Morgunblaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
M
AF ERLENDUM
eftir ANDRÉS MAGNÚSSON
Fær Nakasone
að njóta
sigursins?
STJÓRNARFLOKKURINN í Japan, Frjálslyndi flokkurinn, vann
stórsigur í þingkosningunum sl. sunnudag. Þessi sigur styrkir
stöðu forsætisráðherrans, Yasuhiro Nakasone, og gefur til kynna
að kjósendur styðji stefnu hans í helstu málaflokkum. En stjórn-
mál í Japan eru flókin og ekki er vist að Nakasone njóti jafnmikils
fylgis innan flokks síns, sem utan.
Þrátt fyrir sigur er ekki ljóst
hvort að Nakasone fái tækifæri
til þess að njóta hans, þar sem
að samkvæmt starfsreglum
flokksins verður hann að láta af
störfum sem formaður hans eftir
þrjá mánuði. Á sunnudag ítrekaði
Nakasone að hann myndi fara að
starfsreglum flokksins, en talið
er að hann reyni að breyta reglun-
um, þannig að honum verði
heimilt að sitja áfram. Óvíst verð-
ur þó að teljast að honum takist
það, því að þrátt fyrir að sigur
flokksins sé að miklu leyti per-
sónulegur sigur Nakasones er
Fijáislyndi flokkurinn margklof-
inn og sú fylking, sem Nakasone
fer fyrir, er næstminnst af fímm.
En hvað sem verður er ólíklegt
að miklar sviptingar verði í jap-
anskri stjómarstefnu. Fijálslyndi
flokkurinn hefur verið óslitið við
völd frá árinu 1955 og þrátt fyrir
ýmsar sveiflur hefur stefna
flokksins ávallt verið sú að landið
eigi að fylgja vestrænum ríkjum
að málum og að fijálslyndi í efna-
hagsmálum þjóni japönskum
hagsmunum best.
Engum kom sigur Fijálslynda
flokksins á óvart. En að flokkur-
inn skyldi fá 300 fulltrúadeildar-
þingmenn, af 512, hefði engan
grunað.
Metfylgi flokksins
Sem fyrr sagði fékk flokkurinn
300 þingsæti af 512, en við þing-
flokkinn munu þar að auki bætast
íjórir þingmenn, sem af ýmsum
ástæðum buðu sig fram sem óháð-
ir.
Nakasone hefur sagt að for-
gangsverkefni hans verði að
efnahagslegs eðlis. Bandaríkin
hafa kvartað sáran undan ódýrum
japönskum innflutningi og hyggst
Nakasone leita Iausnar á þeim
vanda. Ennfremur mun hann
stefna að því að gera Japan óháð-
ara útflutningsatvinnuvegunum.
Stjómmálaskýrendur telja að
Nakasone eigi nú mun auðveldara
með að sinna þessum verkefnum
í krafti hins mikla meirihluta, en
sjálfur hefur hann forðast allar
yfírlýsingar.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var þegar úrslit kosninganna
voru ljós, sagði Nakasone, sem
hefur verið hlynntur frekari hem-
aðaruppbyggingu Japana, ekkert
um áætlanir í þá veru. Þó er talið
víst að hann muni reyna að hækka
hemaðarútgjöld Japana umfram
1% þjóðarframleiðslu, en til þessa
hefur það verið óskrifuð regla að
hemaðarútgjöld séu ekki hærri.
Nakasone reyndi þetta í fyrra, en
tillaga hans var þá felld af stjóm-
arandstæðingum og hluta eigin
þingflokks. Nú er talið að hann
reyni aftur. Ennfremur er nær
ömggt að hann reyni að gera
Japana að virkum þátttakendum
í Geimvamaáætlun Banda-
ríkjanna.
• •
Orug-gnr signr
Fijálslyndi flokkurinn fékk
49,6% atkvæða til neðri deildar
þingsins, sem er hæsta atkvæða-
hlutfall flokksins frá árinu 1963,
en þá fékk hann 57,6% atkvæða.
I efri deild þingsins, en hún er
mun valdaminni en neðri deildin,
vann flokkurinn einnig á, fékk
142 sæti af 252.
í ræðu eftir kosningasigurinn
þakkaði Nakasone þjóðinni
traustið, fullur hógværðar. Enn-
fremur hét hann því að „þrengja
ekki að stjómarandstöðunni" í
krafti hins mikla þingmeirihluta.
Þetta þótti skjóta nokkuð skökku
við, því að til þessa hefur Naka-
sone þótt ánægður með sjálfan
sig og ekki vanur að gera hlut
sinn minni en ástæða er til.
Ósigur sósíalista
Kosningaúrslitin vom helstu
stjómarandstæðingunum, sósíal-
istum, mikið áfall. Þeir fengu alls
85 sæti, en vom með 112. Þessi
ósigur þykir sýna að tilraunir
sósíalista til þess að færa flokkinn
nær miðju hafi ekki tekist. Að
undanfömu hefur borið á því að
marxískt orðalag hafí verið fellt
úr kosningaáróðri flokksins, til
þess að koma til móts við „hægri
bylgjuna" svokölluðu, sem Japan
hefur ekki farið varhluta af frekar
en önnur iðnríki heims.
Formaður Sósíalistaflokksins,
Masashi Ishibashi, gaf á mánudag
í skyn að hann kynni að taka
ábyrgð á ósigri flokksins með því
að segja af sér, en stjómmálaskýr-
endur telja það ólíklegt, þar sem
engann hæfan arftaka sé að fínna
í flokknum.
VETTVANGI
Hér má sjá sigurvegara kosn-
inganna í Japan, Yasuhiro
Nakasone, greiða atkvæði.
Aðrir flokkar töpuðu minna
eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu.
Þrándur í Götu
Nakasones
Ýmsir telja að stórsigur Frjáls-
ljmda flokksins verði til þess að
Nakasone rejmi að breyta starfs-
reglum flokksins, sem kveða á um
áð hann megi aðeins gegna for-
mannsembætti hans í tvö
kjörtímabil í röð. Sumir efast þó
um að hann reyni að brejrta regl-
unum, þannig að hann megi vera
formaður í þijú kjörtímabil, en
telja líklegra að hann reyni að fá
kjörtímabilið lengt, en því ætti að
ljúka í október.
En þrátt fyrir þann persónulega
sigur, sem kosningamar vissulega
em, blæs ekki byrlega fyrir Naka-
sone. Hann nýtur ekki sérlega
mikils stuðnings í eigin flokki og
á í höggi við §órar fylkingar inn-
an hans, en þær telja allar að
þeirra tími sé upp mnninn. Fýlk-
ingu Nakasones óx fískur um
hrygg í kosningunum, en hinar
fylkingamar urðu líka öflugri.
Eins og Fijálslyndi flokkurinn er
uppbyggður em litlar sem engar
líkur á að einhveijum einum
manni takist að verða óskoraður
leiðtogi hans.
Enn er því ekki ljóst hver
framtíð Nakasones og Japan verð-
ur, en innanflokksátök í Frjáls-
ljmda flokknum munu valda
mestu þar um. Gagnrýnendur
Nakasones hafa meðal annars
bent á að tilviljanir geti valdið
meim um úrslit þingkosninga í
Japan en í öðmm lýðræðisríkjum.
Kjördæmaskipan er mjög flókin
og þvæld og sem dæmi um tilvilj-
anir höfðu starfsmenn Fijálslynda
flokksins engar áhyggjur af skoð-
anakönnunum fyrir kosningar,
heldur fylgdust þeir mest með
veðurspám. Reynslan sýnir nefni-
lega að í vondu veðri sitja stuðn-
ingsmenn Fijálslynda flokksins
frekar heima en stuðningsmenn
annarra flokka, þar sem flokksagi
er meiri. En sé veðrið of gott,
freistast þeir frekar til þess að
fara upp í sveit, eða út að versla,
svo að ekki vildu fijálsljmdir það
heldur. Þeir báðu því um sæmi-
lega gott veður og fengu!
Hér em úrslit kosninganna hinn 7. júlí 1986 borin saman við úrslitin
1983. Þá sátu 511 þingmenn í neðri deild þingsins, en em nú 512.
1986 1983
Fijálsljmdi flokkurinn 300 250
Sósíalistaflokkurinn 85 112
Komeito (flokkur búddista) 56 58
Jafnaðarmannaflokkurinn 26 38
Kommúnistaflokkurinn 26 26
Aðrir flokkar og sérframboð 19 27
Samtals 512 511
Að gefnu
tilefni
eftír Gunnlaug Júlíusson
Hér fyrr á ámm, þegar ég stund-
aði sjómennsku um tíma, þá heyrði
ég sögu um skipstjóra einn, sem
virtist hafa þá trú að hæfni hans
sem skipstjómanda og veiðimanns
væri metin eftir því hve víða hrópin
og köllin í honum heyrðust í þorp-
inu, þegar hann var að ieggja að
bryggju. Sem víðast, því betra.
Þessari sögu hefur stundum sko-
tið upp í huga minn nú sl. vetur,
þegar maður fylgdist með hama-
ganginum í menntamálaráðherran-
um okkar við tiltektir í málefnum
námsmanna og lánasjóðsins.
Fyrrverandi menntamálaráð-
herra hóf feril sinn einnig með
töluverðum fyrirgangi, lét gera út-
tektir og fór mikinn í upphafí, en
af framkvæmdum varð þó ekki
annað en að kippa fyrsta árs nem-
um út úr sjóðnum, þótt svo það
breytti litlu sem engu fyrir rekstur
sjóðsins því hann yfírtók skuldir
þeirra sem stóðust próf, en víxlam-
ir féllu á hina eins og áður. Ef
eitthvað var þá jók það muninn á
hinum efnameiri og þeim sem ekki
áttu eins greiða leið að hjörtum
bankastjóranna.
Draga má saman árangur núver-
andi menntamálaráðherra á eftir-
farandi hátt:
— Framkvæmdastjóri LÍN rek-
inn. Sök ókunn.
— Það eina sem síðasti mennta-
málaráðherra kom í verk á þessu
sviði er að engu gjört, fyrsta árs
nemar hafa endurheimt lánsrétt
sinn hjá sjóðnum. Eitt skref til
hægri og eitt skref til vinstri.
— Menntamálaráðherra hefur
fengið námsmenn, stjómmálamenn
og blaðamenn upp á móti sér í stór-
um stn vegna ógrundaðra og
ómarkvissra vinnubragða. Sérstak-
ur árangur.
Þessi atriði rifjast upp fyrir
manni við lestur vamarskjals
menntamálaráðherrans við
Reykjavíkurbréfi Styrmis frá því
þann 1.7. sl., en í því var komið á
framfæri ýmsum aðfinnslum við þá
ákvörðun ráðherrans að hætta að
lána til skólagjalda í Bretlandi og
Bandaríkjunum, sé hægt að stunda
samsvarandi nám hérlendis. Það
eitt út af fyrir sig ætti að vera rit-
stjóra Morgunblaðsins og mennta-
málaráðherra nokkurt umhugsun-
arefni að ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins skuli taka þá ákvörðun
að hætta að lána fyrir skólagjöldum
í USA og Bretlandi, vegna þess hve
dýrt það sé. Það virðist nefnilega
vera svo dýrt að stunda langskóla-
nám í fyrrgreindum löndum, þar
sem fijálshyggjudraugarnir hafa
riðið húsum af djöfulmóð um hríð,
að það er jafnvel að setja íslenska
ríkið á hausinn! Ég hefði í fljótu
bragði haldið að ráðherra flokks,
sem er vilhallur vestrænni sam-
vinnu og hvað sem þetta heitir nú
allt saman, yrði glaður við þegar
nemendafjöldi í USA og Bretlandi
hefur fjórfaldast á áratug (þótt það
segi ekkert til um hve margir þeir
eru) og segði sem svo: „Betur má
ef duga skal“. En lengi má manninn
reyna og nú er námsfólki vísað í
hálfgerð austantjaldsríki s.s.
Svíþjóð, eins og komist var svo fal-
lega að orði einu sinni.
Nei, nú vill ráðherra menntamála
reka af sér slyðruorðið, enginn
níðingur vera og lætur því sverfa
til stáls!
Skilyrðislausar endurgreiðslur og
„vægir“ vextir ellegar bregður
nýrra við, hvað sem það þýðir. Lengi
getur vont svo sem versnað.
Ráðherrann rekur þijár megin
ástæður fyrir nauðsyn úrbóta:
1. Gjafapólitík LÍN
Þegar núverandi lög um LÍN
voru samþykkt, var gert ráð fyrir
95% endurgreiðslum lánanna, mið-
að við þær forsendur sem þá lágu
„Þau tilfelli finnast
vafalaust að menn hafi
verið það lengi í námi
að þeir greiði lánin ekki
til baka að fullu.
Menntamálaráðherra
ætti að birta tölur yfir
þennan fjölda og þær
upphæðir sem um er að
ræða, en hætta að slá
fram tilhæfulausum al-
hæfingum.“
fyrir. Síðan hefur ýmislegt gerst.
Samkvæmt útreikningum hagfræð-
ings frá sjálfu Verslunarráði mun
endurheimta nú vera nálægt 85%.
Hvers vegna hefur hún lækkað?
Deyja fleiri áður en endurgreiðslum
lýkur eða er fólk lengur í námi?
Nei, þar kemur annað til, nefnilega
stjórnunaraðgerðir ríkisstjómarinn-
ar árið 1983, þegar launavísitölu
var kippt úr sambandi og kaup-
máttur launa keyrður niður með
„fantatökum" eins og ráðherrann
komst að orði í Jónshúsi í vetur.
Lánskjaravísitalan fékk hins vegar
að leika lausum hala og eftir henni
em námslán verðtryggð. Þar er
mergurinn málsins. Lánin eru end-
urgreidd sem hlutfa.ll af launum.
Laun hafa lækkað að raungildi en
lánin aftur á móti hækkað. Því hlýt-
ur endurgreiðsluhlutfallið að lækka
sem afleiðing þessa. Þetta er nú
öll gjafapólitík sjóðsins. Mörgum
þykir því 85% endurgreiðsla vera
aílhá, ekki ssit með tilliti til þeirra
áfalla sem íslenskt launafólk hefur
orðið fyrir.
2. Námsmenn eru hvattir til að
taka hærri lán en þeir þurfa. Ég
verð nú að segja eins og er að þetta
skil ég nú varla. Reglur sjóðsins eru
það stífar að möguleiki er ekki fyr-
ir hendi hjá almennum námsmanni
til að taka lán umfram Qárþörf.
Sagt er að sjóðurinn láni vaxtalaus
lán. Það má kalla hlutina ýmsum
nöfnum, en þegar misgengi það sem
orðið hefur á milli kaupgjaldsvísi-
tölu og lánskjaravísitölu er jafn
mikið og verið hefur á undanfömum
árum, er verðtrygging það sama
og nokkuð háir raunvextir, sé miðað
við kaupmátt launa. Það vita þeir
sem borga lánin af lágum launum.
Þau tilfelli fínnast vafalaust að
menn hafí verið það lengi í námi
að þeir greiði lánin ekki til baka
að fullu. Menntamálaráðherra ætti
að birta tölur yfír þennan fjölda og
þær upphæðir sem um er að ræða,
en hætta að slá fram tilhæfulausum
alhæfíngum.
3. Sjóður sem letur menn til að
vinna fyrir sér, er illur uppalandi.
Þessi röksemd átti við hér áður,
þegar lán voru óverðtryggð. Þetta
átti einnig við um alla íslenska fjár-
festingasjóði á þeim tíma s.s. sjóði
sjávarútvegsins. í dag eru lán verð-
tryggð. Launum er haldið niðri hjá
stórum hluta launafólks m.a. af
ríkisvaldinu. Námsfólk er ekki það
skyni skroppið að það sjái ekki fram
á næsta dag og geri sér ekki grein
fyrir greiðslubyrði lána í framtíð-
inni. Það er tilhæfulaus og órök-
studd alhæfing að námsfólk nenni
ekki að vinna á sumrin og taki
heldur lán til að lifa af. Námsmenn
skyldu þá ekki t.d. hafa með öðrum
stofnað félag íslendinga á Norðurl-
öndum, sem telur allt að 8000
manns. Það hefur m.a. að mark-
miði að halda ferðakostnaði til
tslands niðri eftir því sem föng eru
á, svo auðveldara sé að komast
heim til vinnu og í fríum.
„Allt þetta er lánasjóður náms-
manna í núverandi rnynd", segir
menntamálaráðherra. Ég segi:
„Röksemdafærsla ráðherrans er
ekki merkileg þegar hún er skoðuð
nánar."