Morgunblaðið - 20.06.1986, Page 36
36
S8GÍ IM!Jl, ,0S í)iJ!M(1UT8OT OHClAJHMIJDíTOM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
fclk í
fréttum
. Stóri
bróðir hans er api
Mamma, mamma, stóri bróðir
hans Jónatans er api,“ hróp-
aði lítill strákur, sem var nýfluttur
í hverfíð um leið og hann hentist
inn um eldhúsdymar heima hjá sér
og var greinilega mikið niðri fyrir.
„Hvurslags eiginlega orðbragð er
þetta," svaraði mamman höstum
rómi. „Svona lagað segir maður
ekki. Þú átt að vera kurteis við
nágrannana, skilurðu það?“ „Já, en
hann er api,“ mótmælti strákurinn
með miklum sannfæringarkrafti.
„Hvað meinarðu eiginlega bam?“
spurði mamman. „Var hann eitt-
hvað að striða þér?“ „Nei, ekkert
svoleiðis — hann er ofsalega
skemmtilegur, en hann er samt
api,“ svarði drengurinn og virtist
ekkert ætla að bakka með það.
Enda ekki nema von, því stóri bróð-
ir hans Jónatans er nefnilega al-
vöru-api.
Jimmy er níu ára gamall simpasi,
sem fyrstu tvö ár lífs síns vann
fyrir sér með því að aðstoða líru-
kassamann á eyjunni Tenerife. Eitt
síðsumarkvöld er hann var í göngu-
ferð með húsbónda sínum hitti hann
þau Juttu og Diego Martinez. Hann
var illa til reika, þreyttur og lúinn
og orðinn hundleiður á starfi sínu.
„Einhverra hluta vegna vorkennd-
um við honum svo, að við keyptum
hann af lírukassasalanum og feng-
um hann fluttan hingað heim,“
segir Diego, en þau hjónin eru bú-
sett i Wiesbaden í V-Þýskalandi.
Vinir Jónatans eru vinir Jinuny og öfugt. Þama eru þeir með besta
vinisínum.
Jónatan kom í heiminn fyrir Qórum
árum, en þá hafði Jimmy verið hjá
þeim í þijú ár. Hann er með sér-
herbergi og situr til borðs með fjöl-
skyldunni, klæðist venjulegum föt-
um o.s.frv. „Fyrst eftir að Jónatan
fæddist var hann óhemju afbrýði-
samur. Við gripum til þess ráðs að
láta þá lifa nákvæmlega eins lífí.
Þegar Jónatan fékk pelann, fékk
Jimmy líka pela. Ef annar fékk
leikfang, varð hinn að fá alveg eins.
Við gættum þess að gera ekki upp
á milli þeirra," segir Jutta. En hvað
fínnst vinum þeirra og kunningjum
um þennan „frumburð" þeirra
hjóna? „Enn kemur það fyrir að þau
tali um hann eins og apa,“ segir
Diego, „en það er hann alls ekki í
okkar augum. Við lítum á hann sem
barnið okkar og trúum því að hann
hugsi eins og böm almennt gera,
enda var hann alinn upp eins og
hvert annað bam. Og Jónatan lítur
á hann sem stóra bróður sinn. Þeir
em óaðskiljanlegir."
Morgunblaðið/JÁS
Fjallkonan (Þórunn Ólafsdóttir, leikkona) flytur sitt sígilda ávarp.
Islendingar
1 New York fagna
þj óðhátíðar deginum
Frá Jóni Ásgeirssyni, fréttarítara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum:
Sólskinsbros var á andliti hvers
manns, þegar íslendingar á
austurströnd Bandarfkjanna komu
saman sfðastliðinn sunnudag til að
fagna þjóðhátíð ættjarðarinnar.
Nær 400 manns söfnuðust saman
þann 15. júní í borginni Rye, rétt
norðan við stórborgina New York,
og skemmtu sér hið besta. Forvígis-
menn íslendingáfélagsins höfðu
valið rétta staðinn. í glampandi sól
og 25 stiga hita gátu menn leitað
skjóls í skugga tijánna á lóð tóm-
stundamiðstöðvarinnar í Rye. Jafn-
vel þótt Pétur Thorsteinsson ræðis-
maður og formaður íslendingafé-
lagsins, Ulfur Sigurmundsson við-
skiptafulltrúi og aðrir í undirbún-
ingshópnum hefðu ekki reiknað
með þessum fjölda þátttakenda,
nægðu matar- og drykkjarföng til
að seðja og gleðja alla viðstadda.
Krakkamir fengu blöðrar og fána,
ekta íslenskar pylsur, gos að drekka
og ís á eftir. — Fuliorðna fólkið
nærði sig á sama hátt og neytti auk
þess guðaveiga 5 hófi. Skyndilega
kom Grýla í heimsókn og það var
eins og rebbi hefði komist í hænsna-
hóp, krakkamir tvístraðust út um
allt. En svo uppgötvuðu þau að það
var hægt að hrekkja Grýiu og sum
Hljómsveitin Fine Young Cannibals.
Morgunblaðið/Börkur
Öljómsveitin Madness.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listapopparar hér á landi
Meðal þeirra listamanna, sem heiðruðu okkur með nærveru sinni á nýafstaðinni Listahátíð voru meðlimir hljómsveitanna Fine Young Cannibals og Madness. Báðar léku hljómsveitim-
ar fyrir landann f Laugardalshöllinni á sjálfan þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní. Þóttu hljómleikamir fará vel fram, stemmning var góð og var báðum sveitunum vel fagnað í lok
leikanna.
Á myndinni hér fyrir ofan til vinstri eru meðlimir hljómsveitarinnar Fine Young Cannibals, er komu til landsins á miðnætti á sunnudag. Fremstur þeirra fer söngvarinn, Roland Gift,
en í humátt á eftir honum koma Andy Cox gítarleikari og David Steel bassa- og hljómborðsleikari. Hvaða kona þetta er, sem er í för með þeim, er ekki vitað.
Á myndinni til hægri eru sexmenningamir í bresku skahljómsveitinni Madness er komu til landsins á mánudag en þeir spiluðu á hljómleikum í Laugardalshöll að kvöldi 17. júní, eins
og áður sagði. Fremstur á myndinni er söngvari hljómsveitarinnar, Graham „Suggs" McPherson, en hann er eins og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar, sem var stofnuð 1978, þekktur
Qörkálfur.
Ljósmyndarar smelltu myndum af listamönnunum er þeir stigu á íslenska grund og var víst æði létt yfír þeim, sér í lagi meðlimum Madness.