Morgunblaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 48
 r FASTEIGNA Í1S\ MARKAÐURINN u'FLEG SALA Okkurvantar eignirá söluskrá símar: 11540—21700 fffgpisstMftfrito HíIMI mBbókhaldið FÓSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986 VERÐ I LAUSASOLU 40 KR. Arnarflug: Utlit fyrir verk- fall flugvirkja Samningaviðræður stóðu þó enn yfir ÞEGAR Morgunblaðið fór í prentun skömmu fyrir eitt í nótt var ekki útlit fyrir að samkomulag næðist í kjaradeilu flugvirkja og Arnarflugs. Samningaviðræður stóðu þó enn yfir, en Magnús Odds- son í samninganefnd Amarflugs var fremur vondaufur um að samkomuiag næðist og að verkfalli flugvirkja yrði þar með aflýst, en það hófst formlega á miðnætti í nótt. Linnulaus fúndahöld stóðu yfir í allan gærdag og fram á nótt í húsa- kynnum ríkissáttasemjara. Ekki náðist saman í helsta ágreinings- málinu, sem er afturvirkni samn- inganna. Krafa flugvirkja er að samningurinn gildi frá síðustu ára- mótum, þegar þeir sögðu samning- , um lausum, en gegn þvi hefur samninganefnd Amarflugs alfarið lagst. Um klukkan 21.00 í gærkvöidi lagði samninganefnd Amarflugs fram nýtt tilboð, sem fólst í því að leggja kjaramálið fyrir fijálsan gerðardóm og ganga um ieið til sérkjarasamninga um pflagríma- flugið sem framundan er f Alsír. Flugvirkjar höfðu tilboðið til at- hugunar fram yfir miðnætti, en þá lögðu þeir fram gagntilboð þar sem annað orðalag var haft á tilvísun- inni til gerðardóms. Vildu flugvirkj- ar að í tilvísuninni væri kveðið á um að samningar flugvirkja við Flugleiðir lægju til grundvallar dómnum, en flugvirkjar hjá Flug- leiðum sömdu sem kunnugt er um afturvirka samninga. Magnús Oddsson taldi mjög vafasamt að Amarflug gæti fallist á þessa kröfu. Magnús sagði að líklega gæti Amarflug flogið á morgun, ef eng- ar bilanir yrðu. Mokveiði er hjá "Austfjarðatogurum AFLI togara fyrir Austurlandi hefur verið mjög góður að undan- förnu, nánast mok eins og Emil Thorarensen, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, segir. Vegna þessa er nú farið að saxast á þorskkvóta togaranna og hafa Eskifjarðartogurum verið settar ákveðnar skorður við þorskafla í hveijum túr til ársloka. Emil Thorarensen sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að togaramir hefðu nánast mokað upp fiskinum að undanfömu. Hólmanes hefði tek- ið 165 tonn á 6 dögum og Hólma- tindur 160 á rúmri viku. Þá hefði Snæfugl frá Reyðarfirði verið með Háskóli íslands: Valda óeðli- legir kennslu- hættir fallinu? HÁSKÓLINN hefur ekki get- að brugðist við hinni miklu fjölgun nemenda á síðustu árum á neinn viðunandi hátt. Þetta kemur fram í viðtölum við nemendur og kennara í háskólanum sem birtast á síðum B-blaðs Morgunblaðs- •ins í dag. Menn vilja skýra mikið fall í sumum deildum háskólans með þessu en í viðtölum við stúdenta kemur einnig fram að stöðnun, skipulagsleysi og neikvætt við- horf kennaranna hafí nokkur áhrif. Eyjólfur Sveinsson formaður Stúdentaráðs segir að óeðlilegir kennsluhættir hafi þróast innan Háskólans. Sigurður Líndal prófessor í Lagadeild telur að dagar Háskólans sem fræðaset- urs séu brátt á enda. Gagnrýnin beinist einnig að framhaldsskólum landsins, en því hefur verið haldið fram af háskólakennurum að þeir veiti nemendum ekki lengur full- nægjandi undirbúning undir háskólanám. 165 tonn eftir 6 daga. Aflinn væri að mestu góður þorskur, stærri, þéttari og með minna af ormi, en þorskurinn að vestan. Þá sagði hánn að ýsugengd væri vaxandi. Hólmanesið hefði verið í Bugtinni og í síðustu holunum hefði megnið verið ýsa. Þorskur væri um allan sjó og dæmi væru um það, að menn hefðu verið að fá 10 tonna þorsk- hol, þrátt fyrir að þeir væru að reyna að forðast þorskinn. Þó væri lítið af honum gengið inn á grunn- slóð og afli smærri báta því rétt þokkalegur. Regnbogans litir Einhver myndarlegasti regnbogi sem menn muna eftir sást yfir höfuðborginni á sunnudaginn. Júlíus Siguijónsson ljósmyndari var ekki seinn að bregða myndavélinni á loft til að festa á filmu þennan skýra og tæra boga yfir húsunum í Skeijafirði. Fjármálaráðherra um dóm Kjaradóms: „Launaákvarðanír verði teknar úr Kjaradómi“ ÞORSTEINN PÁLSSON fjármálaráðherra telur dóm Kjaradóms um sérkjarasamninga BHMR ganga á svig við þá launastefnu sem mót- uð hefur verið i þjóðfélaginu. Hann segir niðurstöður dómsins gera það að verkum, að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að þessar launa- ákvarðanir verði teknar úr Kjaradómi, eða meginhluti þeirra, og samið verði um þær í frjálsum samningum. Hann telur að dómurinn hafi gengið lengra en lög gera ráð fyrir, þ.e. með því að ákveða almenna launahækkun í dómi um sérkjarasamninga. „Ég tel einsýnt að þessi niður- staða muni leiða til þess að við verðum að endurskoða þetta launa- ákvörðunarkerfí," sagði flármála- ráðherra, „og ég ræddi það í ríkisstjóminni í morgun, að hún beiti sér fyrir því að þessar launa- ákvarðanir verði teknar úr Kjara- dómi, og samið verði um meginhluta launa ríkisstarfsmanna í fijálsum samningum." Hann sagði að það væru að vísu ákveðnar stéttir, sem hefðu öryggisgæslu og heilsugæslu með höndum, sem ekki gætu farið í verkfóll. En að öðru leyti kvaðst hann telja að það ætti að gera út um kaup og kjör opinberra starfs- manna í fijálsum samningum. Fjármálaráðherra sagði að þetta mál yrði rætt áfram á ríkisstjómar- fundi í næstu viku. „Ég tel að dómurinn gangi á svig við þá launastefnu sem hefur verið mótuð í þjóðfélaginu, og ég tel hann ganga lengra en lög gera ráð fyrir með því að ákveða í úr- skurði um sérkjarasamninga, almenna launahækkun," sagði fjár- málaráðherra í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði þetta vera dóm sem menn yrðu auðvitað að hlýta, eins og öðrum dómum. Fjármálaráðherra var spurður hvort hann teldi þennan dóm geta verið upphafið að almennu launa- skriði í landinu: „Ég tel ekki að þetta gefí tilefni til annarra launa- breytinga, vegna þess að það gengi gegn þeirri launa- og efnahags- stefnu sem víðtækt samkomulag hefur orðið um, og ég tel ekki að dómur eins og þessi eigi að breyta því. Þó að þessi dómur gangi gegn því samkomulagi, þá á hann ekki að breyta stefnu í efnahags- og verðlagsmálum. Það hefur orðið svo mikill árangur af þessari efnahags- stefnu, með bættum kaupmætti og lágri verðbólgu, sem er forsenda fyrir því að bæta kaupmátt og ég tel engar forsendur fyrir því að þessi dómur innleiði hér nýtt verð- bólgu- og gengisfellingaskeið.“ Þorsteinn sagði að ríkisstjómin hefði einsett sér að ná þeim mark- miðum í efnahagsmálum, sem stefnt var að, „og við látum ekki þennan dóm hrekja okkur af þeirri braut,“ sagði Þorsteinn, „það væri óskaplegt áfall fyrir þjóðfélagið allt og mest áfall fyrir launafólkið í landinu, ef gengisfellingar riðu hér yfir með verðhækkunum og verð- bólgu." Sjá nánar viðtöl og fréttir á bls. 2 og 28.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.