Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ1986
440 ærgildi eru há-
markstærð á býli
Kristján Sigurðsson bóndi á Hálsi.
Spjallað við
Kristján á Hálsi
StykkishólmL
Kristján Signrðsson bóndi að
Hálsi á Skógarströnd varð 75
ára um daginn eða réttara sagt
22. maí. Hann er fæddur á
Hálsi og þar hefír hann alið
allan sinn aldur og býr þar nú
með systrum sínum, Guðfinnu
og Sigurbjörgu, en þau tóku
við búi foreldra sinna þegar
þau létu af búskap.
Kristján kemur ekki oft í Hólm-
inn, þótt það hafi lengst af verið
hans viðskiptahöfn. En í dag hitti
ég hann og spurði almæltra tíð-
inda. Eins og annars staðar hefir
fækkað hér í sveitinni. Þó eru 15
bæir byggðir og misjafnt búið eins
og gengur og gerist. Erfiðleikam-
ir segja til sín, bæði fjárhagslegir
og svo togar þéttbýlið tii sín.
Eyjamir em komnar úr byggð.
Þó er þar verið við á summm.
Erfiðleikar eyjabúskapar segja til
sfn.
Félagslffið er fremur fátæklegt,
en þó má geta þess að við héldum
úti spilakvöldum hálfsmánaðar-
lega allan veturinn. Komum
saman á Bíldhóli og var þetta
vinsælt. Mest var spilað á 6 borð-
um og verður það að teljast gott.
Kvenfélagið var á sfnum tíma
mjög öflugt, en því miður hefir
þar fækkað eins og annars staðar.
Þorrablót vora um skeið mikil
hátíð hér í sveitinni, en þeim er
nú lokið og við hér á ströndinni
sækjum þorrafagnað til Helgfell-
inga að Skildi eða þá í Lindar-
tungu til Kolhreppinga. Bömin á
Skógarströnd eiga skólasókn að
Laugagerði i Eyjahreppi og allri
farkennslu lokið.
Ég vakti athygli meðal sveit-
unga minna á því að gaman væri
að fara svo sem eins dags ferð út
fyrir sveitina, okkur til upplyfting-
ar, og hlaut þetta góðar undirtekt-
ir og var fyrsta ferðin farin í fyrra
og vom 40 manns í ferðinni og á
sumum bæjunum komu allir með.
Við fómm um Borgarfjörðinn,
komum víða við þar, og heim um
Holtavörðuheiði og um Laxárdal-
inn. í þessari ferð komum við
m.a. við á Hvanneyri og Reyk-
holti, Húsafelli og Hreðavatni.
Var þetta hin ógleymanlegasta
ferð. Og er ákveðið að endurtaka
þetta og ferðast um Strandir og
er ekki laust við að tilhlökkun sé
farin að segja til sín.
Þetta er á vegum búnaðarfé-
lagsins og mættu fleiri slík félög
taka þetta til athugunar.
Veturinn var ágætur, ein-
munatíð, og féð ekki þungt á fóðr-
um, en það brá við í maí sem er
einhver hinn kaldasti mánuður
sem ég man nú um lengri tíma.
Sauðburður hefir þó gengið ágæt-
lega og óvenjulega margt tví-
lembt. En gróðri fer lítið fram,
það er þó farið að grænka og efa
ég ekki að hann tæki við sér ef
nú færi að hlýna í veðri.
Um veðrið er það að segja að
norðangarri hefir verið megin
uppistaða í maí og í gærkvöldi
komst hiti niður í 1 stig og þegar
ég kom á fætur í morgun var
ekki nema 3 stiga hiti. En þetta
hlýtur að fara að breytast.
Ég spurði Kristján um kvóta-
kerfið. Ég held að það þurfi að
endurskoðast í alvöra. Ég tel
ekkert vit í of stómm búum. Ég
tel að 440 ærgiidi séu hámark í
búi. Og glapræði er að byggja
þessi 30 kúa fjós og það leiðir af
sér fækkun bænda. Og að leyfa
enn byggingu peningshúsa, sem
enginn kvóti fylgir, er ekki til að
bæta það. Ég veit t.d. af 4 stómm
fjósum, sem hafa verið byggð í
þessari sýslu nú á seinustu tímum,
en þau hljóta fljótt að standa auð
með þessu fyrirkomulagi. Nei, það
þarf að athuga vel þetta kvóta-
kerfi og breyta því þar sem það
verkar öfugt. Og að þessum orð-
um sögðum kvaddi Kristján á
Hálsi.
Arni
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^síðum Moggans! jj.
■öl»rc
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Tískusýning
í kvöld kl. 21.30
Modelsamtök-
in með frá-
bæra
tískusýningu á
herrafatnaði
frá versl.
Gæjar, Ingólfs-
stræti 8.
W
HÓTEL ESJU
HOLUMIOOD
Pétur og Bjartmar mæta
á svæðið og taka nokkur
lög af plötu þeirra félaga
sem kemur út innan
skamms.
— tískustaðurinn ídag.
Topp staður — Topp fólk
Opiðtil kl.1.
HOUIMVOOO
Sýnishorn af matseðli
árstíðarinnar
Ferskur spergill af akrinum með eggjasósu
- O -
íslenskt sviðafrauð
- O -
Kiwisorbet
- O -
Nýr lax smurður með rauðsprettu-suffle
„auxgratin"
- O -
Léttsteiktur smá-kjúklingur i salviukrydd-
uðu grœnmetis-ragout
- O -
Ostarfrá ostagerðarmanninum
- O -
Vorvöfflur með ferskum jarðarberjum og
tveim tegundum af ávaxtasósu
ARNARHÓLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hvérfisgötu.
Boröapantanir i síma 18833.
■ i ■ — ......—