Morgunblaðið - 20.06.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1986
43
Oþolandi þjóðfélagsástand
Til Velvakanda.
Ekki veit ég eða legg dóm á
það, hverjir hafa fleytt rjómann
ofan af flautunum í okkar íslenzka
gamalgróna heiðvirða þjóðfélagi.
Eitt er víst, að það er meir en lítið
að, ef svo heldur áfram sem nú
horfir, að dijúgur partur þjóðarinn-
ar eigi ekki um annað að velja til
að geta skrimt, en gerast betlarar,
þjófar, hórur eða áframhaldandi
vinnuþrælar — það er að segja,
þeir sem enn eru standandi á löpp-
unum. Þessu óþolandi ástandi hefur
fylgt heimilisupplausn í ríkum
mæli, börn á flækingi og bjargar-
laus gamalmenni bak við byrgða
glugga. Nú vill líkast til einhver
kenna um vinnuveitendum. — Þá
langar mig að gera þá athugasemd
að kaupmaðurinn á hominu er á
hausnum, og sjálf vinn ég hjá elztu
lqotvinnslu landsins, þar sem nýtnin
þarf að vera svo mikil til að geta
greitt okkur dætrum, mömmum og
ömmum landsins 20 þúsund króna
mánaðarlaun fyrir átta stunda erf-
iðisvinnu, að við megum ekki einu
sinni hirða kjöttægju af gólfi handa fjármálaslysin undanfarin ár. —
heimilishundinum. — Allt fer í nýt- Nota eigið vit, en láta sérfræðinga-
ingu! nefndimar eiga sig. Þær hafa enga
Ef það verðá nú kosningar í tilfinningu fyrir sínum vandalausa
haust, vil ég biðja þá sem taka við náunga.
stórnartaumunum, að bæta fyrir Guðrún Jacobsen
Með stúdentshúfu
án stúdentsprófs?
Til Velvakanda. hún horfin. Margir hjálpuðu að leita
Það hlýtur að vera freistandi að en á árangurs. Sá sem tók húfuna
„prufa" að ganga um með nýja - til að þykjast vera stúdent - er
stúdentshúfu á kollinum. En það ömgglega búinn að fá leið á henni.
hlýtur líka að vanta falslausa gleði En nýstúdentinn grætur húfuna
og djúpt stolt yfir að hafa náð sína fínu og vill jafnvel borga fund-
erfiðum áfang. arlaun. Vill ekki húfuglaði prófleys-
Nýstúdent úr Verzló skrapp í inginn létta á samviskunni og senda
Hollywood föstudaginn 30. maí að húfuna niður á Morgunblað - og
hitta bekkjarvinina. Það var heitt hljóta sálarblessun að launum.
og mikil mannþröng, svo að nýja
stúdentshúfan var tekin ofan og Með fyrirfram þakklæti.
lögð á borð. Augnabliki seinna var Móðir.
Þessir hringdu . <
Svört lyklakippa
Svört lyklakippa, með þremur
lyklum, tapaðist fyrir skömmu á
leiðinni frá Þjóðleikhúsinu að
Njálsgötu. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í Guðbjörgu
í síma 13787.
Fleiri hrollvekjur
í sjónvarpið
PH hringdi:
„Mig langar til að þakka sjón-
varpinu fyrir að sýna Carrie nk.
laugardag — það er kominn tími
til að við hrollvekjuaðdáendur
fáum loksins eitthvað við okkar
hæfl. Það skal tekið fram að
Carrie er algert meistarastykki
og vil ég gjarnan að sjónvarpið
haldi áfram á þessari braut og
sýni svona eina eða tvær virkilega
góðar hrollvekjur í mánuði að
jafnaði. Ég veit vel að þessar
myndir em ekki við allra hæfi en
þá er bara ekkert mál að slökkva
á sjónvarpinu og fara að sofa.“
Styttan af Leif i
heppna fer vel á
sínum stað
E.J. hringdi: „Það er á alger-
um misskilningi byggt að óviðeig-
andi sé að styttan af Leifi heppna
standi fyrir framan Hallgríms-
kirkju. Þeir sem halda þessu fram
ættu að gera sér ferð á Skóla-
vörðuholtið og skoða styttuna. Þá
myndu þeir sjá að Leifur heldur
á kross í vinstri hendi. Leifur var
á leið í kristniboðaferð til Græn-
lands þegar hann villtist. Þess
vegna fer einmitt vel á því að
styttan sé á þessum stað.“
Gefa þarf síma-
skrána út í
tveimur bókum
E.J. hringdi: „Þegar nýja
símaskráin barst mér í hendur
leist mér ekki meira en svo á að
þurfa að burðast með þessa stóm
bók, jafn þykk og hún er orðin, í
hvert sinn sem ég fletti upp núm-
eri. Hefur mér dottið í hug hvort
ekki sé kominn tími til að gefa
símaskrána út í tveimur bókum.
Sjálf hef ég tekið mína símaskrá
í sundur og gert úr henni tvær
bækur, aðra fyrir Stór-Reykjavík-
ursvæðið en hina fyrir landið.
Þannig verður símaskráin miklu
handhægari. Erlendis em borgar-
símar alltaf í sérbók. Er ekki að
verða tímbært að huga að þessu
hér?“
Sýnið betri kvik-
myndir í sjón-
varpi
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
„Ég vil eindregið hvetja forráða-
menn sjónvarps til að sýna meira
af kvikmyndum í sjónvarpinu og
vanda val þeirra sem best. Sagt
er að í sjónvarpinu sé sýnt mikið
af svokölluðum „útsölumyndum",
þ.e. kvikmyndum sem mjög ódýrt
er að fá vegna þess að fáir eða
engir vilja sjá þær. Góðar kvik-
myndir em áreiðanlega vinsæl-
asta efnið sem sjónvarpið birtir
og ætti því að verja mestum
peningum í að fá góðar myndir.
Nú þegar ný og sjálfstæð sjón-
varpsstöð er að hefja útsendingar
ætti hið gamalgróna ríkisrekna
sjónvarp að taka sig á og haga
dagskránni í samræmi við vilja
almennings í landinu. Annars er
hætt við að það verði eins og
hver önnur hjáleiga og nátttröll í
náinni framtíð.“
Myndavél tapaðist
í Laugardalshöll
Stúlka tapaði myndavél á tón-
leikunum í Laugardalshöll á
mánudag. Myndavélin er af gerð-
inni Ricco-FFl, með flassi. Eig-
andanum er sárt um myndavélina,
en vill þó sérstaklega fá aftur
filmuna, sem í henni var. Fundar-
launum heitið. Síminn er 21738,
Monica.
Hestamenn:
Verið vel á verði þar sem ökutæki
em á ferð. Haldið ykkur utan fjöl-
farinna akstursleiða. Stuðlið þannig
að auknu umferðaröryggi.
Okumenn:
Forðist allan óþarfa hávaða þar
sem hestamenn em á ferð. Akið
aldrei svo nærri hesti að hætta sé
á að hann fælist og láti ekki að
stjóm knapans.
GRILL-PARTY KJÚKL-
INGURINN er barbecue-
kryddaöur kjúklingur i 9
bitum á sérstökum
álbakka, þú tekur bakkann
úr frystinum og setur beint
á vel heitt grillið og kjúk-
lingurinn er tilbúinn á 50mín.
ísfugl
Sími: 666103