Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 45
r
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
Myndasaga frá
Islandsmeistara-
mótinu í vélflugi
___________Flug_____________
Gunnar Þorsteinsson
Hér í Morgunblaðinu í fyrradag
var sagt frá Islandsmeistaramótinu
í vélflugi sem fram fór á Blönduósi
um síðustu helgi. Ennfremur var
ítarlega greint frá úrslitum mótsins.
íslandsmeistaramótið í vélflugi
er nú liður í 50 ára afmælisdagskrá
Flugmálafélags íslands og er
tvímælalaust hápunktur ársins í
vélflugi.
Þar sem þessu nýafstaðna móti
hafa þegar verið gerð skil í rituðu
máli hér í blaðinu þá verða ljós-
myndir frá Blönduósflugvelli látnar
tala að þessu sinni. Það er margt
skemmtilegt myndefnið á slíkri
flugkeppni og meðfylgjandi ljós-
myndir tók Ólafur Bragason.
Þór Mýrdal á TF AIE af gerðinni Navion A rennir sér lágt yfir
svæðið. Gömul, vígaleg og kraftmikil vél sem hér á árum áður var
í eigu Flugmálastjómar.
Jón E.B. Guðmundsson, flugvélstjóri hjá Fiugleiðum, sigraði örugg-
lega í lendingarkeppninni og hlaut aðeins 27 refsistig. Hér leggur
hann í ’ann. Sjálfur á Jón Beechcraft sem hann skildi eftir á Krókn-
um þar sem hann fékk þessa Cessnu 150 lánaða, taldi betra að keppa
á henni enda minni og hægfleygari vél en hans eigin.
'**■ '.. V; , ■
Þeir sem háðu einvigið um íslandsmeistaratitilinn í vélflugi ásamt forsvarsmönnum mótsins. Aftasta
röð frá vinstri: Vilhjálmur H. Gislason (GEV = lauk ekki keppni), Jón E.B. Guðmundsson (SKA = 778
refsistig), Jónas Þ. Sigurgeirsson (MAY = 647), Jón Ketilsson (LWF = 695), Auðunn Blöndal (KEM =
1125), Orri Eiríksson (PLA = 199), Guðmundur Ásgeirsson (GAG = 906), Ragnar J. Ragnarsson (RJR =
506), Þór Mýrdal (AIE = 20209), Niels J. Kristjánsson (TWO = 401), Björa Kristjánsson (UNA = 718).
Miðröð frá vinstri: Birgir Ingólfsson, formaður Flugklúbbsins Hauka á Blönduósi, Sverrir Kristófersson
flugvallarvörður og hreppstjóri Blönduóshrepps, Davíð Jóhannsson úr mótsstjóra. Fremsta röð frá
vinstri: Friðrik Pálsson, formaður Flugmálafélags íslands, Jón Grímsson mótsstjóri, Mogens Taagard
yfirdómari. Fremst era sigurlaunin, Shell-bikarinn.
4»
SU M ARÚTSALAN
ER HAFIN
Dömupeysur — Herrapeysur — Barnapeysur — Dömublússur-
og buxur. 30—60% verðlækkun
Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 9.00—18.00
> y PRJÓNAST0FAN
Uduntu
Verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi.