH. Á 21. mínútu óð Guðjón Þórð- arson bakvörður upp allan völl og sendi fallega sendingu fyrir mark- ið. Þar stóð Sveinbjörn Hákonar- son óvaldaður en hann skallaði naumlega yfir markið. Á þrítugustu mínútu kom skemmtilegasta sókn Skagamanna í hálfleiknum. Þá vann Valgeir boltann rétt utan eiginn vítateigs, lék upp völlinn, renndi á Guðbjörn sem lék áfram inn í vítateiginn og sendi síðan knöttinn fyrir opið mark FH. Þar kom Heimir Guðmundsson bak- vörður aðvífandi og skaut hörku- skoti — en í stöng. Skagamenn höfðu yfirburði í fyrri hálfleik. FH-ingar fengu varla marktækifæri í hálfleiknum. Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og þeim fyrri lauk — með sókn ÍA. Eftir um 15 mínútna leik dofnaði heldur yfir Skagamönnum og FH-ingar komu meira inn í leikinn og áttu þá með stuttu mnillibili tvö ágætis marktækifæri. í fyrra skipti skaut Olafur Jóhannesson hörku- skoti rétt yfir þverslá og skömmu síðar komst Ingi Björn innfyrir, en Sigurði Jónssyni tókst að bjarga á síðustu stundu. FH-ingar höfðu frumkvæðið það sem eftir var leiksins en þeim tókst ekki aö skapa sér almennileg færi. Undir lokin náðu svo Skagamenn nokkrum sprettum og þegar 10 mín. voru eftir lék Júklíus á tvo FH-inga utan teigs og átti skot að marki sem fór í Henning, lyftist yfir Halldór í markinu og datt ofan á þverslá FH-marksins. Síðasta marktækifærið áttu FH-ingar, en þá varði Birkir mjög vel fast skot Olafs Danivalssonar. Sigur Skagamanna var sann- gjarn. Júlíus Pétur var þeirra bestur og einnig áttu Olafur Þórðarson og Sigurður B. Jónsson góðan leik. Henning Henningsson var lang- bestur FH-inga, klettur í vörninni. Einnig var Ólafur Kristjánsson mjög öruggur í stöðu vinstri bak- varðar. FH-liðið vantaði hinsvegar allan mátt í sóknarleikinn. Staðan í 1. deild STAÐAN í 1. deild karla eftir leikina í gærkvöldi: KR 5 2 3 0 7:2 9 ÍA 5 2 2 1 5:2 8 Víðir 5 2 2 1 3:3 8 Valur 5 2 1 2 7:4 7 FH 5 2 1 2 6:5 7 UBK 4 2 1 1 3:2 7 ÍBK 5 2 0 3 3:7 6 Fram 4 1 2 1 3:3 5 Þór Ak. 4 112 3:4 4 ÍBV 4 0 13 1:9 1 Slakur leikur KÓPAVOGSVÖLLUR1. deild: UBK-VHMr Mark Viðla: Grétar Einarsson á 45. min. Gul spjöld: Grétar Einarsson úr Víði. Dómarí: Óli Ólsen og dæmdi hann leikinn vel. Áhorfendur: 603 EINKUNNAGJÖFIN: UBK: örn Bjarnason 2, Ingjaldur Gústafsson 1, Ólafur Björnsson 2, Magnús Magnússon 2, Benedikt Guömundsson 2, Jón Þórir Jóns- son 2, Hókon Gunnarsson 1, Guömundur Guömundsson 2, Guömundur Valur Sigurös- son 1, Jóhann Grétarsson (vm. á 64. mín.) 1, Vignir Baldursson 2, Rögnvaldur Rögnvalds- son 1, Helgi Ingason (vm. á 64. mín.) 1. Samtals: 18 VÍÖIR: Gísli Heiðarsson 2, Klemenz Sæmunds- son 2, Vilhjólmur Einarsson 1, Mark Duffield 2, Daníel Einarsson 2, Guöjón Guðmundsson 2, Helgi Bentsson 3, Björn Vilhelmsson 1, Ólafur Róbertsson 1, Þóröur Þorkelsson 1, Vilberg Þorvaldsson (vm. á 65. mín.) 1, Grétar Einarsson 2. Samtals: 19 VÍÐIR vann Breiðablik með einu marki gegn engu í 1. deildinni f gær f hreint út sagt mjög döprum og leiðinlegum leik. Lftið spil var f leiknum og Víðismenn unnu leikinn fyrst og fremst á mun melri baráttu og sigurvilja. Fyrri hálfleikurinn var einstak- lega tíðindalítill. Víðismenn voru skárri framan af en Blikar komu síðan meira inn í miðjuþófiö og þeir áttu reyndar eina tækifærið í fyrri hálfleik þegar Jón Þórir Jóns- son komst einn inn fyrir Víðisvörn- ina á 18. minútu, en Gísli Heiðars- son markvörður bjargaði vel í horn. Rétt þegar flauta átti til leikhlés sendi Daníel Einarsson langa og háa sendingu fram. Boltinn hopp- aði fyrir utan vítateig Blika þar sem Magnús Magnússon og Örn Bjarnason, markvörður Blikanna, hikuðu og Grétar bróðir Daníels stökk upp og skoraði með skalla yfir Örn. Hræðilega klaufalegt mark. Ef fyrri hálfleikur var daufur þá eru varla til orð til að lýsa síðari hálfleik. Víðismenn voru enn betri aöilinn og með baráttu tókst þeim að skapa sér ein tvö sæmileg marktækifæri en það var allt og sumt. Úrslit í gær í GÆR átti að fara fram leikur Stjörnunnar og Reynis frá Sand- gerði í 3. deild en ekkert varð úr honum vegna þess að dómarinn mætti ekki til leiks. Furðulegt og slíkt má alts ekki koma fyrir. Úr- slit leikja hár heima f gær urðu þannig: 2. deild: KS — ÍBÍ 1:1 (1:0) Fyrir KS skoraði Gústaf Björnsson en heimamenn skoruðu sjálfsmark í seinni hálfleik. Völsungur — UMFN 1:2 (0:1). Mörk Njarðvíkinga gerðu Jón Ól- afsson og Haukur Jóhannsson en mark Völsungs Jónas Hallgríms- son. 3. deild: UMFN — ÍK 1:3 (0:2) Guðmundur Gíslason 2 og Þórir Gíslason 1, gerðu mörk ÍK en Helgi Bogason gerði mark heimamanna. 4. deild: Sulan — Neisti 1:1 Hvöt — Svarfdælir 1:0 og gerði Garðar Jónsson markið. Reynir Hn. — BÍ 1:0 Þorgeir Jóns- son skoraði þetta mark í leiknum á þriðjudagskvöldið. 1. deild kvenna: ÍA — Haukar 4:0 Karitas Jónsdóttir (2), Vanda Sigurgeirsdóttir, og Halldóra Gylfadóttir gerðu mörkin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.