Morgunblaðið - 20.06.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
Áskorun SUS um alþingiskosningamar í haust:
„Menn taka frekar nei-
kvætt í hugmyndina“
— segir Páll Pétursson, formað-
ur þingflokks framsóknarmanna
HUGMYNDIN um þingkosningar í haust á iitlu fylgi að fagna meðal
framsóknarmanna. „Um þetta mál hefur ekki verið gerð nein form-
leg samþykkt í þingflokknum, en menn taka frekar neikvætt í
hugmyndina,“ sagði Pál Pétursson, formaður þingflokks framsóknar-
manna, í gær.
Páll sagði, að hugmyndin um
Landsmót lúðra-
sveita hefst í dag
Þau mistök urðu í frétt í Morgun-
blaðinu í gær um landsmót lúðra-
sveita að allt sem í henni stóð var
miðað við að hún birtist í dag og
er beðið velvirðingar á þessum
mistökum. Lúðrasveitimar munu
leika um borgina síðdegis í dag,
föstudaginn 20., og tónleikamir
verða í Langholtskirkju kl. 20.30 á
föstudagskvöld og tónleikamir í
Laugardalshöll verða laugardaginn
21. en ekki á föstudag eins og ætla
mátti af fréttinni.
haustkosningar hefði komið til
umræðu á fundi þingflokksins í síð-
ustu viku í framhaldi af áskorun
stjómar Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna um að kosningum yrði
flýtt. Þingmenn flokksins hefðu
ekki verið hrifnir af hugmyndinni
og flokkurinn ætlaði ekki að beita
sér fyrir haustkosningum. „Mönn-
um fínnst aumingjalegur svipur á
slíku, þegar ekki er búið að efna
þau fyrirheit, sem ríkisstjómin
hefur gefið," sagði Páll.
í rökstuðningi fyrir tillögu SUS
um haustkosningar er bent á, að í
byijun næsta árs þurfí að gera nýja
kjarasamninga, sem verði líklega
meðal þeirra mikilvægustu í sögu
lýðveldisins. Það verði hinir raun-
verulegu tímamótasamningar. í
febrúarsamningunum hafi verið
gerð tilraun og vegna þess að um
tilraun hafí verið að ræða hafí aðilar
vinnumarkaðarins getað gefíð eftir
og tekið erfíðar ákvarðanir. í næstu
samningum sé hins vegar tilraun-
inni lokið og þá þurfí að ákveða
hvort hún hafí tekist eða ekki og
hvort halda eigi áfram á sömu
braut.
SUS bendir á það, að þótt síðustu
samningar hafí notið yfírgnæfandi
stuðnings meðal landsmanna, hafí
þeir einnig átt öfluga andstæðinga,
sem hafí gert andstöðu við þá að
höfuðbaráttumáli sínu. Ýmislegt
bendi til þess að erfítt muni verða
að yfirvinna þessa andstöðu í næstu
samningum og I því sambandi er
bent á nýjar hugmyndir um 30
þúsund króna lágmarkslaun, sem
minni á sams konar kröfur 1974
og 1977. Fari kjarasamningar í
sama farið og þá, þar sem samið
hafí verið um miklar prósentuhækk-
anir öllum til handa undir yfírskyni
láglaunastefnu, sé baráttan við
verðbólguna töpuð næstu árin.
Þá segir í rökstuðningi SUS:
„Sú ríkisstjóm, sem situr við gerð
næstu kjarasamninga, mun óhjá-
kvæmilega koma við sögu með
einhveijum hætti. Það gefur meiri
von til þess að unnt verði að halda
áfram á þeirri braut sem mörkuð
var í febrúarsamningunum, ef horft
er fram á stöðugleika í stjóm-
málalifínu jafnt sem efnahagslífínu.
Þetta getur orðið hreint úrslitaatriði
þegar að samningum kemur. Því
hlýtur að vera æskilegt, að sú ríkis-
stjóm sem situr hafí umboð kjós-
enda til lengra lífs en tveggja til
þriggja mánuða."
Það er sérstaklega tekið fram í
greinargerð SUS, að ályktun um
haustkosningar sé enginn áfellis-
dómur yfír ríkisstjóminni né heldur
samstarfsflokki sjálfstæðismanna.
Kosningar í haust séu í þágu þjóðar-
hags og fram yfír hann megi hvorki
taka stundarhagsmuni flokka eða
einstaklinga.
BREIÐFIRÐINGUR
44. or 1986
Á forsíðu Breiðfirðings er mynd
af Eyjólfi Jónassyni í Sólheimum,
aldursforseta Dalamanna, á hest-
baki. í Breiðfirðingi eru frásögu-
þættir Eyjólfs, sem ritstjórinn,
Einar Kristjánsson, skráði.
Breiðfirðing-
ur kominn út
Breiðfirðingur, 44. árgangur
tímarits Breiðfirðingafélagsins i
Reykjavík, er kominn út.
Meðal efriis í heftinu eru: Glíma
og glímufélög á Snæfellsnesi, grein
eftir Lúðvík Kristjánsson prýdd
mörgum myndum. Þættir úr jarð-
fræði Breiðafjarðarsvæðisins eftir
Hauk Jóhannesson. Margir ævi-
þættir em í ritinu m.a. aldarminn-
ing Guðmundar Guðbrandssonar á
Leiðólfsstöðum í Laxárdal. Myndir
af öllum flóabátum með heitinu
Baldur em í heftinu. Auk annars
efnis er niðurlag niðjatals Lauga-
Magnúsar, þ.e. Magnúsar Jónsson-
ar rímnaskálds, og ennfremur
nokkuð af alþýðukveðskap, m.a.
eftir afkomendur Magnúsar.
Þessi árgangur Breiðfírðings er
216 blaðsíður.
Finnskur karla-
kór heimsæk-
ir Island
DAGANA 17.—23. júní verður
staddur hér á landi finnskur
karlakór frá Orimattila í Suður-
Finnlandi.
Kórinn er stofnaður 1938 að
fmmkvæði Jalmari Aalto, kennara.
I kómum em nú um 30 söngvarar.
Stjómandi hans er Juha Kaparinen,
directos cantos, en hann heftir einn-
ig séð um útsetningu fjölda þeirra
laga sem kórinn mun flytja hér.
Kórinn kemur fram í Reykjavík
föstudaginn 20. júní kl. 20.30 í
Norræna húsinu og í Langholts-
kirkju sunnudaginn 22. júní kl.
17.00. Kórinn mun einnig koma
fram á Akureyri, ísafírði og í
vinabæ Orimattila á íslandi, Bol-
ungarvík.
Guðmundur Einarsson þingmaður BJ:
Vill að forsætisráðherra
krefiist afsagnar Alberts
GUÐMUNDUR Einarsson, þingmaður Bandalags jafnaðarmanna,
hefur ritað Steingrími Hermannssyni bréf, þar sem hann fer
fram á það við forsætisráðherra að hann krefjist nú þegar afsagn-
ar Alberts Guðmundssonar úr ráðherraembætti í ríkissfjórn ís-
lands. Bréf Guðmundar er svohijóðandi:
Fréttir síðustu missera af mál-
efnum Hafskips og Útvegsbank-
ans og tengsl Alberts Guðmunds-
sonar við málið í heild, hafa stór-
kostlega rýrt traust almennings á
núverandi ríkisstjóm, Alþingi og
stjómkerfinu öllu.
Stjómkerfí landsins á að vera
í þágu fólksins, en ekki stjóm-
málamanna. Um starfshætti þess
og réttsýni má aldrei leika minnsti
vafí. Þrálátur og rökstuddur grun-
ur um misbeitingu þess veikir svo
starf stjómvalda, að grunsemd-
imar einar eiga að vera ástæða
til tafarlausra aðgerða, óháð laga-
legri sekt eða sýknu. Hér eru
því á ferðinni siðferðilegar kröfur
sem verður að lúta án tillits til
hugsanlegrar niðurstöðu dóm-
stóla.
Því er hér með farið á að þér
krefjist nú þegar afsagnar Alberts
Guðmundsson úr ráðherraemb-
ætti í ríkisstjóm íslands. í því
sambandi ber að leggja áherslu á
eftirfarandi þætti:
1) Það skiptir ekki höfuðmáli
að ekkert lagalega saknæmt hefur
sannast á Albert Guðmundsson.
Hann hlýtur að njóta vemdar
þeirrar grundvallarreglu réttar-
ríkisins að hver og einn skuli
álitinn saklaus þar til annað
hafi verið sannað. En kringum-
stæður hans valda því hins vegar
að undirritaður fær með engu
móti séð að ríkisstjómin geti notið
óskoraðs trausts almennings. Því
ber honum að víkja úr starfí af
siðferðilegum ástæðum.
2) Albert Guðmundsson hefur
lýst því yfír, að meðan hann
gegndi embætti Qármálaráðherra
hafí hann beitt sér fyrir tilfærslum
ftármuna frá fyrirtækinu Hafskip
til valdamikils stjómmálamanns.
Þessar greiðslur voru ekki upp-
gefnar til skatts enda nafnlausar
frá hendi Alberts Guðmundsson-
ar.
Milliganga af þessu tagi sam-
rýmist ekki stöðu fjármálaráð-
herra þjóðarinnar, sem að auki
er æðsti yfirmaður skattakerfís-
ins;
I heild sinni snúast þessi mál
ekki einungis um einstök fyrir-
tæki eða einstaklinga. Þau snúast
um hættuástand í fjármála- og
stjómkerfí heillar þjóðar. Þau eiga
upptök sín í bankakerfí, sem
stjómað hefur verið af fyrrverandi
og núverandi alþingismönnum.
Þau eiga upptök sín í siðblindum
stjómarháttum, sem rýra traust
almennings á stjómkerfínu og
valda þjóðarbúinu ómældu efna-
hagslegu tjóni.
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjameistarj.
S. 19637.
National olíuofnar
Viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Rafborg sf.,
Rauðarárst. 1, s. 11141.
Innanhússkalikerfi
2ja, 3ja og 4ra stöðva.
Rafborg sf.,
Rauðarárst. 1, s. 11141.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía Keflavík
Samkomur verða föstudags- og
laugardagskvöld kl. 20.30.
Ræðumaður Michael Fitzgerald.
Trúog líf
Vakningarsamkoma verður (
kvöld kl. 20.30 að Smiðjuvegi 1,
Kópavogi (Otvegsbankahúsinu).
Gestir okkar frá Englandi, Holl-
andi og Bandarikjunum taka þátt
í samkomunni. Mikill söngur.
Beðið fyrir fólki. Vertu velkominn.
Trú og líf.
UTIVISTARFERÐIR
Laugardagur 21. júní
Kl. 8.00 Þórsmörk, einsdags-
ferð.
Göngubrú á Hruná vfgð.
Verð aðeins 600 kr. Brúin opnar
nýjar gönguleiðir í Þórsmörkinni.
Kaffiveitingar innifaldar. Allir
velkomnir. Stansað 5-6 tíma í
Mörkinni.
Kl. 20.00 Sólstöðuferð I Viðey.
Ferðin er í tilefni Trimmdaga (Sl
og 200 ára afmælis Reykjavíkur-
borgar. Verð aöeins 200 kr.
Leiðsögumaður: Lýður Björns-
son sagnfræöingur. Brottför frá
kornhiööunni Sundahöfn. Kaffi-
veitingar f Viöeyjarnausti (ekki
innifalið i verði). Frítt f. börn m.
fullorðnum.
Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir og kvöld-
ferðir:
1) Laugardag 21. júnf kl. 08 —
ökuferð um Njáluslóðir. Farar-
stjóri: Haraldur Matthiasson.
Verð kr. 600.
2) Laugardag 21. júnf kl. 20 —
sfðasta Esjugangan í tilefni 200
ára afmælis Reykjavíkur (sól-
stöðuferð). Haldið upp á afmæli
borgarinnar á eftirminnilegan
hátt. Gangið á Esju með Ferða-
félaginu. Verð kr. 200. Fólk á
eigin bilum velkomið i gönguna.
3) Sunnudag 22. júní kl. 08 —
dagsferð f Þórsmörk. Verð kr.
800. Ath.: sumarleyfisferðir
hafnar i Þórsmörk.
4) Sunnudag 22. júnf kl. 13 —
dagur gönguferða Ferðafélagið
býður ókeypis gönguferð á
trimmdegi IS( undir kjöroröinu
„Heilbrigt lif hagur allra“. Eklö
er aö Höskuldarvöllum, gengiö
þaðan um Sog að Djúpavatni og
endargangan á Lækjarvöllum. A
þessari leið er Sogaselsgígurinn
athyglisverður, en inn í honum
eru þrennar rústir af seljum. Ath.
Farþegar teknir við fþrótta-
húsið, Strandgötu — Hafnar-
firðí.
5) Mánudagur 23. júnl kl. 20 —
Jónsmessunæturganga um
Svínaskarð. Verð kr. 400. Brott-
för í dagsferöimar er frá Um-
ferðarmiöstöðinni, austanmeg-
in. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Helgarferðir 20.-22. júni:
1) Eiriksjökull - Strútur. Gist i
tjöldum íTorfabæli.
2) Þórsmörk — uppselt um
helgina. Dagsferð 22. júnf kl.
08. Næsta helgarferö í Þórs-
mörk er 27. júní kl. 20.
3) Árbókarferð um Snœfellsnes
er frestað til 5. september.
Upplýsingar og farmiöasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Mánudagur 23. júní
kl. 20.
Jónsmessunæturganga Útivist-
ar á Fjallið eina. Létt ganga fyrir
unga sem aldna. Hrútagjár-
dyngjan skoöuð. Skyldu vera
óskasteinar á Fjallinu eina? Verð
400 kr. fritt f. börn m. fullorðn-
um. Brottför frá BSl, bensínsölu
(í Hafnarfirði v. Kirkjug.)
Sjáumst.
Útivist.