Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ 1986
29
Bujak-málið í Póllandi:
Háttsettur embættis-
maður handtekinn
Varsjá, AP.
HÁTTSETTUR maður í pólska utanríkisráðuneytinu hefur verið
handtekinn og gefið að sök að hafa aðstoðað neðanjarðarleiðtoga
Samstöðu, Zbigniew Bujak, við að fara huldu höfði.
Jerzy Urban, talsmaður pólsku
stjómarinnar, staðfesti í gær að
aðstoðardeildarstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu, Zbigniew Wroniak,
hefði verið handtekinn sama daginn
og Bujak fannst í íbúð, sem er í
eigu dóttur og tengdasonar Wron-
iaks. Sagði Urban að engin ástæða
virtist vera til að gruna hjónin um
samsæri því þau hefðu dvalizt lang-
dvölum í útlöndum, eins og það var
orðað.
Wroniak er gefíð að sök að hafa
aðstoðað Bujak á flóttanum undan
lögreglu og þar með tafíð framgang
réttvísinnar. Á hann yfír höfði sér
allt að fímm ára fangelsi verði hann
sekur fundinn af ákæruatriðum.
Reagan skipar nýjan
hæstaréttardómara
Washington, AP.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti greindi frá því í gær að
William Rehnquist hæstaréttar-
dómari tæki við embætti forseta
hæstaréttar í næsta mánuði, þar
sem Warren E. Burger, sem nú
skipar stöðuna, hefði ákveðið að
setjast í helgan stein. Reagan
skýrði einnig frá að hann hefði
skipað Antonin Scalia í stöðu
hæstaréttardómara.
Scalia er annar hæstaréttardóm-
ari, sem Reagan hefur skipað í
forsetatíð sinni, en hinn fyrri var
Sandra Day O’Connor. Scalia var
áður dómari í áfrýjunarrétti Banda-
ríkjanna.
Warren Burger, sem átt hefur
sæti í hæstarétti í 17 ár, þótti
íhaldssamur og em Renquist og
Scalia taldir hafa svipaðar skoðanar
og hann á ýmsum málum.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
þarf að staðfesta tilnefhingar Reag-
ans, og er búist við því að þar verði
fjallað um þær innan skamms.
Ok gegnum
Berlínarmúrinn
Berlín, AP.
FARÞEGABIFREIÐ ók gegnum
Berlínarmúrinn í gær að sögn
vitna. Var ökumaðurinn þegar í
stað fjarlægður úr bifreiðinni,
af austur-þýskum landamæra-
vörðum.
Lögregluyfírvöld í Vestur-Berlín
staðfestu að bfll af Volkswagen-
gerð hefði ekið gegnum múrinn í
hverfínu Frohnau, sem er vestan
megin múrsins, en neituðu að gefa
nákvæmari upplýsingar.
A VERÐI
Hermenn úr víkingasveit stjórnarhersins á Sri Lanka í varðstöðu
nærri borginni Trincomalee á norðurhluta eyjarinnar. Hermenn-
irnir leituðu hryðjuverkamanna úr röðum tamíla, sem barist hafa
fyrir sjálfstæði norðurhlutans. Að undanförnu hefur komið tíl
blóðugra átaka og hefndaraðgerða á Sri Lanka.
geislaofni er
„Tja.. Kaffi meö „bólu“ dugar
ekki. — Ég verö aö fá mér |
útiveran þægileg
FRICO geislaofninn er tilvalinn vermir á svalir, útverustaði og garðhús
þegar svalt er í veðri á góðviðrisdögum á íslandi.
Endurseljendur:
Glóey - Ármúla 28 - Reykjavfk Sigurdór Jóhannsson raftækjavinnustofa - Akranesi
Skúli Þórsson - Álfaskeiði 31 - Hafnarfirði Leifur Haraldsson - Seyðlsflrði
Rafborg - Grindavfk Rafvirkinn - Eskifirði
Árvirkinn - Selfossi Kristall - Höfn/Hornafirði
Geisli - Vestmannaeyjum Rafborg - Patreksfirði
Bifreiða- og trésmiðja Borgarness Ljósvaklnn - Bolungarvfk
Raf hf - Akureyri Raftækjavinnustofa Bjarna - Reyðarfirði
M' RÖNNING
Sundaborg,
simi 84000
VEIST HJ
SÁPUR?
Neutrogena
Neutrogena sápumar
eru hreinar og mildar,
glœrar náttúrusápur,
sérhannaðar fyrir
vidkvæma andlitshúd og
ofnæmishúð.
Neutrogena sápan
fyrir þurra húð,
NEUTROGENA
DRY SKIN SOAP,
hefur eftirfarandi
húðmilda og hætandi
eiginleika:
• alla eiginleika hinnar
upprunalegu
Neutrogena sápu,
• þ.e. hún hreinsar án
hurstunar, skolast
algjörlega hurt. hreinsar
óhreina húð vel, raskar
ekki rakajafnvægi
hennar, ertir ekki með
lútefnum eins og aðrar
sápur og raskar ekki
sýrujafnvæginu,
• inniheldur að auki tvö
sérstök húðmýkjandi
efni, sem auka getu
húðarinnar til þess að
verja sig gegn raka- og
fituefnatapi.
Neutrogena
ofnæmisprófaðar
sápur.
Fást í apótekum
og helstu
snyrtivöruverslunum.
midas