Morgunblaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
Gott kast eftir
misheppnað högg
Golf er íþrótt sem reynir á
taugamar. Stundum meira en
góðu hófí gegnir, eins og með-
fylgjandi myndir bera vott um
en þær eru teknar á golfvellin-
um á Korpúlfsstöðum í gær.
Raunar hefur óræk staðfesting
ekki fengist á því hvemig kylf-
an komst á þennan stað, en
það þarf ekki mikið ímyndun-
arafl til að geta sér þess til
að einhver kylfingurinn hafí
sent hana til himna í bræði
sinni yfír misheppnuðu höggi.
Kastið hefur greinilega heppn-
ast betur en höggið, líklega
betur en til stóð. Við snerting-
una við háspennulílnumar
hefur jámið brunnið í sundur
og bútamir tveir bráðnað fastir
við línumar. Um kylfínginn
sjálfan fer litlum sögum, hvað
þá um höggafjöldann sem
hann fór hringinn á.
Morgunblaðið/Óskar Sæmundsson
3
Mál Guðmundar J.
og Alberts hjá
ríkissaksóknara:
+
Akvörðun-
ar að vænta
í dag
ÁKVÖRÐUNAR ríkissaksókn-
ara varðandi rannsókn á máli
Guðmundar J. Guðmundsson-
ar og Alberts Guðmundssonar
vegna Hafskipsmálsins er að
vænta í dag, að sögn Braga
Steinarssonar saksóknara hjá
ríkissaksóknaraembættinu.
„Eg geri mér vonir um að við
getum látið eitthvað frá okkur
fara á morgun," sagði Bragi Stein-
arsson í samtali við Morgunblaðið
í gær, er hann var spurður hvenær
ákvörðunar ríkissaksóknara væri
að vænta, varðandi það hvort
rannsókn Rannsóknarlögreglu
ríkisins á máli Guðmundar J. Guð-
mundssonar og Aiberts Guð-
mundssonar teldist fullnægjandi,
eða hvort óskað yrði eftir fram-
haldsrannsókn. Hann sagðist telja
að ákvörðun gæti legið fyrir seinni
partinn í dag.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kringlan risin
Á morgun verður lokið við að reisa Kringluna, hið nýja hús Hag-
kaups í Nýja miðbænum. Verður þeim áfanga fagnað með reisugildi
að hefðbundnum hætti. Kringlan mun opna eftir rúmt ár, nánar tii
tekið í ágúst 1987. Framundan er geysimikil vinna við innréttingu
hússins og frágang. Myndin var tekin af Kringlunni i gær.
Fiskverð hækkar
í Hull o g Grimsby
AGÆTIS VERÐ fékkst fyrir
þorsk og ýsu á fiskmarkaðn-
um í Hull og Grimsby á
fimmtudag. Verð á kola var
hins vegar lágt. Meðalverð á
þorski fór í rúmar 62 krónur,
en var á tímabili komið niður
fyrir 50 krónur. Fyrir kíló
af kola fékkst hins vegar
Diskódrottning
hér á tónleikum
Diskódrottningin Gloria Gay-
nor kemur til landsins í dag,
föstudag, og heidur tónieika í
veitingahúsinu Broadway í
kvöid og annað kvöld.
Gloria Gaynor er eina söng-
konan sem hefur verið krýnd
„diskódrottning" af alþjóðasam-
tökum plötusnúða. Hún hefur þar
að auki unnið til Grammy-verð-
launa og eitt laga hennar, I Will
Survive, hefur selst í 5 milljónum
eintaka og verið gefið út á arabí-
sku, spænsku, frönsku, japönsku
og fleiri tungumálum.
Af öðrum þekktum lögum Gloriu
má nefna I am what I am, Honey
Bee, Never can Say Goodbye og
Reach Out.
aðeins rúmlega 31 króna, sem
er um 20 krónum lægra en
það varð hæst í vor.
Börkur NK seldi 163 lestir í
Grimsby á miðvikudag og fimmtu-
dag. Heildarverð var 8.825.000
krónur, meðalverð 54,18. Aflinn
var nær eingöngu þorskur og ýsa.
Ottó Wathne NS seldi 136 lestir,
mest þorsk og ýsu í Grimsby.
Heildarverð var 8.050.000 krónur,
meðalverð 58,90. Bæði skipin voru
með góðan fisk, en endanleg gæða-
flokkun lá ekki fyrir í gær. Stafnes
KE seldi 47 lestir, mest kola í
Hull. Heildarverð var 1.514.000
krónur, meðalverð 31,87. 70%
aflans fóru í annan flokk og 30%
í þriðja. Loks seldi Krossanes SU
86 lestir í Hull á fimmtudag. Heild-
arverð var 5.160.000 krónur,
meðalverð 59,90. Meðalverð fyrir
þorsk var 62,68 og ýsu 61,27.
Aflinn fór allur í annan flokk.
o
INNLENT
JT) arís erfull af lífi og krafti, fjöri og feröamanna
JTIúxus. Þar blómstrar lifandi menning og
sérdeilis lystaukandi matarlist; kræsingarfyrir
líkama og sál á hverju götuhorni.
Lúxus-París fyrir Æt
aðeins kr. 28.390.- Jm
J' þessum viku hópferöum 6. og 20.
ágúst er markmið okkar aö stjana Jjj
viö þig og láta París sýna þér sínar M
bestu hliöar.
Gisterálúxushótelinu Lutetia Æ
Concorde - einu glæsilegasta JSBr
hóteli Parísar. JBT
ry ararstjórinn Áslaug
± Marinósdóttir gjör-
þekkir borgina. Hún
mun standa fyrir
skoöunarferöum um
París og Versali og
leiöbeina þéráeinn
eöa annan hátt.
V' erö pr. mann í iM
tvíbýlierkr. 28.390.- W
Verðið er mjög hagstætt því
innifaliö er:Gisting, flug, morgunverður
akstur frá og að flugvelli í París,
skoöunarferöir og örugg íslensk
fararstjórn. Góöur barnaafsláttur.
Ferdaskrifstolan Úrval v/Austurvöll. Simi (91) 26900.