Morgunblaðið - 20.06.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1986
21
Gorbachev og Gromyko ræðast við á fundi Æðsta ráðsins, sem lauk
í Moskvu í gær.
Sovétríkin:
Mannabreytingar á
fundi Æðsta ráðsins
Moskvu, AP.
FUNDI Æðsta ráðs Sovétríkj-
anna lauk í gær með samþykkt
nýrrar fimmára áætlunar. f
Reynir að sætta
Ný-Sjálendinga
og Frakka
Paris, AP.
JAVIER Perez de Cuellar, aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hyggst hið fyrsta hefja
tilraunir til málamiðlunar milli
Frakklands og Nýja-Sjálands
vegna þess atburðar er franskir
útsendarar sökktu skipi græn-
friðunga, Rainbow Warrior.
í yfirlýsingu frá stjómvöldum
beggja landanna í gær var tekið
fram, að samkomulag í þessu
máli væri „mjög skammt undan“.
Þar vora Ruud Lubbers, forsæt-
isráðherra Hollands, jafnframt
færðar þakkir fyrir að hafa haft
frumkvæði að því að reyna að
koma á sáttum og finna þriðja
aðila, sem fundið gæti málamiðl-
un í deilum ríkjanna út af kjara-
orkuvopnatilraunum Frakka á
Suður-Kyrrahafi.
henni er lögð áhersla á nýiðnað
og minnltun skrif f innsku.
í ræðu, sem Gorbachev hélt í
miðstjóm kommúnistaflokksins síð-
astliðinn mánudag, sagði hann, að
framleiðsla á tölvum yrði aukin um
140% næstu flmm árin. Ennfremur
myndi §öldi vélmenna í iðnaði þre-
faldast fram til 1990.
Mikið hefur verið um manna-
skipti í æðstu stöðum undanfama
mánuði og vom þær breytingar
allar staðfestar án mótatkvæða á
fundinum, sem 1.500 fulltrúar
sóttu. Athygli vakti á miðvikudag-
inn, er tilkynnt var um brotthvarf
Pjotrs Demichevs úr stöðu menn-
ingarmálaráðherra. Hann verður
nú nánast valdalaus aðstoðarmaður
Gromykos utannkisráðherra. Telja
sumir listamenn sig nú eygja von
um að losað verði um flokkstökin
í menningarmálum, en Gorbachev
er talinn hafa hug á að reyna að
blása nýju lífí í þau. Demichev var
menningarmálaráðherra í 12 ár.
Tveir nýir aðstoðarforsætisráð-
herrar vom kjömir á fundinum,
þeir Gennady Vedemikov og Vlad-
imir Gusev. Yakov Ryabov, sem
áður gegndi slíku embætti, var
sagður hafa fengið „annað starf“ án
nánari skýringa.
Myndin sýnir óeinkennisklædda lögreglumenn handtaka mann, sem klæðst hefur nazistabúningi
til að mótmæla kjöri Waldheims fyrir utan austurriska sendiráðið i Paris.
Nýjar árásir
London, New York, AP.
BRESKUR þingmaður hefur borið fram nýjar
ásakanir á hendur Kurt Waldheim, nýkjöraum
forseta Austurríkis, og telur, að um sé að ræða
þagnarsamsæri i mörgum löndum varðandi for-
tíð Waldheims.
Þingmaðurinn Greville Janner í Verkamanna-
flokknum las á þingfundi upp bréf frá fyrrum her-
manni, sem sagði Waldheim hafa vitað um morð á
breskum herföngum í Grikklandi, þar sem Waldheim
gegndi herþjónustu á stríðsárunum. Hermaðurinn
segir einnig, að aðeins einn maður af tíu manna hóp
hafl lifað af yfirheyrslur, sem herdeild Waldheims
sá um. Hann taldi hugsanlegt, að Waldheim hefði
sjálfur stjómað yfirheyrslunum.
Að sögn Janners neitar Thatcher-stjómin að leyfa
á Waldheim
aðgang að opinbemm heimildum varðandi málið og
ber fyrir sig mikilvægi þeirra frá hemaðarlegu- og
öryggissjónarmiði. Janner vísar slíkum röksemdum
á bug og fullyrðir, að yfírvöld í Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Júgóslavíu, Sovétríkjunum og hjá Sameinuðu
þjóðunum séu samtaka um að þagga niður Wald-
heim-málið.
Alþjóðasamtök gyðinga hafa birt skjöl, sem tals-
menn þeirra segja að sanni vitneskju Waldheims um
hryðjuverk nazista meðan hann var í þýska hemum.
Samtökin hvetja Edwin Meese, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, til að meina Waldheim að koma til
landsins. Talsmenn dómsmálaráðuneytisins segja,
að verið sé að kanna feril Waldheims í stríðinu, en
ekki verði mögulegt, að uppfylla kröfu gyðingasam-
takanna. Embætti Waldheims komi í veg fyrir slíkt.
Ítalía:
Adolfo Suarez
Manuel Fraga
og höfundi óvinsælla laga í stjómar-
tíð Francos fijálslegri blæ. Til
dæmis leggur hann til í stefnuskrá
sinni, að lög um ijölmiðla, sem
Manuel Fraga gekkst fyrir á sínum
tíma, verði felld niður. Auk þess
leggur hann til að ríkið selji sinn
hlut í hljóðvarpi og selji aðra sjón-
varpstöðina. í efnahagsmálum vill
flokkurinn lækka skatta, selja ríkis-
fyrirtæki og minnka útgjöld til
samneyzlunnar. Flokkurinn lofar
að beija niður skæmliðahreyfíng-
una ETA og herða dóma yfir skæm-
liðum. Það helsta sem flokkurinn
leggur til í utanríkismálum er full
þátttaka Spánar í NATO, þar á
meðal í hemaðarsamvinnu banda-
lagsins.
Stefnuskrár miðjuflokkanna,
flokks Adolfos Suarez og Miguel
Roga, em mjög svipaðar stefnuskrá
CP sérstaklega í efnahagsmálum.
Það eina sem vemlega undran
vekur í stefnuskrá Adolfos Suares
er minnkun herskyldu í 3 mánuði
því það er fyrirsjáanlega mjög erfitt
í framkvæmd.
Það sem að greinir stefnuskrá
Miguael Roga frá hinum tveimur
er sérstaklega aukning samyrkju í
landbúnaði, áætlun sem nú þegar
er hafin.
Stefnuskrá hinna tveggja flokk-
anna sem em til vinstri við sósíal-
ista, Flokks sameinaðra vinstri
manna og Sameinaðra kommúnista,
em nokkum veginn eins. Það eina
sem aðskilur þá er ósamlyndi
flokksleiðtoganna. Báðir hafa á
stefnuskrá sinni hlutleysi Spánar í
utanríkismálum, bandarískar her-
stöðvar verði lagðar niður og að
minna fé verði veitt til vamarmála.
Nýtt vínhneyksli virð-
ist vera í uppsiglingn
NÝTT vínhneyksli virðist nú i
uppsiglingu á Ítalíu, og er þó
langt í frá að italskir vínfram-
leiðendur séu búnir að jafna sig
eftir áfaUið frá í vor, þegar tré-
spíritus fannst í allmörgum vin-
tegundum frá þeim. Einn af
framkvæmdastjórum Evrópu-
bandalagsins, Italinn Carlo Ripa
de Meana, segir í bréfi til Bettino
Craxi, forsætisráðherra Ítalíu,
að fimm milljónir hektólitra vins,
sem eimaðir hafi verið hjá fyrir-
tækjum i bandalagsríkjunum,
„séu gerðir úr einhveiju öðru en
vínbeijum".
Craxi ber ekki af sér ásakanim-
ar, en segir í svari sínu til EB, að
minna sé um þessa framleiðslu nú
en verið hafi.
Það kemur sér einkar bagalega
fyrir ríkisstjóm Craxis nú, að upp-
víst skuli verða að enn sé stunduð
þar í landi framleiðsla á „folsku"
víni til útflutnings — einmitt þegar
stjóm hans er i óða önn að sannfæra
aðrar þjóðir um að vínhneykslið frá
í vor muni ekki endurtaka sig. Og
það hefur verið erfiður róður.
Tilskipun, sem Filippo-Maria
Pandolfis landbúnaðarráðherra gaf
út um bann við sölu á vínum, óbl-
önduðum hættulegum efnum, er nú
fallin úr gildi, af því að þingið hefur
ekki samþykkt hana. Þingið hefur
ekki einu sinni haft fyrir að taka
afstöðu til efnisatriða tilskipunar-
innar. Pandolfí er nú með nýja til-
skipun í bígerð um sama efni, en
óvíst er hvort báðar þingdeildimar
ná að afgreiða hana fyrir sumarfrí.
Tréspírahneykslið frá í vor hefur
þegar kostað 22 mannslíf, auk þess
sem sala ítalskra vína erlendis hefur
dregist saman um sem svarar 1.169
milljörðum líra (um 30 milljörðum
ísl.króna).
í Vestur-Þýskalandi, sem er
næststærsti viðskiptavinur Italíu á
þessu sviði, hefur sala vínanna
minnkað um 90% miðað við árið í
fyrra. Á Bandaríkjamarkaði hefur
salan dregist saman um 40% og
sömu sögu er að segja af innan-
landsmarkaði.
Alberto Narone Cinzano, formað-
ur samtaka ítalskra vínframleið-
enda, segir: „Okkur hefur verið
refsað harðlega fyrir tréspíra-
hneykslið. Þetta er mikil ógæfa
fyrir vínframleiðsluna í landinu."
(Byggt á Jyllands-Posten)
Svíþjóð:
Gcislavirkni
í vatnafiski
Frá Willy Silberstein, fréttaritara Morgunblaðsins i Stokkhókni.
SVO KANN að fara að fiskveiði í vötnum í Sviþjóð verði bönnuð
fram á haust. í kjölfar kjaraorkuslyssins I Cheraobyl hefur orðið
vart geislavirkni í urriða í sænskum vötnum og liggur hún langt
yfir eðlilegum mörkum
Það er einkum í næringarsnauðu
ferskvatni sem fískurinn hefur
reynst innihalda cesium, sem er
geislavirkt efni. Þess er vænst að
geislavirkni í fískinum muni fara
vaxandi.
Urriði frá Jáintland, sem er nán-
ast inni í miðju landi, hefur reynst
innihalda 600 becquerel af cesium
í hveiju kílói. Venja er að draga
mörkin um 300 becquerel.
Ef vart verður aukinnar geisla-
virkni í fiski má vænta þess að
yfirvöld setji bann við veiðum t þeim
vötnum sem hún mælist í.