Morgunblaðið - 10.06.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. JÚNÍ1986
21
Skipun inðarráðherra á manni
í stjórn íslenska álfélagsins
eftir Hrólf Halldórsson
Hinn 23. maí Qallaði Morgun-
blaðið um skipun iðnaðarráðherra
í stjóm íslenska álfélagsins. Þar var
haft eftir varaformanni Framsókn-
arflokksins að iðnaðarráðherra
hefði brotið þær samskiptareglur
sem almennt gildi milli stjómar-
flokkanna um skipun í mikilvægar
stjómir, þar sem ráðherra hefði
ekki skipað Þorstein Ólafsson, er
setið hefði í stjóm álfélagsins
samkvæmt tilnefningu Framsókn-
arflokksins. Nú hefði hins vegar
iðnaðarráðherra skipað í stjóm álfé-
lagsins Jón Aðalstein Jónasson,
fyrrverandi formann Framsóknar-
félags Reykjavíkur og formann
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reylgavík, en sú ráðstöfun var til-
efni þeirra ummæla er varaformað-
urinn viðhafði og eftir honum voru
höfð hér að framan. Lokaorð vara-
formannsins voru: „Það hefur verið
regla í álfélaginu frá upphafi að
fulltrúunum hafi verið skipt á milli
stjómarflokkanna."
Tveim dögum seinna birtist í
Morgunblaðinu samtal við Þorstein
Ólafsson vegna þessa sama máls,
og má skilja á orðum Þorsteins, að
Framsóknarflokkurinn ætti að láta
koma til stjómarslita vegna þessa
máls, með því að kreijast þess að
iðnaðarráðherra víki úr ríkisstjóm
vegna þess að hann skipaði Jón
Aðalstein Jónasson í stjóm álfélags-
ins.
Ástæða þess að undirritaður sér
sig tilknúinn og ræðir þessi mál
opinberlega er forsaga þess, en allt
hefur enn ekki komið í ljós. Þegar
ríkisstjóm Geirs Hallgrímssonar var
mynduð 1974, varð eins og flestum
er kunnugt dr. Gunnar Thoroddsen
iðnaðarráðherra. Er hann skipaði
menn í stjóm íslenska álfélagsins,
vom það þeir Stefán Jónsson hrl.
og Héðinn Finnbogason hrl., en sá
siðamefndi var tilnefndur af Fram-
sóknarflokknum. Héðinn Finnboga-
son sat í stjóm Islenska álfélagsins
þar til árið 1979, en 1. september
1978 hafði ríkisstjóm Ólafs Jóhann-
essonar tekið við og varð Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra.
Skömmu eftir að Hjörleifur tók
við ráðherraembætti gerði hann
Þorstein Ólafsson að aðstoðarráð-
herra í iðnaðaráðuneytinu. Þegar
að því kom að Hjörjeifur átti að
skipa menn í sljóm íslenska álfé-
lagsins - var Héðinn Finnbogason
fulltrúi Framsóknarflokksins. Ein-
hverra hluta vegna sá þá Hjörleifur
ekki ástæðu til að skipa í stjóm
álversins þann mann er fyrr hafði
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
verið tilnefndur af Framsóknar-
flokknum, heldur skipaði hann þá
Inga R. Helgason hrl. og Þorstein
Ólafsson í stjómina.
A þessum tíma gegndi Þorsteinn
Ólafsson trúnaðarstörfum fyrir
iðnaðarráðherra, og gat hann þá
að sjálfsögðu ekki veríð starfandi í
Framsóknarflokknum, en minn
skilningur er sá að aðstoðarráð-
herrar geti ekki verið á mála hjá
öðmm stjómmálaflokkum fyrr en
þeir hætta sem aðstoðarráðherrar,
og þykist ég þess fullviss að allir
þeir sem nú gegna slíkum embætt-
um séu trúir þeim stjómmálaflokk-
um er veitt hafa ráðherrunum
umboð til ríkisstjómarsetu.
Eins og Þorsteini líkar það ekki
að þurfa að víkja fyrir Jóni Aðal-
steini þá líkaði Héðni það ekki
heldur á sfnum tíma að þoka fyrir
Þorsteini. Mál Héðins hlaut þá
umflöllun hjá framsóknarmönnum,
en niðurstaðan þá varð sú, að Hjör-
leifur hefði heimild til að skipa
hvem þann í stjómina, sem hann
kysi að tæki þar sæti, það væri
ekkert við því að gera að Héðinn
þurfti að fara úr stjóminni.
Þá var ekki verið með neinar
opinberar yfirlýsingar um brot á
samskiptareglum ríkisstjómar-
flokka, hvað þá að hótað væri
stjómarslitum.
Höfundur er fyrrverandi formad-
ur Framsóknarfélaga Reykjavíkur
og fulltrúaráðs framsóknarfélag-
anna i Keykjavík.
„Skömmu eftir að Hjörleif-
ur tók við ráðherraemb-
ætti gerði hann Þorstein
Ólaf sson að aðstoðarráð-
herra í iðnaðarráðuneyt-
inu___Einhverra hluta
vegna sá þá Hjörleifur
ekki ástæðu tU að skipa í
stjórn álversins þann mann
er fyrr hafði verið til-
nefndur af Framsóknar-
flokknum, heldur skipaði
hann þá Inga R. Helgason
hrl. og Þorstein Ólafsson
í stjórnina."
Hþú
MEimnvuöe
GODAÁSDEDU
TIL AÐ KAUPA
SMRISKfRTEINI
RlKISSJÓÐS ■
Nú getur þú selt spariskírteinin þín
hvenær sem er þótt binditími þeirra
sé ekki útrunninn. Þetta gildir um nær alla
flokka spariskírteina - óháð aldri þeirra og
verði.
Verðbréfaþing íslands.
Verðbréfaþing íslands sem stofnað var á síð-
asta ári hefur komið sér upp kaup- og sölu-
markaði á spariskirteinum og fer verð þeirra
eftir því gengi sem aðilar þingsins auglýsa.
Aðilar Verðbréfaþingsins sem þú getur snúið
þér til eru: Landsbankinn, iðnaðarbankinn,
Fjárfestingarfélagið og Kaupþing.
í raun merkir þetta að þótt þú fjárfcstir í
spariskírteinum ríkissjóðs eru peningam-
ir þínir lausir hvenær sem þú vilt með iitl-
um fyrirvara.
Spariskírteini ríkissjóðs eru örugg-
asta fjárfesting sem völ er á.
Þú hefur eflaust veitt því athygli að nokkur
fyrirtæki bjóða skuldabréf með hærri vöxtum
en ríkissjóður. Spariskírteinin eru engu að
síður besti kosturinn. Þau eru eignar-
skattsfrjáls og njóta fullkomins öryggis, því
að baki þeim stendur ríkissjóður og þar með
öll þjóðin.
Þetta öryggi er ekki til staðar hjá öðrum og
því skaltu íhuga vandiega þá áhættu sem
fylgir því að kaupa skuldabréf fyrirtækja þótt
vextir sýnist álitlegir.
Nú þegar frystingin er úr sögunni fyrir fullt
og allt er ekkert sem ætti að hræða þig frá því
lengur að kaupa spariskírteini ríkissjóðs.
Þú átt ekki kost á betri
fjárfestingu.
RIKISSJOÐUR ISLANDS