Morgunblaðið - 10.06.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. JÚNÍ1986
Nýbýlavegi 12 200 Kópavogur
Sími 44011. Pósthólf 167.
EINKAUMBOÐ FYRIR
DEXION Á ÍSLANDI
Fyrir vörugeymslur,
verslanir
iðnfyrirtæki og
heimili
HILLUR, SKÁPAR,
SKÚFFUR, REKKAR
BAKKAR, BORÐ
LANDSSMIÐJAN HF.
SÍMI (91) 20680
VERSLUN ÁRMÚLA 23
SÍMI 91-688880
Frumvarp um frídag sjómanna
var flutt á þingi í vetur
eftírEið Guðnason
Morgunblaðið greindi frá þvi í
frétt á sjómannadaginn, að Ami
Johnsen alþingismaður hygðist í
haust ásamt fleirum flytja tillögu
umað lögbinda sjómannadaginn
sem frídag fyrir sjómenn.
Nú er rétt að lesendum Morgun-
blaðsins sé ljóst, að þetta vor hefur
verið til umræðu á Alþingi bæði í
vor og í fyrravor. f vor fluttu
undirritaður og Karl Guðnason,
þingmenn Alþýðuflokksins í efri
deild frumvarp til laga um fridag
sjómanna (367. ynál efri deildar,
þingskjal 664). Ámi Johnsen, al-
þingismaður tók þátt í umræðum
um þetta fmmvarp. Þingmaðurinn
lýsti stuðningi við það við fyrstu
umræðu í efri deild, 7. apríl 1986
(sbr. Alþingistíðindi 1985—86, 21.
hefti bls. 3478).
í ljósi þessa em torskilin þau
ummæli hans, að á undanfömum
ámm hafí ýmsir haft slíka lög-
bindinu á orði án þess að nokkuð
gerðist. Síðan segir Morgunblaðið:
„En nú kvaðst hann telja lag og
hann kvaðst álíta, að þingmenn úr
öllum flokkum mjmdu taka þessu
máli vel.“
Staðreyndin er, að þegar málið
var rætt 7. aprfl tóku þingmenn úr
Sjálfstæðisflokki og Alþýðubanda-
lagi þessu frumvarpi okkar Al-
þýðuflokksmanna vel (V aldimar
Indriðason, Skúli Alexandersson og
Ámi Johnson). Fulltrúar Framsókn-
arflokks, kvennalista og BJ tóku
ekki til máls.
Ekki er úr vegi, að greina lesend-
um Morgunblaðsins í fáeinum setn-
ingum frá aðdraganda máisins.
Á sjómannadaginn 1984 vék
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra að því í ræðu, að stefna
bæri að því að lögskipa sjómanna-
daginn, sem frídag sjómanna. í
aprfl árið eftir beindi ég þeirri fyrir-
spum til sjávarútvegsráðherra á
Eiður Guðnason
Alþingi hvort hann hygðist beita
sér fyrir því, að sjómannadagurinn
yrði lögskipaður frídagur. Svar ráð-
herrans var jákvætt. Hann taldi þó
að reyna bæri að leysa nokkur
ágreiningsatriði áður en gripið yrði
til þess að lögskipa daginn. Það sem
skammt væri eftir þingtímans tali
ráðherra sjálfsagt að taka málið
upp á næsta þingi.
Þegar ekkert bólaði á málinu á
síðasta þingi og út var að renna
sá frestur, sem þingmenn hafa til
að leggja fram frumvarp, þá flutt-
um við Karl Steinar málið á Alþingi.
Fmmvarpi okkar um frídag sjó-
manna var vísað til allsheijamefnd-
ar efri deildar. Á fund nefndarinnar
komu Jónas Haraldsson frá LÍÚ,
sem fyrir höOnd þeirra samtaka
mælti gegn efni frumvarpsins og
Hólmgei Jónsson frá Sjómannasam-
bandi Islands, er lagði fram áskomn
sjómannasamtakanna um að málið
næði fram að ganga.
Málið dagaði hins vegar upp í
nefndinni, þar sem ljóst var, að
ekki var vilji hjá stjómarflokkunum
til að samþykkja það, þrátt fyrir
jákvæðar undirtektir í efri deild.
í umræðunum um málið kom
fram, að taka þyrfti tillit til þess
að hvítasunnu bæri upp á fyrstu
helgi í júní og jafnvel þyrfti að taka
tillit til kosningadags. Þessar
ábendingar tökum við flutnings-
menn að sjálfsögðu til greina er við
endurflyljum málið í haust að
óbreyttu.
Ama Johnsen er velkomið að
gerast meðflutningsmaður á fram-
varpi okkar Karls Steinar, þegar
við endurflytjum það í haust. Ef
hinsvegar þingmanninum þykja það
vinnubrögð við hæfí að taka frum-
varp okkar Karls Steinar og gera
það að sínu í hust, þá er það auðvit-
að hans mál.
Eiður Guðnason er alþingismaður
fyrir Alþýðuflokkinn.
Féð á beit.
Perstorp gólfld
Slitsterk og varanleg lausn
Perstorp gólfið er mjög slitsterkt. Það er harðara
en^bæði eikar- og fumparkett. Þess vegna sjást
engar rispur eftir húsgögpíjgða skóhaela.
Perstorp gólfi$"j5oIir glóð og sterk efni.
Perstorp gólfinu er auðvelt að halda hreinu og
■ ‘ það er alveg viðhaldslaust.
iKPerstorp gólf^5 n*St Jeggja öfan á gamla gólfið,
* sSHJWur ð°tt undirlag. Perstörp
goltoorðin em aðeins 7 mm þykk, sem leysir
áður eíi þau verða til.
gólfið er auðvelt og fljótlegt að leggja.
GOLFIÐ
Bðrnin í sveitinni hafa oft mikla ánægju af að
umgangast lömbin. Hé eru bræðumir Haukur og
Kristin Eiríkssynir á Grafarbakka í Hrunamanna-
hreppi í einum fjárhúsagarðanum.
Nýfætt lamb
Sauðburði að ljúka á köldu vori
Syðra-Langholti.
ÞAÐ er ekki hægt að segja annað en vorið sé seint á ferðinni hér
í uppsveitum Árnessýslu þó að almanakið sýni annað. Komið að
fardögum og rétt komin sauðgróður i tún. Maímánuður var kaldur
og þurr þar til síðustu dagana. Sauðburði er svo til lokið en hann
gekk misjafnlega á bæjum, sumstaðar kom nokkuð af dauðum
lömbum og hjá Halldóri Jónatanssyni bónda í Auðsholti létu um 50
gemlingar lömbunum. Fijósemi er misjöfn en hún vegur miklu um
hve fjárbúskapurinn er arðsamur.
Allur kostnaður við þennan bless-
aðan sauðfjárbúskap er orðin það
mikill að hætt er við að lítið verði
eftir þegar þaf að gefa iambám
inni svo lengi sem nú hefur orðið
að gbera hér um slóðir. Ær bera
allstaðar á húsi og það er mikil
vinna sem leggst á sauðflárbændur
um sauðburðinn að hafa vakandi
auga með öllum sepnum og láta
affölinn verða sem minnst.
Sumstaðar er orðið lítið um hey
en bændur hafa miðlað á milli sín
en það er nú gömul og ný saga að
bændur séu misjafnlega birgir af
heyjum. Kýr verða ekki settar út
fyrr en gróður hefur lagast töluvert
en áborin tún em nú sem óðast að
taka við sér.
Sig. Sigm.