Morgunblaðið - 20.06.1986, Qupperneq 48
heim
ÍIISBÓKHAIDM
r^. FASTEIGNA
MARKAÐURINN
Eign þín er í traustum
höndum hjá okkur
■ sítnar:11540-21700.
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
STÆRSTA listaverk
landsins, Auðhumla
og mjaltastúlkan, eft-
ir Ragnar Kjartans-
son myndhöggvara,
var afhjúpað á 100
ára afmælishátíð
KEA á Akureyri í
gær. Það var Arin-
björg Hlíf Valsdóttir,
10 ára dóttir Vals
Arnþórssonar kaup-
félagsstóra, sem af-
hjúpaði verkið og á
innfelldu myndinni
takst þau í hendur,
hún og listamaðurinn.
„Þakka þér fyrir —
þú gerðir þetta vel,“
sagði Ragnar.
Sjá bls. 27: Gífur-
legur fjöldi á hátíð-
arfundinum.
Birgðasöfnun hjá Kísiliðjimni:
Lækkum sennilega
verðið eitthvað
— segir Róbert Agnarsson forstjóri
KÍSILIÐJAN við Mývatn hefur
átt í erfiðleikum það sem af er
þessu ári, eftir góða rekstraraf-
komu á árinu 1985. Að sögn
Róberts Agnarssonar, forstjóra,
veldur lækkun dollars þvi að
Bandarikjamenn geta stundað
undirboð á kisUgúrmarkaðinum.
„Síðari hluta síðasta árs fengum
við ágætis verð fyrir kísil. En
þar sem öU okkar viðskipti fara
fram í Evrópumynt hefur faU
dollarsins komið sér iUa,“ sagði
Róbert.
Birgðir Kísiliðjunnar nema nú um
3500 tonnum. Til samanburðar má
geta þess að heildarsala síðasta árs
var 27.000 tonn. Róbert sagði að
Kísiliðjan hefði aldrei safnað birgð-
um ef undan er skilið árið 1985.
„Senniiega munum við lækka verðið
eitthvað. Þó forum við varlega í
allar verðlækkanir sem geta virkað
ótraustvekjandi á kaupendur. Mér
sýnist þetta heldur vera að lagast.
Eg á alveg von á því að ástandið
batni innan tíðar."
Kísiliðjan hefur stöðvað vinnslu
tvisvar á þessu ári. Róbert sagði
að engin áform væru um að fækka
starfsfólki þótt salan drægist sam-
an. „Það er erfitt að fækka mann-
skap í svona rekstri. Maður sparkar
ekki mönnum og biður þá um að
koma aftur þegar betur gengur."
Sagði hann að verksmiðjan stæði
að öllu lejrti mjög vel. „Við rekum
héma eitt hagkvæmasta fyrirtæki
á landinu, vinnum aur af vatnsbotni
og veitum 70 manns atvinnu.“
Grandi hf. lokar
vegna sumarleyfa
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stöðva
starfsemi Granda hf. í Reykjavik
frá 5. ágúst til 22. sama mánaðar.
Gert er ráð fyrir að þetta fyrir-
komulag nái til flestra starfs-
manna, en þó er hugsanlegt að
fáeinir vei'ði við störf við ákveðin
verkefni þennan tíma. Með þessu
móti er vonazt til þess, að halda
megi uppi fullum afköstum hina
sumarmánuðina, en nokkur mis-
brestur hefur verið á því undan-
farinár.
Brynjólfur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Granda hf., sagði í
samtali við Morgunblaðið, að skipu-
lagslítil sumarfrí hefðu alltaf dregið
úr afköstum á þessum tíma. Hefðu
afköstin farið niður í 20 til 30% af
Siglufjörður:
OLIS setur upp sértank
fyrir sterka bensínið
90 laxar ór
Grímsá á 2
fyrstu dögnnum
NÍUTÍU laxar veiddust á 8
stangir fyrstu tvo veiðidag-
ana í Grímsá í Borgarfirði og
er það langmesta veiði í byrj-
un fyrr og síðar eftir því sem
Sturla Guðbjarnarson, bóndi
í Fossatúni, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær. Fylgdi
sögunni, að áin væri full af
laxi frá Laxfossi og niður úr.
Veiðin hófst eftir hádegi í
gær, en þá tóku nýir veiði-
menn við.
Til samanburðar má geta
þess, að í byijun 1984 þótti
veiðin heQast með afbrigðum
vel, en þá veiddust milli 40 og
50 laxar. í fyrra komu 20 á land.
Sturla sagði að laxinn hefði nú
verið ýmist 4—6 pund, eða
12—15 pund og sá stærsti 18
pund. Það vantaði 7—9 punda
laxinn. Hann bætti við að Þing-
nesstrengir hefðu gefíð mest,
en Laxfoss og Lambaklettsfljót
hefðu einnig verið dijúg. Aðeins
fáir fískar veiddust fyrir ofan
Laxfoss og nefndi Sturla Kokks-
hyl, Lækjarfoss, Kotakvöm og
Ferjupoll.
Sjá nánar „Eru þeir að
fá’ann?" blaðsfðu 11.
EKKI hefur náðst samstaða
meðal olíufélaganna um sölu sk.
„súper“-bensíns á þeim stöðum
þar sem þau reka sameiginlegar
eldsneytisstöðvar. Olíverslun ís-
lands ákvað f gær að koma upp
dælu með „súper“-bensíni á
Siglufirði, þar sem OLÍS rekur
bensínstöð fyrir hönd félaganna
þriggja. „Því er ekki að neita að
félögin hafa ekki komið sér
saman um uppgjör á vörunni, þar
sem verðlagning hennar var
gefin fijáls," sagði Þórður Ás-
geirsson, forsljóri Olíuverslunar
Islands (OLÍS). „Við erum til-
búnir að selja súper-bensínið
okkar á „þriggja félaga stöðvun-
um“ svokölluðu, en svo virðist
sem viljann hafi skort hjá hinum
olíufélögunum að leiða málið til
lykta hvað uppgjör snertir."
Bensínstöðin á Siglufirði selur
eldsneyti í nafni OLIS, ESSO og
Shell en bensínið kemur alit úr
einum tanki. Að sögn fréttaritara
Morgunblaðsins á Siglufírði hefur
gætt mikillar óánægju í bænum
vegna þess að bensín með oktantölu
98 er ekki fáanlegt þar. í gær ákvað
OLÍS síðan að að byija að selja
„súper“-bensín á Siglufírði. „Við
settumst niður nú í eftirmiðdag og
ákváðum að setja upp dælu fyrir
„súper“-bensín innan fárra daga,“
sagði Þórður. Aðspurður hvort
OLÍS ætlaði að koma upp „súper“-
bensíndælum á öllum þeim stöðum
þar sem olíufélögin eru með sameig-
inlegan rekstur svaraði hann: „Eg
á von á því að hinir staðimir fylgi
í kjölfarið einn af öðrum. Þeir mega
búast við breytingum innan tíðar.
Líklega verðum við þó að skilja allra
minnstu plássin útundan."
venjulegri afkastagetu og á sama
tíma hefðu skipin verið að veiðum.
Þetta hefði valdið verulegum vand-
ræðum og ætlunin að ráða þar bót
á með sumarfríi allra starfsmanna
á sama tíma. Vegna þess hefði fólk
verið beðið um að taka frí á þessum
tíma og hefði það tekið því vel.
Með þessu yrði haldið uppi eðlileg-
um afköstum hina sumarmánuðina
og vonandi gæfí fyrirkomulagið
góða raun, bæði fyrir fyrirtækið og
starfsfólk þess.
Vegna þessa fyrirkomulags verð-
ur minni hreyfíng á starfsfólki
Granda hf. yfír sumarmánuðina, en
undanfarin ár og því verður minni
þörf á afleysingarfólki. Hátt á
annað hundrað manns hafa sótt um
vinnu hjá fyrirtækinu í sumar, en
aðeins verður ráðið í um 80 störf.
Samkvæmt upplýsingum starfs-
mannastjóra, Einars Sveins Ama-
sonar, munu nokkrir starfsmenn
ætla sér að taka frí umfram orlofs-
tímann og verður því þörf afleys-
ingafólks í þeirra stað.
Mál Guðmundar J. Guðmundssonar:
Ríkissaksóknari fellst á rannsókn
Átökín í Alþýðubandalaginu magnast
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
formaður framkvæmdastjórn-
ar Alþýðubandalagsins, telur
að fjárstuðningsmál Alberts
Guðmundssonar við Guðmund
J. Guðmundsson sé það alvar-
legt mál að óhjákvæmilegt sé
að þeir báðir segi af sér —
Albert ráðherradómi og Guð-
mundur þingmennsku og öðr-
um trúnaðarstörfum. Guð-
mundur J. Guðmundsson sagði
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi um framgang Ólafs
Ragnars, Guðrúnar Helgadótt-
ur og fleiri alþýðubandalags-
manna í þessu máli: „Guð
verndi mig fyrir vinum mín-
um.“
Ríkissaksóknari ákvað í gær
að verða við beiðni Guðmundar
þess efnis að opinber rannsókn
fari fram á því hvort og með hvaða
hætti hans nafn tengist yfírstand-
andi rannsókn Hafskipsmálsins.
Jónatan Sveinsson saksóknari
sagði að þessari rannsókn yrði
hraðað og ætti hún ekki að taka
langan tíma.
Guðmundur J. Guðmundsson
fagnaði þessari ákvörðun ríkis-
saksóknara í samtali við Morgun-
blaðið, og sagðist ekki mundu
gegna trúnaðarstörfum fyrir
verkalýðshreyfínguna, né þing-
mennsku, á meðan á rannsókn
stæði. Hann sagði það hins vegar
alrangan skilning þeirra Ólafs
Ragnars og Guðrúnar Helgadótt-
ur, að hann með þessu væri að
segja af sér þingmennsku fyrir
fullt og allt.
Aðalfundur Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík var haldinn í
gærkvöldi og á þeim fundi var
fastlega búist við að fram kæmi
tillaga um ályktun fundarins í þá
veru að fundurinn krefðist þess
að Guðmundur J. Guðmundsson
segði af sér þingmennsku fyrir
fullt og allt.
Sjá forystugrein I
miðopnu: Mál Guðmundar
J. Guðmundssonar, fréttir
og viðtal við Guðmund J.
Guðmundsson bls. 4 og
viðtal við Ólaf Ragnar
Grímsson á bls. 27.