Morgunblaðið - 20.06.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
Heilbrigt líf
hagur allra
Á JÓNSMESSU 1986 verður gert
átak til eflingar hollri hreyfingu
og útiveru undir kjörorðinu: Heil-
brigt líf — hagur allra.
Að undanfomu hafa augu
margra opnast fyrir nauðsyn heil-
brigðs lífemis. Það veldur óhug
að heyra frásagnir af ungmennum
sem ekki fínna sér önnur við-
fangsefni en þau er tengjast vímu-
efnum. Heilbrigðisyfírvöld, sveita-
félög og fíjáls félagasamtök vinna
mikilvægt fyrirbyggjandi starf,
en sá þáttur gæti þó orðið miklu
stærri ef betur væri að búið.
Þá skyldu foreldrar minnast
þess þegar sest er fyrir framan
sjónvarp eða myndband að sá tími
gæti orðið bömunum dýrmætari
ef notaður væri til hreyfíngar úti-
við og til að skoða náttúru lands-
ins.
Nú er tækifæri ti frómara óska,
enda þótti Jónsmessan góð til slíks
áður fyrr. Það er auðvitað ekki
nóg að hreyfa sig eina helgi, en
upphaf gæti þetta orðið að reglu-
bundinni hreyfíngu.
Föstudaginn 20. júní verða
fímleikar á dasrká, 21. júní verður
tileinkaður sundi og verða allir
sundstaðir landsins opnir þann
dag.
Sunnudagur 22. júní verður
dagur skokks og gönguferða.
Ungmennafélögin hafa árlega
staðið fyrir „Göngudegi íjölskyld-
unnar“ og hafa á annað hundrað
ungmennafélög skipulagt slíkar
fjölskyldugöngur víðsvegar um
land síðustu ár.. Auk þess mun
Ferðafélag íslands og Útivist
skipuleggja gönguferðir þennan
dag. Sólstöðugangan verður laug-
ardaginn 21. júní.
Ég hvet fólk um iand allt til
að nota þessa helgi vel til hollrar
hreyfíngar og útiveru og fylgjast
með því hvar skipulögð þátttaka
er undirbúin t.d. mætti hafa
samband við næstu ungmennafé-
lag og taka þátt í „Göngudegi
§ölskyldunnar“. En umfram allt
verið öll með, það er úr nógu að
velja.
Pálmi Gíslason
formaður UMFÍ
Grandi hf
Kosning stj órnarmanna heyr-
ir ekki undir borgarsljórn
BORGARFULLTRÚAR minni-
hlutaflokkanna í borgarstjóm
Reykjavikur fóru þess á leit við
félagsmálaráðherra í bréfi hinn
20. febrúar sl. að hann úrskurð-
aði hvort það heyrði undir borg-
arstjóm að kjósa með lýðræðis-
legum hætti þá þijá stjómar-
menn i Granda hf. sem borgin
tilnefnir, eða ekki.
Ríkisskatta-
nefnd skipuð
til 6 ára
Fjármálaráðherra hefur skip-
að ríkisskattanefnd. Þeir sex
menn sem setið hafa í nefndinni
frá 19. maí 1980 vora skipaðir
til næstu 6 ára. Þeir em: Gunnar
Jóhannsson, lögfræðingur, for-
maður, Olafur H. Olafsson, við-
skiptafræðingur, Atli Hauksson,
löggiltur endurskoðandi, Gylfi
Knudsen, héraðsdómslögmaður,
Helgi V. Jónsson, hæstaréttar-
lögmaður og Skúli Pálsson,
hæstaréttarlögmaður.
Ríkisskattanefnd er óháður úr-
skurðaraðili í ágreiningsmálum um
skattstofna og skatta. Þá skal
nefndin lögum samkvæmt ákvarða
skattsektir í þeim málum sem skatt-
stjóri ber undir hana. Nefndin gefur
út úrskurði sína árlega.
Tileftii kæru þessarar var tillaga,
sem kom fram á fundi borgarráðs
Reykjavíkur hinn 4. febrúar. Að
tillögunni stóðu þau Siguijón Pét-
ursson, Sigurður E. Guðmundsson,
Kristjánsson Benediktsson og Guðr-
ún Jónsdóttir. Hljóðaði tillagan svo:
„Borgarráð Reykjavíkur ályktar að
borgarstjóri hafí ekki heimild til
þess, einn og sér, að tilnefna alla
stjómarmenn borgarinnar í hlutafé-
laginu Granda, heldur heyri það
undir borgarstjóm að lqósa þá með
lýðræðislegum hætti." Tillaga þessi
náði hvorki fram að ganga í borgar-
ráði né borgarstjóm.
í bréfí félagsmálaráðherra, Alex-
anders Stefánssonar, er vísað til
laga nr. 32/1978 um hlutafélög,
þar sem kemur fram sú meginregla
að aðalfundur kjósi alla stjómar-
menn, nema undantekning se gerð
í samþykktum hlutafélags. í sam-
þykktum Granda hf. hafí það hins
vegar ekki verið gert og er það
því álit félagsmálaráðuneytisins að
lögum samkvæmt heyri það ekki
undir borgarstjóm Reykjavíkur að
kjósa með beinni kosningu stjómar-
menn í Granda hf.
0
INNLENT
Frárennslislagnir lagðar í flughlöð.
Keflavíkurflugvöllur:
Morgunbla<5ið/EG
Framkvæmdir ganga vel
við flughlöð og flugbrautir
FRAMKVÆMDIR ganga vel við
flughlöð og flugbrautir við nýju
flugstöðina á Keflavíkurflug-
velli. Um er að ræða umfangs-
miklar framkvæmdir þar sem
skipt er um jarðveg, lagðar frá-
rennslislagnir og lagnir vegna
olíuáfyllinga. Þá verða brautir
malbikaðar og flughlöð steypt.
Það eru 50 til 100 manns sem
starfa við framkvæmdimar, sem
fer eftir við hvað er unnið hveiju
sinni. Efni er flutt á 20 bflum frá
Stapafelli um 15 km vegalengd,
en þegar flestir voru var bflafjöld-
inn allt að 30, m.a. bflar frá
Vörubflastöðinni í Keflavík. Hluti
þess efnis sem var fyrir fá staðn-
um er unnið á ný og notaður
aftur. Frárennslislagnir eru á
annan kflómetra að lengd. Að
sögn Andrésar Andréssonar yfír-
verkfræðings hjá íslenskum aðal-
verktökum er nú komið að því að
heija malbikun, en fyrirtækið
hefur lokið öðmm malbikunar-
framkvæmdum svo hægt er að
einbeita sér að þessum fram-
kvæmdum, en malbikun þarf að
ljúka fyrir haustið.
E.G.
Keflavíkurflugvöllur:
Framkvæmdir hafnar við vegar-
lagningn að nýju flugstöðinni
FRAMKVÆMDIR em hafnar á
Keflavíkurflugvelli við vegar-
lagningu að nýju flugstöðinni.
Sá hluti vegarins sem fram-
kvæmdir eru hafnar við er um 2,5
km að lengd og liggur frá flugstöðv-
arbyggingunni að gamla flugvallar-
veginum frá Keflavík, við svokallað
Tumer-hlið.
Það eru íslenskir aðalverktakar
sem annast framkvæmdimar.
E.G.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
Ráðínn fjármála-
sljóri í fyrsta sinn
— áhersla lögð á atvinnu- og félagsmál í málefnasamningi
Mæðra- og
feðralaun:
Aldursmark
hækkar í 18 ár
FRÁ 1. júni verða mæðra- og
feðralaun greidd með böraum
sem urðu 16 ára á tímabilinu
frá 1. júní 1985 til 31. maí
1986. Frá næstu áramótum
verða þessar greiðslur inntar
af hendi til 18 ára aldurs.
í fréttatilkynningu frá Trygg-
ingastofnun segir að þetta sé í
samræmi við lög sem Alþingi
samþykkti þann 18. aprfl si.
Aldursmörk bama vegna
mæðra- og feðralauna hafa nú
verið hækkuð í 17 ár og verða
18 árfrá 1. janúar 1987.'
MÁLEFNASAMNINGUR milli
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags, sem nú starfa saman í nýrri
bæjarstjóra Hafnarfjarðar, var
lagður fram og kynntur á fyrsta
fundi bæjarstjóraarinnar sl.
mánudag. Þá var jafnframt
formlega gengið frá ráðningu
nýs bæjarstjóra, Guðmundar
Árna Stefánssonar.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að lagt væri í samn-
Utvarp—sjónvarp selur
á erlendum vettvangi
ARLEGUR markaður norrænu
sjónvarpsstöðvanna, Nordic
Screening, var haldinn i Hels-
inki fyrsta til sjötta júni siðast-
liðinn. Á þessum alþjóðlega
markaði var boðið til skoðunar
og sölu norrænt sjónvarpsefni
og sóttu hann um það bil 60
innkaupafulltrúar frá 21 landi.
Innkaupa- og markaðsdeild
Ríkisútvarpsins-sjónvarps sá nú í
fyrsta sinn um aðild sjónvarpsins
að markaðinum og hafði Hinrik
Bjamason, dagskrárstjóri, umsjón
með kynningu íslensks efnis þar.
Boðin voru til sölu þijú verk frá
íslandi; „Á fálkaslóðum", leikinn
myndaflokkur fyrir böm og ungl-
inga, „Iris Murdoch", heimildar-
mynd um írsk/bresku skáldkon-
una Iris Murdoch, og „Bygging,
jafnvægi,litur“, heimildarmynd
um listmálarann Tryggva ólafs-
son.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá innkaupa- og markaðsdeild
vakti myndaflokkurinn „Á fálka-
slóðum" mesta athygli þessara
þriggja verka og er þegar afráðin
sala á honum til írska sjónvarps-
ins, austur-þýska sjónvarpsins og
ástralskrar sjónvarpsstöðvar. Þá
hafa Finnar óskað eftir heimildar-
myndinni um listmálarann
Tryggva Ólafsson til sýningar.
ingnum mikil áhersla á atvinnumál
bæjarins og í þvi sambandi er m.a.
fyrirhugað að koma upp fískmark-
aði og frystigeymslu við höfnina.
Þá er rætt um að auka þjónustu
á félagsmálasviðinu, æsku- og
íþróttamálum. Rætt er um kaup
eða byggingu á félagsmiðstöð og
byggingu nýs íþróttahúss.
Gengið var á fundinum frá ráðn-
ingu bæjarritara, Gunnars Rafns
Sigurbjömssonar, sem áður starf-
aði í félagsmálaráðuneytinu, og nú
í fyrsta skipti var ráðinn sérstakur
fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar,
Þorsteinn Steinsson, sem áður
gegndi embætti bæjarritara. „í
nýjum sveitarstjómarlögum er gert
ráð fyrir að sveitarstjómir leggi
fram áætlanir til fjögurra ára og
töldum við því að sérstakur fjár-
málastjóri myndi koma vel að
haldi. Embætti Qármálastjóra hef-
ur ekki áður verið við Hafnarfjarð-
arbæ þó önnur sambærileg sveitar-
félög hafí ráðið menn í slík emb-
ætti,“ sagði Guðmundur Ámi.