Morgunblaðið - 20.06.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
Sími 68-50-90
vemnoAHús
HÚS GÖMLU DANSANNA
Gömlu dansarnir
í kvöld kl. 9-3.
Hljómsveitin
Ármenn
ásamt hinni vinsælu söng
konu Mattý Jóhanns
Janis Carol
skemmtir nu Islendmgum at smm al-
kunnu snilld og auðvitað á hringsviðinu íí
Miða- og borðapantanir í síma 20221
SJÁ AUGLÝSINGU
FRÁ MÍMISBAR
GILDIHF
Felipe Gonzales, forsætisráð-
herra Spánar.
Manuel Fraga Iribarne, leiðtogi
hægri manna.
Adolfo Suarez, forystumaður
miðjumanna.
Boðað til nýrra þing-
kosninga á Spáni
eftir Önnu Katrínu
Árnadóttur
Fyrir rúmlega tíu árum lést
Fracisko Franko, einræðisherra
Spánar í tæplega 40 ár, og með
andláti hans hófst tímabil mikilla
breytinga í landinu. Eftir 40 ára
einveldi var komið á þingbundinni
konungsstjórn.
I aprílmánuði síðastliðnum var
boðað til þriðju lýðræðislegu kosn-
inganna eftir stjórnarfarsbreyting-
una. Undir eðlilegum kringumstæð-
um hefðu kosningamar átt að fara
fram í október á þessu ári, en stjóm-
arflokkurinn PSOE, Sósíalíski
verkamannaflokkurinn, sem fékk
hreinan meirihluta í síðustu kosn-
ingum, hefur tekið þá ákvörðun að
flýta kosningunum um fjóra mán-
uði, þær munu eiga sér stað hinn
22. júní næstkomandi.
Jákvæð afstaða sósíalistaflokks-
ins til áframhaldandi vem Spánar
í Atlantshafsbandalaginu hefur
orðið til þess að pólitísk ímynd
þeirra hefur misst hluta þess glans
sem hún hafði eftir síðustu kosning-
ar. Stór hluti ungs fólks hefur gerst
fráhverfur flokknum vegna afstöðu
hans til NATO, en afstaða flokksins
hefur ekki aflað honum nýrra at-
kvæða þar sem þeir sem hlynntir
em aðildinni að NATO halda áfram
að kjósa þá flokka sem teljast vera
hægrisinnaðir.
Kannanir sem flokkurinn hefur
látið gera frá því að hann tók við
völdum og undanfama mánuði, með
sérstaka áherslu á útkomuna úr
þjóðaratkvæðagreiðslunni um
NATO í mars síðastliðnum, hefur
sannfært þá um að núna væri ákjós-
anlegasti tíminn til þess að boða til
nýrra kosninga meðal annars vegna
þess að andstæðingamir vom óund-
irbúnir undir kosningabaráttuna,
sumir flokkar varla stofnaðir eins
og flokkur sameinaðra vinstri-
manna. Þó að sósíalistamir séu
sigurvissir og næsta ömggir um að
vinna kosningamar mun þeim reyn-
ast erfitt að ná fullum meirihluta í
þinginu öðm sinni, m.a. vegna þess
að miklar líkur em til þess að fjöldi
fólks mun ekki neyta kosningarétt-
ar síns.
Þeir flokkar sem bjóða fram í
öllum kjördæmum em sex, fýrir
utan þessa flokka em svo flokkar
sem bjóða fram í einstökum kjör-
dæmum, eða landshlutum. Hinir
sex mikilvægustu em eftirtaldir:
PSOE, Sósíalíski verkamanna-
flokkurinn sem er einn í ríkisstjóm.
Þeir hafa nú fallist á að fella stóran
hluta tillagna sósíalíska verkalýðs-
félagsins inn í kosningaloforð sín,
með það fyrir augum að þeir heiti
fullum stuðningi við flokkinn í
kosningabaráttunni.
CP, kosningabandalag þriggja
hægri flokka, og er sem stendur
forystuflokkur stjómarandstöðunn-
ar. Þeir luku niðurröðun á fram-
boðslista eftir mikið þóf þar sem
eríltt reyndist að ná samkomulagi
um niðurröðun í efstu sætin í hveiju
kjördæmi. Formaður flokksins,
Manuel Fraga Iribame, er forsætis-
ráðherraefni flokksins, en hann var
tvisvar ráðherra í ríkisstjómum
Frankos.
PRD, hinn nýstofnaði Lýðræðis-
legi umbótaflokkur, býður fram
Miquel Roca sem forsætisráðherra-
efni flokksins, Roca og hans flokkur
boða nýjan stíl, nýtískulegri hugs-
unarhátt og viðhorf og svokallaðan
Evrópuisma.
CDS, Lýðræðis- og félagslegi
miðjuflokkurinn, flokkur Adolfo
Suárez fyrrverandi forsætisráð-
herra. Suárez hefur möguleika á
því að auka til muna fjölda atkvæða
frá því í síðustu kosningum, þar sem
fjöldi fólks lítur á hann sem hetju
stjórnarfarsbreytinganna, forsætis-
ráðherrann sem kom breytingunum
á án þess að til borgarastyijaldar
kæmi.
IU, Sameinaðir vinstrimenn, er
bandalag stofnað sérstaklega fyrir
þessar kosningar og á uppruna sinn
að rekja til baráttu herstöðvaand-
stæðinga fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna um NATO. Stofnendurn-
ir eru hluti af nefndinni Anti-NATO
sem náði stuðningi fjölda fólks.
Þessir aðilar telja sig vera eina
valkostinn fyrir vinstrisinnaða kjós-
endur þar sem PSOE hefur ekki
staðið við kosningaloforð sín.
Stærsta einingin innan bandalags-
ins er Kommúnistaflokkur Spánar,
og formaður bandalagsins er for-
maður Kommúnistaflokksins,
Gerado Iglesias.
UC, Sameinaðir kommúnistar.
Fyrrverandi formaður Kommún-
istaflokks Spánar, Santiago Carillo,
býður sig fram til forsætisráðherra,
í þetta sinn fyrir bandalag fyrrum
meðlima kommúnistaflokksins.
Fjárhagsleg staða flokkanna er
misjöfn en allir eru þeir leitandi
eftir fjármagni til þess að veija til
kosningabaráttunnar, sem hófst
hinn 30. maí síðastliðinn. Sjö at-
kvæðamestu bankar landsins hafa
tekið þá ákvörðun á sameiginlegum
fundi að veija 3.800 milljónum
peseta (rúmlega 1.000 milljónum
íkr.) til útlána til þeirra stjórn-
málaflokka sem bjóða fram í öllum
kjördæmum. En þessari upphæð er
ekki skipt jafn á milli allra flokk-
anna heldur skipta bankarnir fénu
eftir því sem þeir telja hagstæðast.
80% upphæðarinnar skiptist á milli
sósíalista (PSOE), bandalags
hægriflokkanna (CP) og Lýðræðis-
lega umbótaflokksins (PRD). Hin
20% skiptast svo á milli þeirra
flokka sem eftir standa. Samkvæmt
þessari skiptingu fær flokkur Su-
árez t.d. 200.000.000 til ráðstöfun-
ar til þess að heyja kosningabaráttu
um allt landið. Vegna þessarar
misskiptingar fjármagnsins hefur
orðið töluverður úlfaþytur þar sem
þeir flokkar sem verst hafa farið út
úr skiptingunni sjá möguleika sína
verulega skerta vegna Qárhagslegs
vanmáttar síns. Þess ber að geta
að þessi kosningabarátta mun verða
kostnaðarsamari en hinar fyrri þar
sem á venjulegum fundartíma er
sjónvarpað beint þessa dagana frá
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu sem leiðir til þess að stór
hluti þjóðarinnar fer ekki út úr
húsi. Mikið fjármagn er því nauð-
synlegt til auglýsingagerðar fyrir
útvarp og sjónvarp og gerð kosn-
ingaveggspjalda.
Á meðan stjórnmálaflokkarnir
eru í óstöðvandi leit að slagorðum
fyrir auglýsingar og kosningavegg-
spjöld, búa sig undir hina 20 daga
löngu kosningabaráttu, sumir auk
þess leitandi eftir Qárhagsstuðn-
ingi, heldur stjórnarflokkurinn
(PSOE) sínu striki í stjómmálunum
en um leið reynir hann að bæta
ímynd sína í augum fólksins. Þeir
reyna að mýkja andstæðinga veru
Spánar í Atlantshafsbandalaginu
með því að endurtaka stöðugt að
samningar hafi verið undirritaðir
með því skilyrði að Spánn verði
kjarnorkulaust svæði og bandarísk-
um hermönnum verði fækkað.
Þó að kosningabaráttan væri
ekki hafín opinberlega voru flokk-
amir byijaðir kosningabaráttu.
Adolfo Suárez kveðst vera varnar-
veggur stjómarfarsbreytinganna
og eignar sinni stjórnartíð allar þær
breytingar sem hafa átt sér stað
undanfarin ár.
Lýðræðislegi umbótaflokkurinn
undir forystu Miguel Roca telur sig
hinn eina raunverulega kost hægri
miðjumanna og gagnrýnir stöðugt
andstæðinga sína á hægri vængn-
um, Manuel Fraga og Ádolfo Su-
árez.
Sósíalistar eru sigurvissir, þó
þeir hafi tapað einhveijum atkvæð-
um. Hægri menn em sundurleitir
og atkvæðin skiptast á milli hinna
þriggja atkvæðamestu; hvorki
flokkur Sameinaðra vinstrimanna
né kommúnista muni reynast nægi-
lega sterkir til þess að taka til sín
mikinn fjölda atkvæða. Þetta mun
þvi verða næsta róleg kosningabar-
átta fyrir sósialistana. Þeir hafa
meðal annars skýrt frá því að for-
sætisráðherrann, Felipe Gonzalez,
muni aðeins koma fram á allra
mikilvægustu framboðsfundunum
og aðeins um helgar því virka daga
verður hann upptekinn við stjórnar-
störf.
Höfundur fékk styrk frá spænska
ríkinu og er í spænskunámi við
háskólann í Madrid.
Þjóðdansa-
félag Reykja-
víkur 35 ára
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykjavík-
ur verður 35 ára um þessar
mundir.
í tilefni af þessum tímamótum
efnir félagið til kaffisamsætis í
veitingahúsinu Fógetanum, Aðal-
stræti 10, í dag milli kl. 16 og 18.
Allir velunnarar félagsins eru vel-
komnir.