Morgunblaðið - 10.06.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986
41
Jón áttí síðasta
orðið í Helsinki
Skák
Margeir Pétursson
Þótt það hafi verið Ijóst fyrir
helgina að Jóni L. Árnasyni
nægði jafntefli í tveimur síð-
ustu skákum sínum á alþjóðlega
mótinu í Helsinki, var samt
engin lognmolla yfir þeim. Jón
fór illa að ráði sínu í næstsíð-
ustu umferð gegn sovézka stór-
meistaranum Timoshenko, ein-
um aðstoðarmanna Kasparovs.
Hann lenti í gildru sem Rússinn
hafði rænt úr vopnabúri heims-
meistarans og tapaði. Þetta
voru að sjálfsögðu mikil von-
brigði fyrir Jón, en hann átti
samt enn möguleika með því
að sigra unga danska stór-
meistarann Curt Hansen i síð-
ustu umferð. Það tókst Jóni
eftir æsispennandi skák sem
lengst af var í járnum. Eftir
bið lenti Daninn í úlfakreppu,
en þó var engan snöggan blett
að finna á stöðu hans, þar til
hann lék óvarlegum hróksleik.
Það gaf Jóni kost á glæsilegri
fléttu, sem færði honum efsta
sætið á mótinu og annan áfanga
hans að stórmeistaratitli.
Jón deildi sigrinum á mótinu
með Timoshenko, en Curt Hansen
varð að bíta í það súra epli að
missa forystuna í lokin og verða
í þriðja sæti. Úrslit á mótinu urðu
þessi:
1.-2. Jón L. Ámason og Timos-
henko (Sovétríkjunum) 8 v. af 11
mögulegum.
3. Hansen (Danmörku) 7 V2 v.
4. Tisdall (Noregi) 7 v.
5. -6. Dorfman (Sovétríkjunum)
og Karlsson (Svíþjóð) 6 '/2 v.
7. Yijola (Finnlandi) 6 v.
8. Wiedenkeller (Svíþjóð) 5 V2 v.
9. Válkesálmi (Finnlandi) 3 V2 v.
10. -12. Rantanen, Westerinen og
Binham (allir Finnlandi) 2 V2 v.
Tisdall, sem er fæddur í Banda-
ríkjunum, en hefur nú fest ráð
sitt í Noregi, þurfti einnig að vinna
í síðustu umferð til að ná áfanga,
en hann náði ekki að sýna sömu
hörkuna og Jón og tapaði fyrir
Wiedenkeller.
Jón L. var að sjálfsögðu mjög
vel að þessum árangri sínum
kominn, eftir slaka byrjun komst
hann í mikinn ham sem entist
honum út mótið. Hann gerði
aðeins tvö jafntefli, fæst allra
þátttakenda.
Heimamenn hljóta að hafa
orðið fyrir vonbrigðum með sína
menn, aðeins Yijola slapp við
botnbaráttuna. Þrátt fyrir að full-
trúar Finna hafi verið tveir stór-
meistarar (Rantanen og Westerin-
en) og þrír alþjóðlegir meistarar,
minnir árangur þeirra mest á
Reykjavíkurskákmót fyrir 10-20
árum, þegar íslendingamir sátu
flestallir á botninum.
Anatoly Karpov kemur vafa-
laust tii með að skoða skákimar
frá Helsinki gaumgæfílega, því
þeir Dorfman og Timoshenko eru
báðir í aðstoðarmannahópi Kasp-
arovs. Að sögn Jóns kom Timos-
henko með merkilegar byijana-
nýjungar í þremur skákum, en
kannski hefur það bara verið til
að villa um fyrir njósnurum
Karpovs. Dorfman var sparari á
nýjungamar, e.t.v. hefur þetta
gert gæfumuninn á milli Rúss-
anna tveggja.
Jón L. Amason hefur nú náð
stórmeistaraárangri í mótum sem
vom samtals 22 skákir, en mótin
þurfa samtals að vera 24 skákir
eða meira. Jón þarf því einn
áfanga til viðbótar og mun reyna
að ná honum seinna i þessum
mánuði í Plovdiv í Búlgaríu. Hinn
24. júní hefst þar alþjóðlegt mót
þar sem m.a. gömlu kempumar
Tal og Gligoric verða á meðal
þátttakenda.
En lítum nú á úrslitaskákina í
Helsinki. Hansen dugði jafntefli í
efsta sætið, en Jón varð að vinna
hvað sem það kostaði. Það var
því hart barist:_
Hvitt: Jón L. Árnason
Svart: Hansen (Danmörku)
Sikileyjarvörn, drekaafbrigðið.
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
- g6,6. g3
Byijunin kemur nokkuð á
óvart, það er engu líkara en
Hansen þurfí að vinna, því hann
beitir drekaafbrigðinu sem leiðir
oft til mikilla sviptinga. Jón svarar
hins vegar með rólegri leið. Hann
hefur ekki viljað eyða öllu púðrinu
strax í byijun og Hansen hefur
að sama skapi ekki viljað tefla
of hægfara, þó jafnteflið dygði.
6. - Rc6, 7. Rde2 - Bg4, 8.
Bg2 — Dd7!?
Hér er venjulega leikið 8. —
Bg7 eða 8. — Dc8, 9. h3 — Bd7.
9. h3 - Be6, 10. Rd5 - Bg7,
11. Ref4 - Bxd5, 12. exd5 -
Re5,13.0-0 0-0
Byijun svarts hefur ekki heppn-
ast vel, hann hefur ekki náð mót-
spili, en látið hvíti eftir biskupap-
arið og rýmri stöðu.
14. Be3 - b5, 15. Bd4 - Hab8,
16. Hel - Dc7,17. B3 - Rfd7?!,
18. Re2!
Hótar 19. f4 og svarti riddarinn
á e5 fellur.
18. - Rf6,19. g4?!
Það var engin þörf á aðgerðum
á kóngsvæng. Eftir 19. Bb2 og
síðan Rd4 og Rc6 hefur hvítur
varanlega stöðuyfírburði.
19. - e6, 20. Rf4 - Rexg4?!
Hér kom 20. — g5 vel til greina
þó hvítur fái bætur fyrir peðið
eftir 21. Re2 - Rxd5, 22. Bxd5
— exd5, 23. Rg3.
21. hxg4 — e5, 22. g5 — Re8,
23. Rxg6! — fxg6,24. Be3
Eftir nokkrar sviptingar hafa
línumar skýrst að nýju. Hvítur
hefur enn biskupaparið og miklu
rýmri stöðu.
24. - Bh8, 25. Hcl - Rg7, 26.
c4 - bxc4, 27. Hxc 4- Dd8, 28.
Dg4 - Rf5, 29. Hecl - Hf7,
30. Hc6 - Bg7, 31. Be4?
Nú var tímahrakið farið að
hafa mikil áhrif og eftir að hafa
ávaxtað sitt pund vel lætur Jón
hjá líðast að leika 31. bd2 og
halda biskupaparinu. Hansen bíð-
ur ekki boðanna en léttir á stöð-
unni.
31. - Rxe3, 32. fxe3 - Bf8, 33.
Hlc2 - Hbl, 34. Hf2 - Hxf2,
35. Kxf2 - Kg7, 36. Ke2 -
Hb7, 37. Hc8 - Dd7, 38. De6 -
Df7, 39. Hcl - De7, 40. Hfl -
Hc7
Tímamörkunum er náð, en eins
og oft í síðustu umferð var ekkert
hlé gert. Hvítur hefur enga vem-
lega veikleika og mislitir biskupar
em á borðinu, var Jón orðinn
fremur svartsýnn á að sigur
næðist.
41. Hf6 - a5, 42. Kd2 - Dd7,
43. Hf2 - Dd8, 44. Hf6 - Dd7,
45. Kdl - De7, 46. Ke2 - Dd7,
47. Kf2 - De7,48. Kg2
Mönnunum er leikið fram og
til baka án þess að hvítur nái
nokkmm árangri. Skyndilega
sættir Daninn sig ekki lengur við
að bíða átekta en reynir að ná
mótspili. Honum yfírsést hins
vegar að hrókur hans má alls
ekki fara af sjöundu línunni:
48. - Hc3?
49. Hxg6+!! — hxg6, 50. Dxg6+
— Kh8, 51. Bf5! og eftir nokkra
umhugsun gafst Hansen upp. Ef
hrókur hans hefði verið á sjöundu
línunni hefði hann átt vömina
51,- Df7 eða 51. - Dh7. Nú á
hann hins vegar enga vöm við
lúmskri hótun: 52. DhöH---Kg8,
53. Be6+ - Kg7, 54. Dh6+ -
Mát. Fallegt og óvænt fléttustef,
sem svo sannarlega leyndist í
stöðunni á réttum tíma.
Orlof húsmæðra
á Hvanneyri
í SUMAR mun orlofsnefnd reyk-
vískra húsmæðra starfrækja or-
lofsheimili á Hvanneyri i Borgar-
firði. Dvalið verður eina viku í
senn í fimm hópum frá 28. júní
til 2. ágúst.
Farið verður í ferðalag alla
þriðjudaga um Akranes og ná-
grenni, m.a. skoðuð þar ný sauma-
stofa og Byggðasafnið. Frá og með
12. júní verður tekið á móti umsókn-
um á skrifstofunni, Traðarkots-
sundi 6.