Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 29

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 29 Nýjar upplýsingar um morðingja Palme? 145 lögreglumenn í fullu starfi við að leysa málið Stokkhólmi. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, E. Liden. SÆNSKA lögreglan er sögð hafa komizt á sporið varðandi nýjar upplýsingar um það, hverjir stóðu að baki morðinu á Olof Palme, forsætisráðherra og á miðvikudag komst á kreik hávær orðrómur um, að útlend hryðju- verkasamtök lægju undir grun en nokkrir sænskir öfgahópar voru einnig nefndir í sömu and- ránni. í sumar vinna 145 lögreglumenn alfarið að lausn morðmálsins. Þeir taka sér ekki sumarfrí að svo komnu í von um, að takast megi með þrotlausu starfi að leysa málið og með því komizt þeir í frí í haust í staðinn. Sænska lögreglan hefur ekki al- gerlega gefið upp á bátinn 33 ára gamlan mann, sem grunur beindist að í marz sl., en rannsókn hennar nú beinist þó meira að kunningja- hópi hans en honum sjálfum. Haft er eftir áreiðanlegum heim- ildum innan lögreglunnar, að fylgzt sé dag og nótt með ferðum sumra þeirra, sem liggja undir grun, bæði í Svíþjóð og erlendis. Hveijir þessir menn eru, er hins vegar algert leyndarmál. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadollar styrktist gagnvart gjaldmiðlum Evrópu um miðjan daginn í gær, eftir að hafa fallið í verði fyrr um daginn. Gull lækkaði í verði. Gengi dollarsins var annars á þann veg að fyrir hann feng- ust 2,1405 vestur-þýsk mörk (2,1350), 1,7320 svissneskir frankar (1,7285), 6,9225 franskir frankar (6,9050), 2,4100 hollensk gyllini (2,4080), 1.474,50 ítalskar lírur (1.465,00), 1,3895 kanadískir dollarar (1,3812) og 157,50 jap- önsk yen (155,30). Sterlings- pundið kostaði í gær 1,48 dollara en kostaði á þriðjudag- inn 1,4910. Gullúnsan kostaði 347,75 dollara, en kostaði á þriðjudag 353,50 dollara. ERLENT Bæði kvöldblöðin í Stokkhólmi, Aftonbladet og Expressen, höfðu hvort um sig sína söguna að segja um gang rannsóknarinnar nú í vi- kunni. Hefur það leitt til þess, að gagnrýnisraddir hafa látið til sín Bonn, AP. YFIRVÖLD í Austur- og Vestur- Þýskalandi höfðu í gær skipti á njósnurum, að sögn talsmanns vestur-þýsku stjórnarinnar. Einn austur-þýskur njósnari, Hans- jörg Thaten, var framseldur í skiptum fyrir vestur-þýsk hjón, sem ákærð voru í Austur-Þýska- landi fyrir njósnir. Thaten var „ferðanjósnari" fyrir Austur-Þjóðveija og fór hann a.m.k. þijár ferðir yfír landamærin undir dulnefni, til að afla upplýsinga fyrir austur-þýsk stjómvöld. Talsmaðurinn, Friedhelm Ost, neitaði að gefa upp nöfn Vestur- Þjóðveijanna tveggja, en sagði að konan væri sextug að aldri. Hann sagði einnig að hún hefði verið mjög veik og að stjómin hefði unn- ið að því að koma henni yfír Papeete, Tahiti, AP. TVEIR franskir leyniþjónustu- menn, sem fangelsaðir voru á Nýja Sjálandi fyrir ári fyrir að sökkva Rainbow Warrior, skipi Greenpeace, komu til frönsku Kyrrahafseyjarinnar Hao, þar sem þeir dveljast næstu þijú árin. Leyniþjónustumennimir tveir vom látnir lausir fyrir milligöngu Javier Peres de Cuellar, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, gegn skriflegri afsökun af hálfu frönsku stjómarinnar og 7 milljón dollara skaðabótagreiðslu. heyra á ný. Er því haldið fram, að lögreglan eigi enn við mörg vanda- mál að stríða í leitinni að morðingja Olofs Palme. Þannig sé sjálft morð- vopnið eftir sem áður ófundið þrátt fyrir þrotlausa leit. landamærin í langan tíma. Hann tók það fram að ekki væri um að ræða Christu-Karin Schumann, eins og dagblaðið Die Welt hafði spáð að yrði látin laus í skiptunum. Ost neitaði einnig að viðurkenna að njósnaraskiptin stæðu í ein- hveiju sambandi við framsal Herberts Meissner til Austur-Þýskalands, tveimur dögum fyrr. Meissner er hagfræðingur, sem gmnaður var um að hafa stundað njósnir fyrir Austur-Þjóð- veija. Að sögn Osts, vom skiptin hluti af samþykkt sem gerð var í febrú- ar, um fangaskipti Austurs og Vesturs, þar sem m.a. sovéski and- ófsmaðurinn Anatoly Shcharansky, var látinn laus. Frakkamir tveir, maður og kona, vom dæmdir til 10 ára fangelsis- vistar í Nýja Sjálandi í fyrra. Samkvæmt samkomulaginu um framsal þeirra verða þeir að dvelj- ast á Hao í þijú ár. Þar em þeir fijálsir ferða sinna, en er bannað að eiga samskipti við fjölmiðla. í yfírlýsingu, sem franska stjóm- in sendi frá sér í gær, sagði að málinu, sem hefði stórlega skaðað samband Frakka og Nýsjálendinga, væri hér með lokið. Austur- og Vestur-Þýskaland: Höfðu skíptí á njósnurum Nýja-Sjáland: Leyniþjónustumönn- unum frönsku sleppt Noregur: Þrír ferðamenn létust í tveimur slysum á jöklum uppi Ósló. Frá fréttaritara Morgunbladsins. UMFANGSMIKLAR björgunar- aðgerðir fóru fram í Noregi á þriðjudag vegna tveggja hörmu- legra slysa, sem urðu á jöklum uppi. Dönsk kona lét lífið ásamt dóttur sinni, þegar stór hengja brotnaði úr Nigardsjökli í Luster í Sogni. Urðu þær ásamt fímm vestur- þýskum ferðamönnum fyrir íshrönglinu. Skömmu áður en slysið varð, höfðu sjömenningamir gengið fram hjá skilti, þar sem fólk var alvarlega varað við að halda lengra. Þá var einnig gerður út um- fangsmikill björgunarleiðangur á Svörtuísa í Nordland. Þar hafði bresk skólastúlka fallið niður í jök- ulsprungu og kennari hennar einnig skömmu síðar. Tveir breskir kennarar vora ásamt átta nemendum sínum á ferð yfír glerhálan hrygg Austurdals- frerans. Allt í einu missti Carry Summers, 16 ára gömul, fótanna og féll niður í djúpa sprangu á jökl- inum. Annar kennaranna, Barry Daniel, teygði sig í áttina að Beirút, AP. SKRIFSTOFUR A1 Fatah skæru- liða verða á næstunni fluttar frá Jórdaníu til írak og hersveitir þcirra til Súdan, að því er starfs- maður þeirra sagði í Beirút sl. þriðjudag. Ráðamenn írak og Súdan hafa nú samþykkt beiðni Yassers Ara- fat, leiðtoga PLO skæraliðasamtak- anna, þessa efnis. Hann ferðaðist ásamt helsta hernaðarráðgjafa sprangunni í því skyni að reyna að koma stúlkunni til hjálpar, en missti jafnvægið og féll niður í spranguna. Kennarinn fraus í hel síðdegis á þriðjudag, en Carry þraukaði og var henni bjargað upp í þyrlu sjö klukkustundum seinna. sínum, Khalil Wazir, til höfuðborga beggja ríkjanna er Hussein Jórd- aníukonungur lokaði skrifstofum Al Fatah, sem er stærsti hópurinn af þeim átta er mynda PLO-samtök- in, í Amman þ. 7. júlí. Samband Husseins við Arafat hafði verið stirt síðan í febrúar, eftir að tilraunir til samstarfs um friðarviðræður við Israelsmenn höfðu farið út um þúf- ur. Taka við skæruliðunum Lokað vegna sumarleyfa dagana 28. júlí til 6. ágúst. Björn Kristjánsson, heildversiun, Grensásvegi 8. TOPP 10NGÆÐI I BIUNN bílaútvarps- og segulbandstækin sjá þér fyrir hinum einasanna tóni. i «VOt RfV i. w - cr: • SAMYO MCXHA nt30001 Rtw EJCCI F F , MJ : - FliU. AOID Htvtnsg: /-g-A ð* CD "sr -sr SOK 1 ; • ““ '*m _ | BASS TRteit. 8AIANCC ! /- % Jdss et P3 P3 A MANVAL A i J y. J y 2 W . p« pb P6 ~ i FT - 2300 LV-L Fullkomið 40 watta tæki með öllum möguleikum topptækis, FM stereo/mono, LW og MW, 18 stöðva rafeindastýrt minni, rafeindastýrður stöðvaveljari, sjálfvirk afspilun í báðar áttir, o.m.fl. Verð aðeins kr. 21.659,- (20.577. stgr.) L óee 6« óot $ ’ o« >h< « d (h e £ 6 *s 801 K» oa 96 Z8f 88 w — n »os r ,c N* OAfUVHÍ w).,. 3SMJAJkt OihV TWi k/ «31» : rt-. FT - 980 LVN-LN Útvarp með FM stereo/mono, MW og LW. 5 stöðva minni, ýmsar tónstillingar, sjálfvirk afspil- un í báðar áttir, hraðspólun í báðar áttir, með stillingum fyrir cr02 og metal kassettur. Kasstíuui. Verð aðeins kr. 14.963,- (14.215. stgr.) FT-901 LV Útvarp með LW, MW, og FM stereo og mono, auk tónstillinga o.fl. Stereo segulband með afspil- un og hraðspólun áfram. Verð aðeins kr. 8.394.- ( 7.975 stgr.) SANYO og JENSEN hátalarar frá kr. 2.200. Ef þú vilt gott tæki, veldu þá Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 91 35200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.