Morgunblaðið - 11.07.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
hópar eru staðsettir á athafnasvæð-
um íþróttafélaganna og hjálpa til
við umhirðu þeirra og gera út það-
an til nærliggjandi svæða. Líta
vinnuskólamenn á þetta sem hluta
af aðstoð borgarinnar við íþróttafé-
lögin í borginni.
Um borð í gamla varðskipinu
Þór, sem nú er í eigu Slysavamafé-
lagsins og notað við björgunar-
kennslu, er einn hópur. Sér hann
um þrif skipsins og smærra við-
hald, og fær að auki smáfræðslu
um sjóvinnu. í lokin er svo farin
skemmtiferð út á Faxaflóann. í ár
fá hópamir sem em við vinnu í
Heiðmörk að fara um borð í Þór,
en þeir hafa verið í einna einhæf-
ustu störfunum og á afskekktasta
staðnum. Leyndi sér ekki þegar
blm. Morgunblaðsins var þar á ferð
að unglingamir hlökkuðu til til-
breytingarinnar eftir að hafa
gróðursett tré allt sumarið.
Þá em þrír hópar bara í því að
hjálpa ellilífeyrisþegum með um-
hirðu garða þeirra. Er þetta mjög
eftirsótt þjónusta, sem færri fá en
vilja. Að sögn Sigurðar hafa nú um
180 manns beðið um hjálp með
garða sína og er búið að fara í um
90 garða. Mjög er misjafnt hvað
langan tíma tekur að vinna einn
garð. Fer það eftir stærð og ástandi
garðanna. Sumir garðamir em
tveggja daga verk. Það leiðinleg-
asta við þetta er, að alltaf er til
fólk sem misnotar þessa þjónustu,
t.d. ef fleiri en ein íbúð er um garð
og kannski bara ellilífeyrisþegar í
einni, þá panti fólk samt aðstoð.
Þetta er illa séð þar sem ekki geta
allir fengið hjálp sem vilja. Er nú
svo komið að fólk sem hringir er
bara skráð niður, en ekki er hægt
að lofa því hjálp í sumar. Var sleg-
ið á að ef fagmenn væm fengnir
til að taka garðana í gegn eins og
vinnuflokkamir gera myndi það
kosta eigenduma a.m.k. 20.000
krónur, en vinnuskólinn tekur á
bilinu 250 til 1000 krónur fyrir
garðinn.
Alls er gert ráð fyrir að rekstur
vinnuskólans í ár kosti rúmlega 20
milljónir króna. Stærstu útgjaldalið-
imir em eðlilega vinnulaun til
stjómenda, leiðbeinenda og ungl-
inganna. Auk þess em efiiiskostn-
aður og reiknuð afnot af tækjum
sem flest era fengin hjá öðmm
aðiium á vegum borgarinnar en
samt talfy vinnuskólanum til gjalda.
Eins er það með strætisvagnamiða
sem vinnuskólinn lætur unglingun-
um í té ef þeir þurfa að nota
strætisvagna til og frá vinnu. Samt
bera strætisvagnamir engan auka-
kostnað af þessum unglingum.
Vinnuskólinn starfar f júní- og
júlímánuði hvert sumar. Þótt reynt
sé að kenna fólki „rétt“ viðhorf til
vinnu, og hægt sé að reka fólk fyr-
ir slælega frammistöðu leggja
umsjónarmenn skólans áherslu á
að vera sveigjanlegir í viðskiptum
sínum við unglingana og forráða-
menn þeirra. Þannig geta þeir farið
frá í lengri eða skemmri tíma, t.d.
í sumarfrí með fjölskyldum sínum,
og komið aftur. Þá er einnig til að
Nokkrir hópar frá vinnuskólanum eru við vinnu í Heiðmörk. Litlu vélknúnu trogin, eða þjólbörumar, eru mjög vinsæl verkfæri hjá ungl-
ingunum.
Vinnuskóli Reykjavíkur heimsóttur:
„Fólk vanmetur vinnu-
framlag unglinganna“
— segja forráðamenn skólans
í Vinnuskóla Reykjavíkur eru
nú um 1.100 unglingar, sem
starfa i um 60 vinnuhópum á 33
stöðum viðs vegar um borgina,
allt frá Grandagarði upp í Heið-
mörk.
Vinnuskólinn tekur inn öll böm
sem um það sækja og em fædd
árin 1971 og 1972, þ.e. þau sem
vom í 7. og 8. bekk síðastliðinn
vetur. Er tæpur helmingur unglinga
f þessum árgöngum nú f vinnuskól-
anum að sögn Amfinns Jónssonar
skólastjóra. Vinnutfminn er 4 tfmar
á dag hjá yngri árganginum og 8
tímar á dag hjá þeim eldri, og vinna
ungiingamir mest við hreinsun, þrif
og annað sem lýtur að því að halda
borginni hreinni.
Amfinnur Jónsson skólastjóri
sagði að margt fólk hefði of nei-
kvæðar hugmjmdir um vinnuskól-
ann, margir foreldrar litu á hann
sem sfðasta úrræðið fyrir bömin,
en þetta væri ekki rétt. Þetta væri
ekki svo slæmur sumarvinnuval-
kostur fyrir unglingana. Kaupið
hefði hækkað og væri nú kr. 72.30
á tímann hjá yngri árganginum og
kr. 80.80 hjá þeim eldri, og ofan á
það kæmi oft 10% hóp-bónus fyrir
vei unnin störf. Auk launa er svo
reynt að kenna unglingunum já-
kvætt viðhorf til vinnunnar.
Sigurður Lyng yfirkennari vinnu-
skólans tók f sama streng. Hann
sagði að enn væri til fólk sem liti
á þetta sem nokkurs konar atvinnu-
bótavinnu, „eitthvað þurfi þau að
fá að gera, greyin", en þetta fólk
athugi ekki hve gott og þarft starf
þessir unglingar vinni. Borgin hald-
ist ekki hrein og snyrtileg af sjáifu
sér, og sem dæmi um afrakstur af
þessu starfi nefndi hann að árlega
planti vinnuhópar vinnuskólans um
150.000 tijám á Heiðmerkursvæð-
inu og séu þeir í allt búnir að
gróðursetja yfir milljón tré þar. Þá
séu alltaf mun fleiri verkefni fyrir-
liggjandi en hægt sé að anna.
Auk þeirra Amfinns og Sigurðar
hefur Kjartan Gíslason, sem er yfir-
verkstjóri, umsjón með starfi
vinnuskólans. Þetta er fyrsta ár
þeirra allra með vinnuskólann, en
áður sá Hjálmar Guðmundsson um
skólann uns hann hætti vegna ald-
urs. Að auki em leiðbeinendur með
hveijum vinnuhópi. í þeim hópi er
mest um kennara, kennaranema,
námsmenn og íþróttamenn, og em
flestir um og yfir tvítugt. Að sögn
Sigurðar er það mikið undir leið-
beinendunum komið hvemig starfið
gengur.
En vinnuskólinn er ekki bara
vinna. í starfsreglum skólans, sem
borgarstjóm hefur sett honum, er
kveðið á um að félagsstarf og nátt-
úmskoðun skuli stunda í vinnutfm-
anum. Þrír dagar á sumri em teknir
í þetta. Einn í náttúmskoðun, einn
dagur fyrir hvem hóp í félagsstarf,
og svo er einn dagur tekinn í svo-
kallaða hverfíshátíð, þar sem hópar
úr sama hverfi koma saman, halda
grillveislu og skemmta sér. Alls er
borginni skipt í átta hverfi.
En vinnan er náttúrlega aðalat-
riðið. Auk umhirðu skrúðgarða,
gróðurreita og þess háttar em allt-
af hópar í einhveijum sérstökum
verkefnum. Einn hópur leggur til
hjálparkokka á gæsluvelli og starfs-
velli, einn ungling á völl. Annar
hópur hefur unnið að hreinsun og
viðhaldi við skeiðvöll Hestamanna-
félagsins Fáks við mjög góðan
orðstfr, að sögn Sigurðar. Vinnu-
Tfu strákar eru að smíða tvo vinnuskúra undir leiðsögn tveggja alvanra smiða, Odds
Sigfússonar og Guðmundar Gfslasonar. „Þetta er hörku-duglegt fólk og tekur nýög
vel tilsögn,'1 sagði Oddur um unglingana. Hér máta þeir eina hliðina á botnplötuna
undir Jeiðsögn Odds.
Þessi hópur var að snyrta garða fyrir ellilífeyrisþega.
Mornunblaðið/Þorkell