Morgunblaðið - 07.06.1986, Qupperneq 54
.54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ1986
Símamynd/Skapti Hallgrímsson
• Stefán Jóhannsson, markvörður KR, handsamar knöttinn. Hlynur
Birgisson sœkir aö honum. Ágúst Már Jónsson og Jósteinn Einarsson
KR-ingar fylgjast meó.
Öruggur sigur ÍA
AKRANESVÖLLUR 1. DEILD:
ÍA-FH 1:0 (1:0)
Mark í A:Valgeir Baröason á 6. mínútu.
Áhorfendur:696
Dómari:Bragi Bergmann, var slakur.
Gul spjöld: Guðión Þórðarson.
EINKUNNAGJOFIN:
ÍA:Birkir Kristinsson 2, ðtiðjón Þórðarson 3,
Heimir Guðmundsson 8, Sigurður Lárusson
2, Sigurður B. Jónsson 3, Sveinbjörn Hákonar-
son 3, Olafur Þórðarson 3, Arni Sveinsson
2, Júlíus P. Ingólfsson 4, Guðbjörn Tryggvason
3, Volgeir Barðason 3. Jakob Halldórsson (vm) 2.
Samtals 33 stig.
FH: Halldór Halldórsson 2, Viöar Halldórsson
2, Ólafur Kristjánsson 3, Henning Hennings-
son 4, ÓLafur Jóhannesson 3, Guðmundur
Kristjánsson 3, Ingi Björn Albertsson 2, Ólafur
Danivalsson 3, Pálmi Jónsson 2, Ólafur Haf-
steinsson 2, Kristján Hilmarsson 2. Hörður
Magnússon (vm) lék of stutt. Hlynur Eiríksson
(vm) lék of stutt.Samtals 28 stig.
Þetta var sanngjarn sigur
Skagamanna. Þeir léku fyrri hálf-
leik mjög vel og áttu þá hvert
marktækifærið á fætur öðru. Og úr
fyrsta færinu kom eina markið í
leiknum, strax á sjöttu mínútu.
Mjög vel var að því staðið. Þá
átti Júlíus Pétur, besti maður ÍA í
leiknum, fallega sendingu inn fyrir
vörn FH á Valgeir sem komst á
auðan sjó og vippaði snyrtilega
yfir Halldór.
Skömmu síðar átti Olafur Þórð-
arsson hörkuskot rétt yfir mark
Umdeilt sigurmark
ÞÓRSVÖLLUR1. DEILD
Þór-KR 0:1 (0:0)
Mark KR: Ásbjörn Björnsson á 76. mínútu.
Gul spjöld: Stefán Jóhannsson og Willum
Þórsson, KR-ingar.
Áhorfendur: 1050.
Dómari: Sveinn Sveinsson og dæmdi sæmi-
lega.
EINKUNNAGJÖFIN:
Þór: Baldvin Guömundsson 3, Jónas Róberts
son 2, Baldur Guönason 2, Nói Björnsson 2
Júlíus Tryggvason 3, Árni Stefánsson 2, Hall
dór Áskelsson 2, Siguróli Kristjánsson 3
Bjarni Sveinbjörnsson 1, Hlynur Birgisson 2,
Kristján Kristjánsson 2, Einar Arason (vm.) lók
of stutt til að fá einkunn.
Samtals: 24.
KR: Stefán Jóhannsson 3, Loftur Ólafsson 3,
Hálfdán örlygsson 2, Jósteinn Einarsson 1,
Ágúst Már Jónsson 2, Gunnar Gíslason 2,
Willum Þórsson 2, Júlíus Þorfinsson 2, Björn
Rafnsson 2, Sæbjörn Guömundsson 3, Ás-
björn Björnsson 2, Hannes Jóhannsson (vm)
1.
Samtals: 25.
Fátt var um fína drætti í fyrri
hálfleik. í stuttu máli sagt var hann
mjög slakur. Hvorugt lið skapaði
sér eitt einasta marktækifæri svo
heitið gæti fyrir utan skot Hálfdáns
utan úr teig sem Baldvin varði
vel. Þá komst Björn Rafnsson í
sæmilegt færi en skaut langt fram-
hjá.
Eina mark leiksins skoraði Ás-
björn Björnsson á 76. mín. Hann
fékk knöttinn inn fyrir vörn Þórs,
lék inn í teig og skaut í bláhornið
er Baldvin kom út á móti honum.
Rangstöðufnykur var að þessu
eina marki leiksins — margir töldu
Ásbjörn rangstæðan þegar knett-
inum var spyrnt til hans. En ekki
tjáir að deila við dómarann — og
eftir leikinn urðu dómari og línu-
verðir að fara til búningsklefa síns
í lögreglufylgd. Ýmsir áhorfenda
áttu eitthvað vantalað við þá um
þetta atvik!
Lítið var um önnur færi, Þórsar-
ar áttu tvö góð skot og mark var
dæmt af liðinu — Bjarni Svein-
björnsson var rangstæður er Einar
Arason skoraði. Sæbjörn KR-ingur
átti gott skot utan teigs rétt fram-
hjá og Baldvin varði vel skalla frá
Willum.
Jafntefli hefðu orðið sanngjörn
úrslit í leiknum. Þórsarar voru
meira með boltann en KR-ingar
vörðust vel — og var greinilegt frá
fyrstu mínútu að þeir voru komnir
til Akureyar til að halda öðru stig-
inu og beita skyndisóknum.
Þetta var fyrsta tap Þórs á
heimavelli síðan síðla sumars
1984.
Áfall Englendinga
ENGLENDINGAR eru komnir í
veruleg vandræði á HM i knatt-
spyrnu eftir markalaust jafntefii
gegn Marokkó f F-riðlinum f
Monterrey f gærkvöldi. Englend-
ingar hafa nú aðeins hlotið eitt
stig úr tveimur leikjum og verða
að vinna Pólverja í sfðasta leikn-
um til að eiga möguleika á að
komast í 16 liða úrslit.
Sóknarleikur Englendinga var
afar bitlaus í fyrri hálfleik og fór
það mjög í skapið á leikmönnum
og áhorfendum. Mjög mikill hiti var
Rush til Juventus
Frá Bob Hennessy, fróttarftara Morgunblaðsins á Englandi.
JUVENTUS hefur boðið Liverpool
um 3 milljónir punda (um 180
milljónir fsienskra króna) fyrir lan
Rush. Johnny Ekström hjá Gauta-
Heimsmet
AUSTUR-Þjóðverjinn Jiirgen
Schult setti nýtt heimsmet f
kringlukasti í gær þegar hann
kastaði kringlunni 74,08 m.
Schult bætti þriggja ára gamalt
met Sovétmannsins Yuri Dumtsc-
hev um 2,22 m á úrtökumóti fyrir
Evrópukeppnina í frjálsum íþrótt-
um sem fram fer í Stuttgart í
Vestur-Þýskalandi í júlf. Metkastið
kom í fjórða kasti Schults. fslands-
met Vésteins Hafsteinssonar er
65,60 m.
borg er falur fyrir milljón pund
og Liverpool virðist hafa áhuga á
honum.
Liverpool keypti Rush frá Chest-
er í maí 1980 fyrir 300.000 pund
en nú hefur Juventus boðið tíu
sinnum hærri upphæð fyrir kapp-
ann. Sá möguleiki er fyrir hendi
að Juventus kaupi Rush, en láni
Liverpool hann næsta tímabil.
Liverpool hefur að undanförnu
fylgst með Johnny Ekström hjá
Gautaborg og á dögunum var
Paisley í Svíþjóð og talaöi við
stjórnarmenn Gautaborgarliðsins.
„Við sögðum Paisley að verðið fyrir
Ekström væri milljón pund og hann
virtist hafa áhuga," er haft eftir
Roger Guttarson, stjórnarmanni
hjá Gautaborg. Ekström getur
skipt um félag í nóvember.
einnig á meðan leikurinn fór fram
og hann var leikinn á litlum hraða,
þrátt fyrir mikilvægi hans. Brian
Robson þurfti snemma að fara útaf
vegna meiðsla á öxl og um miðjan
fyrri hálfleik var Ray Wilkins rekinn
af leikvelii fyrir að kasta knettinum
að dómaranum rétt eftir að hafa
fengiö gula spjaldið. Einum færri,
og án fyrirliða síns og varafyrirliða,
gerði enska liðið lítið annað en að
standa í liði Marokkó, sem um
miðjan seinni hálfleik fór að stríða
hinum frægu mótherjum með tíð-
um sendingum milli öftustu varnar-
manna og á markvörðinn.
Bæði liö fengu nokkur -færi í
leiknum — tvisvar í fyrri hálfleik
björguðu Marokkómenn ævintýra-
lega upp við markið skotum frá
Lineker og Robson. Shilton varði
sömuleiðis ágætlega nokkrum
sinnum þegar Marokkómenn
sköpuðu sér færi eftir skyndisókn-
ir. Undir lok leiksins fóru Englend-
ingar aftur að sækja, og lögðu allt
undir. Þá átti Hoddle skot rétt yfir
mark Marokkó og Hodge, sem
kom inná fyrir Robson, renndi
knettinum framhjá eftir að annaö
hörkuskot Hoddle hafði veriö var-
ið.
En hvorugu liðinu tókst að
skora.
FH. Á 21. mínútu óð Guðjón Þórð-
arson bakvörður upp allan völl og
sendi fallega sendingu fyrir mark-
ið. Þar stóð Sveinbjörn Hákonar-
son óvaldaður en hann skallaði
naumlega yfir markið. Á þrítugustu
mínútu kom skemmtilegasta sókn
Skagamanna í hálfleiknum. Þá
vann Valgeir boltann rétt utan
eiginn vítateigs, lék upp völlinn,
renndi á Guðbjörn sem lék áfram
inn í vítateiginn og sendi síðan
knöttinn fyrir opið mark FH. Þar
kom Heimir Guðmundsson bak-
vörður aðvífandi og skaut hörku-
skoti — en í stöng.
Skagamenn höfðu yfirburði í
fyrri hálfleik. FH-ingar fengu varla
marktækifæri í hálfleiknum.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins
og þeim fyrri lauk — með sókn ÍA.
Eftir um 15 mínútna leik dofnaði
heldur yfir Skagamönnum og
FH-ingar komu meira inn í leikinn
og áttu þá með stuttu mnillibili tvö
ágætis marktækifæri. í fyrra skipti
skaut Olafur Jóhannesson hörku-
skoti rétt yfir þverslá og skömmu
síðar komst Ingi Björn innfyrir, en
Sigurði Jónssyni tókst að bjarga á
síðustu stundu.
FH-ingar höfðu frumkvæðið það
sem eftir var leiksins en þeim tókst
ekki aö skapa sér almennileg færi.
Undir lokin náðu svo Skagamenn
nokkrum sprettum og þegar 10
mín. voru eftir lék Júklíus á tvo
FH-inga utan teigs og átti skot að
marki sem fór í Henning, lyftist
yfir Halldór í markinu og datt ofan
á þverslá FH-marksins. Síðasta
marktækifærið áttu FH-ingar, en
þá varði Birkir mjög vel fast skot
Olafs Danivalssonar.
Sigur Skagamanna var sann-
gjarn. Júlíus Pétur var þeirra bestur
og einnig áttu Olafur Þórðarson
og Sigurður B. Jónsson góðan leik.
Henning Henningsson var lang-
bestur FH-inga, klettur í vörninni.
Einnig var Ólafur Kristjánsson
mjög öruggur í stöðu vinstri bak-
varðar. FH-liðið vantaði hinsvegar
allan mátt í sóknarleikinn.
Staðan í
1. deild
STAÐAN í 1. deild karla eftir
leikina í gærkvöldi:
KR 5 2 3 0 7:2 9
ÍA 5 2 2 1 5:2 8
Víðir 5 2 2 1 3:3 8
Valur 5 2 1 2 7:4 7
FH 5 2 1 2 6:5 7
UBK 4 2 1 1 3:2 7
ÍBK 5 2 0 3 3:7 6
Fram 4 1 2 1 3:3 5
Þór Ak. 4 112 3:4 4
ÍBV 4 0 13 1:9 1
Slakur leikur
KÓPAVOGSVÖLLUR1. deild:
UBK-VHMr
Mark Viðla: Grétar Einarsson á 45. min.
Gul spjöld: Grétar Einarsson úr Víði.
Dómarí: Óli Ólsen og dæmdi hann leikinn vel.
Áhorfendur: 603
EINKUNNAGJÖFIN:
UBK: örn Bjarnason 2, Ingjaldur Gústafsson
1, Ólafur Björnsson 2, Magnús Magnússon
2, Benedikt Guömundsson 2, Jón Þórir Jóns-
son 2, Hókon Gunnarsson 1, Guömundur
Guömundsson 2, Guömundur Valur Sigurös-
son 1, Jóhann Grétarsson (vm. á 64. mín.) 1,
Vignir Baldursson 2, Rögnvaldur Rögnvalds-
son 1, Helgi Ingason (vm. á 64. mín.) 1.
Samtals: 18
VÍÖIR: Gísli Heiðarsson 2, Klemenz Sæmunds-
son 2, Vilhjólmur Einarsson 1, Mark Duffield
2, Daníel Einarsson 2, Guöjón Guðmundsson
2, Helgi Bentsson 3, Björn Vilhelmsson 1,
Ólafur Róbertsson 1, Þóröur Þorkelsson 1,
Vilberg Þorvaldsson (vm. á 65. mín.) 1, Grétar
Einarsson 2.
Samtals: 19
VÍÐIR vann Breiðablik með einu
marki gegn engu í 1. deildinni f
gær f hreint út sagt mjög döprum
og leiðinlegum leik. Lftið spil var
f leiknum og Víðismenn unnu
leikinn fyrst og fremst á mun
melri baráttu og sigurvilja.
Fyrri hálfleikurinn var einstak-
lega tíðindalítill. Víðismenn voru
skárri framan af en Blikar komu
síðan meira inn í miðjuþófiö og
þeir áttu reyndar eina tækifærið í
fyrri hálfleik þegar Jón Þórir Jóns-
son komst einn inn fyrir Víðisvörn-
ina á 18. minútu, en Gísli Heiðars-
son markvörður bjargaði vel í horn.
Rétt þegar flauta átti til leikhlés
sendi Daníel Einarsson langa og
háa sendingu fram. Boltinn hopp-
aði fyrir utan vítateig Blika þar sem
Magnús Magnússon og Örn
Bjarnason, markvörður Blikanna,
hikuðu og Grétar bróðir Daníels
stökk upp og skoraði með skalla
yfir Örn. Hræðilega klaufalegt
mark.
Ef fyrri hálfleikur var daufur þá
eru varla til orð til að lýsa síðari
hálfleik. Víðismenn voru enn betri
aöilinn og með baráttu tókst þeim
að skapa sér ein tvö sæmileg
marktækifæri en það var allt og
sumt.
Úrslit í gær
í GÆR átti að fara fram leikur
Stjörnunnar og Reynis frá Sand-
gerði í 3. deild en ekkert varð úr
honum vegna þess að dómarinn
mætti ekki til leiks. Furðulegt og
slíkt má alts ekki koma fyrir. Úr-
slit leikja hár heima f gær urðu
þannig:
2. deild:
KS — ÍBÍ 1:1 (1:0) Fyrir KS skoraði
Gústaf Björnsson en heimamenn
skoruðu sjálfsmark í seinni hálfleik.
Völsungur — UMFN 1:2 (0:1).
Mörk Njarðvíkinga gerðu Jón Ól-
afsson og Haukur Jóhannsson en
mark Völsungs Jónas Hallgríms-
son.
3. deild:
UMFN — ÍK 1:3 (0:2) Guðmundur
Gíslason 2 og Þórir Gíslason 1,
gerðu mörk ÍK en Helgi Bogason
gerði mark heimamanna.
4. deild:
Sulan — Neisti 1:1
Hvöt — Svarfdælir 1:0 og gerði
Garðar Jónsson markið.
Reynir Hn. — BÍ 1:0 Þorgeir Jóns-
son skoraði þetta mark í leiknum
á þriðjudagskvöldið.
1. deild kvenna:
ÍA — Haukar 4:0 Karitas Jónsdóttir
(2), Vanda Sigurgeirsdóttir, og
Halldóra Gylfadóttir gerðu mörkin.