Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986
35
Vélin stöðvaðist
á þremur metrum
Atti eftir um 200 metra inn á flugbrautina
EINN maður lézt og annar slas-
aðist alvarleg'a er flugvél, sem
þeir voru í, hrapaði á veginn við
flugvöllinn skammt frá Flúðum
í Hrunamannahreppi á þriðju-
dagskvöld. Óljóst er um tildrög
slyssins, þar sem engin vitni voru
„Fréttahornið“
ný starfsemi
í Grófinni
í DAG, fimmtudag, kynnir félagið
í Grófinni nýjan þátt í starfsemi
sinni: „Fréttahomið". Á suðvestur-
homi Bryggjuhússins (Álafossbúð-
in) verður fest tafla þar sem ætlast
er til að fólk hengi upp tilkynningar
ýmiskonar að morgni, sem síðan
verða teknar niður af þeim sem
setja upp nýjar tilkynningar næsta
dag. Ollum er heimilt, þeim að
kostnaðarlausu, að setja upp dag-
settar tilkynningar á töfluna.
í dag milli kl. 17.00 og 18.00
verða fulltrúar „Trimmdaga" ÍSÍ
um helgina, sólstöðugöngunnar á
laugardaginn og Reykjavíkurgöngu
Útivistar á sunnudaginn staddir við
„fréttahomið" og kynna það sem á
döfinni er hjá þeim.
Þessi staður var hér á árum áður
ein aðalfréttamiðstöð bæjarins þar
sem menn komu saman og ræddu
landsins gagn og nauðsynjar. Einn-
ig má segja að þar hafi einnig verið
veðurstofa bæjarins. Loftvog hékk
utan á húsinu og vindhani var festur
upp á tum sem var á þakinu. Þama
stóðu síðan menn og spáðu í sjó-
veðrið daginn eftir.
að því, en talið er vist að vélin
hafi verið í krappri beygju inn á
braut, er hún hrapaði um 200
metra frá brautarenda. Vélin
lenti í vegarkantinum og stöðv-
aðist á þremur metrum. Flugvél-
in, TF MOL, af gerðinni Maule
M 5 - 235 C, er gjörónýt. Það var
farþegi í vélinni, sem lézt. Flug-
maðurinn slasaðist mikið, en er
ekki talinn i lifshættu.
Rannsókn slyssins er í höndum
flugmálastjómar, loftferðaeftirlitsins
og flugslysanefndar. Hér fer á eftir
tilkjmning þeirra um slysið: „Klukkan
22.16 þann 17. júni barst flugmáta-
stjóm í Reykjavík tilkjmning frá lög-
reglunni á Selfossi um að flugslys
hefði orðið á veginum við flugvöllinn
skammt frá Flúðum í Hrunamanna-
hreppi. Loftferðaeftirlitinu var strax
tilkjmnt um atburðinn og fóm tveir
rannsakendur þegar á slysstað.
Skömmu síðar tilkjmnti lögreglan á
Selfossi að flugvélin hefði verið TF
MOL og óskaði eftir aðstoð þyrlu til
að ftytja slasaða. Strax var haft
samband við Pál Halldórsson, yfirflug-
stjóra Landhelgisgæzlunnar, og fór
þyrla, TH SIF, austur á Selfoss og
sótti flugmanninn, sem siasaður var,
en þangað hafði hann verið fluttur
með sjúkrabfl frá Flúðum. Komið var
með hann að Borgarspítalanum klukk-
an 23.40. Farþegi, sem var um borð,
varþá látinn.
Flugvélin TF MOL var af gerðinni
Maule M5 - 235C árgerð 1978. Einka-
flugvél með sæti fyrir þijá auk flug-
manns og er hún í eigu 7 einstaklinga.
Flugvélin fór frá Reykjavík klukkan
20.41 og var áætluð lending á Flúðum
klukkan 21.21. Um borð vom flug-
maðurinn og þrír farþegar. Eftir lend-
ingu á Flúðum fóm farþegamir þrír
frá borði, en flugmaðurinn fór f flug
á ný með einn farþega, sem kom þar
um borð. Slysið varð nokkm síðar í
aðflugi að flugvellinum á Flúðum um
200 metra fíá norðurenda flugbraut-
arinnar. Flugvélin gjöreyðilagðist og
flakið hefur verið flutt til Reykjavíkur
til rannsóknar, sem fram fer á vegum
flugmálastjómar, loftferðaeftirlits og
flugslysanefndar. “
TF MOL. Myndin er tekin árið 1980.
Horgunblaðið/Júlfua
Flakið flutt af slysstað. Við stuðningsfót gröfunnar má sjá um þriggja metra langa rák í jarðveginn
eftir flugvélina.
„Hálfgerð tilvilj-
un að við erum
komin hingað“
- sagði David Poteet sem er staddur hér á landi með
unglingastrengj ahlj óms veit frá Kalíforníu
„ÞETTA er nú fyrir hálfgerða
tilviljun sem við erum komin
hingað,“ sagði David Poteet
sem staddur er hér á landi með
bandaríska unglingastrengja-
hljómsveit. „Ætlunin var að við
færum á tónlistarhátíð í Vínar-
borg nú í sumar. Mér fannst
tilvalið að koma við á íslandi í
leiðinni fyrst við værum að fara
til Evrópu á annað borð.“
Hann sýndi krökkunum og
foreldrum þeirra myndir frá ís-
landi og þeim leist mjög vel á
hugmyndina. Ekki síst foreldrun-
um, sem margir vom með þýskan
og austurrískan bakgmnn og
töldu að krakkamir mundu jafnvel
fá meira út úr íslandsferð en
Evrópuferð. Það babb kom þó í
bátinn að vissrar hræðslu fór að
gæta meðal foreldra í kjölfar
aukinnar tíðni hryðjuverka f Evr-
ópu. Ákveðið var að hætta við
ferðina til Vínarborgar og þar
með íslands. Þess gerðist þó ekki
þörf þar sem hætt var við halda
hátíðina vegna mikilla afpantana
David Poteet
af þessari sömu ástæðu, ótta við
hryðjuverk.
Nokkmm vikum síðar fékk
David þá hugdettu að kannski
væri möguleiki að fara íslandsferð
einvörðungu. Hugmyndin var
borin upp á fundi með krökkunum
og foreldmm þeirra og nægilega
stór hópur fékkst til þess að ferðin
gæti orðið að veraleika.
Það er kannski ekki svo skiýtið
að David sóttist svona fast eftir
því að fara til íslands. Móðir hans,
Stella Guðmundsdóttir-Poteet, er
fslensk og hann fæddist sjálfur f
Keflavík 1951, þar sem hann bjó
fyrstu tíu ár ævi sinnar.
„Ég kannaðist við mig þegar
við lentum," sagði David, „það er
allt nánast óbrejrtt, húsin em eins,
flugvöllurinn, það var kannski
fyrst og fremst Keflavíkurvegur-
inn sem var eitthvað nýtt. Jafnvel
Reykjavík virtist koma kunnug-
lega fyrir sjónir og fólkið er eins
vinalegt og hjálpsamt og ég
minnistþess," sagði David.
Hljómsveitin sem hann kemur
með hingað er 17 manna strengja-
hljómsveit, Thomas Downey High
School Orchestra, skipuð ungling-
um á aldrinum 15—19 ára. Þau
koma frá bænum Modesto í Kali-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Thomas Downey High School Orchestra. f öftustu röð eru þau
Stella Guðmundsdóttir-Poteet, Ray Poteet og stjóraandi hljóm-
sveitarinnar, David Poteet.
fomíu sem er 128.000 manna bær
austur af San Francisco. Þau
munu halda tvenna tónleika hér
á landi. í dag fimmtudag í Bú-
staðakirkju, kl. 20:30 og síðar í
Njarðvík. Verða þeir tónleikar
auglýstir síðar.
„Krökkunum fannst þeir sjá
margt líkt með Reykjavík og San
Francisco þegar við fómm hring-
ferð um borgina," sagði David að
lokum, „hér eins og þar skiptast
t.d. á stór breiðstræti og litlar
þröngar götur í eldri bæjarhlutun-
um. Einnig em brekkumar keim-
líkar. Eitt er þó mjög ólíkt. Ég
mundi aldrei þora að sleppa
krökkunum úr augsýn í San Fran-
cisco. Það get ég gert hér í
Reykjavík án nokkurrar hræðslu."