Morgunblaðið - 20.06.1986, Qupperneq 1
64SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
134. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
K
iM .
Fedorenko
dæmdur
til dauða
Moskvu, AP.
Sovétmaðurinn Fyodor Fed-
orenko, sem Bandaríkjamenn
framseldu til Sovétríkjanna
vegna ásakana um stríðs
glæpi, var í gær dæmdur til
dauða í Kiev.
Fedororenko er fyrsti maður-
inn, sem Bandaríkjamenn hafa
framselt til Sovétríkjanna sakir
gruns um stríðsglæpaverk.
Réttarhöldin stóðu í viku, en
Fedorenko, sem er 78 ára að
aldri, var dæmdur fyrir föður-
landssvik og fjöldamorð.
Hann var í sovéska hemum
í seinni heimsstyijöld, en gekk
til liðs við nazista árið 1942
Starfaði hann sem eftirlitsmað-
ur í útrýmingarbúðum nazista
Treblinka í Póllandi árin 1942-
1943. Sovétmenn telja að um
800 þúsund manns hafi verið
teknir þar af lífi á þessum árum.
Suður-Afríka:
Þúsundir blökkumanna
leggj a niður vinnu
Jóhannesarborg, Washington, New York.
ÞÚSUNDIR svartra starfsmanna
í stórverslunum í Jóhannesar-
borg lögðu niður vinnu í gær til
að mótmæla handtökum, sem
siglt hafa i kjölfar setningar
neyðarástandslaga í landinu.
Ekkert hefur spurst til forystu-
manna verkalýðsfélaga verkfalls-
mannanna síðustu daga. Er talið
líklegt að þeir hafi verið handteknir
eða séu í felum.
Talsmaður stjómarinnar í Pretor-
íu sagði að þrír blökkumenn hefðu
látið lífið í óeirðum í gær. Nú hafa
a.m.k. 43 týnt lífi frá því að neyðar-
ástandslögin voru sett í landinu 12.
júní sl.
í frétt breska dagblaðsins Guard-
ian í gær segir að suður-afrískir
hermenn hafi hafið skothríð á hóp
blökkumanna, sem grýtti brjmvarða
bifreið þeirra, með þeim afleiðing-
um að þijú böm létu lífið og um
30 manns særðust. Samkvæmt
fréttinni átti atvikið sér stað á
mánudag, en þá voru 10 ár liðin
frá uppreisn blökkumanna í Sow-
eto. Stjómvöld í Suður-Afríku hafa
vísað fréttinni á bug.
R.F. Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, fordæmdi í gær-
kvöldi frumvarp fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings um viðskiptabann
á landið, en það var samþykkt á
miðvikudag. Botha sagði að ekkert
utanaðkomandi ríki gæti leyst
vandamál Suður-Afríku. Frum-
varpið bæri skammsýni vitni og
næði það fram að ganga kæmi það
helst niður á blökkumönnum.
Nokkrir þingmenn repúblikana í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings sögð-
ust hafa greitt atkvæði með fmm-
varpinu um viðskiptabann á Suður-
Afríku, til að koma í veg fyrir að
Sovétríkin:
Halda áfram fram-
leiðslu efnavopna
Genf, AP.
SOVÉSKI fulltrúinn á afvopnunarráðstefnu, sem nú stendur yfir í
Genf sagði í gær að Sovétmenn hygðust halda áfram framleiðslu
efnavopna. Hann útilokaði þó ekki þann möguleika að Sovétmenn
mundu endurskoða afstöðu sína í þessu máli.
Á afvopnunarráðstefnunni, sem
fulltrúar 40 þjóða taka þátt í, hefur
verið lögð fram tillaga um alþjóð-
legt bann við framleiðslu efna-
vopna.
Fulltrúinn, Viktor Issraelyan,
neitaði að skýra nánar frá efna-
vopnaáætlun Sovétmanna á frétta-
mannafundi. Hann sagði að önnur
ríki, sem yfir efnavopnum ráða,
hefðu ekki gert það, og því bæri
Sovétmönnum ekki skylda til þess.
Aðspurður um ástæðu þess að
sovésk stjómvöld ætluðu að halda
fast við efnavopnaáætlun sína sagði
Issraelyan, að einhliða afvopnun
Sovétmanna tryggði ekki að önnur
ríki sigldu í kjölfarið. Hann vísaði
síðan til ákvörðunar Sovétmanna
um að hætta tilraunum með kjam-
orkuvopn og sagði að Bandaríkja-
menn hefðu ekki gert hið sama.
Sovétmenn efndu til frétta-
mannafundarins í því skyni að deila
á Bandaríkjamenn fyrir áform
þeirra um að hefja á ný framleiðslu
efnavopna. Bandaríkjamenn hættu
því árið 1969, en samkvæmt sam-
þykkt Bandaríkjaþings geta þeir
hafið framleiðslu efnavopna aftur á
næsta ári.
það yrði að lögum. Frumvarpið
gengi út í öfgar og væri óhugsandi
að öldungadeildin samþykkti það.
Thomas O’Neill, forseti fulltrúa-
deildarinnar, sagði hins vegar að
fmmvarpið markaði þáttaskil í
baráttunni gegn aðskilnaðarstefn-
unni: þingmenn hefðu með atkvæði
sínu hafnað þeirri stefnu Reagans
Bandaríkjaforseta að vinna með
hvíta minnihlutanum við að koma
á þjóðfélagsbreytingum þar.
Öldungadeildin þarf að sam-
þykkja frumvarpið svo að það verði
að lögum. Ef það verður má búast
við því að viðskiptabannið geti haft
veruleg áhrif á efnahagslíf í Suður-
Afríku.
Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar og leiðtogi sósíalista, flytur kosningaræðu í Madrid
Þingkosningar á Spáni á sunnudag:
Ovíst hvort sósíalistar
haldi meirihluta sínum
Madríd, AP.
NIÐURSTÖÐUR síðustu skoð-
anakannana á Spáni benda til
þess, að miðflokkur Adolfos
Suarez, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hafi unnið mikiö á síðustu
vikur, en að stjómarflokkurinn,
sósíalistaflokkur Felipes Gonz-
alez, núverandi forsætisráð-
herra, hafi tapað fylgi. Allar
horfur era samt á því, að flokkur
sósíalista verði eftir sem áður
stærsti flokkurinn á þingi. Óvist
er hins vegar, hvort flokknum
tekst að halda meirihluta sínum
þar.
í síðustu þingkosningum, sem
fram fóru 1982, fengu sósfaiistar
202 af 350 þingsætum á þjóðþing-
inu. Talið er, að þeir eigi meira
komið undir því nú en aðrir flokkar,
að þátttaka verði mikil í kosningun-
um á sunnudag. Niðurstöður skoð-
anakannana að undanfömu benda
hins vegar til þess, að allt að 30%
kjósenda hyggist sitja heima nú eða
10% fleira en síðast.
Persónulegar vinsældir Gonzales
sjálfs hafa hins vegar ekki dvínað,
þrátt fyrir að stjóm hans hafi ekki
tekizt að vinna bug á atvinnuleys-
inu. Það er eitt helzta hitamál
kosningabaráttunnar, enda eru nú
um 22% vinnufærra manna í land-
inu atvinnulaus, þrátt fyrir að fyrir
síðustu kosningar hafi Gonzalez
heitið því að skapa ný störf handa
800.000 manns.
Sjá nánar: Kosningabarátt-
an á Spáni á bls. 20.
Perú:
Mikið mannfall
í fangauppreisn
Líma, AP.
Óttast er að 150 manns hafi fallið í átökum hermanna og fanga
í þremur fangelsum í Perú, að sögn embættismanns þar. Herinn
réðst inn í fangelsin á miðvikudag eftir að fangarair höfðu gert
uppreisn. Herstjórnin sagði að átökin stæðu enn og margir fangar
hefðu fallið.
Fangamir bíða flestir réttarhalda
vegna meintra hryðjuverka. Þeir
eru félagar í maóískum samtökum,
sem kallast „Hinn gullni vegur".
í tilkynningu herstjómarinnar
sagði að enn verðust fangar í E1
Fronton-fangelsinu, sem stendur á
klettaeyju skammt utan við hafnar-
borgina Callao. í öllum fangelsun-
um vörðust fangamir með skot-
vopnum og sprengjum, en þeir hafa
einnig notast við boga og örvar, sem
þeir hafa smíðað innan veggja
fangelsisins.
Innanríkisráðherrann, Abel Sal-
inas, sagði að tilgangur uppreisnar-
manna væri að valda ríkisstjóminni
álitshnekki, en nú koma hundmð
fulltrúa hvaðanæva úr heiminum
til Perú til þess að sitja þing Al-
þjóðasambands jafnaðarmanna, en
flokkur forseta landsins, Alans
García, er í því.