Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 34

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Mismunandi útsvarsstigar; Frá 9,6% upp í 10,4% af gjaldstofni — Innheimtuhlutfall mismunandi hátt KAUPSTAÐIR landsins nýta lögleyfðar heimildir til álagn- ingar útsvara og fasteigna: skatta á mismunandi hátt. í þriðja tölublaði Sveitarstjómar- mála 1986, sem Samband íslenzkra sveitarfélaga gefur út, eru birtar meðfylgjandi töfl- ur, annarsvegar um álagningu . gjalda til sveitarsjóðs 1986 en hinsvegar um innheimtuhlutfall sveitarsjóðsgjalda 1982—1985. Utsvör til sveitarsjóða eru frá 9,6% af gjaldstofni lægst upp í 10,4%. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði er frá 0,375% af gjaldstofni upp í 0,625%. Vatnsskattar, holræsagjöld og sorphreinsunargjöld eru og mismunandi há. Samkvæmt lögum skal miða fasteignaskatt við fasteigna- mat. Hann skal vera V2% af mati íbúða (ásamt lóðarréttind- um) en 1% af öðrum fasteign- 4um. Heimilt er sveitarsjóði að lækka eða hækka skattinn um allt að 25%. Innheimtuhlutfall (sjá töflu) er miðað við álögð útsvör, að- stöðugjöld og fásteignagjöld, ásamt dráttarvöxtum. Saman- burðurinn er birtur með fyrir- Kaupstaður/Ár 1982 1983 1984 1985 1. Reykjavik 72.1 75,0 73,7 72,0 2. Kópavogur 84,9 85,6 83,9 79,6 3. Seltjarnarnes 77,7 80,4 82,0 76,1 4. Garðabær 85,7 85,8 85.0 73,5 5. Hafnarfjörður 78,6 80,3 75,5 75,1 6. Grindavik 65,1 64,9 64,6 66,2 7. Keflavík 76,2 80,6 78,0 75,4 8. Njárðvík 66,8 78,9 85,7 80,9 9. Akranes 91,8 91,8 90,9 93,8 10. Ólafsvik 75,8 79,3 50,8 11. Bolungarvík 88,5 84,5 88,2 85,7 12. Isafjörður 84,2 81,4 78,2 78,8 13. Sauðárkrókur 87,6 89,2 84,8 91,1 14. Siglufjörður 88,7 87,7 91,9 84,1 15. Ólafsfjöröur 95,8 92,9 89,0 87,9 16. Dalvík 88,5 89,1 92,5 92,8 17. Akureyri 91,7 92,2 91,3 91,2 18. Húsavik 95,5 94,4 90,3 93,9 19. Seyðisfjörður 84,2 90,5 76,6 80,7 20. Neskaupstaður 92,1 91,1 94,2 95,1 21. Eskifjörður 92,1 81,3 83,9 93,1 22. Vestmannaeyjar 80,2 83,3 79,1 78,9 23. Selfoss 88,3 88,7 90,5 90,4 vara þar eð „óraunhæfar áætlanir geta skekkt inn- heimtuhlutfallið" og mismun- andi reglur kunna að gilda um afskriftir eldri gjalda. Útsvar % Fasteignaskattur a-lid % b-lid % Ó 9/ Vatnssk. d. %fm Holræsa- gjald Sorphr. - gjald 1. Reykjavik 10.2 0.421 1.25 3 0.13 _ 250 2. Kópavogur 10.2 0.425 1.15 5 0.13 0.625 620 3. Seltjarnarnes 9.6 0.375 1.0 3 0.15 - 400 4. Garðabær 9.8 0.375 0.75 3 0.15 - 800 5. Hafnarfjörður 9.9 0.375 1.0 3 0.125 0.04 6. Grindavík 10.4 0.5 1.0 ? 0.15 0.1 600 7. Keflavík 10.2 0.5 1.0 3 0.15 0.75 8. Njarðvík 10.2 0.455 1.0 5 0.2 0.055 600 9. Akranes 10.4 0.5 1.0 5 0.12 0.11 850 10. Ólafsvík 10.4 0.625 1.25 3 0.1 0.11 1.000 11. Bolungarvík 10.4 0.5 1.0 5 0.19 0.15 920 12. isafjörður 10.4 0.5 1.2 5 0.2 0.16 970 13. Sauðárkrókur 10.4 0.59 1.118 5 0.2 0.12 1.053 14. Siglufjörður 10.4 0.625 1.25 3 0.3 0.15 700 15. Ólafsfjörður 10.4 0.625 1.25 5 0.16 0.1 16. Dalvík 10.4 0.625 1.25 5 0.18 - 1.000 17. Akureyri 10.2 0.575 1.25 5 0.18 0.12 18. Húsavík 10.4 0.5 1.0 5 0.2 0.15 630 19. Seyðisfjörður 10.4 0.55 1.1 3 0.25 0.15 715 20. Neskaupstaður 10.4 0.625 1.25 3 0.27 0.15 21. Eskifjörður 10.4 0.5 1.0 4 0.2 0.15 22. Vestmannaeyjar 10.2 0.5 1.0 4 0.15-.03 - 23. Selfoss 10.4 0.625 1.25 5 0.15 0.075 480 Morgunblaðið/Jakob Ágústsson Frá vígslu slysavarnahússins f.v. Jakob Ágústsson, formaður slysavarnadeildar karla, Sigrún Jóns- dóttir formaður slysavarnadeildar kvenna, Guðni Aðalsteinsson formaður björgunarsveitarinnar Tinds og Haraldur Henrýsson forseti Slysavarnafélags íslands. Þann 20. júlí sl. voru merk tímamót í sögu slysavamasveit- anna i Ólafsfirði, en þá fór fram vígsla á slysavarnahúsi. Það er 260 fermetrar að stærð, á tveim hæðum og er allur frá- gangur hinn vandaðasti. Þetta hús er í senn björgunar- stöð og félagsheimili fyrir slysa- varnadeildimar tvær á Ólafsfirði, Slysavamadeild karla og slysa- vamadeild kvenna. Gestir við athöfnina voru Haraldur Henr- ýsson forseti Slysavarnafélags Islands, og Hannes _ Hafstein framkvæmdastjóri SVFÍ og konur þeirra. Ennfremur voru fulltrúar slysavamadeildanna í nágranna- byggðalögunum viðstaddir vígsluna. Hún hófst með því að Guðni Aðalsteinsson, formaður björgun- arsveitarinnar Tinds á Ólafsfirði bauð gesti velkomna. Þá blessaði sóknarpresturinn í Hrísey, sr. Helgi Hróbjartsson, húsið og gaf því nafnið „Sandhóll", en svo hét fyrsta húsið sem var reist á Ólafs- firði. Þá rakti formaður bygginga- nefndarinnar, frú Bima Friðgeirs- dóttir byggingasögu hússins, en smíðin hófst á vordögum 1979. í máli hennar kom fram að nær öll vinna við húsið var unnin í sjálf- boðavinnu, og að slysavamadeild- imar í Ólafsfirði hafi notið einstaks velvilja fyrirtækja og ein- staklinga á staðnum sem hafi stutt bygginguna með efnis- og peningagjöfum. Þá afhenti hún húsið forseta Slysavamafélags íslands til eign- ar, en hann afhenti það aftur formönnum deildanna á Ólafs- fírði, Sigrúnu Jónsdóttur og Jakob Ágústssyni, húsið til rekstrar og varðveislu. Jakob Nýja slysavarnahúsið á Ólafsfirði er hið vandaðasta hús, 260 fermetrar á tveim hæðum. Bygging- in var hafin 1979 og var húsið nær eingöngu reist i sjálfboðavinnu. r 1 | n "H ! 1 ; r^i "tfKk Nýbygging Fjölbrauta- skólans risin á Selfossi Selfotwi. VERKTAKAR í nýbyggingu Fjöl- brautaskóla Suðurlands sem rís við Tryggvagötu á Selfossi, tóku sér kaffitíma af lengri gerðinni sl. föstudag 18. júlí í tilefni þess að lokið var við að reisa sperrur í þaki skólans. Sperrumar era óvenjulegar að því leyti að þær bera uppi 550 m 2 glerþak húss- ins sem setur mikinn svip á bygginguna. I byijun þessa árs var áætlað að unnt væri að heíja kennslu í hluta nýbyggingarinnar 1. september en ljóst þykir að ekki verður af því þó svo unnið sé af kappi við marga verkþætti í einu, en um áramót ætti að vera unnt að taka hluta Morgunblaðið/Sig. Jóns. Hópurinn sem vinnur við bygginguna. Aðalverktaki er Sigfús Krist- insson byggingameistari. Nýbygging Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi risin. Glerþak setur svip sinn á bygginguna. hússins í notkun. Nú er unnið við að loka húsinu, við pípulögn, múrverk og loftræst- ingu svo nokkrir verkþættir séu nefndir. Alls vinna við bygginguna 25 menn og aðalverktaki er Sigfús Kristinsson byggingameistari á Sel- fossi. Ekki verður látið staðar numið þó svo hluti hússins verði tekinn í notkun því áformað er að halda áfram með þann hluta sem eftir er og síðan er að mati skólamanna nauðsynlegt að hefjast handa við byggingu síðari áfangans strax og þeim fyrri er lokið en það er jafn stór bygging sem tengist austurhlið þeirrar sem nú rís. Þess ber að geta að þrátt fyrir húsnæðisleysi hefur nemendum farið fjölgandi í skólanum og heldur fjölgunin að öllum líkindum áfram á komandi skólaári sem sýnir nauðsyn bygg- ingarinnar. Sig Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.