Morgunblaðið - 10.06.1986, Side 64

Morgunblaðið - 10.06.1986, Side 64
ÞRIÐJUDAGUR10. JÚNÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Göngvferð í vorveðrinu VORVERK lögreglunnar I Reykjavik eru sjálfsagt með ýmsu móti, en eitt hið ánægjulegasta Mýtur að vera að greiða fyrir borgarbúum á gönguför í vorveðrinu. Þessi myndarlega kolla ákvað að sýna ungum sínum bæjarlífið, en þar sem slíkar ferðir geta reynst óvönum hættulegar aðstoðaði lögregluþjónn fjölskylduna í umferðinni. Förin gekk þvi að óskum og nú syndir fjölskyldan hin ánægðasta um á Tjöminni og bíður ungra Reykvíkinga, sem vonandi færa henni brauðmola á komandi góðviðrisdögum. Dæmt í fógetamálinu í Eyjum: Misnotuðu aðstöðu sína FYRRUM bæjarfógeti i Vestmannaeyjum og aðalbókari við sama embætti voru á laugardag dæmdir í 5 mánaða fangelsi i Sakadómi Vestmannaeyja. Refsing er þó skilorðsbundin hvað varðar þijá mán- uði. Auk þess var þeim gert að greiða allan sakarkostnað. Dómurinn byggist á þvi, að viðkomandi menn hafi misnotað embættis- og starfs- aðstöðu sína, ýmist sjálfum sér eða öðrum til ávinnings og fyrir- greiðslu. I fyrsta kafla ákæru ríkissak- sóknara var ákærðu gefið að sök að hafa lánað sjálfum sér og öðrum úr sjóðum embættisins og rangfært bókhald þess í því sambandi. Var hlutur fógetans talinn 171.120 krónur en bókarans 432.190. Dóm- urinn taldi ákærðu sanna að sök. í öðrum kafla ákæru var ákærðu báðum gefið að sök að hafa geymt í sjóði embættisins um óhæfilega langan tíma innistæðulausar ávís- anir, sem notaðar höfðu verið til greiðslu á opinberum gjöldum. Þá var þeim gefið að sök að hafa haft ólögmæt afskipti af bankainnleggi með ávísunum, sem ríkisendurskoð- andi hafði útbúið við sjóðtalningu 18. maí 1983. Dómurinn sakfelldi bæjarfógetann fyrir geymslu ávís- ananna en sýknaði bókarann, þar sem sá fyrmefndi bæri einn ábyrgð á því, sem forstöðumaður embættis- ins. Hins vegar sakfelldi dómurinn bókarann fyrir ýmis afskipti af ávís- ununum og ragfærslur í bókhaldi í því sambandi. Sök ákærðu vegna bankainnleggsins þótti gegn neitun þeirra ekki nægilega sönnuð og voru þeir sýknaðir af þeim þætti ákærunnar. Loks var ákærðu gefið að sök að hafa heimilað afhendingar á vörusendingum án lögboðinnar tollmeðferðar og greiðslu aðflutn- ingsgjalda til ríkissjóðs á árunum 1982 og 1983. Dómurinn taldi sök þeirra sannaða að hluta til. Samþykkt Landssambands sauðfjárbænda: Tilbúnir að lækka verð á kindakjöti Hvanneyri, frá Helga Bjamasyni biaðamanni Monrunblaðsins. Hvanneyri, frá Helga Bjamaayni biaðamanni Morgunblaðsins. JOHANNES Kristjánsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, tók til máls í almennum umræðum í gær og skýrði frá tillögu Lands- samtakanna um lækkun kindakjötsverðs. Hér hafa áður komið fram tillögur frá bændasamtökunum um lækkun kindakjötsverðs, meðal annars í ræðu formanns Stéttarsambandsins í gærmorgun, en þær hafa yfirleitt verið á þá leið að ríkið legði fram aukna peninga til niðurgreiðslna. Tillaga sauðfjárbænda fjallar ekki um það, heldur um að könnuð verði lækkun bænda og vinnslu- og dreifingaraðila á kjötverðinu. arins og að endurgreiddur verði uppsafnaður söluskattur og lækk- aðir tollar og vörugjald af tækjum og rekstrarvörum. Algert skilyrði er að ekki verði um neina fram- leiðsiuskerðingu að ræða, þannig að umsamið framleiðslumagn verði óbreytt frá því sem samið hefur ályktun sauðfjárbændanna segir að þær tillögur sem nú liggi fyrir um framleiðslustjómun næstu árin ættu að leiða til hækkunar heildsöluverðs, að óbreyttu. í tillög- unum sé hinsvegar ekkert gert til að ráðast að rótum vandans, það er stöðugum samdrætti í sölu vegna óhagstæðs verðhlutfalls kindakjöts við aðrar kjöttegundir. Eina leiðin út úr þessum vanda segja sauðfjár- bændur að hljóti að vera veruleg verðlækkun á dilkakjöti til neytenda og leggja þeir til að eftirfarandi atriði verði könnuð í því sambandi. Verð til bænda verði lækkað gegn ákveðnum skilyrðum. Allur milliliðakostnaður, það er slátur- og heildsölukostnaður, pökkun, smásöluálagning og geymslugjald, lækki til samræmis við lækkun til bænda. Ahrif þessara aðgerða á ^yísitölu framfærslukostnaðar verði metin í samráði við ríki og laun- þegasamtök og einnig hvað unnt verði að gera sauðfjárbændum til hagsbóta vegna þeirrar lækkunar sem þeir tækju á sig. Sem skilyrði nefiia sauðflár- bændur einnig að ríkið leggi fram lögboðin gjöld til sjóða landbúnað- verið um fyrir verðlagsárið 1985- 86. Nýtt kjötmat, sem taki mið af óskum neytenda, verði einnig að taka gildi í næstu sláturtíð. Fram kemur í ályktuninni og sést einnig á framansögðu að sauðQár- bændum er það mikið kappsmál að framleiðslumagn verði óbreytt og allra ráða leitað til að auka söluna bæði innanlands og utan og eru þeir tilbúnir til að leggja sitt af mörkum svo að það verði mögulegt. Sjá einnig fréttir af aðalfundi Stéttarsambandsins á blaðsíð- um60og61. Rósa Bjarnadóttir • / Bogi Matthiasson Hjón drukkna í Friðarhöfninni Vestmannaeyjum. ÞAÐ hörmulega slys varð laust fyrir hádegi á sunnudag, að eldri hjón létust, er bifreið þeirra fór fram af bryggju í Friðarhöfn og í sjóinn. Ekki er vitað gjörla með hvaða hætti slysið varð, en sjónarvottar sáu bifreiðina koma utan af Eiðinu Danskirsjó- liðarfagna DANIR réðu sér ekki fyrir kæti.þegar knattspymulandslið þeirra vann stórsigur yfir Uruguay-búum á sunnudags- kvöld. Gilti þá einu hvar þeir vom staddir í heiminum. Sjólið- ar danska varðskipsins Hvid- björaen, nýkomnir frá Græn- landi, vom þar engin undan- tekning og fylgdust grannt með leiknum í beinni útsendingu ís- lenzka sjónvarpsins. Sjóliðamir vora ekki i vafa um árangur Elkjærs, Lerbys, Laudraps og félaga: „Að sjálfsögðu verðum við heimsmeistarar,“ var ein- rómaspáþeirra. Morgunblaðið/Börkur og fara fram af Friðarhafnar- bryggju fyrir framan Skipaaf- greiðslu Vestmannaeyja. Allhár kantur er þama á bryggjunni. Þegar var gert viðvart um slysið og gekk mjög greiðlega að ná bif- reiðinni upp. Hin látnu hétu Bogi Matthíasson, vélstjóri hjá ísfélagi Vestmannaeyja 74 ára, fæddur 29. september 1911 og eiginkona hans Rósa Bjamadótt- ir, 76 ára, fædd 27. febrúar 1919. Þau láta eftir sig uppkomin böm. hkj Hafskip: Tveimur mönn- um sleppt úr haldi TVEEMUR mönnum, sem setið hafa I gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á málefnum Haf- skips, hefur verið sleppt úr haldi. Páli Braga Kristjónssyni var sleppt úr haldi á sunnnudag og Heiga Magnússyni í gær. Eftir sitja þeir Ragnar Kjartansson og Björg- ólfur Guðmundsson en gæsluvarð- hald þeirra rennur út á morgun. ll.júní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.