Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
Olvaðir ökumenn skyld-
aðir til að bæta af eigin
fé tjón sem þeir valda
- „Skiptir oft hundruðum þúsunda,“
segir formaður endurkröfunefndar
Morgunblaðið/Helena
Fulltrúar pólsku skipasmíðastöðvarinnar, sem breyta mun „Japanstogurunum“, skoðuðu þá fyrir nokkr-
um dögum. Hér eru þeir á Fáskrúðsfirði ásamt Steinari Viggóssyni frá Ráðgarði og Eiríki Ólafssyni
útgerðarstjóra Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar.
Samið um breytingar á „Japanstogurunum“:
Kostnaður á hvert
skip um 90 milljónir
Breytingarnar lengja endingartíma skipanna um 12 til 14 ár
ÞESSA dagana er verið að
ganga frá endanlegnm samn-
ingum við Pólveija um breyt-
ingar og endurbyggingu á 6
íslenzkum togurum, sem á ár-
unum 1972 og 1973 voru
keyptir hingað frá Japan
ásamt 4 öðrum togurum.
Breytingarnar kosta með öll-
um búnaði 90 til 100 milljónir
króna á hvert skip. Þetta er
stærsta tilboð í íslenzkum sjáv-
arútvegi, sem varðar breyting
ar og lagfæringar á skipuni.
Breytingarnar auka ending-
artíma skipanna um 12 til 14
ár og minnka olíueyðslu um
25%.
Allur vélbúnaður í skipin er
keyptur frá Japan og Vesturlöndum
og kostar hann um 50 milljónir
króna. Breytingamar á skipunum
og lagfæringar eru í meginatriðum
eins, en hvert skip þó með ein-
hverjar sérþarfír. Að meðaltali er
kostnaðurinn við verkið í Póllandi
40 milljónir króna á hvert skip.
Á mánudag var gengið frá undir-
skrift vegna Hoffellsins frá Fá-
skrúðsfirði og fer það fyrst utan til
breytinga, sem eiga að heQast 28.
október. Samningar um tvö önnur
skip voru undirskrifaðir á þriðjudag
og reiknað er með fleiri undirskrift-
um næstu daga. Reiknað er með
að vinna við hvert skipanna taki
ekki meira en fjóra mánuði og á
þeim öllum að vera lokið fyrir árs-
lok 1987. Þau munu fara utan til
Póllands í eftirtaldri röð: Hoffell,
Ólafur bekkur, Vestmannaey,
Brettingur, Páll Pálsson og Ljósa-
fell. Hinir japönsku togaramir eru
Amar, Bjartur, Drangey og Rauði-
núpur.
Bolli Magnússon, skipaverkfræð-
ingur hjá Ráðgarði, hefur haft veg
og vanda af undirbúningi þessara
samninga. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið, að menn væru sam-
mála um það, að eftir breytinguna
lengdist endingartími skipanna um
12 til 14 ár og mætti því nánast
telja þau ný, en ný sambærileg
skip kostuðu í kringum 200 milljón-
ir. Þar að auki myndi olíunotkun
minnka um 25%, þannig að þetta
hlýti að teljast góður kostur.
Breytingamar á skipunum em
fjármagnaðar með lánum frá jap-
önskum seljendum véla í skipin,
láni frá Fiskveiðasjóði og eigin
framlagi útgerða skipanna, 10 til
15 milljónum króna.
TRYGGINGAFELOG hafa rétt
til þess samkvæmt umferðar-
lögum að endurkrefja fólk um
greiðslu vegna tjóns sem það
veldur af ásetningi eða af stór-
kostlegu gáleysi og eru allt að
200 manns krafðir slíkrar end-
urgreiðslu árlega. Stærstur
hluti þessa fólks eru ökumenn
sem valdið hafa tjóninu undir
áhrifum áfengis og skipta kröf-
urnar hundruðum þúsunda
króna.
Egill Sigurgeirsson, hæstaréttar-
lögmaður, er formaður endurkröfu-
nefndar tryggingafélaganna. Hann
sagði að það sem af væri þessu ári
hefðu 100 manns þurft að endur-
greiða tryggingafélögum bætur
fyrir tjón er þeir hefðu valdið. „Yfír-
leitt endurkrefjum við um 100-200
manns á ári hveiju og þessar kröf-
ur eru oftast mjög háar", sagði
Egill. „Það er ekki óalgengt að fólk
þurfi að greiða um 400 þúsund
krónur, en við höfum að vísu heim-
ild til að lækka kröfur ef aldur og
aðstæður fólks gefa tilefni til.
Stærstur hluti þeirra sem verða að
endurgreiða eru ökumenn sem vald-
ið hafa tjóni undir áhrifum áfengis
og þótt við viljum ekki koma þessu
fólki á vonarvöl þá er auðvitað ljóst
að það er engin afsökun að tjóni
hafi verið valdið í áfengisvímu. Það
virðist sem fólk skilji ekki að það
stofnar sjálfu sér og öðrum í
Iífshættu með ótrúlegum glanna-
skap í umferðinni," sagði Egill
Sigurgeirsson.
Baldvin Ottósson, varðstjóri í
Reykjavíkurlögreglunni, sagði að
það sem af væri þessu ári hefðu
540 ökumenn verið teknir í
Reykjavík vegna gruns um ölvun
við akstur. Af þessum hefðu 14%
reynst undir marki og hlytu ekki
refsingu, 32% hefðu reynst hafa
allt frá 0,60-1,20 prómill í blóði
sínu og 53% hefðu verið fyrir ofan
efri mörk, eða 1,20 prómill. „Þegar
svo mikið áfengismagn mælist í
blóði er ökumaður aldrei sviptur
ökuréttindum skemur en eitt ár,“
sagði Baldvin. „Þá er vert að geta
þess að ef um ítrekun er að ræða,
þ.e. ökumaður er tekinn ölvaður
undir stýri tvisvar sinnum eða oftar
á fimm ára tímabili, þá missir hann
ökuréttindi ævilangt."
Baldvin sagði að á síðasta ári
hefðu 2.481 verið teknir fyrir ölvun
við akstur á landinu öllu, þar af
um 1.000 í Reykjavík og hefðu 252
þeirra átt aðild að slysi, þar af um
100 í Reykjavík. „Tryggingafélögin
kreQa ökumenn um endurgreiðslu
bóta í auknum mæli og fólk virðist
ekki gera sér grein fyrir hve erfíður
ij'árhagslegur baggi þetta getur
orðið," sagði hann. „Við í lögregl-
unni erum þó ánægðir með það hve
margir nást áður en þeir valda
tjóni, því þegar rúmlega 500 manns
eru teknir árlega í Reykjavík í al-
gjörlega óökuhæfu ástandi, eða
með yfir 1,20 prómill í blóðinu, þá
telst gott að aðeins fimmtungur
þeirra veldur tjóni. Þetta hlutfall
er mun hagstæðara en á hinum
Norðurlöndunum og við þökkum
það virku eftirliti. Sem betur fer
tekur fólk í flestum tilvikum vel í
það að vera stöðvað þegar lögreglan
er með eftirlit og samstarf okkar
við almenning er gott. En við meg-
um aldrei sofna á verðinum," sagði
Baldvin Ottósson, varðstjóri, að lok-
INNLENT
15 af hverjum 10 þúsund látast
af völdum aukaverkana lyfja
SAMKVÆMT íslenskum rann-
sóknum á tveimur sjúkrahúsum
á landinu deyr 0,15% þess fólks
sem notar lyf samkvæmt læknis-
ráði af völdum aukaverkana, eða
15 af hveijum 10 þúsund. Könn-
unin sýnir að 7,2% fólks fær
aukaverkanir af völdum lyfja og
i 1,5% tilfella eru aukaverkanir
orsakir innlagna eða framleng-
ingar dvalar á sjúkrahúsi.
Áætlaður fjöldi innlagna á lyf-
læknisdeildir í ár er um 8.000. Sé
gengið út frá því að niðurstöður
rannsóknanna hafi forsagnargildi
má gera ráð fyrir að allt að 12
manns úr þessum hópi látist af
völdum aukaverkana Iyfja. Enn-
fremur að uppundir 600 manns
komi til með að þjást af þessum
sökum og sjúkrahússdvöl allt að
100 framlengjast verulega.
Þetta kemur fram í grein eftir
Ólaf Ólafsson landlækni í júníhefti
Læknablaðsins. Ólafur rekur laus-
lega þær tvær athuganir sem fram
hafa farið fyrir tilstilli Landlæknis-
embættisins á tíðni aukaverkana.
Sú fyrri var gerð á lyflækninga-
deild Sjúkrahúss Akraness á
árunum 1974-79, en sú síðari á
lyflækningadeild Landspítalans ár-
in 1983-4. Alls náðu kannanimar
Ertu með verki í bakinu ?
Það er óþarfi!
CLAIROL heilsupúðinn eyðir bakverknum
á þægilegan hátt.
CLAIROLheilsupúðann geturðu notað
hvar sem er, í vinnunni, í bflnum, á
ferðalagi eða heima.
Með 10 mín. notkun í hvert sinn endist
rafhlaðan í 150 skipti.
CLAIROL heilsupúðinn mýkir stirða vöðva
og liðamót og örvar blóðrásina.
VI91DKUM VEL Á MÓTIÞÉR
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
til 3.466 innlagna. Aukaverkanir
reyndust 317, eða 9,1%, fjöldi ein-
staklinga með aukaverkanir var
253, eða 7,2%, aukaverkanir vom
í 51 tilfelli orsök innlagna, eða
1,5%, og 5 úr þessum hópi létust
af vöidum aukaverkana, eða 0,15%.
Meðal lyfja sem oft valda auka-
verkunum em: sýklalyf, joðlyf,
geðlyf, hjartalyf, þvagfæralyf,
hormónalyf og öndunarfæralyf. Öl-
afur Ólafsson sagði í samtali við
Morgunblaðið 'að sýklalyfin væm
sýnu varasömust og bæri læknum
nauðsyn á að gæta hófs við ávísun
þeirra. Einkum bæri að varast að
gefa fólki með veimsýkingar sýkla-
iyf, því þau væm gagnslaus gegn
þeim. Hættan sem af sýklalyfjum
stafar er einkum fólgin í ofnæmis-
viðbrögðum, en einnig geta þau
valdið bólgum, útbrotum og ógleði.
Ólafur sagði að ekkert lyf sem
framleitt væri í heiminum væri án
aukaverkana. „En það er hægt að
draga stórlega úr hættunni á auka-
verkunum með því að gæta íhalds-
semi við ávísun sumra lyfja. Með
því er ekki aðeins hægt að koma í
veg fyrir þjáningar og ótímabæran
dauða, heldur einnig spara stórar
upphæðir," sagði Ólafur og nefndi
sem dæmi að kostnaður lyflæknis-
deilda landsins vegna aukaverkana
lyfja gæti numið 15-17 milljónum
króna á þessu ári.