Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
3
Landsmót skáta:
Pósthús
í Viðey
SÉRSTAKT pósthús verður starf-
rækt f Viðey á meðan á 19. lands-
m&ti skáta stendur yfir þar daguna
27. júlí til 3. ágúst og verður sér-
stakur dagstimpill f notkun þá.
Starfsmenn póststofunnar í Reykjavík
sjá um afgreiðsluna og verður öll al-
menn póstþjónusta í gangi á meðan
á mótinu stendur. Opið verður sunnu-
daginn 27. júlí kl. 15.00 til 17.00,
mánudag til föstudags kl. 12.00 til
14.00, laugardag 2. ágúst kl. 12.00
til 17.00 og á lokadegi mótsins sunnu-
daginn 3. ágúst verður opið kl. 10.00
til 12.00.
Að sögn Jóhanns Hjálmarssonar,
blaðafulltrúa Pósts og síma, óskuðu
skátar eftir póstþjónustu á meðan á
landsmótinu stæði þar sem búist er
við allt að 800 þátttakendum frá
ýmsum löndum og jafnvel fleiri gest-
um. Þá hefur slíkur póststimpill gildi
fyrir safnara.
Þess má svo til gamans geta fyrir
þá sem senda vilja mótsgestum í Við-
ey bréf eða pakka, þá er póstnúmerið
þar 150, hið sama og stjómarráðið
hefur og stofnanir tengdar því.
HorgunblaðiA/Bjami
Norræna húsið:
Kynna f iðlusmíði
og leika sænska
alþýðutónlist
í NORRÆNA húsinu stendur
nú yfir sýning á Ijósmyndum
sem sýna smfði á strengjahljóð-
færum. Á sunnudaginn ætla
síðan tveir Sviar sem hafa sett
sýninguna upp, Astrid Pullar
og Rickard Naslin, að ræða um
sýninguna, sýna litskyggnur af
fiðlusmiði og leika sænska al-
þýðutónlist.
Astrid er einn 11 Norður-
landabúa sem nýlega hafa lokið
Qögurra ára námi í smíði og við-
Astrid Pullar og Rick-
ard Naslin við tvær
fiðlur sem Astrid hefur
smiðað og eru til sýnis
í Norræna húsinu.
gerðum á strengjahljóðfærum í
skóla sem stofnaður var í Svíþjóð
árið 1982.
Að sögn hennar er mikið að
gera í viðgerðum á hljóðfærum
og munu fleiri hefja nám við skól-
ann í haust en þetta er eini skólinn
sinnar tegundar á Norðuriöndun-
um.
Rickard hefur gert mikið af því
að leika sænska alþýðutónlist og
kynna sér sögu hennar.
Saman ætla þau að leika
sænska alþýðutónlist, ræða um
hljóðfærasmíði og sýna litskyggn-
ur sem sýna hvemig fiðlur eru
smíðaðar á sunnudaginn frá kl.
15 til 17.
Bárujárnshúsið
við Bergþórugötu
verður barnaheim-
ili næstu 5 árin
SAMÞYKKT var á borgarráðs-
fundi á þriðjudag að lána baraa-
heimilinu Os gamla húsið við
Berþórugötu 20 næstu 5 árin.
Barnaheimilið var áður til húsa við
Bergstaðastræti, en hefur misst
húsnæði sitt þar.
Eins og menn rekur kannski minni
til komst bárujámshúsið við Berg-
þórugötu 20 í fréttimar í kringum
síðustu áramót þegar hugmyndir vom
uppi á vegum borgarinnar um að rífa
það. Tryggvi Þór Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu komst á snoðir um
að húsið hefði sögulegt gildi og hvatti
menn til að flýta sér hægt við að
ákveða örlög þess. Húsið, sem er frá
1920, er eitt af þremur fyrstu verka-
mannabústöðunum. All miklar
umræður spunnust um málið og fór
svo að borgin bauð Aiþýðusambandi
íslands húsið óformlega til eignar.
Alþýðusambandið taldi sig ekki hafa
bolmagn til að gera húsið upp, og
afþakkaði boðið. Húsið er því enn (
eigu borgarinnar og verður að
minnsta kosti ekki rifíð næstu fímm
árin.
Leigubílstjórar:
Hækkanir í vet-
ur vega upp
verðbreytingar
að sögn verðlagsstjóra
FORMAÐUR Félags leigubflstjóra
átti fund á þriðjudag með verðlags-
stjóra vegna taxtahækkana sem
félaginu var synjað um i slðustu
viku. „Leigubflstjórar sætta sig
ekki við ákvörðun okkar. Hinsveg-
ar kemur i ijós að þær hækkanir
sem þeir hafa fengið i vetur, vega
alveg upp verðbreytingar frá þvi
í október á síðasta ári i júnimán-
uð,“ sagði Georg Ólafsson verð-
lagsstjori eftir fundinn. „Um þessi
atriði er enginn ágreiningur.
Taxtahækkun kemur ekki til
greina að svo komnu máli.“
Meðal þeirra atriða sem leigubíl-
stjórar telja að réttlæti hækkun á
töxtum þeirra er stækkun gjaldsvæð-
isins í Reykjavík. Einnig telja þeir að
tollalækkanir hafí rýrt fjárfestingu (
bílum þeirra. „Við ætlum að taka
þessar forsendur til athugunar. En
ég býst ekki við að neitt gerist (
máiinu fyrr en í haust," sagði Georg
Ólafsson.
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
HAGKAUP
REYKJAVIK AKUREYRI NJARÐVIK
Póstverslun: Sími 91-30980