Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 21

Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 21 Gata í Colon. Þetta var einu sinni gott hverfi, en hitinn og rakinn valda þvi að húsin láta fljótt á sjá ef þeim er ekki haldið við. Nú er þetta fátækrahverfi, þar sem fólk býr í hveiju skoti þótt hús- næðið sé talið heilsuspillandi og eigi að rífa það. Myndin er tekin frá bækistöð Hjálpræðishersins sem er eitt fárra húsa sem er hald- ið við. indjána og svertingja. Það eru tvennskonar svertingjar í landinu. Sumir tala spænsku að móðurmáli, en aðrir svertingjar eru upprunnir á eyjunum í Vestur-Indíum, og tala margir ensku enn. Þeir voru fluttir inn sem vinnuafl þegar skurðurinn var grafinn. Einnig eru í landinu Kínveijar, sem hafa komið sér ágætlega fyrir í atvinnulífí og verslun. Gætti nokk- urrar andúðar gegn þeim í tengslum við verkfoll í fyrra, en ég held að það risti ekki mjög djúpt. Annars eiga gyðingar stærstu verslunina í landinu. Ég komst að því þannig að einn daginn var lokað án neinn- ar augljósrar ástæðu, en það reyndist vera einn helgidagur gyð- inga. Indjánar eru flestir til sveita þar sem þeir yrkja jörðina. Enn eru til indjánar sem ekki tala spænsku, á afskekktustu stöðunum. Maður varð ekki var við annað en að böm- unum kæmi mjög vel saman þótt þau væru af öllum litum. Þó varð maður var við að hvítir líta svolítið niður á svarta, og svartir voru svolítið á varðbergi gegn hvítum til að byija með. Þá varð maður var við að sumir indjánar skammast sín fyrir uppruna sinn. Fólkið er ekki svo ólíkt fólki hér á landi eða í Noregi. Þetta er samt önnur menning þarna og maður þarf að venjast því. Norsk böm voru t.d. mun opnari og sannsög- ulli en bömin í Panama. Það voru helst indjánabörnin sem maður gat treyst. Þau vom meiri sveitamenn. Götubömunum úr bæjunum vissi maður aldrei hvenær maður gat trúað og hvenær ekki. Svo er allt annar bragur á lífínu þama, minna stress. Ekki að menn séu latir, heldur er það enginn heil- vita maður sem vinnur um miðjan daginn þegar hitinn er mestur. Það er bjart u.þ.b. 12 tíma á sólarhring og myrkur hina 12. Rafmagn er mjög dýrt, kannski vegna þess hve miklu er stolið. í bæjunum fara menn bara og tengja við næsta staur og leiða inn hjá sér rafmagn. Það er soldið skrítið að sjá sjón- varpsloftnet standa upp úr hreysa- þyrpingunum, en sjónvarpið gengur þama frá morgni til kvölds. Það er allt á spænsku og er talað inn á myndimar. Er það kannski af því að fjöldi fólks er ólæs og því kæmi texti ekki að neinu gagni. En þetta er líka af því að stjómin reynir að vinna gegn áhrifum ensk- unnar. Bandaríkjamenn ráða Panamaskurðinum til ársins 2000 og hefur oft komið fram nokkur andúð í þeirra garð. Efnið er mest suður-amerískar sápuóperur, svo- Útsýni frá efri hæðinni á barnaheimil- inu. Þarna er strjál ibúðar- byggð og tré og tré á stangli, en hinum megin við húsið er skammt í þétt- an hitabeltis- regnskóginn. kallaðar „novelas". Þær eru sumar ágætar. Það er framhaldsmynd á hveijum klukkutíma. Við reynum að takmarka sjón- varpsglápið við helgarnar. Efnið er frekar léttmeti, skemmtiefni og glæpamyndir. Það eru teiknimyndir fyrir bömin, en það er lítið um fræð- andi efni. Þó er farið að sýna fræðslumyndir sem vara ungmenni við eiturlyfjum. Annars em auglýs- ingamar verstar. Þeir setja búta úr því efni sem á að fara að sýna inn í dagskrána hér og þar, og þetta eru oftast svæsnustu atriðin. Það er mjög erfítt að veija bömin fyrir þessu.“ Miriam Óskarsdóttir er nú stödd hér á landi í leyfí. Hún fær tveggja mánaða leyfi á tveggja ára fresti. Hún kom áþing hjálpræðishersins í Noregi, á Islandi og í Færeyjum, sem var haldið í Noregi, í júní. Héðan fer hún fyrst til Noregs til samkomuhalds. Að því búnu mun hún fara aftur til bamanna í Pan- ama og dvelst þar í önnur tvö ár. AUK hf. 43.87 Öryggislykill á sparifjáreigenda V/€RZLUNRRBRNKINN -immhwi með fún- f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.