Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 40
»40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ1986 Mlltt USBga ’Rí 8 XJ 1 'etár fásssss á nas&f IlW^iœss^ a# wÍl I I S » 1.242.- 1.476.- 1.836.- in 3URVIWSSDW CTA D fl/i'■<» I-***.*■« I. 3 | AK iVlo 13 3.495.- iCXí i i\l l\l I f **% c* C* UídbbK 3.495.- GURV N I®** : I 3.890,- 690,- ARMULA 40 REYKJAVIK S=835 55 Ráðstef nugestir um borð í skólaskipinu Þór. Ráðstefna um sjómanna- menntun í Reykjavík Dagana 2. til 5. júní síðastliðna var i Reykjavík haldinn árlegur fundur Norðurlandanna um sjó- mannamenntun og þá sérstak- lega menntun farmanna; vél- stjóra- og skipstjórnarmanna. Þátttakendur voru frá Græn- landi, íslandi, Færeyjum, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Álandseyjum. Grænlendingar tóku nú í fyrsta skipti þátt í ráðstefnunni en hún hefur nú verið árviss at- burður á Norðurlöndunum í rúman aldarfjórðung. Fundurinn var nú haldinn í 26. sinn. Auk þess sem fjallað var um sjó- mannamenntun jrfír- og undir- manna, voru öryggismál sjómanna í brennidepli. Dr. Þorgeir Pálsson, lektor við Háskóla ístands, flutti fyrirlestur um tilkynningaskyldu íslenskra skipa, framtíðarskipan þeirra mála og tölvuvæðingu til- kjmningaskyldunnar. Þá skoðuðu fundargestir hinn nýja björgunar- og slysavarnar- skóla Slysavamafélagsins, Sæ- björgu. Einnig kynntu þeir sér til- kynningaskylduna og starfsemi Slysavamafélagsins í höfuðstöðv- um félagsins á Grandagarði. Sýslufundur Norður-Múlasýslu. Norður-Múlasýsla: Sýslunefnd vill um- bætur í vegamálum SÝSLUFUNDUR Norður-Múla- sýslu, sem haldinn var nýlega ályktaði um fjölmörg hagsmuna- mái sýslubúa. Sýslunefnd vill umbætur i vegamálum, einkum að lagður verði almennilegur vegur um Hellisheiði milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshér- aðs. Þá vill sýslunefnd fá fiski- fræðing staðsettan á Austur- landi, og auknar hafrannsóknir fyrir Austurlandi. Þá skorar sýslunefndin á Alþingi að endur- skoða nýju sveitarstjómarlögin. Einkum var ákvæðið um héraðs- nefndir gagnrýnt. Á fundinum, sem var haldinn á Borgarfírði eystra, voru jrfír 100 erindi afgreidd og fjölmargar sam- þykktir gerðar. Þá var samþykkt Qárhagsáætlun sýslunnar, sem var upp á 1.607.570 kr. og sýsluvega- áætlun upp á 6.521.000 kr. Sýslunefnd skoraði á Alþingi að breyta lögum um sýsluvegi til hagsbóta fyrir sýslufélög sem hafa ianga og slæma vegi. Þá var ítrekuð áskorun til yfirvalda vegamála um að bæta veginn yfír Hellisheiði. Vegur þessi væri aðeins fær einn til tvo mánuði á ári, en væri samt fjölfarinn þar sem hann sé eðlileg tenging hringvegarins milli Norður- og Austurlands. Þá vill sýslunefnd að lagður verði aðalQalivegur sem tengi Hérað og Gæsavatnaleið og verði vegur þessi kallaður Snæfells- leið. Telja þeir að þetta muni auka verulega ferðamannastraum til Austurlands. Þá var alyktað um frekari rann- sóknir á því hvort um geti verið að ræða nýtanlegt magn af gasi í jörðu á Héraði. Einnig að Fljótsdalsvirkj- un skyldi vera næsti virkjunarkost- ur á eftir Blöndu. Ymsar ályktanir voru samþykkt- ar um sjávarútvegsmál. Óskað var eftir að hafnargerð yrði hraðað á Borgarfírði eystra. Þá var hvatt til kaupa á togurum til úthafsrækju- veiða svo nýta mætti ónýtta skel- fískstofna. Til þess vilja menn fá auknar rannsóknir á þeim stofnum. Þá vill sýslunefndin fá fískifræðing til Austurlands, eins og lög gera rá’ð fyrir. Honum er ekki síst ætlað að stuðla að uppbyggingu silunga- ræktar. Nýju sveitarstjómarlögin voru gagnrýnd og voru fundarmenn sammála um að frumvarpið hefði versnað í meðfömm Alþingis. Allt sé á huldu um eignir og verkefni sýslunefnda. Þá vom ákvæðin um héraðsnefndir gagnrýnd. Loks var ályktað um fræðasetur á Skriðuklaustri, og umbætur í flugumferðarstjóm, sérstaklega á Austurlandi o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.