Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
47
' t; ,•
geðprúður en nokkuð djúpur í kverk
eins og margir Hrafnssynir eru.
Höður 954 frá Hvoli varð fjórði, en
hann kom lítið við sögu á þessu
móti þar sem hann hafði veikst af
lifrarbólgu skömmu fyrir mótið en
ekki er ósennilegt að hann hefði
hnikað sér eitthvað hærra ef ekki
hefðu komið til þessi veikindi.
Fimm vetra hestamir voru sex
talsins og þar báru höfuð og herðar
yfir aðra hesta þeir Kjarval 1025
og Ljóri 1022. Kjarval sló eftir-
minnilega í gegn á sýningu Stóð-
hestastöðvarinnar í vor og voru
menn á einu máli um að ekki hefði
fram að þessu komið fram kosta-
betri unghestur. En það var líkt
með hann og Viðar að hann var
ekki svipur hjá sjón miðað við sýn-
inguna í vor. Ekki ætti þetta þó
að kasta rýrð á þennan kostagrip
eða minnka vinsældir hans, sem eru
miklar þessa dagana ef marka má
ásóknina í að koma hryssum til
hans. Kjarval hlaut 8.70 í einkunn
fyrir hæfileika og má mikið vera
ef nokkur fimm vetra hestur hefur
náð svo langt upp einkunnastigann.
Fyrir tölt fékk hann 8.5, brokk 9.0,
skeið 8.5, stökk 8.5, vilja 9.0, geðs-
lag 9.0 og fyrir fegurð í reið 8.5.
Fyrir byggingu fékk hann 7.94 og
aðaleinkunn 8.32. Ljóri varð annar
eins og áður segir með 8.23 og
Kolfinnur 1020 frá Kjamholtum
með 8.14.
Af fjögra vetra stóðhestum stóð
efstur hálfbróðir Kjarvals, Otur
1050 frá Sauðárkróki. Það er
kannski fullsnemmt að spá um það
hvort hann standi stóra bróður á
sporði en ekki fór milli mála að
hann á eftir að láta að sér kveða
með meiri þroska. Næstur kom
Gassi 1036 frá Vorsabæ, fallegur
hestur undan Hrafni 802 en ekki
eins hæfileikamikill og Otur enn
sem komið er. Gassi hlaut 8.01 og
voru menn nokkuð spenntir að vita
hvor þeirra stæði ofar. Angi 1035
frá Laugarvatni varð svo þriðji með
7.94.
í umræðu um hrossarækt og
kynbótasýningar hafa ýmsir lýst
þeirri skoðun sinni að minnka beri
kröfumar til ungu hrossanna og
kom Þorkell Bjarnason inn á þetta
í máli sínu meðan á sýningu stóð.
Nefndi hann þann möguleika að
hætt verði að taka fjögra vetra
hross inn á Lands- og fjórðungs-
mót. Ekki er því að neita að
mörgum ofbýður sú mikla reið sem
hrossum á þessum aldri er boðið
upp á og tæplega er hægt að kenna
reiðmönnunum um því þeir eru að
sjálfsögðu undir mikilli pressu frá
áhorfendum, dómnefndarmönnum
og kannski ekki síst eigendum
hrossanna. Væri i þessu sambandi
góð byijun að afnema skeiðið úr
dómskala fyrir ijögra vetra hrossin.
Skal nú látið hér staðar numið í
umQöllun um kynbótasýningu
Landsmótsins en síðar verður fjall-
að um hiyssumar og ræktunar-
hópssýninguna.
Hvorki fleiri né færri en fjórtán afkvæmi voru sýnd með Náttfara 776 ení dómnum voru þau tólf.
Náttfari er lengst til vinstri.
Stjörnurnar nokkuð
frá sínu besta
Alls hlutu tuttugu og sex stóð-
hestar dóm sem einstaklingar og
bar sýningin á þeim vitni um hið
mikla úrval stóðhesta sem völ er á
í dag. Flestir hafa þessir hestar
komið fram á sýningum áður nema
ijögra vetra hestamir. Átján hestar
hlutu fyrstu verðlaun og þar af all-
ir elstu hestamir þrettán að tölu.
En reynslan hefur sýnt að þó hest-
ar fái fyrstu verðlaun er ekki þar
með sagt að þeir séu góðir undan-
eldisgripir og má búast við eins og
verið hefur að eitthvað af þessum
hestum eigi eftir að missa eistun
eða verða lítið notaðir. En þama
komu líka fram hestar sem binda
má miklar vonir við og sennilega á
það við um meirihlutann.
Af elstu stóðhestunum hlaut
hæstu einkunn, 8.31, Viðar 979 frá
Viðvík en hann hefur komið fram
á sýningum árlega síðan hann var
á Stóðhestastöðinni fjögra vetra
gamall. í fyrra stóð hann efstur í
flokki sex vetra hesta og eldri á
fjórðungsmótinu í Reykjavík. Viðar
hefur sýnt svo ekki verður um villst
að hann er afbragðs góðum reið-
mun ástæðan sú að fleiri þættir em
teknir með í tölvuspána en dómur
á ákveðnum fjölda afkvæma.
Þrjár hryssur í
heiöursverðlaun
Af þeim átta hryssum sem sýnd-
ar vom með afkvæmum náðu þtjár
heiðursverðlaunum, þær Hrafn-
hetta 3791 frá Sauðárkróki, Nótt
3733 frá Kröggólfsstöðum og Nýpa
3287 frá Oddhóli. Til að hljóta heið-
ursverðlaun þarf ijögur afkvæmi í
dóminn sem ná samanlagt 8.10 í
einkunn. Eins og við var búist varð
Hrafnhetta efst með 8.16 en hinar
tvær jafnar með 8.11. Hrafnhetta
á að baki glæstan feril í kynbóta-
sýningum, stóð efst af sex vetra
hryssum og eldri á Landsmótinu ’74
og efst með afkvæmum á Lands-
mótinu ’82. Hennar þekktasta
afkvæmi er án efa Kjarval 1025
sem efstur stóð í flokki fimm vetra
stóðhesta á mótinu nú. Sigurbjöm
á Stóra-Hofí á hinar tvær hryssum-
ar og er þar góðum árangri náð í
hrossaræktinni á Stóra-Hofí. Nótt
var sýnd ’72 og hlaut þá fyrstu
verðlaun sem einstaklingur, sfðan
var hún sýnd með afkvæmum á
fjórðungsmótinu í Reylqavík í fyrra
og stóð þá efst. Ferill Nýpu er hins-
vegar fátæklegri en hinna tveggja
því hún er ótamin og hefur aldrei
komið fram á sýningu áður og má
segja að þar sé hlaupið yfír margar
blaðsíður á leiðinni til lokatak-
marksins. Fimm hryssur kepptu til
fyrstu verðlauna og stóð þar efst
Sif 4035 frá Laugarvatni en hún
hlaut 8.07 í einkunn. Önnur varð
svo Freyja 3996 frá Stóra-Hofi en
hún er dóttir Nýpu sem hér var
áður getið. Freyja var með 7.97,
sömu einkunn og Frigg 3699 frá
Laugarvatni. Næstar komu svo
Litla-Jörp 4120 frá Reykjum með
7.93 og Rauðka 6324 frá Fögm-
brekku með 7.92. Þijú afkvæmi
fylgdu þessum hryssum og þurftu
þær að ná 7.90 til að ná fyrstu
verðlaunum.
hestakostum búinn en nú var hann
ekki svipur hjá sjón og miðað við
það átti hann tæpast skilið efsta
sætið. Var hann greinilega ofþjálf-
aður. í forskoðun mun hann hafa
sýnt allar sínar bestu hliðar og þá
var spumingin hvort dómnefndin
ætti að fella hann í einkunn á mót-
inu sem þeir ekki gerðu. Er þetta
reyndar spuming um gmndvallar-
vinnubrögð hjá dómnefndum og
sýnist sjálfsagt sitt hvetjum. A
málinu em tvær hliðar, annarsvegar
að láta einkunn úr forskoðun halda
sér eða hitt, að dæma hrossin eins
og þau koma fyrir hveiju sinni og
láta það standa, sama hvað á undan
er gengið. En næstur Viðari kom
Flosi 966 frá Bmnnum, bjartasta
von Homfirðinga og sýndi hann svo
ekki var um vilist að þar fór geðgóð-
ur vilja- og getuhestur. Flosi hlaut
í einkunn 8.24 og hækkar hann sig
nokkuð frá fjórðungsmótinu á
Fornustekkum ’84. Þriðji var svo
Adam 978 frá Meðalfelli sem var
samtíða Viðari á Stóðhestastöðinni
en hann var hinsvegar ekki sýndur
á fjórðungsmótinu í fyrra. Adam
er ákaflega hreyfingafallegur og
Hjá Sláturfélaginu
færðu allt í grillveisluna
og að auki fylgja hér
nokkur heilræði
um steikingu á teini
Þú færð allar tegundir af góðu kjöti á grillið, vínar- og
medisterpylsumar okkar vinsælu, kol, grillollu, ótal
tegundir af kryddi, grænmeti og öðru meðlæti sem
þarf til að útbúa girnilega grillveislu.
Heilræði um steikingu á teini
Allt kjöt, fisk, brauð og grænmeti má glóða á teini, en
það er ekki sama hvemig það er gert. Best er að
smyrja teininn vel áður en þrætt er á hann. Grænmetið
er gott aö skera (aöeins stærri bita en kjötið svo það
verði ekki ofsteikt þegar kjötið er tilbúið. Teinamat á
Ifka alltaf að pensla áður en hann er settur á grillið -
annars ofþomar hann og skorpnar. Best er að nota
grillolíu eða kryddlög. Lögurinn gerir matinn meyran
og bragðgóðan, og hann er tilvalið að nota sem sósu
á eftir. Varast ber að stinga í kjötið á teininum - þá
lekur gómsætur safinn úr, og ekki er ráðlegt að strá
salti á kjötið fyrr en eftir að steikingu er lokið.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
tylVs Stek> &
'.ir-. .«5*,- fcti) f kSf1- (
**i,- ‘»ÍI-SSrrm‘Jt**rv^.t......*tAx*>*&*W** ...JL
'ÁBASCC
$
3Sbm