Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 25
Þessi mynd er táknræn fyrir
þröngar hellulagðar göturnar í
Nessebur.
inni er lokið. Á Sunny Beach er
mikið úrval veitingastaða, uppi í
hæðunum fyrir ofan Sunny Beach,
inn á milli fargurgrænna tijálunda,
má finna veitingastaði, sem bjóða
upp á hefðbundna þjóðarrétti Búlg-
aríu, sem margir hveijir bragðast
afbragðsvel (fólk ætti a.m.k. til að
byija með að vara sig á því hversu
mikla olíu Búlgarar nota við matar-
gerð sína) og síðar um kvöldið eru
sýnd hefðbundin búlgörsk skemmti-
prógrömm, svo sem þjóðdansar,
söngvar og þess háttar. Getur verið
alveg ljómandi skemmtun eina
kvöldstund. Það fannst mér einnig
skemmtilegt við svona skemmti-
kvöld, að fjölmargir ferðamenn sem
sóttu þau tóku börnin með, böm á
öllum aldri, og þegar skemmtuninni
var lokið var leikið fyrir dansi, og
þyrptust heilu fjölskyldumar upp á
útidanspalla og stigu dansinn sam-
an.
Nessebur — lif-
andi safngripur
Nessebur heitir lítið þorp sem
liggur um 3 kílómetra sunnan við
Sunny Beach, þannig að þetta er
upplagður heimsóknarstaður fyrir
gesti Elenite og Sunny Beach. Það
sem gerir það að verkum að þorpið
er heimsóknarinnar virði, er að
þetta er eiginlega lifandi safngrip-
ur. í Nessebur em rústir meira en
40 kirkna frá miðöldum, margar
hveijar afar fallegar, með fagurlega
skreyttum framhliðum, útskurði og
litríkum veggskreytingum innan-
dyra. Þessar kirkjur eða kirkjurústir
standa við þröngar hellulagðar göt-
ur á milli venjulegra íbúðarhúsa,
sem sum hver slúta vel yfír stræt-
in. Það sem gerir það að verkum
að ég segi þorpið vera lifandi safn-
grip, er að venjulegir Búlgarar búa
í þessu þorpi og stunda sín daglegu
störf. Felstir íbúanna em fískimenn.
En þorpið er varðveitt og virðast
ibúamir vera reiðubúnir til þess að
taka höndum saman við UNESCO
um vemdun og varðveislu þessa
þorps en UNESCO hefur einmitt
úrskurðað að þorpið skuli varðveitt
sem menningarlegur arfur frá mið-
öldum.
Gullni sandur — enn
ein barnaparadísin
Enn eina sólarströndina skoðuð-
um við, en það var Golden Sands
(Gullni sandur — mér fínnst eintal-
an hæfa betur í þessu tilviki) sem
er afskaplega nýtískulegur sólar-
baðstaður um 17 kílómetra norður
af Vama. Ströndin er einkar falleg
þarna, sandamir rennisléttir, sand-
ræman um 100 metrar á breidd og
4 kílómetrar á lengd, sjórinn himin-
blár, og skógamir fagurgrænir og
ná alveg niður að strandlengjunni.
Enda segja Búlgarar um þessa
strönd, að hún sé ströndin þar sem
sjór og skógar mætast. Það er sömu
söguna að segja af Gullna sandi og
öðmm baðstrandarbæjum sem við
skoðuðum — mjög mikið er lagt upp
úr því að bjóða börnum upp á sem
mesta skemmtun og athafnasemi.
Mér sýnist því að þeir sem vilja
fá sólríkt og notalegt sumarfrí og
gefa börnunum tækifæri til mikillar
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
skemmtunar, gætu fundið ýmislegt
við sitt hæfí á þeim sólarströndum
sem við skoðuðum við Svarta hafíð,
en þeir sem vilja heldur fjörlegra
sumarfrí, ættu að leita á önnur mið.
Það er nú eiginlega skylda mín
svona í lokin að geta þess að Búlg-
aramir virðast mér vera afar
gestrisið og hjartahlýtt fólk. Þeir
eru fúsir að segja ferðamönnum til
vegar — tala gjaman þýsku og/eða
ensku, og taka manni af elskuleg-
heitum, þegar til þeirra er leitað.
Það getur verið „praktísk" ábend-
ing til þeirra sem einhvem tíma
eiga leið til Búlgaríu, að á götu úti
í Búlgaríu getur venjulegur ferða-
maður fengið æði vel borgað fyrir
bandarísku dollarana sína eða
bresku pundin, eða allt að fjórfalt
gangverð. Það er svo náttúrlega
undir hveijum og einum komið
hvort hann þorir eða vill notfæra
sér slíka möguleika. Mikill gjaldeyr- Á Gullna sandi er mikið um dýrðir þjá börnunum. Hér er eitt sýnis-
isskortur er í Búlgaríu og fínnur horn — risavaxin vatnsrennibraut.
almenningur. einna harðast fyrir því
þótt ekki séu lagðar algjörar höml-
ur á ferðir manna til annarra landa
frá Búlgaríu, þeir mega fara á
tveggja ára fresti, en þá fá þeir
einungis að taka með sér takmark-
aða upphæð gjaldeyris, og búlg-
arska gjaldmiðilinn leva má enginn
fara með úr landi. Dollarar eru því
gullsígildi í Búgaríu, auk þess sem
þeir opna Búlgömm leið til þess að
versla í dollarabúðunum, þar sem
vömúrval er mun glæstara en geng-
ur og gerist í venjulegu búlgörsku
kaupfélagi. Mér fínnst því ekkert
mæla á móti því að maður selji
Búlgömm á götu úti nokkra doll-
ara, þótt óþarfí sé að okra í dollara-
viðskiptunum. Að vísu er mér skylt
að geta þess að slík viðskipti em
ólögleg, og heyra undir svartamark-
aðsbrask, þannig að hver og einn
sem ákveður að fara út í slík við-
skipti gerir það að sjálfsögðu á eigin
ábyrgð.
eftir Ágúst H. Bjarnason
meö litmyndum eftir Eggert Pétursson
Nýr einfaldur leiöbeiningalykill
Nú þarftu ekki lengur að vera í vafa um hvaða jurtir verða á vegiþínum, ef
ÍSLENSK FLÓRA er ífarangrinum. ÍSLENSK FLÓRA geymir uþþlýsingar um
vaxtarstaði og útbreiðslu þlantnanna, blómgunartíma þeirra, lœkningamátt og
margt fleira.
íslensk Flóra í litum á erindi inn á öll íslensk
heimili.