Morgunblaðið - 10.06.1986, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 10.06.1986, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÖAGUR 1Ö. JÚNÍ 1986 61 Tillögur að nýrri búmarksreglugerð: Mest skerðing á stóru búunum Hlunnindi komi til frádráttar Hvanneyri, frá Helga Bjamasyni blaða- manni Morgunblaðsins. DRÖG að reglugerð um búmark og fullvirðisrétt til framleiðslu mjólkur og sauðfjárafurða voru lögð fyrir aðalfund Stéttarsam- bandsins í gær. í drögunum eru settir upp nokkrir valkostir sem til umræðu hafa verið á meðal bænda að undanförnu, en ekki er tekin afstaða til einstakra leiða. Það verður hlutverk Stétt- arsambandsfundarins og síðan landbúnaðarráðherra, sem gefur reglugerðina út í endanlegri mynd, að fengnum tillögum Stéttarsambands og Framleiðslu- ráðs. Reglugerðardrögin eru gerð sameiginlega af starfsmönnum landbúnaðarráðuneytis og Stéttar- sambands bænda. Með reglugerð- inni á meðal annars að skipta ár- legri mjólkur- og sauðfjárfram- leiðslu samkvæmt búvörusamning- um bænda og ríkisins á milli svæða og einstakra bænda, í fyrsta skipti fyrir upphaf næsta verðlagsárs, það er 1. september. í vetur var gefin út reglugerð um stjómun mjólkur- framleiðslunnar fyrir yfirstandandi verðlagsár. Nýja reglugerðin á að leysa hana af hólmi og taka auk þess til sauðfjárframleiðslunnar. Hún verður ótímabundin, en höf- undar hennar reikna með að nauð- sjm verði á útgáfu alveg nýrra reglna innan ekki allt of margra ára, þegar búið verður að aðlaga framleiðsluna að markaðnum. Við samningu reglugerðarinnar er stuðst við reynsluna af mjólkur- reglugerðinni og álit svaeðabú- marksnefndar Stéttarsambands bænda sem byggir niðurstöðu sína meðal annars á mikilli umræðu meðal bænda um þessi mál á undan- fomum mánuðum. Gert er ráð fyrir að reglugerðin verði gefín út á næstu vikum. Við skiptingu framleiðslunnar eftir svæðum er gert ráð fyrir tveimur meginleiðum. Leið 1 gerir ráð fyrir eins skiptingu mjólkur- framleiðslunnar og er í núgildandi reglugerð. I leið 2 em aftur gefnir tveir möguleikar við skiptingu hjá báðum búgreinunum þar sem bú- mark ’80, búmark ’86 og fram- leiðsla ’82-’85 er látin vega misjafn- lega mikið. Við skiptingu framleiðslunnar á milli einstakra bænda er gert ráð fyrir fjórum möguleikum. Annars vegar er um að ræða sömu úthlut- unaraðferðir og í núgildandi reglu- gerð, í framhaldi af leið 1 hér að ofan. Hins vegar er gert ráð fyrir þremur möguleikum í framhaldi af leið 2. í einni leiðinni er miðað við eitt framleiðsluár, en í annarri við þrjú viðmiðunarár. Þriðja leiðin er alveg ný. Þar er gert ráð fyrir að reiknað verði út fullvirðismark svæðisins og allir fái sömu skerð- ingu í upphafi, en menn geti síðan fengið aukningu í samræmi við framleiðsluáætlanir. Framleiðsla stærstu búanna, það er jrfír 600 ærgildi að stærð, verður skert sérstaklega. Hvert hundrað umfram 600 ærgildi er skert um 2%. Búmark á bilinu 600-700 ærgildi skal skert um 10%, 701-800 ærgildi um 12% og síðan 2 pró- sentustig til viðbótar fyrir hvert byijað hundrað umfram það. Annað atriði sem búast má við að valdi einnig deilum er sérstök skerðing búmarks vegna tekna bænda af annari búvöruframleiðslu eða hlunnindum. Jón Helgason landbúnaðarráðherra: Sem allra minnst röskun verði á högum bænda Hvanneyri, frá Helga Bjarnasyni, blaða- manni Morgnnblaðsins. „SJALDAN hafa orðið jafn almennar umræður meðal bænda um kjaramálin og á liðnum vetri. Meginástæðan er sú breyting á skipan mála sem varð með lögun- um um framleiðslu, verðlagn- ingu og sölu búvara, þar sem bændum var tryggt verð fyrir ákveðið magn mjólkur- og sauð- fjárafurða og þannig að hver bóndi viti það fyrirfram eins nákvæmlega og kostur er, hve mikið muni falla í hans hlut,“ sagði Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra í ávarpi sínu við upphaf Stéttarsambandsfundarins. Jón sagði einnig: „Þeir munu vera orðnir fáir, er draga í efa hversu mikilvæg og brýn þessi breyting var, en hinu fremur haldið fram að hún hefði þurft að koma fyrr og þá meðal annars vegna þess hvem tíma það tekur að koma svo umfangsmikilli breytingu að fullu til framkvæmda." Jón sagði síðan frá framvindu framleiðslu- stjómunar í mjólkur- og sauðfjár- framleiðslu frá síðasta aðalfundi Stéttarsambandsins og eftirmálum mjólkurreglugerðarinnar Ráðherra rakti helstu efnisatriði draga að reglugerð um stjómun framleiðslunnar sem á að taka gildi í haust, sem samin er af fulltrúum Stéttarsambandsins og landbúnað- arráðuneytisins. „Hér er um að ræða vandasamt og viðkvæmt mál,“ sagði hann, og lagði á það áherslu að við setningu reglugerðarinnar yrði að tryggja í framtíðinni afkomu þeirra sem landbúnað stunda. Hann sagði einnig að reglugerðin yrði að vera þannig úr garði gerð að sem allra minnst röskun yrði á högum bænda. Þeim ákvæðum búvörulag- anna, sem um þetta fjölluðu væri ætlað að stuðla að auknu öryggi bænda, en ekki óvissu. Jón gerði loðdýraræktina sér- staklega að umræðuefni vegna vanda loðdýrabænda vegna verð- falls á skinnum. Sagði hann að átak yrði gert til að létta undir með þeim. Ákveðið hefði verið að endurgreiða aðflutnings- og sölugjald af loð- dýrahúsum byggðum árið 1984 og fyrr, til samræmis við það sem búið er að gera vegna framkvæmda frá og með síðasta ári. Einnig lægi fyrir tillaga hjá stjóm Stofnlána- deildar um frestun á ársgreiðslu af stofnlánum á þessu ári en það næmi um 23 milljónum kr. Þá væri verið að athuga með endurgreiðslu á gengismun afurðalána 1985. Landbúnaðarráðherra sagði einnig: „Hin þungbæra reynsla af þeirri samkeppnisgjaldþrotastefnu, sem alið hefur verið á síðustu árin ineð fögrum orðum og gylliboðum, hlýtur að sannfæra okkur um, að hún er allt of dýrkeypt bæði fyrir einstaklingana, sem verða fyrir barðinu á henni og þjóðfélagið í heild, ekki aðeins efnahagslega heldur einnig á fleiri sviðum. Við verðum að sameinast öll um það að koma í veg fyrir að íslenskur landbúnaður verði þar hart úti.“ Peysur í mörgum litum, stærðir 2—14. Verð frá kr. 290,- Buxur, verð frá kr. 250—895,- Strigaskór nr. 25—36. Verð frá kr. 299,- Stígvél nr. 30—33. Verð frá kr. 290,- Mittisblússur á unglinga. Verð frá kr. 290,- Sokkar. Verð frá kr. 25,- Vorumaðtakaupp nýjar sendingar Stórar klukkupijónspeysur, tískulitir kr. 795-990,- Herrabuxur, stórar stærðir, kr. 490-995,- Gallabuxur í nr. 35—46 kr. 995,- Mikið úrval af kvenskóm Lakkskór m/háum og lágum hæl kr. 395,- Strigaskór, margir litir, stærðir nr. 35—45, kr. 890,- Kvenjakkar, margir litir, kr. 795,- Jakkaföt á unga fólkið. Verð kr. 3.840,- Þunnirkvenfrakkard.bláir. Verðkr. 1.150,- Fyrirþærsem eru duglegarað sauma, fataefni —gluggatjalda- efni. Tískulitir. Gott verð. ENNFREMUR Barnagallar, kr. 284 drengjaskyrtur frá kr. 145,-jogging- og ullarpeysur kr. 250,- vatteraðir mittisjakkar kr. 2.400,- herranærbolir, stærðir S—M, kr. 195, sumaijakkar í tísku- litunum, stærðir S—M—L, kr. 990, dragtir kr. 950, kulda- úlpur kr. 1.990,- barnahnébuxur kr. 298,- herraskyrtur, mikið úrval, kr. 490,- herrasokkar frá kr. 85,- bikini kr. 240,- handklæði frá kr. 145—395,- sængurverasett frá kr. 840,- hespulopi 100 g kr. 20,- hljómplötur, verð frá kr. 49—299, áteknar kassettur kr. 199,- þvottalögur sótt- hreinsandi á kr. 10,- þvottabalar frá kr. 319—348,-. Opnunartími Mánud.—fimmtud. Föstud. Laugard. Greiðslukortaþjónusta 10—18 10-19 10—14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.