Morgunblaðið - 20.06.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1986
37
Hæ, hó jibbí jei — það er kominn 17. júní.
Ættjarðarinnar minnst i tónum og töluðu máli.
Grýla gamla lét sig ekki muna um að mæta, þó
svo hátíðarhöldin hafi verið hinumegin við Atl-
antshafið.
gerðust jafnvel svo djörf að dangla
í rassinn á henni. Næst fóru krakk-
amir í reiptog og boltaleiki og léku
sér í allskonar leiktækjum á lóðinni.
Þau skemmtu sér geypivel og vildu
helst ekkert fara heim þegar kvölda
tók. Hátíðahöldin stóðu frá kl. 2
eftir hádegi fram til kl. 7 um kvöld-
ið og lauk með skemmtun, þar sem
Þórunn Ólafsdóttir var fjallkona og
flutti Ijóð. Ennfremur sungu böm
og fullorðnir og dönsuðu saman.
Þórólfur Guðnason, Páll Torfi
Önundarson og Ágústa Lorenzini
léku á hljóðfærin en Guðlaugur
Einarsson stjómaði söng ættjarðar-
ljóða og annarra vinsælla vísna og
stýrði auk þess hópdansi. Viðstaddir
luku iofsorði á alla tilhögun þjóð-
hátíðardagsins og fór hver og einn
ánægður til síns heima í New York
eða næsta nágrenni við stórborgina.
Sissy Spacek
í nýrri mynd
Nú ku styttast í að myndin
„Violets are Blue" verði sýnd
í bíóhúsum víða um heim. Með
aðalhlutverk í þeirri mynd fara þau
Sissy Spacek og Kevin Kline. Ástin
kemur að sjálfsögðu mikið við sögu
í myndinni og allt sem henni fylgir
— væntingar og vonbrigði að
ógleymdri blessaðri valdabarátt-
unni. í stuttu máli er söguþráðurinn
sá að eftir margra ára samband
skilja leiðir þeirra skötuhjúa. Hún
yfírgefur heimabæ sinn, fer mikið
einfömm og gerist ljósmyndari hjá
virtu tímariti, þvælist um heiminn
þveran og endilangan og iendir í
alls kyns ævintýmm. Hann ákveður
hinsvegar að halda sig á kunnugleg-
um slóðum, býr áfram við ströndina,
giftir sig og eignast bam. Er Sissy
snýr aftur fer heldur betur að hitna
í kolunum — þau taka að hittast á
ný, en nú em mörg ljón í veginum.
Hvort um sig lengir þau eftir
hamingjunni, sem þau telja hitt
hafa fundið. Hún þráir öryggið og
festuna sem hann býr við — hann
spennuna og ævintýrin sem hún
þekkir svo vel. Að sögn fróðra
manna er þessi mynd nokkuð ein-
stök, þrátt fyrir að söguþráðurinn
sé orðinn sígildur, þar sem í þessari
mynd takast þau á við vandamálin,
reyna að spila sem best úr sínum
spilum en ijúka ekki út í heim í
leit að sjálfum sér, eins og svo
algengt er orðið að gerist í lok svona
mynda. Ef marka má okkar heim-
ildir mun þessi mynd vera vel leikin
auk þess sem hún vekur mann til
umhugsunar, ýtir ,rækilega við
manm.
Komin heim í heiðardalinn —
Sissy Spacek í hlutverki sínu í
myndinni „Violets are Blue“.
COSPER
©PIB
cartMitm
COSPER 10216
Þetta er nú bara beitan.
TRIMM
kynning
Landssambands líkams-
ræktarstöðva fyrir alla
verður í dag og á morgun
íeftirtöldum líkamsrækt-
arstöðvum:
• Æfingastöðin
Engihjalla
• Heilsustúdíóið
Skeifunni
• Ræktin
Ánanaustum
• Orkubót
Grensásvegi
• Orkulindin
Vatnsstíg
• Líkamsræktin
Kjörgarði
Kynningin
er að
sjálfsögðu
ókeypis.
KLÆÐNAÐUR
KAPP klæðnaðurinn frá66°N „Sextíu og sex norð-
ur er einstaklega léttur og hlýr sem ull. Hann er
mjúkur og loðinn að innan.
KAPP I útileguna á alla fjölskylduna.
KAPP til sjávar og sveita.
Kl RLEfe
ll|ljPfc Hllfe ||lm iffl
Ánanaustum sími 28855
cr
O