Morgunblaðið - 20.06.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1986
3
Húsnæðisstofnun ríkisins:
Lánveitingar upp á 267
milljónir samþykktar
Húsnæðísmálastjórn ríkisins
hefur samþykkt lánveitingar til
kaupa eða byggingar á 760 íbúð-
um og nema þær samtals 267
milljónum.
Neðangreindar lánveitingar voru
samþykktar:
1. Frumlán (1. hluti byggingar-
lána) þeim til handa, sem eiga íbúð-
ir fyrir og gerðu nýbyggingar fok-
heldar í janúar, febrúar og mars
1986. Lán þessi skulu koma til
greiðslu eftir 9. júní 1986. Hér er
samtals um 10 milljónir króna að
ræða til bygginga á 55 íbúðum.
2. Lokalán (3. hluti byggingar-
lána) þeim til handa, er fengu frum-
lán útborguð 18. júní 1985 og
miðlán greidd 16. desember 1985.
Lán þessi munu koma til greiðslu
eftir 11. júní 1986. Hér er um að
ræða samtals 41 milljón króna til
byggingar 172 íbúða.
Hafnarhreppur 40 ára:
Sjálfstæð-
ismaður
oddviti í
annað sinn
Meirihlutasamstarf í sveitar-
stjórn Hafnarhrepps hefur náðst
milli Sjálfstæðisflokks og óháðra
og hefur fyrsti fundur nýrrar
sveitarstjórnar verið haldinn.
Sturlaugur Þorsteinsson, efsti
maður á D-iista, var kosinn odd-
viti og Stefán Ólafsson, efsti
maður á lista óháðra, H-lista, var
kosinn formaður byggðarráðs.
Hreppstjórastaða þar hefur ve-
rið auglýst laus til umsóknar, en
Tryggvi Árnason, sem gegnt
hefur embættinu undanfarið ár,
gaf ekki kost á sér.
Hafnarhreppur átti 40 ára af-
mæli 14. maí sl., en fyrsta hrepps-
nefnd Hafnarhrepps kom til fundar
sama dag árið 1946 og var þá
kjörinn oddviti úr röðum sjálfstæð-
ismanna, Óli Kr. Guðbrandsson,
þáverandi skólastjóri. Eftir hans tíð
hafa fulltrúar Framsóknarflokks
ávallt farið með embætti oddvita í
Hafnarhreppi þar til nú, að í annað
sinn er kosinn fulltrúi frá Sjálfstæð-
isflokki í stöðu oddvita.
Sturlaugur sagðist, í samtali við
Morgunblaðið, hafa flust til Hafnar
úr Kópavogi fyrir þremur árum.
„Eg starfaði nokkuð með Sjálfstæð-
isflokknum í Kópavogi í kosningun-
um 1978 en bjó um skeið eftir það
í Danmörku. Ég er verkfræðingur
— líkar vel að búa hér og sé ekki
eftir að hafa farið út á land.“ Stur-
laugur sagði að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefði verið eini flokkurinn á
Höfn sem hefði látið fara fram próf-
kjör en hinir framboðsflokkamir,
Framsókn og óháðir, hefðu stillt
upp mönnum á sína lista.
Haldið verður upp á afmæli
Hafnarhrepps helgina 26. og 27.
júlí nk. með sögusýningum, mál-
verkasýningum, hátíðarfundi og
gamanmálum. Þá er einnig fyrir-
þugað að starfrækja útvarp á
meðan á afmælishátíðinni stendur.
3. Seinni helmingur byggingar-
láns þeim íbúðarbyggjendum til
handa, sem fengu fyrri helminginn
greiddan hinn 17. febrúar 1986.
Lán þessi koma til greiðslu eftir
13. júní 1986. Hér er samtals um
að ræða 65 milljónir króna til bygg-
ingar 139 íbúða.
4. Miðlán (2. hluti byggingarl-
ána) þeim húsbyggjendum til
handa, sem fengu frumlán sín
greidd í lánveitingu hinn 20.febrúar
1986. Lán þessi verða greidd út
eftir 16. júní 1986. Hér er samtals
um að ræða 32 milljónir króna til
byggingar 104 íbúða.
5. Lokalán (3. hluti byggingar-
lána) þeim til handa, er fengu
frumlán sín greidd út hinn 1. ágúst
1985 og miðlánin greidd út hinn
21. febrúar 1986. Lokalán þessi
koma til eftir 18. júní 1986. Hér
er samtals um að ræða 29 milljónir
króna til byggingar 110 íbúða.
6. Fyrri helmingur byggingarláns
þeim til handa, sem gerðu fokhelt
í maí 1986 og eru að eignast sína
fyrstu íbúð. Lán þessi koma til
greiðslu eftir 20. júní 1986. Hér er
samtals um að ræða 22 milljónir
til byggingar 40 íbúða.
7. Lán til kaupa á eldri íbúðum
(G—lán ) þeim til handa, sem sendu
stofnuninni umsóknir sínar í janúar
1986, án tillits til þess, hvort um
er að ræða fyrstu eða síðari íbúðar-
kaup. Lán þessi skulu koma til
greiðslu eftir 25. júní 1986. Hér er
samtals um að ræða 32 milljónir
króna vegna kaupa á 90 íbúðum.
8. Fyrri helmingur byggingar-
lána þeim til handa, sem gerðu íbúð-
ir sínar fokheldar í júní 1986 og
eru að eignast sína fyrstu íbúð. Lán
þessi skulu koma til greiðslu eftir
7. júlí næstkomandi. Hér er samtals
um að ræða 27 milljónir króna til
byggingar á 50 íbúðum.
Fábuþér
SUZUKI SWIFT
Sparneytnasti bíll sem fluttur er
til landsins fæst nú stærri og
rúmbetri og auk þess með
sjálfskiptingu.
SUZUKI SWIFT GL 3dr. beinskiptur kr. 299.000.-
SUZUKI SWIFT GL 3 dr. sjálfskiptur kr. 329.000.-
SUZUKI SWIFT GL 5dr. beinskiptur kr. 322.000.-
SUZUKI SWIFT GL 5 dr. sjálfskiptur kr. 348.000.-
SUZUKISWIFT sendibíll kr. 345.000.
eru til afgte»os,u^—
SUZUKI CARRY
Nýr og enn betur
búinn sendibíll frá Suzuki,
með alla kosti fyrirrennara
síns og marga að auki.
SUZUKI CARRY 1000
sendibíll kr. 373.000.-
SUZUKI CARRY 1000
háþekjusendibíll kr. 385.000.-
SUZUKI - Margfaldur
íslandsmeistari í sparakstri
SUZUKI FOX
Sterkbyggður og sparneytinn.
Þrautreyndur við íslenskar aðstæður.
SUZUKI FOX SJ410 jeppi 4 gíra kr. 380.000
SUZUKI FOXSJ413 háþekju-
jeppi 5gíra
SUZUKI FOX SJ410 pickup 4gíra
SUZUKI FOXSJ413 pickup 5gíra
kr. 468.000.
kr. 420.000.
kr. 465.000
SUZUKI
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 685100
XJöfóar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
SÖLUUMBOÐ:
Bílaverkstæ&l Gu&var&ar Elíss., Drangahraun 2
220 HafnarfjörSur- 91/52310
BilaumboS Stefnls ht, Austurvegur 56-58
800 Selfoss- 99/1332-1626
Ragnar Imsland, Miðtún 7
780 Hðfn Hornaf. - 97/8249-8222
Blfrei&averkst. Lyklll
740 Reyðartjörður - 97/4199-4399
Bilaverkst. Jóns Þorgrimss., Gar&arsbraut 62-64
640 Húsavík - 96/41515
Blasalan hf., Strandgata 53
600 Akureyri - 96/21666
Brynjar Páisson, Hólmagrund 19
550 Sau&árkrókl - 95/5950:5317
Dalverk, Vesturbraut 18
370 Búðardal - 93/4191
Bilasala Vesturlands, Borgarbraut 56
310 Borgames - 93/7577
Ólafur G. Ólafsson, Su&urgata 62
300 Akranes-93/1135-2000
Kaupfélag Húnvetnlnga
540 Blönduósi- 95/4198
.VlUrnvr
Gengi 10.6. '86