Morgunblaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
23
Víetnam:
Le Duan látinn
Óvíst um eftirmann
Bangkok, AP.
VALDAMESTI leiðtogi í Víet-
nam, Le Duan lést í Hanoi á
fimmtudag, 78 ára að aldri.
Útvarpið í Hanoi skýrði frá þessu
og sagði að hann hefði látist eftir
langvinn veikindi. Ríkisútför er ráð-
gerð.
Le Duan tók við Ho Chi Minh,
þegar Ho lést árið 1969. Le Duan
gegndi embætti aðalritara flokks-
ins, en var aldrei kosinn formaður
hans, en því embætti gegndi Ho
Chi Minh allt til dauðans.
í útsendingu útvarpsins var Le
Duan mærður sem „dyggur læri-
sveinn Ho Chi Minh“ og hann
sagður hafa verið „öflugur baráttu-
maður fyrir þjóðarsjálfstæði, frelsi
og sameiningu [Norður- og Suður-
Víetnam]".
Le Duan fæddist árið 1908 og
varð snemma þekktur sem mikill
kommúnisti, hatrammur andstæð-
ingur frakka og hávær gagnrýnandi
nýlendustefnunnar. Vegna ýmissa
aðgerða var hann dæmdur til fang-
elsisvistar hvað eftir annað og eyddi
rúmlega tíu árum samtals í fangels-
um.
Eftir fengið sjálfstæði reis
stjama hans hratt, og var hann
kjörinn aðalritari flokksins, annað
hvort árið 1959 eða 1960. Á 3.
flokksþingi kommúnista árið 1960,
var það Le Duan sem lagði drögin
að þeirri stefnu, sem lauk með falli
S-Víetnam.
Þrátt fyrir að Le Duan væri allt-
af mikill rússavinur, gerði hann
þeim og öðrum kommúnistaríkjum
ljóst, að Víetnam hefði ekki hrakið
bæði frakka og bandaríkjamenn af
Le Duan, fyrrverandi leiðtogi
Víetnam
skaganum, til þess eins að rússar
kæmu í staðinn.
Að undanfömu gekk Le Duan
ekki heill til skógar og herma ónafn-
greindar heimildir að hann hafí
þjáðst af nýrnasjúkdómi og því oft
verið frá stjómarstörfum um lengri
eða skemmri tíma.
Ekki er enn ljóst hver arftaki Le
Duan verður, en einn helsti vandi
víetnama undanfarin ár, hefur verið
að finna nýja leiðtoga til þess að
taka við af hinum gömlu. Líklegast-
ir þykja þó tveir menn, þeir Truong
Chin, formaður ríkisráðsins, og
Pham Van Dong, forsætisráðherra.
Líbanon:
Líkur á að franskur
gísl verði látinn laus
Beirút, AP.
LÍKUR eru taldar á því að franskur gísl, sem hreyfingin Jihad (Heil-
agt stríð) hefur á valdi sínu, verði leystur úr haldi fljótlega, að því
er dagblaðið Am-Nahar í Líbanon skýrði frá á miðvikudag.
Dagblaðið hafði þessar upplýs-
ingar- eftir háttsettum, ónefndum
stjómarerindreka í Beirút og sagði
hann að Frakkinn, sem er starfs-
maður franska sendiráðsins, yrði
leystur úr haldi jafnvel í næstu viku.
Sendiráðsstarfsmaðurinn, Marcel
Carton, var numinn á brott í vestur-
hluta Beirút þ. 22. mars í fyrra og
sögðust samtök múhameðstrúar-
manna, Heilagt stríð, bera ábyrgð
á brottnámi hans og þriggja ann-
arra Frakka. Þau samtök hafa
einnig sagst bera ábyrgð á brott-
námi fimm Bandaríkjamanna á
Líbanon.
Dagblaðið sagði frá því í síðasta
mánuði að franskir, íranskir og
sýrlenskir embættismenn hefðu set-
ið á leynilegum samningafundum
um tíma, til að fá franska gísla
lausa úr haldi. Heimildamaður
blaðsins sagði á miðvikudaginn að
viðræðumar hefðu verið mjög
árangursríkar undanfarið og af
þeim sökum yrði Carton leystur úr
haldi.
Priðja pósisjón
Jallatte öryggisskórnir eru svo léttir og þægilegir,
að ganga í þeim er sem ánægjulegur dans.
Þeir draga úr þreytu vinnudagsins og auka vellíðan.
Stál í tá er vernd gegn þrýstingi og höggi.
Stálþynna í sóla er vernd gegn nöglum og hvössum hlutum.
JALLATTE ER ALLT SEM ÞARF I
HINN DAGLEGA DANS
Skeifan 3h - Sími 82670
SÝNING
Föstudag kl. 14—21 á Háskólavellinum
v/Hringbraut.
Færanleg áhorfendasæti fyrir
1. Útihátíöahöld
2. Félagsheimili
3. íþróttaleiki úti/inni
4. Leiksýningar o.fl.
PÓSTHÓLF 165 HAMRABORG 1 800 KÓPAVOGUR ÍSLAND