Morgunblaðið - 20.06.1986, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö.
Mál Guðmundar J.
Guðmundssonar
Rannsókn Hafskipsmálsins
hjá Rannsóknarlöjgreglu
ríkisins er ekki lokið. A hinn
bóginn hefur verið til hennar
vitnað með næsta óvarlegum
hætti. Ber þar hæst frásögn
starfsmanns dönsku fréttastof-
unnar Ritzau, sem kynnt var
með áberandi hætti í sjónvarps-
fréttum á sunnudagskvöld. Þar
var sneitt að Guðmundi J. Guð-
mundssyni, formanni Dagsbrún-
ar og Verkamannasambands ís-
lands, með þeim hætti, að harka-
lega hlaut að verða brugðist við
af hans hálfu. Þar var auk þess
skýrt frá því, sem einn þeirra
manna, er setið hafa í gæslu-
varðhaldi, átti að hafa sagt við
lokaðar yfirheyrslur hjá lögregl-
unni. Fréttamennska af þessu
tagi er einsdæmi hér á landi.
Er sérstakt íhugunarefni fyrir
stjómendur Ríkisútvarpsins,
hvemig að því er staðið þar á
bæ að vinna og segja fréttir af
viðkvæmum og alvarlegum mál-
um sem þessum. Dómgreindar-
leysi fréttamanna og óvirðing
fyrir rétti einstaklingsins em
ekki aðeins blettur fyrir blaða-
mannastéttina heldur sorglegt
dæmi um offors, sem ekki á við
í málum sem þessum.
Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasam-
bands íslands og þingmaður
Alþýðuflokksins, segir í Morgun-
blaðssamtali í gær: „Við hyggj-
umst ekki kasta sprekum á þá
galdrabrennu sem nú hefur verið
stofnað til gegn formanni Verka-
mannasambandsins. Það sem
fyrir okkur liggur em mest-
megnis sögusagnir og fjölmiðlaf-
réttir byggðar á hæpnum heim-
ildum." Tími galdraofsóknanna
er eitt myrkasta skeið í menning-
arsögu Evrópu. Þá vom menn
ofsóttir með vísan til hindur-
vitna. Ofstopamenn gengu fram
fyrir skjöldu, beittu pyntingum
og aftökum í nafni hinnar einu
og sönnu trúar. Réttaröryggi
hvarf úr sögunni. Höfðað var til
fávisku og hræðslu múgsins til
að eggja hann til ódæðisverka
gegn þeim, sem rannsóknastjór-
amir höfðu útskúfað. Sú spum-
ing vaknar, hvort öfund og fé-
græðgi skipi nú sess fávisku og
hræðslu.
Guðmundur J. Guðmundsson
hefur tengst gjaldþroti Hafskips
hf. og rannsókn lögreglunnar
vegna glappaskots velunnara
hans haustið 1983, Alberts
Guðmundssonar. Enginn efast
um að góður hugur hafi að baki
búið, en um það, hvemig staðið
var að því að útvega Guðmundi
J. fé til hressingarferðar til
Flórída eftir veikindi, segir hann
sjálfur í Morgunblaðssamtali í
gær: „Þetta er eitthvert dóm-
greindarleysi og svo yfírþyrm-
andi klaufaskapur og vitleysa,
að það tekur engu tali . . .
Því verður . . . ekki á móti
mælt, að hörmulega tókst til um
vinargreiðann.“
Guðmundur J. Guðmundsson
hefur um langan aldur sótt afl
sitt innan verkalýðshreyfíngar-
innar til hafnarverkamanna í
Reykjavík. Ætti öllum að vera
það auðskiljanlegt, að honum sé
mikið í mun að sitja ekki undir
ámæli fyrir að vera á mála hjá
stærstu vinnuveitendum helstu
umbjóðenda sinna, Eimskipafé-
lagi íslands og Hafskip. Sjálfur
hefur hann leitað ásjár ríkissak-
sóknara til að hreinsa mannorð
sitt, eins og hann orðar það.
Hér skal ekkert fullyrt um,
hvað opinber yfírvöld og sak-
sóknari geta gert til að rétta
hlut Guðmundar J. Guðmunds-
sonar í þessu efni. Sum mál eru
þannig vaxin, að þau verða ekki
leidd til lykta fyrir dómstólunum.
Að verulegu leyti er mál Guð-
mundar J. af því tagi. Hann segir
sjálfur, að hjá flestum þeirra,
sem hann hafí rætt við, sé „ákaf-
leg-a góður og vinveittur tónn“
í sinn garð. Ekki er að efa, að
orð Karls Steinars Guðnasonar
um galdrabrennurnar vegna
Guðmundar J. mælast betur fyrir
en sú viðleitni ýmissa flokks-
bræðra hans að bola honum út
úr pólitík vegna „vinargreiðans".
Þegar á þá hlið málsins er litið,
er nauðsynlegt að hafa hjaðn-
ingavígin í Alþýðubandalaginu í
huga.
Þegar forráðamenn Hafskips
höfðu verið settir í gæsluvarð-
hald birti Morgunblaðið forystu-
grein, þar sem sagði meðal
annars: „Þegar Hafskipsmálið
var í hámæli fyrir nokkrum
mánuðum reyndu ýmsir að gera
það að pólitísku bitbeini. Það
moldviðri gekk yfír eins og
annað. Eftir stóðu kaldar stað-
reyndir og eindregin krafa allra,
um að réttvísin næði fram að
ganga. Enginn stjómmálaflokk-
ur hefur lagt stein í götu þeirrar
rannsóknar, sem nú tekur þessa
alvarlegu steftiu. Enginn stjóm-
málaflokkur eða stjómmálamað-
ur má eða réttara sagt getur
stöðvað framvindu þessa máls,
það lýtur ekki pólitísku forræði.
Mikilvægt er, að stjómmála-
menn átti sig á þessu.“
Það er ekki síður mikilvægt,
að fjölmiðlamenn átti sig á því,
að þetta mál lýtur ekki forræði
þeirra. Hvaðan svo sem fréttim-
ar berast og þótt þær séu sendar
í gegnum erlendar fréttastofur,
er nauðsynlegt að sannreyna
þær áður en þeim er útvarpað,
sjónvarpað eða þær settar á
prent. Þá má ekki heldur breyta
einstöku dómgreindarleysi í
saknæmt athæfí.
Frá fundi félags áhugamanna um byggingu tónlistarhúss.
Aðalfundur félags áhugamanna um byggíngu tónlistarhúss:
Samþykkt að ei
verðlaunauppd
AÐALFUNDUR félags áhugamanna um byggingn tónlist-
arhúss var haldinn á Hótel Borg síðastliðið miðvikudags-
kvöld. M.a. var þar á dagskrá að taka ákvörðun um
framhaldið, eftir að úrslit í samkeppninni um hönnun
tónlistarhúss lægi fyrir. Niðurstaða fundarins var sú, að
samþykkt var að skipa nefnd til þess að athuga hvort
ekki mætti gera úrbætur á verðlaunauppdrættinum.
Aðdragandi
Félag áhugamanna um bygg-
ingu tónlistarhúss ákvað á síð-
asta ári að efna til samkeppni
um hönnun nýs tónlistarhúss í
Laugardalnum. Skilafrestur rann
út 1. mars síðastliðinn og dóm-
nefnd hóf störf í maí. Eins og