Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 55

Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986 55 Þessir hringdu . . Garðarollur og blómarækt Óskar Björnsson, Nesgötu 13 f Neskaupstað, hringfdi og sagöi eftirfarandi sögu ásamt vfsu: „f Velvakanda þriðjudaginn 10. júní er sagt að kindur eyðileggi gróður í borgarlandinu og 13. júni „Burt með rollubúskap í grennd við friðuð svæði". Þetta minnti mig á það, þegar ég vann í prent- smiðjunni hér í Neskaupstað 1950 til 1952. Þá var þar prentari að sunnan, Sverrir Jónsson. Þetta var afskaplega fjölhæfur maður. Kunni mikið af ljóðum og kveð- skap og var góður söngmaður. Honum var ekki nóg að fara með ljóð á íslenzku, ef þau voru þýdd til dæmis, fór hann gjaman með þau á ensku fyrir mann. Ég minnist til dæmis eins, Hrafninn eftir Edgar Allan Poe, hann fór með hann allan á ensku fyrir mig. Það voru tveir menn hér sem deildu um garðarollur og þeir skrifuðu hvor öðrum greinar í Austurlandi. Svo ber það einu sinni við að annar þeirra, sem mælti fyrir munn sauðkindarinn- arinnar, segir: „Sauðkindin er milliliður milli mannsins og gróð- ursins." Ég var að vinna í öðru herbergi og prentarinn var að setja greinamar. Þegar hann rekst á þessa setningu, sprettur hann á fætur, kemur til mín og spyr hvort ég hafí blað og blýant og skrifaði þessa vísu umsvifa- laust niður: Garðarollan mér leggur lið í lífsbjargarviðleitni minni. Hún breytir í hrútspunga, blöðmör og svið blómaræktinniþinni. Skýring á launa- mismun sú að miðað er við fæðingarár Nokkrar villur slæddust inn f pistil frá Amfinni Jónssyni skóla- stjóra Vinnuskóla Reykjavíkur sem birtist í Velvakanda laugar- daginn 14. júní. Birtist hann hér aftur: „Vegna fyrirspumar í Velvak- anda á dögunum varðandi það að unglingar hefðu lægra kaup í fískvinnu en í unglingavinnunni, vil ég upplýsa eftirfarandi: I Vinnuskólanum em unglingar sem fæddir eru 1971 og 1972, og höfum við tekið við öllum reykvískum unglingum sem fædd- ir em þessi ár. Þau sem fædd em 1971 frá kr. 80,80 á tímann en þau sem fædd em 1972 fá kr. 71,30 á tímann. Þannig gemm við ekki greinarmun á þvi hvort unglingamir em orðnir 15 ára eða em rétt að verða það. Við miðum kaupið einvörðungu við fæðingar- ár en ég held að flestir atvinnurek- endur fari eftir aldri þannig að kaupið getur breyst á afmælisdegi unglinga ef svo ber undir. Þetta er held ég skýringin á launamis- muninum sem spurst var fyrir um.“ Hættum hvala- drápi Margrét Hjálmtýsdóttir hringdi: í Malmö hefur undanfarið stað- ið yfir þing þar sem rætt hefur verið hvaladráp og hvalavemd. Það er vonandi að drápgimi og peningagræðgi verði ekki til að útrýma þessum greindu dýmm. Heyrst hefur að hvaladráp íslend- inga í vísindaskyni sé yfírskyn og ósvífin blekking, því þar ráði aðeins sölumennska. Hættulegt er að hroki og græðgi einstakra manna í sambandi við íslenska hvaladrápið hefur eyðileggjandi áhrif á erlend viðskipti okkar þjóð- ar, sem er skuldum vafín. Hinir fáu íbúar á eyjunni okkar ættu að fylgjast betur með vinnubrögð- um manna sem þeir borga kaup fyrir að fara með málefni þjóðar- innar og standa saman gegn út- rýmingu dýra og hvers konar eyðileggingu í náttúmnni. Það er skylda hverrar siðaðrar mann- eskju." Léleg sjónvarpsdagskrá: Makalaust hve fótboltaáhuga- mönnum er gert hátt undir höfði Til Velvakanda: Nú er svo komið að maður getur ekki lengur orða bundist. Það er alveg makalaust hvað fótbolta- áhugamönnum er gert hátt undir höfði hjá forráðamönnum sjón- varpsins. Þessa dagana opnar maður ekki svo fyrir viðtækið að það sé ekki fótbolti á skjánum. Það mætti halda að ekki væm aðrir en fótboltaáhugamenn sem borga af- notagjöldin, en svo er nú ekki og eflaust em þeir sem horfa á leikina aðeins brot af þeim sem greiða fyrir afnotin. Og hvað kostar svo þetta ævintýri? Á meðan svona lagað er látið viðgangast er erlenda dagskráin alveg fyrir neðan allar hellur. Það er verið að kaupa einhveijar út- sölubíómyndir til sýningar um helg- ar og er skemmst að minnast föstu- dagskvöldsins 30. maí sl. þegar sýnd var kúrekamynd frá 4. ára- tugnum, svo maður tali nú ekki um myndina „Persona" eftir Ingmar Bergman, hversu frægur sem hann nú annars er. Til hvers er svo verið að sýna ömurlega þætti eins og „Der Alte“? Er það ekki vegna þess að enginn annar vill kaupa þessa þáttaröð og hún fæst því á tombólugrís og þykir allt í lagi að sýna Islendingum þetta, því við höfum alltaf látið ganga yrfír okkur? Er fótbolti kannski það eina sem forráðamenn sjónvarpsins hafa sjálfír áhuga á að sjá? Ég hygg að fólk noti sjónvarp nú til dags mestmegnis til afþrey- ingar að loknum löngum vinnudegi og því er það lágmarkskrafa að sjónvarpið sýni myndir við þess hæfí. íslendingar eiga ekki ótakmark- að fé og því er fáránlegt að sóa svo Fyrsti og síðasti bókstafur gríska stafrófsins. í Opinberun Jóhannesar 1,8 stendur: „Eg er Alfa og ómega, segir Drottinn Guð, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi." Á miklu af ráðstöfunarfé sjónvarpsins á hveijum tíma í fótbolta — heims- meistarakeppni eða ekki. Væri ekki nær að nota þessa peninga til að bæta þjónustu við sem flesta not- endur frekar en einhvem lítinn hóp manna og kvenna? Auk þess vil ég spyija til hvers þarf að hafa þulur til að tilkynna dagskrána. Er ekki nóg að birta dagskrána á skjánum? Þar sparast þá strax laun þulanna. Við skulum minnast þess að auglýsingum hefur Qölgað mjög í sjónvarpi frá því sem var. Hvemig stendur þá á því að erlenda dag- skráin er ekki bætt? Valgerður F. Baldursdóttir öðrum stað stendur: „Ég er hinn fyrsti og hinn síðasti," sem hefur sömu merkingu. (Dagbladenes pressetjeneste) Alfa og Omega Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu- mig með nœrveru sinni og gjöfum á 90 ára afmœli minu. Innilegar kveðjur til ykkar allra. ÞÓRA GUÐLA UGSDÓTTIR, Austurbrún 6. Mjnudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 FráBrjánslækkl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk. Fimmtudaga: Samatimataflaog mánudaga. Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00, eftir komu rútu. Viðkoma í inneyjum. Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Þriðjudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00 eftir komu rútu. Frá Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 21.30 Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyjar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Á timabllinu 1. iúli tll 31.áqúst Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00, fyrir brottför rútu. Viðkoma er ávallt í Flaley á báðum leiðum. Bílaflutnlnga er nauðsynlegt að panta með fyrlrvara. Frá Stykkishólmi: Frá Brjánslæk: Hjá afgreiðslu Baldurs Hjá Ragnari Guðmundssyni Stykkishólmi, s.: 93-8120 Brjánslæk, s.: 94-2020. Á timabilinu 1. júní til 31. ágúst Á tímabilinu 1. mai til 30. sept. einkatölvan brýtnr 100 f>us. króna ■HfiHsrT- Nú eiga tölvukaupendur kost á IBM-XT samhæfðri tölvu með 640K innra minni og 20 megabæta diski á aðeins kr. 98.000 - Advance einkatölvan hefur sannað ágæti sitt á íslenskum tölvumarkaði og nú er næsta sending á þessu frábæra verði á leiðinni. Komdu í heimsókn til okkar og skoðaðu ADVANCE tölvuna. Pantanir óskast staðfestar. ÍMÍKROÍ SkeifunniH Simi 685610

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.