Morgunblaðið - 19.06.1986, Page 4

Morgunblaðið - 19.06.1986, Page 4
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTÚDAGUR19. JÚNÍ Í986 Guðmundur J. Guðmundsson: „Hörmulega tókst til með vinargreiðann“ „Enginn maður í flokknum talaði við mig um afsögn“ GUÐMUNDI J. Guðmundssyni er ekki kunnugt um, að flokksfor- ysta Alþýðubandalagsins hafi ákveðið, hvað honum beri að gera, Svavar Gestsson: Upplýsir ekki hvort hann vill afsögn Guð- mundar SVAVAR Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins segist hafa rætt við ýmsa forystumenn Alþýðu- bandalagsins vegna máls Guðmund- ar J. Guðmundssonar, og að afstaða flokksforystunnar liggi nú fyrir, þó hún verði ekki upplýst að sinni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er pólitískur vilji fyrir þvi í rððum ólíkra arma Alþýðubanda- lagsins, að verkalýðsarminum und- anskildum, að Guðmundur verði beðinn að segja af sér þing- mennsku, ef hann ákveður það ekki sjálfur að fundi sinum með sak- sóknara í dag loknum. „Ég hef rætt við flesta af forystu- mönnum Alþýðubandalagsins, bæði í gær og í dag, og í þessum hópi er góð samstaða," sagði Svavar í gær. Hann sagði að jafnframt hefði Guðmundur rætt við marga í þessum hópi. „Niður- staðan kemur í ljós á næstunni," sagði Svavar. Svavar var spurður hvort flokks- forystan myndi leggja að Guðmundi að segja af sén „Það get ég ekkert sagt um,“ sagði Svavar. Svavar var spurður hvort hann sem formaður hefði orðið var við mikinn þrýsting frá óbreyttum flokksmönnum um að hann beitti sér fyrir því að Guðmundur segði af sér þingmennsku: „Ég svara nú ekki þessari spumingu," sagði Svavar, „en það hefur flöldi flokksfélaga talað við mig.“ varðandi þau trúnaðarstörf, sem hann gegnir fyrir Alþýðubanda- lagið. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, skýrir hins vegar frá því hér annars staðar á síðunni, að það sé góð samstaða um niðurstöðu í þessu máli. For- maðurinn vill þó ekki að svo stöddu segja frá efni hennar. „Ég kannast ekki við að flokksforyst- an hafi komist að einhverri niður- stöðu og mér hefur ekki verið tilkynnt um hana,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið f gær. Guðmundur sagðist hafa átt fundi með ýmsum forystumönnum Al- þýðubandalagsins, þar á meðal Svavari Gestssyni. „Svavar hefur lagt á það áherslu við mig, að ég fylgdi því eftir að krefjast rannsókn- ar og losaði mig úr trúnaðarstörfum, á meðan á slíkri rannsókn stæði," sagði Guðmundur. Hann sagði, að Svavar hefði aldrei sýnt sér nokkra óvinsemd, heldur góðan tón og anda. Hann sagðist því ekki kannast við neinar flokkssamþykktir í þessu máli. „Það hefur enginn maður í flokkn- um talað við mig um afsögn, eða komið fram með hótanir um úrsagnir úr flokknum mín vegna. Sjálfsagt heyrast þessar raddir, en þær hafa ekki borist mér til eyma,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagðist hitta ríkissak- sóknara í dag. Hann hefði ekki fengið nokkra vísbendingu um það, hvemig beiðni sinni um rannsókn á hans þætti í þessu svokallaða Haf- skipsmáli yrði tekið. Guðmundur sagðist raunar ekki sjá betur en nú mætti kalla þetta „Hafskips-Eim- skipsmálið", eftir að fram hefði komið, að fjárhæð sú, sem Albert afhenti honum haustið 1983, og hann hélt vera fjármuni Alberts, væri bæði frá Eimskip og Hafskip komin. „Vissulega er þessi atburður hörmulegur," sagði Guðmundur, „en hjá flestum þeirra, sem ég hef rætt við, er ákaflega góður og vinveittur tónn í minn garð, þó menn harmi auðvitað, að þetta hafi gengið svona Þröstur Ólafsson, framkv.stj. Dagsbrunar: „Ekki ósk stjórn- armanna að Guð- mundur fari í frí“ STJÓRN Dagsbrúnar samþykkti á fundi sinum í gær, að setja sig ekki upp á móti því, að Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, fæli varaformanni félagsins, Halldóri Björnssym, að gegna skyldustörfum formanns um stundarsakir. Guðmundur greindi frá því á fundinum, að hann óskaði eindregið eftir að fá að hafa þennan háttinn á, ef ríkissaksóknari fellst á þá beiðni hans, að sér- stök rannsókn fari fram vegna fjárgreiðslna, sem hann veitti viðtöku úr hendi Alberts Guðmundssonar haustið 1983. Nú er upplýst að peningamir komu úr sjóðum Hafskips og Eimskips. „Stjómarmenn allir lýstu því yfir á mundur ségi af sér þingmennsku og þessum fundi, að þeir teldu ekki neina ástæðu fyrir Guðmund að biðja um þetta og það væri alls ekki ósk stjóm- armanna að hann tæki sér frí frá formannsstörfum þennan tima,“ sagði Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Þröstur var spurður, hvemig verka- lýðsarmur Alþýðubandalagsins myndi bregðast við, ef þau öfl innan Al- þýðubandalagsins, sem vilja, að Guð- fyrir sig. Auðvitað óttast menn ein- hver slæm pólitísk áhrif af þessu. Það skil ég, en ég hef ekki fengið neinar áskoranir um afsögn, heldur þvert á móti. Ýmsir hafa lýst þeirri skoðun við mig, að ég ætti ekki að segja af mér tímabundið." Guðmundur sagði, að félagar hans í stjóm Dagsbrúnar hefðu ekki talið neina ástæðu til þess, að hann fæli varaformanni Dagsbrúnar for- mennsku um stundarsakir. Þeir hefðu þó ekki viljað standa á móti eindregnum vilja hans. Guðmundur var spurður, hvort hann teldi, að Ólafur Ragnar Gríms- son, formaður framkvæmdastjómar Alþýðubandalagsins og varaþing- maður Alþýðubandalagsins, teldi sig hafa fundið höggstað á þingmannin- um Guðmundi J. Guðmundssyni. „Hann hefur ekki sagt það við mig. Hann ræddi við mig lengi í símann í gær, og var síðan að bögglast við að leiðrétta það samtal meira og minna allan fréttatíma sjónvarps. Þessi frétt, um að menn væru að segja sig úr Alþýðubandalaginu, ef ég segði ekki af mér, var auðvitað frá honum komin," sagði Guðmund- ur. Guðmundur hefur lýst þeim greiða, sem Albert Guðmundsson gerði honum haustið 1983, sem bjamargreiða. Hann var spurður, hvort hann hefði rætt ástæður þess við Albert, að staðið var að fjársöfn- uninni til stuðnings honum, með þeim hætti sem gert var: „Albert er ákaflega miður sín og sleginn yfir þessu öllu. Ég verð að segja það alveg eins og er, að ég skil þetta hreinlega ekki hjá honum. Þetta er eitthvert dómgreindarleysi og svo yfirþyrmandi klaufaskapur og vit- leysa, að það tekur engu tali. Hins vegar var Albert ákaflega vel kunn- ugt um veikindi mín á þessum tíma, og honum gekk ekki annað en gott til. Því verður þó ekki á móti mælt, að hörmulega tókst til með vinar- greiðann," sagði Guðmundur. Guðmundur sagði jafnframt, að svo gæti farið, að þeir menn, sem ættu eftir að reynast honum hvað erfiðastir í þessu áfalli öllu, væru úr hans eigin flokki. Guðmundur var spurður, hvort hann teldi, að sá armur Alþýðu- bandalagsins, sem kennt hefur sig við lýðræðisafl, með Ólaf Ragnar Gímsson í forsvari, væri orðinn svo öflugur innan flokksins, að honum tækist að knýja fram afsögn hans og kafsigla á vettvangi stjómmál- anna: „Eg get nú ekki alveg gefið yfirlýsingu um það, en mér er sagt að það andi verulega köldu á mig, aðeins frá einum hópi manna, og sá hópur sé í mínum eigin flokki. Það er út af fyrir sig ekkert nýtt. Hins vegar hafa fjölmargir félagar mínir úr Alþýðubandalaginu sýnt mér mikinn velvilja og stuðning í þessu Guðmundur J. Guðmundsson. erfiða máli, þannig að það væri út i hött að ætla að brennimerkja allt Alþýðubandalagið í þessu máli.“ Guðmundur var spurður hvemig hann myndi bregðast við, ef beiðni hans um sjálfstæða rannsókn vegna hans þáttar í þessu máli yrði hafnað af ríkissaksóknara: „Þá mun ég endurskoða mjög mín mál og það hvort ég læt nokkra varaformenn eða aðra taka við, því þetta Haf- skipsmál getur tekið langan tíma.“ Guðmundur J. Guðmundsson sagði, að sér væri auðvitað mest í mun, að hann lægi ekki undir þeim grun að þiggja fjárgreiðslur frá atvinnurekendum — sér væri það höfuðkappsmál að hreinsa mannorð sitt. Eimskip og Hafskip: Greiddu ferðakostn- aðinn sameiginlega öðrum trúnaðarstörfum, verða ofan á: „Ég held að best sé að segja sem fæst um það þangað til hlutimir fara að gerast," sagði Þröstur, „annars heyrist mér á Guðmundi, að hans áhyggjur tengist fyrst og fremst störf- um hans fyrir verkalýðshreyfinguna, en ekki því hvað þessi pólitíski armur, sem hann hefur nú um stundarsakir helgað starf sitt, segir eða gerir. Hvort að við þessi svokallaði verkalýðsarmur myndum grípa til einhverra ráðstaf- ana, get ég ekkert um sagt nú. SKÝRT var frá því í gær, að það voru skipafélögin Eimskip og Hafskip, sem lögðu sameiginlega fram fé til að kosta ferð Guð- mundar J. Guðmundssonar, for- manns Dagsbrúnar og Verka- mannasambands íslands, til Flórfda haustið 1983. Þar leitaði hann sér hressingar eftir veik- indi. Greiddi hvort félag um sig 60 þúsund krónur. Björgólfur Guðmundsson, þáverandi for- stjóri Hafskips, afhenti Albert Guðmundssyni, þáverandi fjár- málaráðherra, peningana, sem aftur lét Guðmund hafa þá. Stóð Guðmundur í þeirri trú, þar til nú, að þetta væri persónulegur vinargreiði Alberts Guðmunds- sonar. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, var í gær spurður um ástæður þessa fjárframlags fyrir- tækisins til Guðmundar J. Guð- mundssonar. Hörður sagði: „Þetta ár ráku Eimskip og Hafskip sam- eiginlega Farskip eða ferjuna Eddu og áttum við því mikil samskipti það árið. Mig minnir, að það hafi gerst eftir fund með þeim Ragnari Kjartanssyni og Björgólfi Guð- mundssyni um haustið 1983, að við tókum að ræða um heima og geima. Upp kom í þessu spjalli, að vinir Guðmundar ynnu að fjársöfnun til að stuðla að því, að hann kæmist til hressingardvalar í útlöndum eftir langvarandi veikindi. Það varð að ráði milli okkar Ragnars, að fyrir- tækin myndu skipta með sér kostn- aði af þeirri för. Þó var það fast- mælum bundið, að Guðmundur fengi aldrei vitneskju um það, hvaðan þessir flármunir kæmu,“ sagði Hörður. Hann sagði, að í desember 1983 hefði verið hringt í sig frá Hafskip og hann beðinn að greiða hlut Eimskips í ferðakostn- aðinum, 60 þúsund krónur, og það hefði verið gert. Hörður var spurður, hvort hann teldi þetta hafa verið eðlilega af- greiðslu fyrirtækjanna: „Slíkt er alltaf álitamál," sagði Hörður, „en mér þótti rétt að gera þetta, þótt ég hefði vafalaust ekki gert það, ef ég hefði vitað, að þetta ætti eftir að verða blaðamál. Þar fyrir kynni að hafa verið alveg jafn rétt að geraþetta." Karl Steinar Guðnason varaformaður VMSÍ; „Köstum ekki sprekum á gaMrabrennuna“ „VIÐ hyggjumst ekki kasta sprekum á þá galdrabrennu sem nú hefur verið stofnað til gegn formanni Verkamannasambandsins,“ sagði Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamannasambands íslands, í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvort framkvæmdastjórn VMSI hefði fundað og tekið afstöðu varðandi það hvort stjómin teldi að Guðmundur J. Guðmundsson formaður VMSÍ ætti að segja af sér formennsku í sambandinu. Karl Steinar sagði að fram- isins, þar sem hann talar um sóma- kvæmdastjómin hefði ekki enn fjallað um þetta mál, og þetta mál væri henni algjörlega nýtt, en á næstu dögum yrðu þessi mál rædd innan stjómarinnar. „Það sem fyrir okkur liggur era mestmegnis sögu- sagnir og fjölmiðlafréttir, byggðar á hæpnum heimildum. Þó bendi ég á yfirlýsingu Hallvarðar Einvarðs- sonar rannsóknarlögreglustjóra rík- manninn Guðmund J. Guðmunds- son,“ sagði Karl Steinar. Karl Steinar var spurður hvort hann teldi að máli þessu væri þyrlað upp af andstæðingum Guðmundar J. Guðmundssonar, úr Alþýðu- bandalaginu: „Ég tel að nú gangi hýenumar úr Alþýðubandalaginu slefandi í blóðslóðina,“ sagði Karl Steinar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.