Morgunblaðið - 11.07.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
29
Jafnvel þörf á
að fjölga ferðum
næsta sumar
— segir Lars Larsen hjá Flugfélagi Foroya
um flug Flugleiða til Glasgow frá Færeyjum
“Hingaðtil hefur eftirspurnin verið mjög mikil á ferðum til Glas-
gow frá Færeyjum og nær fullbókað í allar ferðir í sumar“, segir
Lars Larsen hjá Flogfelag Foroya í viðtali við Dagblaðið i Færeyj-
um. “Þetta kemur okkur ekki á óvart. Það hefur lengi verið vitað
að mildl þörf væri á ferðum á þessari leið og nú þurfum við að
ákveða hvort að við þurfum að fjölga ferðum næsta sumar".
“Það verður þó erfíðleikum bund-
Útitónleikar
á Lækjartorgi
ÚTITÓNLEIKAR verða haldnir
á Lækjartorgi í dag, föstudag,
klukkann 12-13:00 og klukkann
15:45-18:00.
Bandaríski söngflokkurinn Cele-
brant Singers hefur tónleikana og
flytur dagskrá milli kl. 12-13:00.
Síðari hluti tónleikana hefst kl.
15:45 með söng Celebrant Singers.
Þá koma fram Guðný, Elísabet Eir
og Magnús Kjartansson, Terry Lee
Jones, Hjalti Gunnlaugsson ásamt
meðsöngvurum.
Vinsældalisti rásar 2:
Bítlavina-
félagið enn
á toppnum
VINSÆLDALISTI Rásar tvö
lítur svona út þessa vikuna.
Staða laga i síðustu viku er
innan sviga.
1. (1) Þrisvar í viku/Bítlavinafé-
lagið.
2. (3) The edge of heaven/
Wham
3. (7) Papa don’t preach/
Madonna
4. (2) RE-SETT-TEN/Danska
fótboltalandsliðið
5. (8) Atlantis is calling, SOS
for love/Modem Talking
6. (6) When tomorrow comes/
Eurythmics
7. (9) Blue/Fine Young Cannib-
als
8. (23) If you were a woman
(and I was a man)/Bonnie Tyler
9- (11) Who’s Johny/El DeBarge
10. (30) Hunting high and low/
A-Ha
ið að fjölga vélum á leiðinni þar sem
þær þyrfti líklegast að taka úr inn-
anlandsflugi Flugleiða á Islandi.
Við vonumst þó til að hægt verði
að fjölga ferðum um eina á viku
næsta sumar“ segir Lars Larsen
ennfremur. Tvær aukaferðir hafa
verið í sumar en þær voru í sam-
bandi við heimsókn fótboltaliðsins
Chelsea til Færeyja.
Það var þann 20. maí s.l. sem
Flugleiðir hófu að nýju flug á milli
Færeyja og Glasgow en sú leið
hafði ekki verið flogin í 15 ár. Flog-
ið er einu sinni í viku í framhaldi
af Færeyjaflugi félagsins og notað-
ar Fokker F27 vélar.
Hjá Flugleiðum fengust þær upp-
lýsingar að þessum ferðum yrði
haldið áfram út sumaráætlun fé-
lagsins eða til ioka október. Ekki
væru uppi áætlanir um að fjölga
flugferðum en líklega myndu þær
heflast fyrr á árínu næsta sumar.
Stuðmenn leggja upp f hina árlegu landsreisu sína nú um helgina og er förinni í fyrsta áfanga
heitið norður í land.
Stuðmenn í ferð um landið
HLJÓMSVEITIN Stuðmenn, sem meðal annars er þekkt fyrir
vandaðan söng og hljóðfæraslátt hér heima og erlendis, leggur
upp í nokkuð óvenjulegt ferðalag nú um helgina. Auk þess að
ferðast um landið með viðkomu f flestum kjördæmum, er ætlun-
in að staldra við f samkomuhúsum og slá upp söngskemmtunum.
Stuðmenn hafa nýlega snúið um 11. júlf, í Miðgarði 12. júlí, á
heim úr hliðstæðu ferðalagi um
Rauða Kfna, sem mæltist vel fyr-
ir og var húsfyllir á hverjum stað.
Stuðmenn munu byija ferð sína
um landið á Norðurlandi, á Laug-
Akureyri 13. júlí og í Grímsey 15.
júlí, en ferðin til Grímseyjar mark-
ar tímamót í sögu Stuðmanna.
Förinni verður síðan heitið austur
um land og því næst á Vestfirði,
á þjóðhátíð í Eyjum um verslunar-
mannahelgina og lýkur ferðinni á
Logalandi í Borgarfirði 9. ágúst.
Á söngskemmtununum munu
Stuðmenn flytja blöndu af nýju
og eldra efni, en uppistaða efnis-
skrárinnar er sú sama og var í
Kínaferðinni.
(Fréttatilkynning.)
Islenskum loðnuskipum leyft
að landa í Noregi 1. ágúst
NORSKA sjávarútvegráðuney-
tið hefur tilkynnt að frá og með
1. ágúst n.k. verði íslenskum
skipum leyft að landa loðnu-
förmum sínum í Noregi.
Astæðan fyrir þessu er hráefnis-
skortur sem hefur hijáð loðnu-
bræðsluverksmiðjumar í
norður-Noregi og var því ráðuneyt-
ið beðið um að gera íslenskum
skipum mögulegt að selja afla sinn
í þær.. Svipað átti sér stað í fyrra
en þá fengu íslensk skip í fyrsta
sinn að landa í Noregi.
“Við erum að athuga núna
hvaða verð Norðmennimir em til-
búnir að greiða okkur fyrir loðn-
una“, sagði Krislján Ragnarsson
formaður LIÚ við Morgunblaðið.
“Fyrsti fundurinn í verðlagsráði
um nýtt loðnuverð fyrir næstu
„Eigum alveg eins erindi
suður eins og norður“
— segir Páll Pétursson, f ormaður þing-
flokks Framsóknarflokksins
„Ég er mjög hlessa yfir þess-
ari niðurstöðu og tek undir þau
orð Geirs Gunnarssonar að ef
menn ekki treysta sér til að
flytja Byggðastofnun út á land
hvaða stofnun á þá að flytja,“
sagði Ragnar Arnalds, þing-
flokksformaður Alþýðubanda-
lagsins, þegar hann var inntur
álits á þeirri ákvörðun stjórnar
Byggðastofnunar að fella til-
lögu um að stofnunin skyldi
flutt frá Reykjavík til Akur-
eyrar.
Kvað Ragnar það mjög geta
dregið úr tiltrú manna á að hægt
væri að flytja starfsemi og stofn-
anir út á landsbyggðina og sagði
nær öllum stofnunum hafa verið
safnað saman í Reykjavík. „Ég
tel það afar brýnt að reynt verði
að dreifa ýmsum stjómunarstofn-
unum um landið og vona að þetta
kjarkleysi stjómarinnar eigi ekki
eftir að draga úr mönnum," sagði
Ragnar.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins,
sagði að einfaldara væri að tala
en að framkvæma. „Hef ég ekk-
ert við þessa samþykkt að athuga
og fellst á niðurstöðu meirihlut-
ans. Af okkur í norðurlandskjör-
dæmi vestra er það að segja að
við eigum alveg eins erindi suður
eins og norður og ég held að það
sé erfítt um vik að hafa Byggða-
stofnun annarsstaðar en hún er,“
sagði Páll Pétursson.
Eiður Guðnason, Alþýðuflokki,
sagðist halda að með þessarí
ákvörðun hefðu menn horfst í
augu við þá staðreynd að auðveld-
ara væri um að tala en í að
komast þegar um það væri að
ræða að flytja heilar stofnanir.
Vísaði hann til reynslu á Norður-
löndum þar sem reynt hefur verið
að flytja stofnanir út á lands-
byggðina en gefist ílla. „En
auðvitað á að kappkosta að veita
landsbyggðinni jafiigóða þjónustu
og höfuðborgarsvæðinu og það
er til dæmis hægt með því að
setja á stofn umboðsskrifstofur
eða nokkurs konar útibú um
landið,“ sagði Eiður. Sagði hann
það jafnframt staðreynd að hefði
verið ákveðið að flytja Byggða-
stofnun til Akureyrar hefði það
orðið til að veita Eyfirðingum
betri þjónustu en öðrum verri.
„Ég skil þessa ákvörðun í raun
og veru mjög vel,“ sagði Stefán
Benediktsson, Bandalagi jafnað-
armanna, aðspurður um skoðun
sína á þessari samþykkt. „Hún
er viðurkenning á þvi að við búum
í miðstýrðu þjóðfélagi þar sem
ekki þýðir að flytja svona stofnan-
ir í sundur. Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að það megi
dreifa Byggðastofnun, og er það
eiginlega brýn nauðsyn ef forða
á sumum hinna dreifðu byggða
landsins frá því að leggjast í eyði.
Það mætti koma upp þróunar-
stofnunum í landshlutum sem
væru mannaðar af heimamönnum
sem tækju að sér rannsóknir og
framkvæmdir á þróunarverkefn-
um og þá yrði Byggðastofnun
ráðgefandi og samræmingarað-
ili,“ sagði Stefán Benediktsson að
lokum.
Ekki tókst Morgunblaðinu að
ná í Sigríði Dúnu Kristmunds-
dóttur, formann þingflokks
Kvennalistans, til að tjá sig um
málið.
vertíð verður nú á mánudaginn og
við höfum verið að leitast eftir því
hvaða verð við getum búist við að
fá í Danmörku og Færeyjum".
“Það er sem sagt ekkert því til
fyrirstöðu að við löndum þama en
hversu mikið verður af því ræðst
af samanburði á verði og siglingar-
lengd. Það er engin bfyn þörf á
því að landa í Noregi, það ræðst
bara af því hversu hagstætt það
verður".
Jón Reynir Magnússon formað-
ur samtaka fiskimjölsframleiðenda
sagði lítið sem ekkert vera hægt
að segja um þessa ákvörðun norska
sjávarútvegsráðuneytisins að r.vo
stöddu. Hann sagðist ekki búast
við því að norsku verskmiðjumar
gætu boðið eitthvað mikið hærra
verð en þær íslensku vegna jjess
hversu lágt afurðaverðið væri.
Þetta væri þó allt óljóst ennþá þar
sem ekki væri vitað hversu mikið
yrði veitt, hversu hátt verð við
myndum fá bæði hér heima og
erlendis.
Hafísinn
berst inn
Húnaflóa
HAFÍS berst hægt inn Húnaflóa
að sögn Landhelgisgæslunnar.
ísinn er laus í sér næst landi og
bráðnar nokkuð ört, þar sem loft-
hiti er tiltölulega hár og sjórinn
sæmilega hlýr, að sögn Veður-
stofunnar.
Besta siglingaleið virðist vera frá
Homi, innan við Óðinsboða og inn-
undir Amdrupsboða og þaðan á
Skaga. Fyrir minni báta er þó æski-
legt að fara innan við Óðinsboða,
suðurundir Gjögur og þar yfír fló-
ann.
Að sögn Veðurstofunnar verður
vindátt tiltölulega hagstæð um
helgina, suðlæg, en hæg.