Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 1
72SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
133. tbl. 72. árg.______________________FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ 1986____________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bók um líf-
ið í Gorkí
París, New York, AP.
í OKTÓBER í haust kemur út í fimm löndum samtímis bók sem
lýsir hinu raunverulega lífi Sakharov-hjónanna í sovésku borginni
Gorki. Bókin er byggð á handriti sem Yelena Bonner, eiginkona
Sakharovs. skildi eftir á Vesturlöndum áður en hún hélt aftur til
Sovétríkjanna fyrir fáum vikum.
Bók Bonner, sem ennþá hefur
ekki hlotið nafn, lýsir útlegðarárum
hjónanna í Gorkí, en sovésk yfírvöld
sendu Sakharov í útlegð þangað
árið 1980. Lýsir hún tilfínningum
þeirra hvað snertir að vera aðskilin
frá vinum og vandamönnum, sem
og viðureign þeirra við sovésku
leynilögregluna, KGB. Þá fjallar
hún í bókinni um veru sína hjá
fjölskyldu sinni í Bandaríkjunum.
Talsmaður Random House-for-
lagsins í Bandaríkjunum, sem gefur
bókina út þar í landi, Robert L.
Bemstein, sagði að Bonner hefði
skrifað bókina án aðstoðar. Hann
sagði að hún myndi fá ritlaun, en
neitaði að skýra frá upphæð þeirra.
Bemstein sagði að bókin kæmi út
í Bretlandi, Frakklandi, Vestur-
Þýskalandi og Ítalíu, auk Banda-
ríkjanna. Þá hefði útgáfusamningur
einnig verið gerður við bókaforlög
í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Panama:
Sovésk vopn
í dönsku skipi
Panamaborg, AP. JL
DANSKT vöruflutning’askip var
fært til hafnar í Panama í gær
eftir að um 200 tonn af sovéskum
Sovétríkin;
Kjarnorka
tvöfölduð
til 1990
Moskvu, AP.
SOVÉTMENN munu ótrauðir
halda fast við fyrirætlanir sínar
um að tvöfalda orku sem fæst
frá kjarnorkuverum fram til árs-
ins 1990, þrátt fyrir kjarnorku-
slysið í Chernobyl, að því er
Nikolai I. Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, upplýsti í
ræðu í gær.
Ræðan var haldin í Æðsta ráði
Sovétríkjanna. Sagði Ryzhkov að
það væri rétt stefna að auka kjam-
orku í landinu, eins og gert hefði
verið undanfarin ár. Sagði hann að
Chemobyl-slysið sýndi að það þyrfti
að gera strangar öiyggisráðstafanir
í kjamorkuvemm.
vopnum og öðrum hergögnum
fundust við skyndileit við Pan-
ama-skurðinn. Talsmenn vamar-
málaráðuneytis Panama neituðu
að greina frá því á hvaða leið
skipið var, en samkvæmt frásögn
eins dagblaðs, sem þykir hliðhollt
stjórn landsins, þá var ætlunin
að koma vopnunum til vinstri-
sinnaðra skæruliða í E1 Salvador.
í tilkynningu vamarmálaráðu-
neytis Panama kemur fram að átta
manna áhöfn danska skipsins Pia
Vesta hafí verið yfírheyrð um þetta
mál. Þar segir ennfremur að auk
skipstjórans, Johannes Christian-
sen, hafí sex Danir og einn maður
frá Indónesíu verið um borð.
Eftir öðmm óstaðfestum heimild-
um að dæma sigldi skipið úr höfn
í Rostock I Austur-Þýskalandi.
Sigldi það gegnum Panama-skurð
og inn í landhelgi Perú, en vopna-
farmurinn fannst eftir leit skammt
frá Balboa.
Samkvæmt lögum í Panama
verður að tilkynna farm þeirra
skipa, sem sigla um Panama-skurð.
í tilkynningu yfírvalda í Panama
segir að ranglega hafí verið skýrt
frá farmi danska skipsins í farm-
skjölum þess.
Danir máttu bita i það súra epli að tapa fyrir Spánveijum i
gærkveldi 5-1. Myndin sýnir Michael Laudrup, leiknasta leik-
mann Dana, með þjáningarsvip eftir að hafa lent í samstuði við
Spánveijann Goicoechoa, »em hlotið hefur viðurnefnið „Slátrar-
inn frá Bilbao“ vegna hörku sinnar.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Þjóðhátíð fagnað íReykjavík
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings:
Bannar viðskipti
við Suður-Afríku
Jóhannesarborg, Washington, AP.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í gærkveldi frum-
varp, sem gerir ráð fyrir algjöru banni á viðskiptum við Suður-
Afríku. Ef öldungadeildin samþykkir einnig frumvarpið og forsetinn
beitir ekki neitunarvaldi verða öll bandarísk fyrirtæki að vera farin
frá Suður-Afríku innan 90 daga frá samþykkt frumvarpsins.
Tvöfalt fleiri blökkumenn hafa
fallið daglega í Suður-Afríku frá
því sett voru neyðarlög þar í landi
fyrr í þessum mánuði en var fyrir
tíma neyðarlaganna. Þrír blökku-
menn féllu í gær, tveir í átökum
við lögreglu, en einn fyrir hendi
annars blökkumanns.
Svartir verslunarmenn í stór-
mörkuðum í Jóhannesarborg voru
í verkfalli (gær til þess að mótmæla
fangelsun 40 verkalýðsleiðtoga
samkvæmt ákvæðum neyðar-
ástandslaganna. Fregnir hermdu
að verkföll væru víðar í landinu.
Einn af forystumönnum vinnuveit-
enda í Suður-Afríku, Tony Bloom,
fordæmdi í gær fangelsanir verka-
lýðsleiðtoganna.
Ríkisstjómin hefur viðurkennt að
200 manns hafí verið handteknir í
kirkju í nágrenni Höfðaborgar á
sunnudaginn var. Blaðamenn í
landinu gátu ekki skýrt frá þessu
atviki vegna ákvæða um ritskoðun
í neyðarástandslögunum. Banda-
ríska utanríkisráðuneytið og mann-
réttindasamtökin Amnesty Inter-
national skýrðu frá þessum hand-
tökum á þriðjudaginn og kom fram
að á meðal hinna handteknu væru
tveir Bandaríkjamenn. Mörg dag-
blöð komu út í gær með eyður á
síðum sínum vegna ritskoðunarinn-
ar.