Morgunblaðið - 10.06.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR10. JPNl 1986
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá kvöldverðarboði forseta íslands að Hótel Sögti í gærkvöldi.
Þjóðhöfðingi Lúxem-
borgar heimsækir Is-
land í fyrsta sinn
STÓRHERTOGAHJÓNIN af Lúxemborg, Jean og Jose-
phine-Charlotte, komu í opinbera heimsókn til íslands í
gær. Það rigndi hressilega þegar þota þjóðhöfðingjans lenti
á Reykjavíkurflugvelli, þar sem forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, dóttir hennar Ástríður, ríkisstjórnin og
embættismenn tóku á móti gestunum. Heiðursvörður lög-
reglunnar stóð við landganginn og Lúðrasveit Reykjavíkur
lék þjóðsöngva ríkjanna.
Þegar stórhertogahjónin og
fylgdarlið þeirra höfðu heilsað
gestgjöfunum, héldu þau til Bessa-
staða í stutta móttöku hjá forseta.
Þá var ekið í ráðherrabústaðinn þar
sem stórhertogahjónin búa meðan
á heimsókninni stendur. Forseti
hélt gestunum veislu í gærkvöldi á
Hótel Sögu.
I morgun áttu gestimir að fljúga
til Mývatns þar sem þau skoða
Dimmuborgir, Námaskarð, og
Laxárvirkjun. í kvöld sitja þau boð
borgarstjórahjónanna að Kjarvals-
stöðum. Á dagskrá morgundagsins
er meðal annars heimsókn í Áma-
stofnun, á Þjóðminjasafnið og
skoðunarferð um Þingvelli. Stór-
hertogahjónin halda af landi brott
á fímmtudagsmorgun.
Þetta er í fyrsta sinn sem þjóð-
höfðingi Lúxemborgar heimsækir
ísland. Stórhertoginn Jean, prins
af Parma og hertogi af Nassau,
fæddist þann 5. janúar 1921. Hann
gekk að eiga Josephine-Charlotte,
prinsessu af Belgíu árið 1953. Hún
er dóttir Leopolds konungs af Belg-
íu og konu hans, sænsku prinsess-
unnar Astrid. Stórhertogahjónin
eigafímm böm.
Lúxemborg hefur verið miðstöð
fyrir flugsamgöngur milli íslands
og meginlands Evrópu í þijá ára-
tugi. Fjöldi íslendinga hefíir þar
fasta búsetu og margir byija ferða-
lög sín í landinu. Flugleiðir fluttu
á síðasta ári rúmlega 256.000 far-
þega til Lúxemborgar og í sumar
lenda vélar félagsins átján sinnum
í viku á Findel-flugvelli.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands:
Skugga hefur
aldrei borið á
tengsl þjóðanna
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hélt stórhertogahjónun-
um af Lúxemborg hóf í gærkvöldi á Hótel Sögu. Meðal gesta voru
ríkisstjórn íslands, fylgdarlið stórhertogahjónanna, íslenskir embætt-
ismenn og fréttamenn frá Lúxemborg sem fylgjast með heimsókn-
inni. Frú Vigdís bauð erlendu gestina velkomna og sagði að heimsókn-
m væri söguleg þar sem þetta
Lúxemborgar kemur til íslands.
í ræðu sinni sagði forsetinn að
fá lönd væru Islendingum tungu-
tamari en einmitt Lúxemborg.
Haldi þeir til meginlandsins væri
einatt spurt „Um London eða Lúx-
emborg?" Hún líkti löndunum við
brúarsporða á brú sem tengdi Evr-
ópu við Nýja heiminn. í suðri væri
Lúxemborg, en ísland stikla í haf-
inu á vesturleið. Um samskipti þjóð-
anna sagði forseti íslands: „Heita
má að tengslin milli landa vorra
hafí ekki orðið að marki mikil fyrr
en á árunum eftir heimsstyijöldina
síðari, friðarárin sem keypt voru
svo dýru verði. Og á þeim tímum
sem vér lifum eru það sjaldgæf
forréttindi að geta með sanni sagt
að aldrei hafí nokkum skugga á
þau borið."
Vigdís sagði að löndin tvö hefðu
komið fram á sjónarsviðið um svip-
að leyti. Um miðja 10. öld tók tók
Siegfried hertogi virkið Lucilinburg
í arf, og þá höfðu íslenskir land-
námsmenn sest hér að og stofnað
Alþingi. Hún gat einnig klaustra
* í fyrsta sinn sem þjóðhöfðingi
Lúxemborgar sem hefðu verið
mörgum ferðalangnum hæli og án
efa hefðu íslendingar á leið til Róm-
ar átt þar viðdvöl. í því sambandi
minntist forSetinn á Halldór Lax-
ness sem bjó í Clervaux klaustri
um margra mánaða skeið.
Vigdís vék að „nýlendu" íslend-
inga í Lúxemborg sem flestir tengj-
ast flugsamgöngum. Hún sagði síð-
an: „Samgöngur færa með sér
samskipti manna og skoðanaskipti,
kynni af nýjum hugmyndum sem
hvetja og efla til dáða. Þar á land
yðar mikinn hlut, sem oss er í mun
að tjá þakklæti vort fyrir.“ Forset-
inn þakkaði stórhertogahjónunum
fyrir þann áhuga sem þau sýndu á
að skoða landið og náttúru þess og
lauk ræðu sinni með þessum orðum:
„Miðja heimsins er hverri þjóð sá
staður þar sem hiarta hennar slær.
Hér slær hjarta Islands og hingað
höfum vér boðið yður að hlusta með
oss á hjartslátt þess. Ég lyfti glasi
til heilla yðar konunglegu tignum,
landi yðar og þjóð.“
Harður árekstur
— minniháttar meiðsli
HARÐUR árekstur varð á laug-
ardagskvöldið á mótum Berg-
staðastrætis og Njarðargötu.
Farþegi í öðrum bQnum marðist
nokkuð, en aðrir meiddust ekki.
Bifreið af gerðinni Mazda var
ekið niður eftir Bergstaðastræti og
beint í veg fyrir Austin Mini, sem
kom upp Njarðargötuna. Stöðvun-
arskylda er á Bergstaðastrætinu,
en ökumaður Mözdunnar sagðist
ekki hafa veitt henni athygli. 30
kílómetra hámarkshraði er á þess-
um götum.
Taugaspenna setti mark
sitt á taflmennskuna
— sagði Jón L. Arnason skákmaður
ÞETTA BYRJAÐI illa og ætlaði að enda illa þegar ég
ákvað að grípa í taumana," sagði Jón L. Arnason skák-
maður sem náði öðrum áfanga að stórmeistaratitli á
skákmóti, sem lauk um helgina í Helsinki.
Jón sagði að mótið hefði verið
vel skipulagt en nokkuð strembið,
ekki nema einn dagur til hvfldar.
Hvað hann snerti var útlitið þess
vegna ekki glæsilegt í byijun
vegna þess hvað margar skákir
fóru í bið. Eftir Qórar umferðir
hafði hann einungis hálfan vinn-
ing og tvær biðskákir sem honum
tókst að vinna en Jón vann sex
skákir í röð á mótinu og gerði
fæst jafntefli keppenda, aðeins
tvö. „Annars setti taugaspennan
mark sitt á taflmennskuna í lok-
in,“ sagði Jón.
„Eg þurfti ekki nema þijú jafn-
tefli úr þremur síðustu skákunum
og það er erfítt að tefla undir slík-
um kringumstæðum. Þess vegna
er eins gott að ná titlinum sem
fyrst svo að maður geti einbeitt
sér að skákinni." Mótið sem haldið
var í tilefni 100 ára afmælis elsta
skákfélagsins í Helsinki var mikið
baráttumót og sagði Jón að lítið
hefði verið um jafntefli og stuttar
skákir.
Jón tekur þátt í skákmóti í
Búlgaríu, sem hefst 24. júní og
sagði hann að það mót yrði sterk-
ara en mótið í Finnlandi. Meðal
þeirra fjórtán skákmanna sem þar
tefla eru Gligoric og Ivanovic stór-
meistarar frá Júgóslavíu, Uhlman
stórmeistari frá Austur-Þýska-
landi og þrír stórmeistarar frá
Rússlandi, þeir Tal, Gavrikov og
Salov. Gangi Jóni vel á þessu móti
nær hann stórmeistaratitlinum.
/ Frá slysstaðnum við Eldvatn. Bílinn náðist upp með hjálp kranans á myndinni. Morgunbiaðið/Rcynir Ragnareson
Slysið við Eldvatn:
Bílinn náðist upp úr ánni
BÍLLINN, sem lenti í Eldvatni á
miðvikudagskvöld, náðist upp
aðfaranótt sunnudagsins. Lík
stúlkunnar, sem ók bílnum var í
honum. Bíllinn náðist að bakka
árinnar með ankeri og var hífður
upp með kranabQ. Enn er ekki
fyllöega Ijóst með hvaða hætti
slysið varð.
Að sögn Reynis Ragnarssonar,
lögreglumanns í Vík í Mýrdal, náð-
ist bfllinn upp um klukkan 1 eftir
miðnættið aðfaranótt sunnudagsins
eftir nánast linnulausa leit og til-
raunir frá því á miðvikudags kvöld.
Bfllinn hefði þá verið kominn um
90 metra niður eftir ánni og verið
á 7 til 8 metra dýpi.
Reynir sagði tildrög slyssins
óljós, en líklegt mætti telja að bíllinn
hefði lent í lausamöl um það bil,
sem honum var ekið inn á brúna.
Við það hefði hann snúizt og aftur-
endi hans skollið utan í brúar-
handriðið og sprungið á öðru aftur-
dekkinu. Vegna þess hefði bfllinn
svo lent í gegn um handriðið og út
í ána.
í aðgerðum þessum tóku þátt um
80 manns úr öllum björgunarsveit-
um í Vestur-Skaftafellssýslu og við
leitina var meðal annars notuð flug-
vél og fjöldi annarra tækja auk
kranabíls frá Klaustri, sem náði
bílnum upp úr ánni.